Þjóðviljinn - 04.09.1976, Page 14
14 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. september 1976
Siðustu iþróttafréttir:
Jón Gunnlaugsson
valinn í landsliðið
Seint i gærkvöld tilkynnti
Tony Knapp landsliðsþjálfari,
að Jón Gunnlaugsson frá Akra-
nesi hefði verið valinn vara-
maöur fyrir Matthias Hall-
grfmsson í leiknum viö belgiu-
menn á morgun. Er hann valinn
með tilliti til þess, að hann geti
tekið stöðu Jóhannesar Eð-
valdssonar, ef hann kemstekki
til landsins i tæka tið.
Ársþing
UÍA á
V opnaf irði
Ungmenna- og iþróttasamband
Austurlands heldur 33. ársþing
sittá Vopnafirði dagana 12. og 13.
september n.k.
Auk venjulegra
r
Avisanir
Framhald af bls. 16
unarinnar. í þessari könnun
kemur fram, að 5 aöilar hafa hver
um sig gefið út ávisanir fyrir 100-
557 miljónir á tveggja ára tima-
bili. 8 aðilar hafa framselt yfir
100 miljónir hver yfir timabilið.
Hér er sumpart um einhverja
sömu aðila að ræða sem útgef-
endur i einu tilfelli en framselj-
endur i öðru. Rétt er að láta þess
getiö að hér er sumpart um fyrir-
tæki að ræða i fullum rekstri og
þarf þvi útgáfa þetta mikillar
upphæðar ekki endilega aö vera
tortryggileg.
Athugaðir voru 26 reikningar,
en það eru aðeins 15 menn sem
ávisa á þessa reikninga. Nokkuð
ljóst er að sumir útgefenda koma
fram fyrir aðra aðila. Svo virðist
sem slikir aðilar geti ætið fundið
sér nýja aðila til þess að opna
bankareikninga fyrir sig, hafi
þeirra eigin reikningum verið
lokað. bá er hér um 12 fyrirtæki
að ræða, sum þeirra eru ekki á
firmaskrá.
Hrafn sagði að þeir bankar sem
teljast mættu aðalbankarnir I
þessumáli væru: Landsbankinn,
Búnaðarbankinn, Alþýðubank-
inn, tltvegsbankinn, Verslunar-
bankinn, Iðnaðarbankinn og
Sparisjóðurinn Pundið. En hann
tók fram að alls ekki væri vist
nema fleiri bankar kæmu inn i
málið. Hann tók fram, að þótt
ákveðnir aðilar næðu fjármagni
útúr bönkunum meö tékkakeðju,
þá er ekki endilega þar með sagt
að viðkomandi bankar tapi á þvi.
Og meira að segja sagði Hrafn að
hugsast gæti, að bankarnir högn-
uðust á öllu saman og átti þar við
hina háu vanskilavexti og kostnað
sem sliku fylgdi. Hitt er ljóst að
reikningshafar þeir sem mynda
tékkakeðju, taka sér fé, án þess
að spyrja nokkurn um það og án
þess að greiða fyrir það. Enginn
þeirra banka, sem hér hafa verið
nefndir, hafa gefið upp að þeir
hafi tapað fé á þessari tékka-
keðju, sem hér um ræðir.
Hrafn margtók fram, að rann-
sókn málsins væri svo stutt á veg
komin, að segja mætti að nær all-
ir endar þess væru enn lausir.
—S.dór.
aðalfundarstarfa verða eftirtalin
mál reifuð og rædd:
1. Skíöamiðstöðá Austurlandi.
Málshefjandi Gunnar Ólafsson
Neskaupstað.
2. Minjasafn Austurlands og
framtið þess. U.l.A. hefur verið
aðili að stjórn Minjasafnsins frá
stofnun þess.
3. Gönguleiðir á Austurlandi.
Hermann Nielsson kynnir starf
gönguleiöanefndar. Lögð verða
fram þau tvö gönguleiðakort, sem
þegar eru komin út.
4. Niðurstöður ráðstefnu um
æskulýðsmál, sem haldin var á
Hallormsstað i sumar.
5. Sumarhátið U.l.A.
6. Lagabreytingar.
Tillögur sem óskast teknar fyr-
ir á þinginu skulu hafa borist
stjórn sambandsins, eða fundar-
stjóra áður en þing verður sett.
Fiskimál
Framhald af bls. 2
ins i Norður-Þrændalögum. En
auðséð er á þeim fréttum sem
þaðan hafa borist og ég hef hér að
framan birt útdrátt úr, að þetta
mál hefur engan veginn jafnast I
sumar á milli deiluaðila, heldur
virðist það allt hafa magnast og
færst i aukana. Er þvi ekki auð-
velt að geta sér til, hver endalok
þessarar deilu verða.
Ólik viöhorf sjómanna i
Suður-T romsf y Iki
A sama tima og sfldveiöisjó
menn i Norður-brændalögum
skömmuðu norska haf- og fiski-
fræðinga útaf veiðibanni á sild
eins og sagt er frá hér að framan,
þá varð allt annað uppi á teningn-
um hjá sjómönnum á aðalfundi
fiskifélagsins I Suður-Tromsfylki.
Þar var óskað viðræðna við Haf-
rannsóknarstofnunina um að
leyft yrði að veiða ákveðið magn
af sild á næsta ári til matvæla-
framleiðslu og i beitu, en að við
það yrðu einungis notuð net. Hins
vegar var samþykkt að krefjast
þess að sildveiði með snurpunót
yrði algjörlega bönnuð næstu 5
árin.
Fastakúnnar
Framhald af bls. 1
hringurinn hef ur komið við
sögu, vita nöfn ,,sinna"
manna úr hringnum. Nöfn
sumra þeirra manna sem
hlut eiga að máli í tékka-
keðjumálinu hafa að sögn
Hrafns komið meira og
minna vjð sögu í þeim f jöl-
mörgu tékkasvikamáTum,
sem hann hef ur fengist við
í tólf ára starfi sínu sem
borgardómari. En auðsjá-
anlega hefur það ekki dug-
að til þess að loka banka-
kerfinu fyrir þeim.
Ég þakka af alhug vinum og vandamönnum hlýjar
kveðjur og góðar gjafir 24. ágúst siðastliðinn.
Jón Kaldal
Eiginmaður minn
Guðmundur A. Björnsson, Skúlagötu 52 lést I Landakotsspitala 3. september. Fyrir hönd aðstandenda
Guðmunda Agústsdóttir
Gaman
og alvara
úr
borgar-
ráði
I fundargerð siðasta borgar-
ráðsfundar segir að til umræðu
hafi verið tillaga um að koma á
fót athvarfi i Austurbæjarskóla
fyrir unglinga, sem fallnir eru út
úr skólakerfinu vegna hegðunar-
erfiðleika. Var þetta samþykkt.
Einn borgarráðsmanna, Albert
Guðinundsson, lét þó samþykki
sinu fylgja bókun, þar sem segir
um skilyrði hans fyrir samþykki:
,,... en samþykki hans er háð þvi,
að starfsemi sú sem lagt er til að
hafin veröi til rcynslu á komandi
vetri, verði ekki að neinu leyti
rekin af sálfræðingum.”
Or Æfingastöðinni
Fjölskylduhátlð
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra heldur sina
árlegu kaffisölu i Sigtúni við Suð-
urlandsbraut á morgun, sunnu-
daginn 5. september, kl. 2-6.
A boðstólum verða úrvals kaffi-
veitingar og meðlæti. Einnig
verða fjölbreytt skemmtiatriði:
Pónik og Einar leika, Ómar
Ragnarsson skemmtir, Magnús
Ingimarsson leikur á pianó, Unn-
ur Arngrímsdóttir stjórnar tisku-
BEIRUT 3/9 (Reuter) — Elias
Sarkis, sem útnefndur hefur verið
forseti Libanons og á að taka við
völdum 23. september, hóf I dag
viðræður við fulltrúa deilduaðila i
sýningu. Þá verður einnig bingó
með glæsilegum vinningum. Spil-
aðar verða sex umferðir um
Kanarieyjaferð, málverk, veiði-
leyfi, myndavél og fl. Bingóið
hefst kl. 16.30.
Styrktarfélagið hefur unnið
fjáröflun til Æfingastöðvarinnar
við Háaleitisbraut og rennur
ágóðinn af fjölskylduhátiöinni
þangað og til starfseminnar i
Reykjadal.
herrar arabaríkjanna að koma
samantil fundari Kairó til aöræða
ástandið i Líbanon. Eiga þeir að
leggja drög að fundi æðstu manna
arabarikjanna.
ómenntaður
yfirkennari
Kristján Benediktsson lét bóka
eftir sér svohljóðandi sem vart
vekur kátinu:
,,Ég lýsi furðu minni á þvi, að
meirihluti fræðsluráðs skuli
leggja til, að maður sem ekki hef-
ur réttindi til kennslu, hvorki próf
frá kennaraskóla né háskóla,
verði skipaður yfirkennari við
Laugalækjarskóla.”
Sendibréf frá Alþýðu-
bandalaginu.
En það er greinilega Albert
Guðmundsson, sem heldur uppi
húmornum á borgarráðsfundum.
1 tilefni af bókun Sigurjóns
Péturssonar vegna úthlutunar
iðnaðarlóða og birt var hér I blað-
inu sl. miðvikudag, lét Albert
bóka eftir sér og segir þar ma.:
,,... eru eingöngu fram settar til
þcss að skapa tortryggni i garö
þeirra, sem stunda verslunar- og
þjónustustarfsemi.
Legg ég til að tillaga S.P. verði
felld sem hreint áróðursplagg,
enda lit ég á hana sem sendibréf
Alþýðubandalagsins inn á fund
borgarráðs.”
—úþ
Libanon:
F riðarumræður
landinu. Orðrómur er uppi um að
sýrlendingar hafi fallist á tillögur
hans um að koma á friði i
Libanon.
Sarkis fór til Damaskus á
þriðjudaginn til að ræða þar við
Hafez Assad forseta Sýrlands, en
mjög lítið hefur verið látið uppi
um þeirra viðræður. Hins vegar
hefur Sarkis nú byrjað á við-
ræðum við ýmsa fulltrúa deilu-
aðila og er búist við þvi að hann
skýri Assad frá niðurstöðum
þeirra áður en hann tekur við
völdum.
Dagblaðið An Nahar, sem er
sjálfstætt, skýrði frá þvi i dag að
sýrlendingar hefðu fallist á til-
lögur Sarkis um friðsamlega
lausn deilunnar i Libanon.Átti rit-
stjóri blaðsins viðtal við Sarkis i
gær. Miklar getgátur hafa verið
uppi um það að sýrlendingar
myndu hafja stórsókn i Libanon
til að binda endi á styrjöldina, ef
ekki næðist eitthvert samkomu-
lag á næstunni. Búist er viö því að
Sarkis hefji viðræður við æðstu
menn allra deiluaöila I næstu
viku.
t dag komu fulltrúar palestínu-
araba og falangistaflokksins
saman til fundar til að ræöa um
nýtt vopnahlé sem komið yrði á 1
áföngum. Ef þetta vopnahlé
verður samþykkt verður það 55.
vopnahléð, sem samkomulag
hefur náðst um i Libanoa Hin 54
hafa öll fariö út um þúfur á
stuttum tima. Sagði útvarpsstöð
vinstri manna i Beirut að báðir
aðilar myndu einnig ræða tillögur
sem borist hafa frá Damaskus
um samningafund ásamt full-
trúum sýrlendinga.
A morgun eiga utanrikisráð-
Styrktarmenn Alþýðubandalagsin$
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins, sem enn hafa ekki greitt fram-
lag sitt til flokksins á þessu ári, eru vinsamlega minntir á að greiða það
sem fyrst með gíróseðli inn á hlr. Alþýðubandalagsins i Alþýðubankan-
um nr. 4790, eða senda það beint til skrifstofunnar að Grettisgötu 3.
Seyðisfjörður
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Seyðisfirði verður haldinn mið-
vikudaginn 8. sept. 19761 Barnaskólahúsinu og hefst kl. 20.30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á aðalfund Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins I
Austurlandskjördæmi
3. Onnur mál
Þingmenn Alþýðubandalagsins á Austurlandi mæta á fundinum
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Norðurlandskjördæmi eystra. —
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Alþýöubandalagsins I Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldið á Akureyri laugardaginn 11. september i Alþýðuhúsinu
og hefst kl. 13.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. t/tgáfumál. 3. Stjórnmála-
ástandið. 4. Verkalýðsmál.
Stefán Jónsson, alþm., mætir á fundinn. Kjartan Ólafsson, ritstjóri,
verður gestur þingsins.
Alþýðubandalagið i Kjósarsýslu
Aðalfundur Alþýðubandalagsins I Kjósarsýslu verður haldinn að Hlé-
garöi miövikudaginn 8. sept. 1976 og hefst kl. 20.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæm-
isráö. 3. Finnur Torfi Hjörleifsson ræðir um málefni Þjóðviljans. 4.
önnur mál. — Geir Gunnarsson alþingismaður mætir á fundinum. —
Stjórnin.