Þjóðviljinn - 10.08.1976, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 10. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Bardagar að nýju
Beirút 9/8 reuter — Bardagar
hófust aö nýju i Beirút og ná-
grenni i dag i kjölfar þess aö
hægrimenn náöu hverfi múham-
cöstrúarmanna i borginni á sitt
vald fyrir helgi.
Hernaðarleiötogar palestinu-
manna og tveggja fylkinga
hægrimanna mætti i dag á fund
meö umboösmanni Arababanda-
lagsins i Beirút. Atti þar aö ræöa
Framhald á bls. 14 .
Ritari
Tanaka
ákœrður
Tókió 9/8 reuter — Japanski
rikissaksóknarinn lagöi f dag
fram formlega ákæru á hendur
Toshio Enomota ritara fyrr-
verandi forsætisráöherra Japans,
Kakuei Tanaka, og tveim starfs-
mönnum Lockheed i Japan fyrir
aö hafa komiö bandarisku mútufé
áleiöis til Tanaka.
t ákærunni er Enomoto sagöur
hafa tekið á móti 500 miljónum
jena (1,6 miljónum dollara) i
reiðufé frá Lockheed i gegnum
umboðsfyrirtæki þess i Japan,
Marubeni. Atti féð að hafa borist
Enomoto i fjórum sendingum á
timanum frá 10. ágúst 1973 fram
að 1. mars 1974.
Tveir fyrrverandi forstjórar
Marubeni, Toshiharu Ohkubo og
Hiroshi Itoh, voru ákærðir fyrir
að hafa átt sinn þátt i að koma
fénu til Tanaka.
Tanaka var handtekinn 27. júli
sl. og gefið að sök að hafa brotið
landslög með þvi að veita mútu-
fénu viðtöku meðan hann gegndi
embætti forsætisráðherra. Alls
hafa 16 manns verið handteknir i
Japan vegna Lockheed-hneyksl-
isins, þar af hafa 10 verið form-
lega ákærðir.
Olíuleit við
Jan Mayen
Stafangri 9/8 ntb.— 1 þessari viku
hefst oliuleit á landgrunninu viö
Jan Mayen. Það er oliuráð norska
rikisins sem stendur að þessum
rannsóknum en framkvæmdar-
aðilinn er franskt jarðfræðifyrir-
tæki.
Þær rannsóknir sem hefjast nú
verða gerðar úr flugvélum og eru
einkum fólgnar i segulmælingum
en þær eru taldar ódýrasta leiðin
til að fá grófa mynd af jarðlögum
i landgrunninu. Niðurstöður úr
þessum mælingum ættu að liggja
fyrir meðhaustinuenþátekur við
næsta stig rannsókna sem eru
skjálftamælingar.
Nústanda einmitt yfir skjálfta-
mælingar á Barentshafi og á
þeim að ljúka i sumar. Samhliða
þeim eru tekin jarðvegssýni af
hafsbotninum.
Jóhannesarborg 9/8 reuter
— Lögregla í blökku-
mannahverfinu Alexandra
norðaustur af Jóhannesar-
borg skaut í dag tvo unga
blökkumenn til bana og
særði þann þriðja.
Uppreisn blakkra stúdenta
breiddist i dag út til sjö
blökkumannahverfa auk
Soweto.
1 Soweto kveiktu stúdentar i
tveim skólum og dómshúsi og
grýttu verkamenn sem voru á leið
til vinnu i Jóhannesarborg. 1 ööru
blökkumannahverfi austan við
Soweto, Diepkloof, voru settar
upp vegatálmanir og leigubilum
og einkabilum snúið af leið.
Helgin var fremur róleg i Soweto
en óeirðir hófust þar aftur i dag.
Verst var ástandið i dag i Alex-
andra en aö sögn lögreglu neydd-
ist hún til að skjóta á hóp upp-
reisnarmanna sem gerði aðsúg aö
lögreglubil. 1 Mohlakeng hverf-
inu vestur af Jóhannesarborg
hleypti lögreglan einnig af
skotum og samkvæmt frásögn
lögreglustjóra i hverfinu var einn
blökkumaður skotinn til bana og
óþekktur fjöldi manna særður.
Þetta var siðan borið til baka úr
æðri stöðum lögreglunnar og sagt
að aðeins tveir hefðu særst en
enginn fallið fyrir kúlum lög-
reglumanna.
Oeirðir urðu einnig i Mafeking,
nyrst i landinu, Duduzu, Suð-
austur af Jóhannesarborg, Jou-
berton, suðvestur af borginni,
Hammanskraal, nærri Pretoriu,
Gabi, i nágrenni Durban, og
Khaiso sem er i norðvesturhorni
landsins. A þessum töðum lýstu
óeirðirnar sér mjög svipað og
annars staðar, þe. grjóthrið og
ikveikjur sem einkum bitnuðu á
skólum.
Ekkert hefur enn heyrst frá
stjórnvöldum um að þeir hafi
uppi einhverjar áætlanir til að
mæta kröfum blökkumanna. 1
viðtali sem Vorster forsætis-
ráðherra átti við blaöið To the
Point i Jóhannesarborg segir
hann það mesta sem hægt sé að
segja um ástandið i landinu sé að
það sé „alvarlegt” en ekki
iskyggilegt. — Meðan þrýstingur
á okkur eykst utan frá sjá óvinir
okkar til þess að spennn aukist
einnig innanlands. Það er
nákvæmlega það sem þeir eru að
gera núna, sagði Vorster.
Kenýamönn-
um sleppt
Nairobi og viöar 9/8 reuter ntb —
1 dag komu 72 kenýamenn yfir
landamærin frá Uganda eftir að
þeim var sleppt úr fangelsi i
Uganda. Fólkið var þreytt en
kvaðst ekki hafa sætt illri meö-
ferð.
T ískustóllinn
frá Evrópu
Síðasta sending í sumarer komin. Stóllinn, sem alls staðar hæf ir: I eldhús-
ið, stofuna, skrifstofuna félagsheimilið, safnaðarheimilið, veitingastof-
una, gistihúsið, barnaherbergið, sumarbústaðinn, svalirnar og garðinn, úti
sem inni. Stóllinn er smíðaður úr völdu brenni og plasthúðaður og þolir því
bleytu.
Bestu arkitektar hérlendis og erlendis mæla með þessum stól, enda augna-
yndi.
I.l'l'llt: Kiiuúur. s\;u lur. «iieiiii. hruiiii. oranne ug nulur. Eilinie Verðið ÓtrÚlega lágt
oiualaóir
Umboð i Keflavík: Sportvík, Hafnarg. 36
Borgarfell, Skólavörðustig 23 simar 11372, 86153.
Enn
skelfur
Kína
Peking 9/8 ntb — Jarðskjálfti
að styrkleika 3-5 stig á
Richterskvarða mældist á
skjálftamæla rannsókna-
stöðva I Japan, Hong Kong
og Uppsölum i morgun.
Upptök hans voru einhvers
staöar i Kina en ekki reynd-
ist unnt að staðsetja hann
nánar.
Að sögn Markúsar Baath
prófessors i Uppsölum var
þessi skjálfti i framhaldi af
stóra skjálftanum sem varð i
Kina 28. júli sl.
Engar fregnir bárust
fréttariturum i Kina um
manntjón eða annan skaða
af völdum skjálftans i
morgun. Kinversk yfirvöld
telja litlar lfkur vera á þvi að
Peking verði fyrir öðrum
stórskjálfta úr þvi sem
komið er en íbúar borgar-
innar eru hvattir til að vera r
áfram á varðbergi.
Tanaka fyrrum forsætisráðherra Japans við handtökuna 27. júli sl. Nú
hefur ritari hans verið ákærður fyrir að koma til hans mútufé frá Lock-
heed.
Grikkir
Vilja fund í
öryggisráðinu
Aþenu, Ankara 9/8 reuter. —
Griska rikisstjórnin ákvaðá fundi
sinum I dag að krefjast aukafund-
ar öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna til að ræða ástandið á Eyja-
hafi þar sem grikkir telja tyrki
vera að ráðast inn á griskt land-
grunn i oUuIeit.
Fyrir rikisstjórnarfundinn
haföi Karamanlis forsætisráö-
herra haft samráð við leiðtoga
stjórnarandstoðunnar, þá Ge-
orge Mavros og Andreas
Papandreou um máliö. Mavros
var samþykkur Karamanlis en
Papandreou sagði aö loknum
Suður- Afrika
Logreglan myrðir
tvo blökkumenn
fundinum að hann væri fylgjandi
þvi að hervaldi væri beitt gegn
tyrkjum. Griskt síödegisblað birti
i dag úrslit skoðanakannanar um
málið og voru þau á þann veg að
mikill meirihluti aþeninga kveðst
fylgjandi þvi að svara aðgerðum
tyrkja með vopnavaldi.
1 Istanbul ræddi Suleyman
Demirel forsætisráðherra
Tyrklands við blaðamenn og
sagði að Sismik 1. myndi halda
rannsóknum sinum áfram hvað
sem mótmælum grikkja liði. —
Grikkir hafa engan rétt til að
segja neitt. Eyjahafiö er ekki
griskt stöðuvatn. Þess vegna höf-
um viö fullan rétt til aö halda uppi
rannsóknum á hafinu, sagði
Demirel.
Stuttu áður hafði griski sendi-
herrann 1 Tryklandi afhent mót-
mælaorðsendingu frá stjórn sinni
þar sem staðhæft er að Sismik 1.
hafi farið ólöglega inn i gri'ska
lögsögu og tyrkneska stjórnin
beðin að tryggja að það endurtaki
sig ekki.
Diprómatar i Ankara gerast nú
æ svartsýnni á að komast megi
hjá vopnuðum átökum þessara
tveggja nágrannaþjóða og banda-
manna i Nató.