Þjóðviljinn - 29.06.1976, Side 12
t H i •• ••
Ivo mork
frá Teiti
r
tryggou IA
sigurinn
— en KR-ingar máttu þakka fyrir
að sleppa af Skaganum
með aðeins eins marks tap
Tvö mörk frá Teiti Þóröarsyni
eldfriskum ileiknum gegn KR um
helgina, tryggðu akurnesingum
eins marks sigur við mikinn
fögnuð áhorfenda á Akranesi. Hið
fyrra kom á 34 min, eftir varnar-
mistök KR-inga en seinna markið
fæddist siðan I byrjun seinni hálf-
leiks. KR-ingar minnkuðu svo
muninn I 2-1 á 34. min. eftir hlé og
fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir
góð tækifæri beggja aðila.
1 heild var þessi leikur hinn
ágætasti þrátt fyrir rakan gras-
völlinn og dálitið rok. Einkum
voru það skagamenn sem sýndu á
köflum skemmtilega tilburði með
þá Teit Þórðarson, Karl Þórðar-
son og Jóhannes Guðjónsson sem
bestu menn.
KR-ingar léku undan vindi i
byrjun og sóttu þá nokkuð stift
framan af. Hálfdán örlygsson
misnotaði dauðafæri snemma I
leiknum og Karl Þórðarson
sömuleiðis uppi við hitt markið.
En á 34. min. hafnaði boltinn
loks i netmöskvum KR-inga.
Mistök urðu i KR-vörninni. Ölafur
Ólafsson skallaði boltann niður til
Karls Þórðarsonar sem sendi á
Teit i dauðafæri og boltinn var af-
Eftir nær látlausa en árang-
urslausa sókn Víkinga gegn FH
á Laugardalsvellinum á sunnu-
dagskvöldið fengu þeir gullið
tækifæri að hreppa bæði stigin i
leiknum, er Guðjón Finnboga-
son dæmdi vitaspyrnu á FH
fimm minútum fyrir leikslok
eftir að Helgi Ragnarsson hafði
brugöiö fæti fyrir Stefán Hall-
dórsson. En Eirfki Þorsteins-
syni mistókst vltaspyrnan
hrapalega boltinn flaug langt
utan marksins, og markalaus
leikur var staðreynd.
Veðrið var eins og best verður
kosið, völlurinn eins og teppi, en
leikurinn lélegur. Víkingar
höfðu alla yfirburði i leiknum en
uppskáru ekki árangur erfiðis
sins eins og áður segir. Til
marks um sóknarþunga þeirra i
leiknum má nefna að þeir fengu
10 hornspyrnur á FH i leiknum
en FH aðeins þrjár. Sókn Vik-
inga beindistum of upp miðjuna
en kantarnir litt notaðir. Með
þessu leiklagi tekst ekki að
skora mörk, þetta vita allir og
allir tala um, en eins og áður:
ákafinn ber yfirvegunina ofur-
liöi og árangurinn eftir þvi.
Strax i byrjun leiksins kom
forsmekkurinn að þvi er verða
vildi:Eirikur átti hörkuskot rétt
yfir markið. Næsta umtalsverða
tækifæri Víkinga var nokkru
eftir miöjan fyrri hálfleik er
Óskar skaut föstu skoti af stuttu
færi beint i fang Ómars mark-
varðar og tveim mínútum siðar
komst FH-markið I einna mesta
hættu i leiknum, þegar ómar
hirti boltann af tánum af óskari
greiddur með það sama I netið
þrátt fyrir þrönga aðstöðu.
A 2. min. seinni hálfleiks var
Teitur aftur á ferðinni. Arni
Sveinsson tók hornspyrnu, Jón
Gunnlaugsson skallaði til Teits
sem sendi boltann i markið.
Um miðjan hálfleikinn skoraði
KR nokkuð óvænt. Hálfdán óð um
kantinn og gaf fyrir til Jóhanns
Torfasonar sem skallaði i netið 2-
i. KR-ingar tóku mikinn fjörkipp
og sóttu af þunga I kjölfar marks-
ins en smám saman náðu skaga-
menn á ný tökum á leiknum og
héldu áfram aðhafa frumkvæðið.
Undir lokin bjargaði Magnús
Guðmundsson markvörður tvi-
vegis stórglæsilega og skömmu
áður hafði Jón Gunnlaugsson átt
skot i markstöngina.
Karl Þórðarson sýndi stjörnu-
leik að þessu sinni og dansaði i
gegnum KR-vörnina fram og til
baka. Einnig kom Teitur vel frá
sinu ásamt Jóhannesi i vörninni.
Hjá KR bar mest á þeim Magnúsi
markverði, Ottó Guðmundssyni
og Halldóri Björnssyni.
Dómari var Rafn Hjaltalin og
dæmdi hann mjög vel. Ólafur
Ólafsson fékk gula spjaldið. —gsp
eftir góða sendingu frá Jóhann-
esi, vel gert hjá ómari sem átti
einn sinn besta leik i mótinu.
Aðeins tvivegisreyndi á Diörik
i Vikingsmarkinu I þessum hálf-
leik og raunar i öllum leiknum, i
bæði skiptin eftir hornspyrnu,
og stóð Diðrik vel fyrir sinu.
í siðari hálfleik héldu Viking-
ar uppi sókninni af öllu meiri
ákafa en áður en með sama
árangri. FH-ingar gerðust harð-
ari i vörninni er þeir eygðu ann-
að stigið I leiknum eftir þvi sem
á leið. Skömmu eftir miðjan
hálfleikinn var harkan i há-
marki og fengu þá þrir leik-
menn að sjá gula spjaldið með
nokkurra minútna milli bili,
Vikingarnir Ragnar Gislason og
Adolf Guðmundsson og Pálmi
Sveinbjörnsson FH.
Bestu menn i liöi Vikings voru
þeir Stefán Halldórsson og
Róbert Agnarsson, sem er
geysisterkur i vörninni og kem-
ur vei fram i hornspyrnum og
innköstum nærri markinu. Vik-
ingar hafa aðeins tapað þrem
stigum i mótinu og eru jafnir
Val i efsta sæti með einum leik
fleiri.
Höfuðstyrkur FH-liðsins er
aftasta vörnin en framlinan er
gjörsamlega bitlaus enda hefur
liðið ekki skorað nema 5 mörk i
8 leikjum. Að vanda var Ólafur
Danivalsson skástur i sókninni,
en Vlkingar höfðu á honum góð-
ar gætur.
Ahorfendur voru fáir I sumar-
bliðunni á Laugardalsvellinum.
— Hj.G.
Hinrik Þórhallsson færði
Breiðabliksmönnum tvö stig á
silfurfati er hann skoraði þrjú
mörk I ieiknum gegn Þrótti sem
fór fram I Kópavogi á sunnudags-
kvöld. 1 leikhléi hafði Þróttur yfir
2-1 en Hinrik jafnaði og skoraði
slðan sigurmarkið eftir laglegt
gegnumbrot Gisla Sigurðssonar á
siðustu sekúndu leiksins. Guð-
mundur Haraldsson dómari
flautaði markið löglegt, hljóp
siðan að miðjunni og flautaði leik-
inn af. Vonsviknir Þróttarar
hentu sér niður og engum dylst að
þeir höfðu barist eins og úthaldið
frekast leyfði. Lengi vel virtist
þessi ómælda barátta ætla að
færa þeim langþráð stig I 1.
deildarkeppninni en með siðasta
marki Hinriks var sú von úti og
hefur Þróttur þá farið I gegnum
alla fyrri umferðina án þess að ná
stigi.
Greinilegt var á liði Þróttara að
breyting hefur orðið á i þeim her-
búðum. Liðið var frisklegra að
sjá en fyrr, barátttan I hámarki
og leikgleðin meiri en sést hefur I
sumar. Þeir höfðu tapað siðasta
leik sínum á tveimur ódýrum
mörkum Vikinga og nú átti að
hefna þeirra ófara.
Breiðabliksmenn mættu hins
vegar að venju með „samspils-
hugsjónina” i broddi fylkingar og
uppskáru mark strax á 5. min.
Laglega var spilað upp völlinn,
boltinn gekk frá manni til manns
uns Gisli Sigurðsson sendi til Hin-
riks sem sigraði i kapphlaupi við
Jón Þorbjörnsson markvörð og
skoraði 1-0.
A 30. min. jafnaði Þróttur. Þar
var að verki Þorvaldur Þorvalds-
son, sem þarna lék sinn fyrsta
leik I sumar og var stöðugt ógn-
andi. Hann notfærði sér mis-
heppnaða sendingu Breiðabliks-
manns, fékk boltann I opnu færi
og þakkaði fyrir sig með skoti
sem Sveinn Skúiason í ureioa-
bliksmarkinu réði ekki við.
45. min. gaf Þrótturum annað
mark. Aftur var Þorvaldur þar að
verki eftir misskilning milli
markmanns og bakvarðar, sem
skullu saman, boltinn hrökk úr
fangi Sveins til Þorvaldar sem
skoraði i mannlaust markið.
Staðan I leikhléi var þvi 2-1 og
mátti sjá á Þrótturum að það átti
aö halda fenginni forystu. Þó liðu
ekki nema fimm min. þar til
Hinrik Þórhallsson jafnaöi metin.
GIsli Sigurðsson tók hornspyrnu,
Ólafur Friðriksson skaut að
marki en boltinn hrökk til Hinriks
sem skoraði.
Eftir þetta datt fjörugur leik-
urinn svolitið niður. Bæði liðin
virtust hætta að spila upp á að
skora fleiri mörk og varkárnin
sat I fyrirrúmi. Hjá Þrótturum
hillti undir fyrsta stigið en 45,
minútan átti eftir að verða
örlagarik.
Það var enn einu sinni GIsli
Sigurðsson sem undirbjó þá árás.
Hann braust í gegnum vörn
Þróttar, komst inn fyrir á vinstra
kanti og sendi fyrir markið.
Ólafur Friðriksson skaut að
marki, aftur hoppaði boltinn út til
Hinriks sem skoraði með föstu
skoti af stuttu færi. 3-2 sigur var
staðreynd, leikúrinn var flaut-
aður af nánast um leið og ekki tók
þvl að byrja með boltann að nýju.
Hjá Breiðabliki var Einar Þór-
hallsson að venju góður en
maður leiksins var þó bróðir hans
Hinrik, sem barðist mjög vel og
skoraði öll þrjú mörkin. Þessi
markheppni miðherji Blikanna
hefur verið drjúgur i sumar, si-
vinnandi og ógnandi. Sömuleiðis
átti Vignir Baldursson góðan leik
að ógleymdum Þór Hreiðarssyni
sem hafði góða yfirferð, sótti
boltann margoft i vörnina og
skilaði honum vel frá sér, — hans
langbesti leikur I sumar.
Lið Þróttar átti skilið annað
stigið i þessum leik. Baráttan var
mikil og mörg markskot þeirra
Framhald á bls. 14.
Þróttarar köstuöu sér vonsviknir I völlinn er Hinrik skoraði þriöja
markiö. Fjær sést I dómarann yfirgefa völlinn meö boltann I hendinni
— leiknum var lokiö. Myndir: — gsp
Yíkingum mistókst
að skora gegn FH
Misnotuðu vítaspyrnu í leikslok
>
Einar Þórhallsson er hér kominn Isóknina en Jón Þorbjörnsson er til varnar og haföi vinninginn eins og
svo oft I þessum leik.
Hinrik sá um að
afgreiða Þrótt!
— er hann skoraði þriðja mark sitt á síðustu
sekúndunni og slökkti þar með síðustu von þróttara
um að ná stigi úr fyrri umferðinni