Þjóðviljinn - 13.08.1976, Qupperneq 11
Föstudagur 13. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Togarinn Runólfur í fiskirannsóknum:
Þjóðverjar sitja að
bestu karfamiðuimm
Togarinn Hunólfur fór nýfega
um nokkurra vikna skeiö rann-
sóknarferöir fyrir Hafrann-
sóknarstofnun. Þessar feröir voru
meira á heimaslóöum en oft áöur
i slikum feröum og eins var leitaö
á meira dýpi en áöur. 1 viötali viö
timaritiö Sjávarfréttir segir dr.
Jakob Magnússon leiöangurs-
stjóri aö þetta hafi veriö gert
vegna þess, aö þaö sé ekki nema
takmarkaö sem togararnir sækja
á fjarlæg miö viö núverandi afla-
brögö.
Aöspuröur segir dr. Jakob um
möguleika á frekari karfaveiö-
um, aö nokkur karfaafli hafi
fengist á nokkrum svæöum, eink-
um þó i kantinum vestur af Eldey
og út af svokölluöum Jökulenda.
Þá hafi einnig i fyrsta leiöangrin-
um verið nokkurt magn á Dohrn
banka, en i öörum leiöangrinum
hafi sýnu mestur afli hins vegar
veriö á Dohrnbanka og Gauss-
bankasvæðunum, en á siöar-
nefndu svæöunum hafi verið tals-
vert um smákarfa i aflanum.
1 öllum leiðöngrum togarans
Runólfs var lokaöa karfasvæöið
við Hrygginn kannaö.og segir dr.
Jakob, að þetta hafi verið i fyrsta
skipti sem tækifæri hafi gefist til
að gera þessu svæöi rækileg skil.
Þessar athuganir hafi sýnt svo
ekki sé um villst aö lokun hólfsins
hafi veriö fyllilega réttmæt, en
hins vegar þurfi að vera ákveðinn
sveigjanieiki um upphaf lokunar-
tima hvers árs þar sem augljós-
lega sé breytilegt hvenær
smákarfinn leggist á slóðina.
Svæði þjóðverjanna.
Um karfasvæöi þau sem vestur-
þjóðverjar sækja mest hér við
land, sagöi dr. Jabob:
— Það er alkunna aö þjóöverjar
hafa tekið meirihluta karfa-
aflans við Island og það gera
þeir enn. Þeir taka þennan
afla aðallega á tveimur
svæðum, i hinum svokallaða
Rósagarði og á Reykjanes-
svæðinu. Þarna er um mikil og
góð karfamið að ræða, sem is-
lendingar hafa mjög litið nýtt. A
þessum svæðum er að meginhluta
mjög góður og stór karfi, sem er
betri til vinnslu en oft gerist og
gengur með þann karfa sem land-
aö er til vinnslu hérlendis. Ég tel
að á þessum svæðum séu góð
framtiðarveiðisvæði fyrir
islenska togaraflotann. Það er
hins vegar ekki við þvi aö búast
að þessi svæði verði neitt sótt að
marki af islendingum meðan
þjóöverjar sitja að þéim. Kemur
þar sennilega tvennt til, is-
lendingar treysta sér ekki i sam-
keppni við þjóðverja á þessum
svæðum og einnig þekkja þeir
svæöin ekki eins vel og þjóðverj-
ar. Þjóðverjar hafa mikla reynslu
og þekkja svæðið eins og fingurna
á sér og eru komnir upp á lag með
aö nýta þaö til hins itrasta. Ég tel
varla efamál að þegar þjóðverjar
fara alfarið af Islandsmiðum þá
skapist þarna mikilvæg athafna-
svæði fyrir islenska togaraflot-
ann.
— hm
Veðrið stjórnar
veiðunum
I athyglisverðu viðtali
við dr. Jakob Magnús-
son í síðasta tölublaði
timaritsins Sjávarfréttir
um rannsóknarleiðangra
togarans Runólfs á veg-
um Haf rannsóknar-
stofnunar, segir dr.
Jakob meðal annars um
það, hvort niðurstöður
þessara rannsóknarleið-
angra benti til þess aö
unnt reynist að minnka
sóknina í þorskinn og af la
i hans stað annarra fisk-
tegunda, jafnvel fisk-
tegunda, sem ekki hefðu
verið nýttar hérlendis til
þessa:
— Staðreyndin er sú að áhugi
fyrir þessum veiðum, jafnt
karfaveiðum sem á öðrum
áðurnefndum fisktegundum, er
takmarkaöur meðan nokkurs
þorskafla er von. Þarna kemur
fyrst og fremst til hinn mikli
verðmismunur á karfa og
þorski. Það var nokkurt skref i
rétta átt, þegar veröið á karfan-
um var hækkaö á dögunum, en
samt sem áður var verðmis-
munurinn of mikill til þess að
þaö hefði afgerandi áhrif á að
draga úr sókninni i þorskinn.
Þetta stóð heldur ekki lengi.
Þorskverðið var hækkað aftur
þannig að bilið jókst á ný og þvi
hjakkar i svipuöu fari. Þá er það
einnig staðreynd aö margar
fiskvinnslustöðvar vilja helst
ekki taka annan fisk en þorsk til
vinnslu. Ofan á allt þetta bætist
svo að veiðarfæraeyðsla er
jafnan mun meiri á karfaveið-
um en á þorskveiðum, og það að
nota 135 mm möskva þýðir að
verulegt magn af vinnsluhæfum
karfa smýgur úr vörpunni.
Togararnir þurfa þvi allt að
tvisvar til þrisvar sinnum meiri
afla af karfa en þorski til þess
að það borgi sig fyrir þá að
stunda þær veiðar, og halda þvi
fremur áfram þorskveiðunum,
þótt litið gefist. Þá má benda á
enn eitt atriði: Þorskur og fleiri
fisktegundir eru verölagðar eft-
ir stærð, en það er karfinn ekki.
Það er erfitt að skilja af hverju
þetta er ekki gert, en slikt gæti
haft verulega þýðingu fyrir
karfaveiðar og öflun betra hrá-
efnis.
Um aðrar fisktegundir er það
að segja að undirstrika má, að
sókn i þær verður ekki hafin fyrr
en búið er að ákveða eitthvert
verð á þeim. Nokkur bót i máli
er að nú hefur loksins verið
ákveðið verð á langhala — það
er að visu lágt, en þó þannig að
það borgar sig fremur að hirða
þann fisk sem kemur upp með
karfanum en að henda honum.
Brýna nauðsyn ber til þess að
verðleggja flestar þær tegundir
sem veíöast á karfaslóðunum,
og benda þá sérstaklega á i þvi
sambandi gulllax og litla karfa.
Þá er og nauösynlegt aö gera
vinnslustöövunum það skylt að
taka á móti öllum verð-
Jakob Magnússon
lögðum fiski til vinnslu.
Þegar þetta hefir verið fram-
kvæmt þyrfti að taka til
athugunar að leyfa smærri
möskva á djúpslóðum. Fyrr en
það hefir verið gert er tæpast
þess að vænta að gulllax og
reyndar fleiri tegundir, sem
halda sig á þessum slóðum,
verði nýttar að nokkru marki,
þar sem þær smjúga þá
möskva, sem nú er gert að nota.
— Ef úr þessum atriðum verö-
ur bætt, gæti það stuðlað að
meiri f jölbreytni i veiðum okkar
islendinga, en eins og málum er
nú háttað liggur fyrir nauðsyn
þess að nýta vel þann afla sem
veiðist. Með þvi að ákveðið yrði
verð fyrir þær tegundir sem
unnt er að veiöa, gæti nýting afl-
ans oröiö betrksagði dr. Jakob
Magnússon að lokum.
Jónas Guðmundsson
sýnir nú á Selfossi
1 gær var opnuð i Listasafni
Arnessýslu á Selfossi, sýning á
máiverkum eftir Jónas Guö-
mundsson, iistmálara og rit-
höfund, en þar sýnir hann
rúmiega 30 oliu- og vatnslita-
myndir.
Verulegur hluti verkanna
var nýveriö á sýningu í Nöm-
berg i Vestur-Þýskalandi, en
nokkur hafa ekki verið á sýn-
ingu áöur, þar á meðal oliu-
málverkin, sem öll eru unnin á
þessu ári.
Sýningin veröur opin dag-
lega á venjulegum safiitima
eða frá kl. 16.00-18.00, nema á
laugardögum og sunnudögum,
þá er opið frá kl. 14.00-20.00.
Myndirnar eru flestar til
sölu, en sýningunni lýkur
sunnudaginn 20. ágúst, n.k.
Formála aö sýningarskrá
ritar Guðmundur Danielsson,
rithöfundur, og segir þar frá
helstu æfiatriðum listamanns-
ins, ætt og uppruna.
Jónas Guðmundsson
URVALS
UNGHÆNUR
500 kr. kflóið
lOsfk. íkossa
590 kr. kílóið
í lausu
G^ЮTnj^D®@1J®tl)D[Rí3
cLaugal»k 2. REYKJAVIK, simi 3 5o2o
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakiu, Póilandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.
V örubilst j ór ar
Óskum eftir vönum vörubilstjórum strax.
Upplýsingar i sima 50877 og 53877.
Loftorka sf.
F óstrur
vantar til starfa við dagvistunarstofnanir
Akureyrarbæjar. Upplýsingar eru gefnar
á Félagsmálastofnun Akureyrar, Geisla-
götu 5, simi 96-21000. Umsóknir sendist
undirrituðum fyrir 10. september.
F élagsmálastjóri.