Þjóðviljinn - 13.08.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.08.1976, Blaðsíða 16
Útlenskir þátttakendur fundust eftir barning „9. gæðaflokkur” á Rvíkurmótinu sem hefst i ágúst Sjö stórmeistarar verða á meðal keppenda, þar af báðir islendingarnir DIOÐVIUINN Föstudagur 13. ágúst 1976 í sjónvarpinu: Vopna- búnaður heimsins A þriðjudaginn i næstu viku verður sýndur fyrsti þáttur sænsks fræðslumyndaflokks, sem ber heitið Vopnabúnaður heims- ins. Flokkurinn er i 6 þáttum og hefur hann verið sýndur viða um heim og vakið mikla athygli og umtal. Þjóðviljinn ræddi i gær við þýðanda þessa myndaflokks, Gylfa Pálsson, og spuröi hann um þessa þætti. Ég erbúinn aðsjá 3 fyrstu þætt- ina og mér finnst þeir mjög góðir, vekjandi og velta upp ýmsum málum sem menn verða að velta fyrir sér eins og tæknin erorðin. Fyrsti þátturinn fjallar um til- oröningu kjarnorkunnar og drög þess að menn fóru að hugleiöa Framhald á 14. siðu. Nú hefur endanlega verið gengið frá þvi hvaða erlendir þátttakendur verða á Alþjóö- iega Reykjavikurskákmótinu sem hefst þann 24. þessa mán- aðar. Keppendur verða sextán talsins, þar af átta erlendir og isamtali við Friðrik ólafsson, sem að mestu leyti hefur séö um að útvega útlensku þátt- takendurna, kom fram að fimm þeirra eru stórmeistar- ar. Þeir Guðmundur Sigur- jónsson og Friðrik verða siðan báðir með i mótinu þannig aö samtals verða þeir sjö, stórmeistararnir að þessu sinni. — Það gekk nú óneitanlega nokkuö illa að útvega útlend- inga á mótið, sagði Friörik. — A meðan ég dvaldist i Amster- dam á IBM-mótinu fékk ég heimild til að bjóða þremur mönnum, þeim Miles frá Englandi, Sax frá Ungverja- landi og Kurajica frá Júgóslaviu, en þá var oröinn ansi naumur timi til stefnu og þetta var of stuttur fyrirvari fyrir þá, sagði Friörik. Af keppendunum sextán hafa nöfn fimmtán þeirra þeg- ar verið ákveðin og eru þau þessi: Timman (Hollandi) stór- meist., Najdorf (Argentinu) stórmeist., Tukmakov (Sovétr.) stórmeist., Antochin (Sovétr.) stórmeist., Vesterinen (Finnlandi) stórmeist., Keene (Englandi) alþjl. meist., Matera USA (titillaus), Vukcevic USA (titillaus). íslendingarnir eru þessir: Friðrik ólafsson stórmeist- ari, Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari, Margeir Péturs- son, Helgi Ólafsson, Haukur Angantýsson, Björn Þorsteinsson, Ingi R. Jóhannsson alþjl. meist. Styrkleikagráða mótsins er 9, en þeir Friðrik og Guð- mundur höfðu báðir lýst þvi yfir að ef hún færi þar niður fyrir myndu þeir ekki verða á meðal þátttakenda. Litlu munar þó að styrkleikatalan hrapi niður f 8 og veltur það raunar á þvi hvaða áttundi islendingur bætist við. Hans styrkleiki getur ráðið öllu um styrkleikatölu mótsins I heild sinni. Eins og áður segir hefst mótið þann 24. ágúst og mun það standa til 14. september. Teflt verður I Hagaskólanum frá klukkan 18.00 — 23.00 en biðskákir verða tefldar frá klukkan 14.00. Styrkleikatala mótsins er 9, en þess má geta að styrkleika- tala EUWE-mótsins sem Frið- rik tefldi I fyrir skömmu var 13 og IBM-mótið var af styrk- leikagráðu ellefu. —gsp. Heimilis- fræðslan hornreka Heimilisfræðin hefur verið gerð hornreka 1 skólakerfinu, segja kennarar i þessari grein. Þetta kemur fram i samþykkt sem blaðinu hefur borist. Þar er visað til þess að menntamálaráöu- neytið ákvað sl. vor með auglýs- ingu að kennslustundir I heimilis- fræði skyldu að jafnaði vera 1 stundávikui7. bekkogO-lstund I 8. bekk i staö 4 stunda I hvorum bekk áður. Hafa kennarar I heimilis- fræðum sent formönnum skóla- stjórafélaga ,fræðslustjórum og fleirum bréf um þessi efni.Þan er rökstutt að heimilisfræðin sé ,,sú námsgrein sem er hvað helst tengd daglegu llfi nemandans, hvaða starf sem hann velur sér. ,,Þá segir: „Bent skal á þaö að þetta er ef til vill eina tækifærið á ævinni, sem ungmenni njóta til- sagnar á bóklegu og verklegu sviði þessarar yfirgripsmiklu námsgreinar. Með skertum kennslustundaf jölda verður aöeins viðkomið kynningu á námsefni en ekki kennslu.” Casáblanca 10/8 reuter — I gær hófust I Casablanca réttarhöld I máli sex marokkanskra stúdentaleiðtoga sem sakaðir eru um glæpi gegn rikinu. Meðal þeirra er forseti stúdentasam- taka landsins sem bönnuð voru árið 1973. Forsetinn, Abdelaziz Menhebi, skýrði réttinum frá þvi að hann og félagar hans hefðu verið pynd- aðir i fangelsinu og að þrir félagar þeirra hefðu látið lifið af völdum pyntinga. í júli 1973 var Menhebi dæmdur i 10 ára fangelsi en þá var hann sagður fjarverandi. Verjandi hans sagði hins vegar fyrir rétti i dag að hann hefði verið i höndum lögreglu siðan I janúar 1973. Simtalið við Kortsnoj í gærkvöldi: „Það þarf að leysa mörg vandamál og á meðan vil ég vera hér í ró og næði” — Jú, það var vissuiega erfitt fyrir mig að tefla í IBM-mótinu á meðan hugurinn var ailan timann rigbundinn við þessa erfiðu og mikiu ákvörðun, sagði Viktor Kortsnoj i samtali við Þjv. I gærkvöldi. — Skákirnar voru mér svo mikið aukaatriði að ég þurftí að taka mér geysi- legt tak til þess eins að geta set- ið yfir þeim allan daginn, hvað þá ef biðskákir komu svo á kvödin. Það er einmitt þess vegna sem ég sagði þér um dag- inn að ég væri ekki ánægður með taflmennsku mina hér á IBM-mótinu en þá hafði ég bara ekki aðstöðu til þess að koma fram með þessa stórkostiegu af- sökun, sagði Kortsnoj og skelli- hló. — Þú virðist þokkalega ánægður þessa stundina? — Já, ég get ekki neitað þvi. Þótt vandamálin séu margvis- leg og óvissan út af fjölskyldu minni nagandi liður mér ákaf- lega vel eftir að hafa látið til skararskriða. Ég dvelsti ágætu yfirlæti hjá hollenskum vini minum og eftir að hafa skoöað hug minn áreiöanlega mörg hundruð sinnum er ég sann- færður um að ég valdi þá leið sem farsælust var eftir þá erfið- leika sem ég var kominn i heima fyrir. — Hvenær tókstu endanlega ákvörðun I Amsterdam? — Það má segja að ég hafi fyrir löngu verið búinn aö gera upp hug minn, löngu áður en ég kom til Hollands. Ég fór hins vegar dult með hana, sagði ná- kvæmlega ekki neinum frá, ekki einu sinni konu minni og einka- syni. Ég lét að visu i veðri vaka að ég vildi yfirgefa Sovétrikin en jafnframt að ég ætlaði að snúa heim frá Hollandi og reyna siðar að komast meö alla fjöl- skylduna yfir til Israel. En i minum huga var löngu ákveðið að sitja eftir I Amsterdam þótt þaðhafi óneitanlega styrkt mig til muna að ræöa við landa minn Amalrik, sem er nýkominn hingað til Amsterdam, en hann flúði einnig frá Sovétrikjunum. Hann kom hingað á meðan IBM-mótið stóð yfir og hann var fyrsti sovétmaðurinn sem ég ræddi þessi vandamál min við. Amalrik hvatti mig óspart og veitti mér þann styrk sem allir menn hljóta að þarfnast sem snúa svo skyndilega bakinu við öllu sem þeir hafa eignast I lif- inu. óvissan um afdrif fjölskyldu minnar er auðvitaö mikil og það er erfitt að hafa engin tök á að ná sambandi við hana. Ég hef alltaf verið fyrirvinna minnar fjölskyldu og ég veit að næstu mánuðirnir verða henni fjár- hagslega mjög erfiðir að ekki sé nú talað um alla þá erfiðleika sem mæta henni vegna brottfar- ar minnar úr landi. Þar á ég ekki við einhverjar aðgerðir stjórnvalda heldur reikna ég með að konu minni og syni liði lítið betur en mér þegar við er- um svona skyndilega aðskilin. — Reiknarðu meö að dveljast I Hollandi áfram? — Já, ég hef þegar tekiö að mér að undirbúa landshð hér fyrir Olympiuskákmótiö i Israel sem verður haldið seinna á ár- inu svo að i bili verður nóg að gera hjá mér. Ég mun sjálfur fara að undirbúa mig fyrir keppnina um heimsmeistaratit- ihnn i skák en ég reikna ekki með þvi að það þýði neitl fýrir mig að reyna að tefla á sterkum skákmótum á meðan hugurinn er i' svona miklu uppnámi. ÆtU það verði nokkuð af sliku fyrr en ég hef fengi fjölskylduna mina til min, þá get ég aftur snúið — sagði Kortsnoj, sem reynir að halda heimilisfangi sinu leyndu mér að skákUfinu af fuUum krafti. Þangað til mun ég undir- búa mig i einrúmi og kannski tefla fjöltefli og taka þátt i létt- ari mótum. — En þú veist ekkert hvenær þú hittir eiginkonu þina? — Nei, ég hef enga hugmynd. Ég held þó að það sé nokkurn veginn útilokað að ég geti hitt hana áður en hún hreinlega fær að flytjast úr landi en slikt getur tekið drjúgan tima, eitt til tvö ár og jafnvel meira. Vonandi geng- ur þetta þó fyrr fyrir sig, maöur verður að vona svo margt þessa dagana, sagði Kortsnoj. Þegar Kortsnoj sté út úr bU sinum fyrir utan húsið þar sem hið frábæra tölvuskákmót fer fram og gekk inn i salinn risu áhorfendur úr sætum sinum og fögnuðu honum innilega með lófataki og faðmlögum. Kortsnoj þótti greinilega vænt um viðbrögðin en varð smeykur er blaðmenn þyrptustaö honum skömmu siðar og vUdu fá viötöl. Honum var ekkertum þaðgefið og að sögn fréttamanns Þjv. I Amsterdam, Bert Verhoeff, fór hann undan i flæmingi og hvart á brott skömmu siðar. — gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.