Þjóðviljinn - 04.09.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.09.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 4. september 1976 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 11 Matthías kemur ekki fyrr en á mánudaginn HSK sigraði með nokkrum yfirburðum i skemmtilegri keppni á Unglinga- meistaramóti Islands í sundi HéraOssambandib Skarp- héðinn, HSK, sigraði i stiga- kcppninni' á Unglingameist- aramótinu i sundi sem fór fram um siðustu helgi. Loka- stig féllu þannig aðHSK sigr- aði með 137 stig, Armann kom næstur með 122 stig, siðan Ægir með 97,8 stig, IBK með 97,3stig,tA 75 stig, KR 75 stig, Breiðablik 50 stig, Óðinn Akureyri 35 stig, Sundfélag Hafnarfjarðar 36,5 stig og lestina rak UMSB með 22,3 stig. Brynjólfur Björnssonúr Ar- manni hlaut flest verðlaunin á mótinu, en hann sigraöi I hverri greininni á fætur ann- arri og tók með sér heim sex gullverölaun. Hann setti drengjamet i 200 m. fjórsundi erhannsyntiá 2,25.0 mínútum og lofar hann svo sannariega góðu I framtiðinni. Af öðrum þátttakendum má nefna Sonju Hreiðarsdóttur úr IBK sem vann margar greinar og lofar góðu ásamt fjölda 'annarra keppenda. .— gsp Tvær landsliðsæfingar í gær og síðan haldið strax til Þingvalla Tvær æfingar voru hjá islenska knattspyrnulandsliðinu sem á sunnudaginn mætir belgiumönn- um á Laugardalsvelli klukkan 18.15. Að lokinni seinni æfingunni var svo haldið beint til Þingvalla og þar verður dvalist fram að leik við æfingar og „afslöppun”. Einnig verður æft á Laugarvatni. Stemmningin á æfingunum i gær var hin ágætasta og létt yfir mannskapnum, þrátt fyrir erfið- an leik framundan. Myndirnar sem hér fylgja voru teknar i gær, en á æfingarnar vantaði þrjá menn, þá Inga Björn, sem ennþá var veikur, Jóhannes Eðvaldsson og svo Matthias eða þann mann, sem i hans stað kemur. Tony Knapp var sitalandi að vanda, þrátt fyrir erfið veikindi undanfarna daga. Það er ekki annað að sjá en að æfingin hafi veriö hressandi. Guðgeir og Tony Knapp ekki á eitt sáttir Þeir voru hressir landsliðsstrákarnir I gær,og hér er I uppsiglingu skyndiárás á Ijósmyndarann sem stakk þó landsliðsmennina léttilega af f spretthlaupinu! „V alið stendur á milli Hinriks og Vilhjálms” — segir Tony Knapp og lýsir megnustu skömm sinni á afstöðu Halmia-liðsins Nú er endanlega Ijóst að Matthías Hallgrimsson kemst ekki til Islands til þess að leika með gegn belgíumönnum á sunnu- daginn. Hann lenti i mikl- um útistöðum við sænska félagsliðið sitt, Halmia, en þrátt fyrir margendurtek- intilmæli KSi og Matthías- ar neituðu svíarnir stað- fastlega að láta hann laus- an. Matthias hótaði hins vegar að fara i trássi við öll fyrirfhæli svi- anna, en þeir komu með hótanir um að svipta Matthias i staðinn öllum launum og réttindum. Matthias mun þvi láta undan, þótt þetta séu brot á öllum þeim lof- orðum sem Halmia gaf bæði hon- um og KSI þegar gengið var frá samningunum á sínum tima. — Þetta er reginhneyksli,sagði Tony Knápp þegar hann var tek- inn tali á landsliðsæfingu I gær. — Og það sem meira er, þeir viija ekki sleppa honum þótt hann eigi aðeins að vera varamaður með liði sinu um helgina. Matthias komur þvl ekki fyrr en á mánu- daginn,en hann veröur þá vonandi með á móti hollendingunum. — Hver kemur þá I staðinn? — Það er ekki búið aö ákveða þaö ennþá, en þó er vist að það verður annaö hvort Hinrik Þór- hallsson eða Vilhjálmur Kjart- ansson úr Val. Við munum ákveða þetta i kvöld eða fyrra- málið og fá þá þann útvalda beint á Þingvelli til okkar. — gsp Matthias — varðaðláta undan.en verður með á móti hollendingum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.