Þjóðviljinn - 19.06.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 19. júnl 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
Libanon
Útlendingar flýja
Beirut 18/6 reuter ntb — Bilalest meö útlendinga sem vildu yfir-
gefa Beirut fór I dag frá borginni I austurátt, um yfirráöasvæði
bæöi sýriendinga og palestinumanna og komst klakklaust til
Damaskus þar sem flugvél flutti fólkiö til Vesturlanda.
í lestinni voru 20 bilar en i einum voru lik tveggja bandariskra
sendiráðsstarfsmanna sem myrtir voru á miövikudaginn. Þaö
var breska sendiráðið sem skipulagði bilalestina og er fyrirhug-
að aö önnur fari þegar nógu margir hafa fengist i bilana. Ford
forseti Bandarikjanna fyrirskipaði embættismönnum slnum I
Libanon að koma sér þegar i stað úr landi og beindi samskonar
áskorun til allra bandariskra þegna I landinu en þeir munu vera
um 1.900 talsins.
Ekki var barist mikið i Libanon I dag en til átaka kom þó á
tveimur stöðum. Vinstrimenn og palestlnumenn börðust við sýr-
lendinga i hafnarborginni Sidon og við hægrimenn i austurhluta
Beirut þar sem hægrimenn hafa haldið tveim hverfum
múhameðstrúarmanna i herkvl I margar vikur. Þá hermdu
fréttir að sýrlendingar hefðu gert loftárásir á stöðvar óvina
sinna I Sidon.
Neyðarástand i Buenos Aires
Lögreglustjóri myrtur
Buenos Aires 18/6 reuter —Neyðarástandi var lýst yfir i Buenos
Aires i dag eftir að yfirmaður rikislögreglu Argentlnu lést af
völdum sprengingar sem varð á heimili hans.
Sprengjan sprakk inni I ibúð yfirmannsins, Cesaro Cardozo, en
hún er i vel vörðu fjölbýlishúsi þar sem fjöldi herforingja býr.
Hersveitir umkringdu húsið þegar I stað og vegatálmanir voru
settar upp við alla vegi sem liggja út úr borginni. Sprengjan
hefur veriö sett af stað úr fjarlægö en drunurnar úr henni heyrö-
ust langar leiðir. Kona Cardozo og dóttir særðust.
Cardozo var skipaður i embætti rikislögreglustjóra viku eftir
uppreisn herforingja landsins gegn stjórn Isabelu Peron. Hann
er annar maöurinn i þessu embætti sem er myrtur á tæpum
tveimur árum. 4. nóvember 1974 var forveri hans, Alberto
Villar, drepinn um borð i lystisnekkju sinni. Montoneros-skæru-
liðasamtökin tóku á sig ábyrgð á þvi morði.
Veðurfar fer
hlýnandi
Genf 18/6 reuter — A fundi Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar
(WMO) I Genf kom fram i dag að brennsla kola og oliu til húsa-
hitunar og iðnaðarnota hefur hitað upp loftslagiö I heiminum og
getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir matvælaframleiðslu.
1 skýrslu sem lögð var fyrir fundinn kom fram að magn koltvl-
sýrings I andrúmsloftinu hefur aukist um 10% slðastliðna öld
vegna notkunar steinefna sem eldsneytis. Ef áfram heldur sem
horfir getur þetta hlutfall stórhækkað á næstunni og hitað upp
andrúmsloftið.
Einn af forsvarsmönnum WMO sagði að búast mætti við allt að
þriggja gráðu hitaaukningu. 1 skýrslunni segir að „jafnvel smá
vægilegar breytingar á loftslaginu muni hafa alvarlegar
afleiðingar, félagslegar og efnahagslegar”, einkum á þeim
svæðum sem matvæli og ull eru framleidd og breytingum á fiski-
stofnum og skóglendi.
Kaffi þjóðnýtt
í Angóla
Luanda 18/6 reuter —Stjórnvöld I Angólu hafa ákveðið að þjóð-
nýta 36 fyrirtæki sem starfa I landbúnaöi, þar af kaffiekrur sem
þekja svo til heilt hérað og voru I eigu eins fyrirtækis.
Samtlmis var tilkynnt að þjóðnýtt yrðu öll mannvirki þeirra
manna sem dveljast utanlands lengur en I 45 daga án þess að
hafa til þess haldbæra ástæðu eða þeirra sem störfuðu með
fasistunum. Geysimörg hús standa nú auð eftir að eigendur
þeirra flýðu til Portúgals áður en landið öðiaðist sjálfstæði 11.
nóvember I haust.
Forsætisráðherra landsins, Lopo de Nascimento, sem tilkynnti
þjóðnýtingarnar sagði að stærsta fyrirtækið væri CADA og væri
það stærsta kaffisamsteypa i Angólu og ein sú stærsta I heim-
inum. Að sögn blaðsins Jornal de Angola átti fyrirtækiö 15
þúsund hektara lands eða svo til allt heraðið Suður-Kuanza.
Nascimentó sagði að nú yrðu fyrirtækin þjóðnýtt rikisrekin.
Carlos Fernandes landbúnaðarráðherra sagði nýlega að það
væri undir flutningum og skipulagningu komið hversu mikil
kaffiuppskeran verður I ár. Ef allt gengi að óskum yrði
uppskeran — sem undanfarin ár hefur verið um 200 þúsund tonn
— i mesta lagi 20% minni en venjulega. Mikill skortur rikir nú á
flutningatækjum á landi og margir vegir og brýr eru ónýtar af
völdum striðsins.
Ítalía:
Kosningabaráttu lýkur
Róm 18/6 reuter — Hinni opin-
beru kosningabaráttu á Italiu
lýkur i kvöld, föstudag, en á
morgun verður kjósendum gefið
tóm til að hugsa sinn gang áður en
þeir ganga til atkvæða á sunnu-
dag og mánudag.
Stærstu flokkar landsins,
kommúnistar og kristilegir
demókratar, héldu báðir útifundi
i Róm i dag. Þessir tveir flokkar
eru nú svo til hnifjafnir i skoðana-
könnunum og það er ein stærsta
spurningin sem kosningarnar
munu svara hvor þeirra verður
stærri að þeim loknum. Kristi-
legir hafa haldið þeim sessi frá
striðslokum en kommúnistar
hafa sigið mjög á þá að undan-
förnu.
Berlinguer leiðtogi kommún-
ista hefur lagt á það höfuðáherslu
i baráttu siöustu vikna að eftir
kosningar verði að mynda þjóð-
lega bjargráðastjórn með þátt-
töku allra flokka. Kristilegir hafa
staðfastlega hafnað þessari hug-
mynd sem og öllu samstarfi við
kommúnista.
Sósialistar hafa hins vegar
hafnað öllum hugmyndum um
stjórnarmyndun án þess leitað sé
samráðs við kommúnista. Það
gæti þvi orðið erfitt um stjórnar-
myndun að kosningum loknum
þvi svo getur farið að vinstri-
flokkarnir fái meirihluta atkvæða
og þingmanna.
Orslit munu ekki byrja að ber-
ast fyrr en á mánudagskvöld.
Sigrún, Gestur og Guöný klæddu vinnustofuna sina I sparifötin og opnuðu þar sýningu, en þetta er I ann-
að sinn, sem sýning er haldin á þessum stað. Mynd: — gsp
Keramik-vinnustofan
fór í spariklæðnaðinn
og hýsir nú keramik- og
postulinsverk Sigrúnar,
Björns og Guðnýjar
1 dag opna þau hjónin Sigrún
Guðjónsdóttir og Gestur
Þorgrhnsson ásamt Guðnýju
Magnúsdóttur sýningu i kera-
mikvinnustofu sinni að Laugar-
ásvegi númer 7. „Vinnustofu-
sýningar” þykja jafnan nokkuð
skemmtilegar þvi jafnframt
möguleikum á að skoða faileg
verk er hægt að sjá hvernig þau
fæðast og hvaða tækjabúnað
þarf til. Þarna er sýnt innan um
brennsluofna og rennibekki og
eru öll verkin til sölu.
Framlag Sigrúnar til sýning-
arinnar er allar þær postulins-
myndir, sem þar eru sýndar, en
þau Gestur og Guðný leggja
fram keramikið. Guðný
Magnúsdóttir sýnir verk sfn i
fyrsta sinn, utan hvað hún tók
þátt i nýafstaðinni listiðnaðar-
sýningu. Hún útskrifaðist fyrir
tveimur árum úr Myndlistar-
skólanum og hefur siðan unnið
með þeim Sigrúnu og Gesti á
vinnustofu þeirra.
Meðal munanna á sýningunni
má nefna hluti sem brenndir eru
eftir ævafomri japanskri „upp-
skrift”. Hún framkallar hreina
koparhúð úr leirnum eftir að
hann hefur verið hitaður i 800
stig og siðan settur ofan I loft-
þéttan kassa, fullan af sagi, sem
að sjálfsögðu sklðlogar þegar
hlutnum er stungiðofan i. Þykir
listin sú hin fegursta.
Sýningin er opin daglega frá
klukkan 4-10 nema um helgar,
en þá er opið frá klukkan 2-10.
Siðasti sýningardagur er
laugardagurinn 2. júh’.
—gsp
Menningarmálanefnd Norðurlandaráðs:
Hélt fund á Húsavík
1 gær lauk fimm daga fundi
Menningarmálanefndar Norður-
landaráðs en hann var haldinn á
Húsavik. Þessir fundir eru
haldnir tvisvar á ári til skiptis á
N or ðurlöndunum.
Formaður nefndarinnar, Gylfi
Þ. Gislason, skýrði blaðamönnum
frá þvi að af öllu norrænu sam-
starfi væri samvinnan á sviði
menningarmála sú elsta og
viðtækasta. Nefndin starfar á
grundvelli millirikjasamnings
sem undirritaður var I Helsinki
1971. Gerir hann ma. ráð fyrir
sameiginlegri fjárlagagerð i
menningarmálum.
1 ár nema þessi fjárlög 1.500
miljónum islenskra króna.
Stærstu útgjaldaliðirnir eru
visindarannsóknir (þám. rekstur
Norrænu eldfjallarannsókna-
stöðvarinnar i Reykjavik og
rannsóknastofnun á sviði kjarn-
orku i Danmörku) en þær gleyptu
460 miljónir. Til mennta- og
skólamála runnu 175 miljónir,
sama upphæð til almennra
menningarmála (þám. rekstur
Norræna hússins) og til Norræna
menningarsjóðsins 180 miljónir.
Aðrir liðir eru að ráðuneytin fá
samtals 135 miljónir til ráð-
stöfunar og rekstur skrifstofu i
Kaupmannahöfn kostar 100
miljónir ár.
Þetta fé annar þó engan veginn
þeirri eftirspurn sem rikir. Til
dæmis kom það fram að umsókn-
ir um styrki úr menningar-
sjóðnum námu tifalt hærri
upphæð en hægt var að veita.
Eins og áður segir hittist
nefndin tvisvar á ári. A öðrum
fundinum er rætt um almennt
menningarstarf en á hinum eru
fjárlögin rædd. A fundinum á
Húsavik voru þau á dagskrá. Þar
var samþykkt að auka fjárveit-
ingar til menningarsjóösins.
Tillögur nefndarinnar eru síöan
lagðar fyrir ráðherra sem verða
að samþykkja þær. Næsti fundur
með ráðherrum verður i
september nk.
Af öðrum samþykktum
fundarins má nefna fjárveitingu
til iþróttasamstarfs en hún hefur
ekki verið á fjárlögum fram til
þessa. Einnig var það vilji
nefndarinnar að auka aðstoð við
félagasamtök ýmiss konar.
Gyifi sagði að nefndin gæti nú
glaðst yfir þvl að ýmis gömul
áhugamál hennar eru að komast i
framkvæmd. Nefndi hann þar
norrænt hús i Þórshöfn I Fær-
eyjum en fyrsta fjárveitingin til
þess er á fjárlögum 1978. Norræn
þýðingarmiðstöð er tekin til
starfa og samþykkt hefur verið að
reisa menningarmiðstöð i Finn-
landi. — Það má þvi segja að
starfið hafi borið góðan árangur,
bætti Gylfi við.
1 nefndinni eiga sæti 17 manns,
fjórir frá hverju hinna Norður-
landanna og einn frá Islandi.
—ÞH