Þjóðviljinn - 19.06.1976, Side 12

Þjóðviljinn - 19.06.1976, Side 12
12 SíÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júnf 1976 NÍELS HAFSTEIN SKRIFAR UM MYNDLIST ISLENSK GRAFÍK Konumynd frá 1922 eftir Leif Kaldai, unnin með laufléttu handbragði og tilfinningu fyrir viðfangsefninu. jonannes S. Kjarval: Landslag, 1919. Hér hefur listamaðurinn notfært sér hliðarflöt kritarinnar þegar hann teiknaði á litografiusteininn. Agæt myndbygging, fínlegar Iinur og loftkennd áferð gerir þetta verk sérstakt. Þegar listamenn eru spurðir: ,,Hvað er grafik?”, þá vefst þeim stundum tunga um tönn, vegna þess að eðli graffklistarinnar er slikt og aðferðir hennar svo margar, að jafnvel iðkendur hennar hafa varla haft spurnir af þeim öllum! „Grafik er ekki eftirprentun”, segja menn, „Grafik er þrykk af sérstaklega útbúnum grunni: kopar, zinki, dúk, tréplötu, plasti, silki og steini”. Síöan kemur langur listi með sérheitum: Þurrnál, mezzo- tinta, koparstunga, mjúkgrunn- ur, æting, tónæting, flatbytning- ur, dúkskurður, dúkæting, tré- rista, tréplötuþrykk, pappisrelif, upphleyping, litografia, silki- þrykk, ljósrit, offsetprent, vatns- litaþrykk, monografía, o.s.frv. Með vaxandi tækni og visinda- framförum þá er nú kleift aö njóta aðstoðar tölvu við fram- leiðsluna. Rafmagn, sýrur, geisl- ar og logsuðutæki eru sjálfsögð hjálpartæki, einnig ljósmynda- vélin og hennar möguleikar. Til þess að rugia skoðendur enn meir þá blanda sumir listamenn sam- an aðferðum og verður þá að leita úrskurðar sérfræðinga ef deilur risa! Einföldustu grafikstimplar eru gólfdúkur og kartöflur, og eru myndirnar þá skornar i sléttan' flötinn, liturinn borinn á (með rúliu) og siðan þrykkt á tilfall- andi efni: tau, pappir o.fl. Aðrar aðferðireru mun flóknari, eins og t.d. litografia og silkiþrykk, tón- æting og offsetprent, og ekki hægt i stuttu skrifi að lýsa þeim. Nú ætti öllum að vera ljóst hvi- lik freisting er búin þeim manni sem leggur stund á grafik og hef- ur góða aðstöðu: möguleikarnir eru nánast ótæmandi. Hvernig bregst hann við þegar á hólminn er komið, notar hann tæknibrögð- in til að undirstrika myndhugsun sina, eða verður handverkið það sem skærast skin? A sýningunni Islensk Grafik á Klambratúni eru verk sem spanna 60 ára timabil, hin elstu þeirra voru unnin við erfið skil- yrði og litinn skilning. Þegar þessi verk eru skoöuð og borin saman við yngri myndir þá er það undrunarefni hvilikum árangri mennirnir náðu. Það er eins og aðstöðuleysið hafi lyft undir list- ina, það virðist sem tilfinningin gagnvart viðfangsefninu hafi ver- ið meira virði en en yfirborðs- legar kúnstir. Tónlistarmenn ræða stundum vandamál listgreinar sinnar, hvernig flutningur tónverka hljómar i misjöfnum salar- kynnum, hvernig þau verði best geymd á böndum, o.s.frv. Þeir hafa bent á sivaxandi tækni- Þessi trérista Gunnlaugs Schevings er með mögnuöustu svartlistar- myndum hans: ferð mannsins á hestinum inn að miðju sviðsins er hlaðin dul og skuggum. Skurðtæknin er einföld og aögreinir vel heildar- formin. Snorri Arinbjarnar: Hafnarstræti á Isafirði. Ein af þeim dúkskurðar- myndum sem prýddu forsiður Alþýöubiaðsins á árunum 1934-36. Hér er auöséð hvernig látlaus skurðtækni getur verið áhrifarik ef áherslurnar eru á réttum stöðum. grafíkmenn að viðurkenna ljósrit og offsetþrykk: „Þetta er ekki grafík”, fullyrða þeir, „þetta eru eftirprentanir”! Fer nú að vandast málið, ekki satt? Samfara aukinni tækni- kunnáttu og notkun flóknari að- ferða, þá verður sifellt auð- veldara að skýla klaufaskap i grundavallaratriðum mynd- listarinnar, menn velja sér auð- veldar fyrirmyndir og taka á filmu, siðan fer afgangurinn i gegnum vélarnar. Auðvitað skiptir engu máli hvernig menn bera sig til við verkið ef árangur- inn er góður, en þegar erfiði lista- mannsins og upphitun i hugljómunarvimu er fyrir bi og i staðinn komið staðlað fyrirkomu- lag, þá þarf meiri háttar meistara til að úr verði sæmi- legur hlutur. Hér mætti i löngu máli tiunda misfellur og kraftaverk þau sem skreyta sali myndlistarhússins á Klambratúni, en þar er sýn- endum gert svo mishátt undir höfði að litið yrði á þvi að byggja. Þó er rétt að minnast á það að einhver hreyfing er á mynd- hugsun listafólksins, fagurfræði- legar úrlausnir eru að þoka fyrir rökréttum útfærslum á nær- tækum dæmum úr samtimanum. Verður fróðlegt að skoða næstu sýningu Grafikfélagsins ef svo heldur áfram. Þeir sem annars eiga verk á þeirri sýningu eru : Þorvaldur Skúlason, Jens Kristleifsson, Guðmundur Einarsson frá Miðdal, Þórður Hall, Helgi Þorgils Friðjónsson, Muggur, Nina Tryggvadóttir, Eirikur Smith, Björn Björnsson, Eggert Guðmundsson, Bragi Asgeirs- son, Veturliði Gunnarsson, Richard Valtingojer, Ingunn Eydal, ólafur H. Gunnarsson, Gunnlaugur Scheving, Leifur Kaldal, Kristinn Pétursson, Anna Sigríður Björnsdóttir, Asta Sigurðardóttir (utan skrár), Arthúr Ólafsson, Björg Þor- steinsdóttir, Jón Engilberts, Guð- mundur A. Sigurjónsson, Erró, Jón Þorleifsson, Reinhild Patzelt, Jón Reykdal, Jóhanna Boga- dóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Snorri Sveinn Friðriksson, Lisa Guðmundsdóttir, Eggert Laxdal, Guðmundur Thorsteinsson: trérista frá 1915. Þessi ágæta mynd er dæmigert sýnishorn af finlegum og mjúkum vinnubrögðum snillingsins, þar sem Hnur, form og litir eru I fullkomnu sam- ræmi. Jón Engilberts: Blóm. Þessi örlitla tré rista lætur lltiö yfir sér við fyrstu sýn, en látleysi hennar er fætt af alúð listamanns- ins og færni hans að skipa aðalatriðunum á sinn stað. væðingu við upptökur, þar sem kannski einleikur á fiðlu er spilaður i fjögurra- rása sterio- tækjum, allt mannlegt er afmáð, tónverkið er næstum þvi geril- sneytt. Og þeir hugsa með söknuði til fyrri ára þegar smá- hnökrar eins og iskur og marr var óleystur vandi. Myndlistinni er svipað farið, tæknivæðingin er smám saman að útrýma hinu frjálsa og lifræna I grafikinni. Menn hafa að visu reynt að sporna á móti þróuninni, en gefist upp. Þegar hinn viðkunm popplistar- maður, Richard Hamilton, hafði leitað á náðir sérfræðings I silki- þrykki, Christophers Prater i Kelpra Studio, og notið aðstoðar hans við framleiðslu sina, þá bauð hann Marlborough Fine Art safninu að kaupa af sér myndir. Tilboðinu var hafnað á þeirri for- sendu að þetta væri ekki grafik, hér væri um að ræða venjulegt prentverk handverksmanna. Af svipuöum ástæðum neita margir Snorri Arinbjarnar, Jóhann Briem, Valgerður Bergsdóttir, Skúli Ólafsson, Jóhannes Kjar- val, Barbara Arnason og Halldór Pétursson. Á sýningunni vantar marga listamenn sem unnið hafa I grafik, m.a. Einar Hákonarson, Magnús Pálsson, Þorbjörgu Höskuldsdóttur, Arnar Herberts- son, Höskuld Björnsson og Magnús Kjartansson. Getur þessi sýning af þeim sökum ekki talist gefa nógu gott yfirlit á grafiklist islendinga.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.