Þjóðviljinn - 29.06.1976, Síða 6

Þjóðviljinn - 29.06.1976, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriöjudagur 29. júnf 1976. Frá Hússtjórnar- kennaraskóla Islands Hússtjórnarkennaraskóli tslands annast menntun hússtjórnarkennara og matráðs- manna. Hann starfar i tveimur deildum. 1. Kennaradeild býr nemendur undir kennslustarf i hússtjórnarfræðum við grunnskóla og hússtjórnarskóla. 2. ' Matráðsmannadeild menntar starfsmenn til þess að veita forstöðu mötuneytum sjúkrahúsa og heimavistar- stofnana. Námið tekur þrjú ár. Inntökuskilyrði eru: a) Stúdentspróf ásamt námskeiði i hússtjórn, eða b) Próf úr hússtjórnarskóla ásamt prófi úr tveggja ára framhaldsdeild gagnfræðaskóla. Umsóknir um skólavist skal senda til Hús- stjórnarkennaraskóla íslands, Háuhlið 9, Reykjavik, fyrir 30. júli Með umsókn skal senda afrit af prófvott- orðum og meðmælum frá skólum og vinnuveitendum. Skólastjóri. Vegna sumarfría og afleysingaörðugleika verða eftirfr. breytingar á starfsemi barna- deildar Heilsuverndarstöðvar Reykja- vikur i júlimánuði: 1. Kúabólusetningar falla niður frá 1.. - 31. júli. 2. Breiðholtsútibú verður lokað frá 1. - 23. júlí, en börn úr þvi hverfi verða afgreidd á aðalstöð barnadeildar Heilsuverndar- stöðvar Reykjavikur á meðan á lokun stendur. 3. Langholtsútibú verður opið á mánudögum en lokað á fimmtudögum frá 1. - 31. júli. 4. Árbæjarútibú verður opið að vanda á þriðjudagseftirmiðdögum. 5. 3-4 ára börn verða afgreidd einungis eftir þvi sem aðstæður leyfa frá 1.-31. júli. Heiisuverndarstöð Reykjavíkur Geymið auglýsinguna. Hjallfiskur h/f Sel brotaharðfisk, mylsnu og marineraða síld næstu daga. Opið frá kl. 8-6, laugardaga 1-5 Hjallfiskur h/f Hafnarbraut 6 — Kópavogi. j Skjaldhamrar eftir Jónas Árnason_ Fyrsta íslenska leikritíð á Bretíandseyjum Jónlna ólafsdóttir I hlutverki sinu. Rœtt við Jónínu Ólafsdóttur um uppfœrsluna á Skjaldhömrum, heimsóknina til Irlands og leik- húslíf í London — Jónas hringdi i mig, sagöi mér að hann væri boðinn með Skjaldhamra til tslands, bauð mér að leika aðalhlutverkið og taka að mér framkvæmdina á þessu. Ég hélt satt aö segja að þetta væri ekki framkvæmanlegt. bað var enginn peningur i þessu. Og það er afskaplega erfitt að fá leik- stjóra i London. Ef þeir eru góðir, þá eru þeir önnum kafnir. Það er Jónina ólafsdóttir sem skýrir okkur frá tildrögum þess, að fyrsta islenska leikritið komst á fjalirnar á Bretlandseyjum. Jónina hefur búið i tiu ár i Lond- on, þar sem hún lauk námi i leik- list og giftist siðar David Scott, leikara. En ég datt ofan á ágætan leik- stjóra nánast af tilviljun. Hann er gamall kunningi okkar Davids, og heitir Anthony Matheson. Hann kom i heimsókn til okkar og það barst I ta) að hann langi til að koma til Islands. Nú, ég spyr hann þá hvort hann langi ekki til þess að setja upp Islenskt verk. Honum brá svolitið, — en svo fór hann að athuga þetta nánar — og tók það að sér. Þá var eftir aö finna góða leik- ara sem bæði pössuðu i hlutverkin og voru lausir. Það tókst líka að lokum, þó við gætum ekki boðið fólkinu upp á neitt, nema að taka þátt i þessu, leika i leikritinu og fara til trlands. Það var gott að við gátum komið til Islands. Bret- arnir okkar eiga það sannarlega skiiið. Við æfðum i þrjár vikur i Lond- on og eina á staðnum i Irlandi. — bað hefur komið hér I blöðum að þið hafið fengið góðar undir- tektir á leikiistarhátiðinni I Dun- dalk. — Þær voru frábærar. Við fengum langbestu undirtektirnar. Það stóðu allir upp i fagnaðarlát- um siðast. Það gerðist aldrei ann- ars. Og svo var okkur boðið að koma til Dublin i september i haust á alþjóðlega leiklistarhátið. En það er ekki alveg útséð um það, hvort við komumst öll i haust. Ef einhverjum býðst veru- lega spennandi atvinnutilboö, þá geri ég ráð fyrir þvi að þetta þurfi að vikja. Fólk getur þvi miöur ekki gefið vinnu sina i lengri tima. — En til hvers farið þið þang- að? — Til þess að kynna islenska leikritun. Það er mitt erindi og is- lendinganna i stykkinu. En þetta er kannski öðru visi hjá bretunum okkar. En þeir trúa á það sem þeir eru að gera i leikritinu. Þeim finnst þetta gott leikrit. — Hvernig var á írlandi? — Fyrstu þrjá dagana fór ástandið virkilegá I taugarnar á mér — maður þorði varla að hreyfa sig, — skíthræddur við sprengjur og svoleiðis. Beint á móti leikhúsinu var lika autt svæði, — þar hafði verið krá, sem var sprengd upp bara nokkrum mánuðum áður en við vorum þarna á ferð. Nú sást hvorki tang- ur né tötur eftir af henni. Og það var ofsaleg skoðun á flugvellinum á leiðinni þangað. Maður varð að taka slna tösku sjálfur og koma henni á vélina út á velli. Það fer engin taska án þess að það sé maður með henni. Annars er maður orðinn vanur þessu i London. Maður fer ekki i strætisvagn, lest eða i kvik- myndahús án þess að svipast um, — maður gáir að sprengjum. Svo það má segja að maður hafi verið undirbúinn áður en við komum til Irlands, — en pressan er miklu meiri þar á staðnum. Við ætluð- um að fara i smáferð niður á strönd, en þar var vegalögreglan og stoppaði alla bila. Okkur leist ekkert á þetta. Þaö var ekkert hægt að fara út úr borginni án þess að vera stoppaður af her- mönnum. Og fólkiö er auðvitað þjakað og þjáð. Það veit t.d. aldrei hvaða aðili það er sem stoppar það úti á vegum. En eftir þvi sem vikan leið fór maður að venjast umhverfinu og kannast við fólkið sem var þarna, og það var afar elskulegt fólk. Þá fór manni auðvitað að liða betur. — Hvað segirðu okkur af leik- húslifi i London? Mér finnst söluleikhúsin í London verða voðalega leiðinleg með timanum. Þetta byggir svo mikið á hreinu söluefni. Leikhús- in eru rekin mikið fyrir ferða- menn. Það eru klassisku verkin og svo kemur fólk til að sjá þessar stjörnur sem bera hin stóru nöfn. En þetta staðnar og festist I sama farinu. Hins vegar er svo- nefnt „fringe” leikhús — utan- garðsleikhús, það eru margs kon- ar smáhópar sem taka sig saman og leika á krám og i kjöllurum — oftast fyrir engin laun. Efniviður I þessum sýningum höfðar mun meira til þjóðfélagsins en áður var. — Hvað varð um ungu reiðu mennina? — Þeir skrifa fyrir pening i dag. Mér finnst ekkert gaman að þessu lengur. Ég nenni ekki einu sinni að fara að sjá nýtt verk eftir Pinter t.d. Maður hefur séð þetta áður. En auðvitað er samt alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast, — það koma nýjar og forvitnileg- ar sýningar, — ef ekki I söluleik- húsunum, þá altént utangarðs. — Hvernig er að vera starfandi leikkona i London? — Það er erfitt. Það er afar erfitt að fá eitthvað að gera. Laun eru mjög misjöfn og þeim er illa deilt. Stjörnurnar fá gott kaup, — en aðrir fá svo miklu minna. Það þykir gott að fá sem svarar átta- tiu þúsundum á mánuði. Og i fyrra t.d. sló umboðsmaðurinn minn sem þá var, striki yfir alla sem ekki höfðu a.m.k. 5000 pund i tekjur á ári. Svo ég þurfti að fá nýjan umboðsmann. — Hvert er hlutverk umboðs- manna? — Þeir annast kynningu á leik- urunum og reyna að skapa þeim tækifæri. Þeir bjóða fólki á sýn- ingarnar, sjá um samband við blöðin o.s.frv. En sumir eru mikið Framhald á bls. 14. jóhanna Bjarnadóttír frá A X* * r "1 landiogÞjóðviljans. Jóhanna er /lílóíirni ATI íiril í Ciftfy ekkja eftir Jón heitinn Bjarna- son fyrrum fréttaritstjóra Þjóð- viljans og bjuggu þau lengi i Jóhanna Bjarnadóttir frá As- heiman i dag. húsinu að Skólavörðustig 19. garði er 85 ára I dag, 29. júni. Jóhanna hefur um áratuga- Þjóðviljinn flytur afmælis- Jóhanna býr að Skjólbraut 7 i skeið verið eindreginn liðsmað- barninu árnaðaróskir og óskar Kópavogi en hún verður að ur sósialiskrar hreyfingar á Is- Jóhönnu alls hins besta.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.