Þjóðviljinn - 21.08.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.08.1976, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJBVN Laugardagur 21. ágúst 1976 Þjóðviljinn fór á stúfana i vikunni og innti fólk eftir þvi hvernig þvi litist á skattamál þjóðarinnar og allt það svindl sem margir athafnamenn eru nú bendlaðir við, bæði í sambandi við skattsvik, ávisanafals og önnur afbrot. Margt af þvi fólki sem við fundum á förnum vegi vildi aiis ekki láta hafa neitt eftir sér á prenti, en notaði stór orð um svind- Iarana. Einn iðnverkamaður, sem sagðist hafa það fyrir reglu að tala áldrei við blaðamenn, taldi skatt- svikarana mestu glæpamenn þjóðarinnar og ef hann kæmist i tæri við þá mundi hann skjóta þessa helvitis þorpara, eins og hann sagði. Opinber starfs- maður sagði það vera algera svivirðu að meðan hann þyrfti að borga 300 þúsund krónur i skatta, kæmust stórkarlar hjá þvi að borga og gæfu kannski ekki nema 700 þúsund krónur upp i tekjur, en það gera innan við 60 þúsund krónur á mánuði. FÁTT ER NÚ MEiRA RÆTT MEÐAL LAUNAFÓLKS EN: Anton Armannsson og Guömann Karlsson Skattsvik og ávísanafals •• Omurlegt að þjóðin skuli vera svona djúpt sokkin Á bjóðminjasafninu hittum við elskulega konu sem hefur þann starfa að gæta muna þar i 2 1/2 tima á dag. Þetta er Stefania Þorsteinsdóttir sem verið hefur ekkja i 19 ár. Hún segist lifa af eftirlaunum eftir mann sinn, elli- lifeyri og þeim launum sem hún fái fyrir starf sitt á Þjóðminja- safninu. Stefania segist vera mjög óánægð með þá skatta sem hún hefur fengið. Henni er gert að greiða 32600 kr á mánuði i seinni greiðslu. Ég veit að það eru menn sem sleppa undan þvi að borga skatt, segir Stefania. Það eru þeir sem kunna að telja fram. Sumir þeirra hafa engan skatt og borga smá- vegis i útsvar. Ég veit ekki hvernig þeir fara að þessu. Um ávisanafalsið segir Stefania: Það er óskaplega ömurlegt fyrir okkar fámenna þjóðfélag að við séum svona djúpt sokkin. Mér finnst þetta afskaplega sárgrætilegt. Tími til kominn að gera eitthvað 1 Hampiðjunni i Reykjavik hitt um við að máli við nokkra menn við netagerð. Viö tökum tali þá félaga Anten Armannsson og Guðmann Karlsson. Anton segir að það sé kominn timi til að gera eitthvað i þessum skattamálum þvi að einhvers staðar hljóti pottur að vera brot- inn. Ég er með um 65 þúsund krónur á mánuð: og fæ 170 þúsund krónur i skatta og útsvar og svo sér maður þessi skatt- lausu stórinenni. Ef maður stæli einhvers staðar smá peningaupphæð þá yrði mað- ur umsvifalaust hirtur en það er vist aðalatriðið að hafa upphæð- ina nógu háa. Þá sleppur maður. Guðmann vill litið leggja til mála. Hann er 18 ára gamall og vissi ekki enn hvað hann hafði fengið i skatta. Stefania Þorsteinsdóttir stendur hér undir gamalli vog íkjallara Þjóöminjasafnsins (Myndir: eik). Viðar Benediktsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.