Þjóðviljinn - 19.06.1976, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 19.06.1976, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júní 1976 V-þ j óð verj ar unnu júgó- slava 4:2 í framlengdum leik V-þjóöverjar sigruðu júgóslava 4:2 i undanúrslitum Evrópu- keppni landsiiða eftir að jafnt hafði verið 2:2 að venjuiegum leiktima loknum. Þá var fram- lengt og skoruðu þjóðverjarnir þá 2 mörk en júgóslavar ekkert. Þetta tap sviður júgósiövum mjög, vegna þess aö I leikhléi höfðu þeir forystu 2:0. og þar að auki fór leikurinn fram i Júgó- slaviu. Með þessum sigri tryggðu þjóöverjarnir sér sæti I úrsiitum keppninnar og mæta þar tékkum, sem mjög óvænt sigruöu holiendinga sl. miðvikudagskvöld 3:l.einnig eftir framlengdan leik; staðan eftir venjulegan leiktima var 1:1. A 19. min. tóku júgóslavar for- ystu með marki Danilo Popivoda og á 31. min. skoraöi Dragan Dzajic 2. markið. Og þannig var staðan i leikhléi. Júgóslavarnir áttu mun meira i fyrri hálfleik og flestir bjuggust við auðveldum sigri þeirra. En i siðari hálfleik snerist dæmið viö. Þjóðverjarnir tóku öll völd og það var engu likara en júgoslavarnir væru úti á þekju. og leika því til úrslita við tékka í Evrópukeppni landsliða Þýski leikmaðurinn Flohe, sem kom inná i siðari hálfleik skoraði fyrsta mark þjóðverja á 65. min. með þrumuskoti utarlega úr vita- teignum. Og 11 minútum fyrir leikslok jafnaði hetja þýska liðsins Dieter Miiller. Það virðist þvi sem einhver gæfa fylgi Möllers - nafninu i þýskri knatt- spyrnu; allir þekkja Gerd Miiller, sem er hættur að leika með þýska landsliðinu. Það var nefnilega þessi Dieter Múller sem skoraöi bæði mörk þýska liðsins i framlengingunni, þann. að hann var með þrennu i þessum fyrsta landsleik sinum og það ekki i þýðingarminni leik en þessum. Hollendingar og júgóslavar leika um 3. sæti keppninnar i dag, en úrslitaleikurinn milli tékka og þjóðverja fer fram á morgun. — S. dór Sigurður efstur í stiga- keppni GSÍ Hinn ungi og efnilegi golf- maður, Sigurður Thorarensen, er nú efstur I Stigakeppni GSI, en sam- kvæmt þessari stigagjöf eru menn valdir I landsliðið I golfi hverju sinni,eöa þannig á það að vera samkvæmt reglum GSl. Þegar hafa farið fram tvö golfmót sem gefa stig og er Þorbjörn Kjærbo efstur að þeim loknum, en Sigurður I öðru sæti, en samkvæmt regl- um GSI á að bæta viö 20% stiga úr þremur bestu mótum hvers keppanda frá 1. okt. árið áður, og eftir að það hefur nú verið gert Htur röð efstu manna i stigakeppninni I ár þannig út: 1. Sig., Thorarensen GK 64.59 2. Þorbjörn KjærboGS 64.52 3. Ragnar ólafsson GR 60.01 4. Björgvin Þorsteinsson GA 47.20 5. Geir Svansson GR 33.83 6. Einar Guðnason GR 33.54 7. óttar Yngvason GR 31.29 Sigurður Thorarensen 8. Hallur Þórmundsson GS 26.35 9. Jóhann R. KjærboGS 20.15 10. Þórhallur Hólmgeirsson GS 18.26 Næsta stigamót GSt er Pierre Robert keppnin á Nes- velli nk. sunnud. 20. júni. Fyrsta verkefni landsliðs GSl 1976 er landskeppni við Lux- embourg dagana 3.-4. júlf n.k. Friðrik Þór stekkur 7,09 m. I langstökki. (Ljósm. S.dór) Rok og kuldi eyði- lagði 17.-júnímótið í frjálsum íþróttum Friðrik Þór Óskarsson var tvímælalaust maður mótsins, stökk yfir 15m. í þrístökki og 7m. í langstökki Gárungar hafa sagt, að ekki megi auglýsa frjálsiþróttamót fyrirfram hér á landi, heldur eigi að reyna að koma veðurguðunum á óvart með frjálsiþróttamót vegna þess að hvenær sem slik mót eru haldin sé vont veöur. Þeir sem hafa fylgst með frjáls- iþróttamótum I vor og sumar geta sjálfsagt tekið undir þetta. Og það varð engin breyting á 17. júni, meðan þjóðhátiðarmótið I frjáls- um fór fram. En svo einkennilegt sem það er, þá snarlygndi og hlýnaði eins og tjald væri dregið fyrir um leið og siðustu grein mótsins lauk I fyrradag. Hjátrú- arfullir fengu þarna byr undir báöa vængi. Rokið og sá nistings- kuldi sem var meðan mótið fór fram, kom algerlega I veg fyrir góðan árangur. Það er ekki á neinn hallaö þótt Friörik Þór Óskarsson sé kallaö- ur maður mótsins. Hann stökk 15,21 m. i þrístökki og 7,09 m. i langstökki. Friðrik sýndi mikiö öryggi,og við bestu aðstæður og á góðum velli (þetta mót fór fram á Melavellinum) má búast viö at- hyglisverðum árangrihjá honum. Við birtum úrslit fyrri hluta mótsins, sem fór fram 16. júni i 17. júní-blaðinu en nú skulum við líta á það sem gerðist i slðari hluta mótsins. Valbjörn Þorláksson sigraði að vanda 1110 m. grindahlaupi á 15,7 sek. I 100 m. hlaupi sigraði Sig- urður Sigurösson Ármanni með yfirburðum, hljóp á 11, 3 sek. en Magnús Jónasson Arm. hljóp á 11,5 sek. Það er enginn maður i augsýn sem storkar veldi Sigurð- ar i 100 og 200 m. hlaupi. Krisb’n Jónsdóttir UBK sigraði I 100 m. hlaupi kvenna á 13,3 sek. en María Guðjohnsen varð i 2. sæti á 13,4 sek. Hún sat algerlega eftir i startinu og varð þvi af sigrinum. Bjarni Stefánsson KR sigraði i 400 m. hlaupi á 50,0 sek. sem er góður árangur miðað við aðstæð- ur og einnig þegar þess er gætt að Bjarni hljóp alveg keppnislaust. I 800 m. hlaupi sigraöi Hafsteinn Óskarsson 1R á 2:02,2 min. en Þorgeir Óskarsson ÍR, varb 2. á 2:02,5 sek. Þórdis Gisladóttir sigraði i há- stökki kvenna, stökk 1,66 m. en þær Iris Jónsdóttir UBK og Hrafnhildur Valbjörnsdóttir Ar- manni stukku 1,60 m. I spjótkasti kvenna sigraði Björk Eiriksdóttir IR, kastaði 30,16 m. Friörik Þór sigraði I langstökkinu, stökk eins og áður segir 7,09 m. Hreinn Halldórsson sigraöi i kúluvarpi, kastaði 18,83 m. en Guðni Halldórsson varð 2. með 17,40 m. I 4x100 m. boöhlaupi kvenna sigraði sveit UBK á 52,3 sek. sveit Armanns varð 2. á 53,5 sek. 1 4x100 m. boðhlaupi karla sigraði sveit Ármanns á 45,8 sek. en sveit IR hljóp á 46,6 sek. —S.dór Rey k j avíkurleikarnir í frj álsum hefjast á þriðjudag Hinir árlegu Reykjavikurleikar i frjálsum iþróttum fara fram nk. þriðjudag og miðvikudag og er ekki vitað hvort þeir fara fram á Melavellinum eða Laugardals- vellinum, en á hvorum staðnum sem það nú verður, þá hefst keppnin kl. 20.00. Keppnisgreinar og timaseðill verður sem hér segir á þriðjudag: Kl. 20.00 100 m grindahl. kvenna, kúluvarp karla, hástökk karla Kl. 20.10 200 m hl. kvenna.lang- stökk karla Kl. 20.20 200 m hl. karla Kl. 20.30 800 m hl. kvenna.spjót- kast karla Kl. 20.40 800 m hl. karla.hástökk kvenna Kl. 20.50 5000 m hl. karla Kl. 21.05 kúluvarp kvenna Kl. 21.20 4x100 m bóöhl. karla

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.