Þjóðviljinn - 02.10.1976, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. október 1976
• Ekki hœgt að aðskilja póli- • Lagði til að haldin yrði önnur
tiskt og efnahagslegt lýðrœði ráðstefna um efnahagslegt lýðrœði
Magnús Kjartansson um lýðræðisráðstefnu Norðurlandaráðs
„Umræðum alltof þröngur
stakkur skorinn
99
/.Umræöur á þessari
ráðstefnu Norðurlanda-
ráðs um lýðræðið voru á
býsna háu stigi og
skemmtilegar. Það voru
haldin nokkur framsögu-
erindi misjafnlega vel
undirbúin, og síðan skipt-
ust á stuttar ræður og fyr-
irspurnir. Hinsvegar voru
þær ekki sérlega spennandi
eða tímamótamarkandi
vegna þess að allir þykjast
aðhyllast lýðræðið og tala
fjálglega um lýðræðisást
sína. Staðreyndin er nátt-
úrulega sú að þótt borgara-
flokkarnir vilji nú Lilju
kveðið hafa þá hefur á
undanförnum áratugum
þurft að berja á þeim til
þess að fá þá til að fallast á
umbætur, sem horft hafa í
lýðræðisátt. Það hefur ver-
ið hlufverk hinna sósíal-
ísku verkalýðsf lokka að
þrýsta á í þessum efnum
og hver áfangi hefur kost-
að baráttu."
Þetta sagði Magnús Kjartans-
son, alþingismaöur, i gærmorgun
um ráðstefnu Norðurlandaráðs i
Kristjánssand I Noregi sem hald-
in var dagana 27.-29. sept.
Magnús sótti ráðstefnuna sem
fulltrúi I Norðurlandaráði og kom
heim á fimmtudagskvöldið. A
annað hundrað þátttakendur voru
á ráöstefnunni. Fjórum af fulltrú-
um hvers lands i Norðurlandaráöi
var boðið til ráðstefnunnar, svo
og fulltrúum samtaka atvinnu-
rekenda og verkalýðshreyfingar-
innar. Þá voru meðal ráðstefnu-
gesta nokkrir blaðamenn og for-
ystumenn i menningarmálum.
Viðfangsefnið i Kristianssand
var að beina athyglinni að póli-
tisku lýðræði. Þetta setti umræð-
unum alltof þröngan ramma og
var það meginumræðuefnið i
ræðu, sem Magnús Kjartansson
flutti á ráðstefnunni.
Magnús byrjaði ræðu sina á þvi
að gera grein fyrir pólitiskri stöðu
sinni. Hann kvaðst vera sósial-
iasti en vildi hvorki nefna sig
sósialdemókrata eða kommún-
ista. Sú aðgreining væri sprottin
af sögulegum ágreiningi, en að-
stæður væru svo breyttar I dag,
að þessi hugtök vísuðu aðeins tií
þessarar forsögu hins sögulega á-
greinings, en segðu ekkert um nú-
tiðina og þaðan af siður um fram-
tiðina. Sem dæmi um þetta mætti
taka skiptinguna i krata- og
kommaflokka i Evrópu. 1 suður-
hluta álfunnar nefndu stærstu
verkalýðsflokkarnir sig
kommúnistaflokka, en i norður-
hlutanum sósialdemókrataflokk'a.
Ef hinsvegar væri litiö á verk
þessara flokka utan og innan
þjóðþinganna væru þau ákaflega
hliðstæð. Með verkin sem for-
sendu væri varla hægt að skipta
þeim I vinstri og hægri flokka.
Þá ræddi Magnús um það að i
þvi að vera sósialisti fælist fyrst
og fremst að styrkja hið pólitiska
lýðræði og útvikka það þannig að
það næði einnig til efnahagsmála.
Pólitiskt og efnahagslegt lýðræði
væru tvær hliðar á sama máli.
Pólitiskt lýðræði yrði aldrei nema
nafnið ef ekki rikti efnahagslegt
lýðræði um leið og hið efnahags-
lega lýðræði einskis virði ef ekki
væri pólitiskt lýðræði. Þvi væri
ekki hægt að fjalla um þetta sem
tvö aðgreind og jafnvel óskyld
mál. Magnús fagnaði þvi sérstak-
lega að sósialdemókratar I Dan-
mörku, Noregi og Sviþjóö hefðu
siðasta áratug veitt þessum mál-
um1 vaxandi athygli. Sænskir
sósialdemókratar væru lengst á
veg komnir. Þeir hefðu stofnað
digra sjóði, sem beinlinis hefðu
þann tilgang að kaupa upp fyrir-
tæki og koma þeim i almennings-
eign. Þá hefði á siðasta þingi i
Sviþjóð verið samþykkt löggjöf
um vaxandi völd og áhrif verka-
fólks og opinberra starfsmanna i
fyrirtækjum og stofnunum.
Magnús lýsti þeirri skoðun sinni
að átök á þessu sviði yrðu vax-
andi verkefni á Norðurlöndum á
næstu árum.
Þá nefndi Magnús hina gömlu
hugsjón sósialista um framtiðar-
riki þar sem búið væri að dreifa
valdinu þannig að rikisvaldiö yrði
veikara og veikara, fleiri og fleiri
tækju pólitiskar og efnahagsl. á-
kvaröanir, þangað til rikisvaldið
dæi út að lokum. Þetta sýndist
vera óraunsær óskadraumur i
hinum miöstýröu risaveldum
samtlmans.
Magnús Kjartansson tekur til við
þingmennskuna að nýju.
Ætlar að
taka sœti á
Alþingi i
þingbyrjun
Fjarlægðin milli hins al-
menna manns og valdhafanna
væri nánast óbrúanleg i þessum
risaveldum, við hvaða stjórnar-
far sem þau kenndu sig. Hér átti
hann sérstaklega við riki eins og
Bandarikin, Sovétrikin, Kina,
Indland og hið nýja risariki sem
verið er að reyna að stofna i Vest-
ur-Evrópu. Hann vitnaði i bók eft-
ir sænska hagfræðinginn heims-
þekkta Gunnar Myrdal, þar sem
hann færir býsna gild rök að þvi
að það séu smárikin i Vestur-
Evrópu sem hafi náö mestum
efnahagsframförum og um leið
tekist best að tryggja mannúðlegt
réttlæti i framkvæmd. 1 þessum
löndum sé framtiðardraumur
sósialista ekki eins fjarlægur og i
risaveldunum. Allra sist væri
hann óraunsær á Noröurlöndum
og i hópi þeirra væru möguleik-
arnir á framkvæmd sósialismans
mestir á tslandi, þvi islendingar
væru svo gæfusamir að vera fá-
mennir.
„Þessar hugleiðingar minar og
vangaveltur i stuttri ræöu voru
hugsaöar sem gagnrýni á ráð-
stefnuna. Ég taldi að grundvöll-
urinn fyrir henni væri svo ein-
hliða, að Norðurlandaráð gæti
ekki verið þekkt fyrir þaö. Um
það bil helmingur kjósenda á
Norðurlöndum aðhylltist sósial-
isma i einhverri mynd og vildi
koma efnahags- og framleiðslu-
kerfinu i hendur almennings.
Þessvegna taldi ég það skyldu
stjórnar Noröurlandaráðs að
gangast fyrir annarri ráðstefnu
hið fyrsta um efnahagslýðræði.
Tilgangurinn með ræðunni var
þvi að koma þessari hugsun • á
framfæri.”
Þannig fórust Magnúsi Kjart-
anssyni orð er Þjóðviljinn ræddi
við hann um ráðstefnuna i gær.
Tillaga hans hlaut nokkrar undir-
tektir og meðal annars tók
Trygve Bratteli, fyrrv. forsætis-
ráðherra Noregs, mjög I sama
streng. Ýmsir fleiri tóku undir
hugmyndina.
Aðspurður um hlut annarra is-
lendinga á ráðstefnunni sagði
Magnús að Ragnhildur Helga-
dóttir, formaður Norðurlanda-
ráðs, hefði sett ráðstefnuna, og
Indriði G. Þorsteinsson, rithöf-
undur, flutt framsöguerindi. Þá
hefði Guðlaugur Þorvaldsson, há-
skólarektor, flutt stutta ræðu þar
sem hann ræddi einkum um hvað
lýðræðisleg vinnubrögð væru
timafrek og varpaði fram þeirri
spurningu hvort menn hefðu eða
vildu gefa sér tima til þess að við-
hafa þau. Baldur óskarsson flutti
einnig ræðu og ræddi einkum um
þær hættur sem lýðræðinu stafaði
af einkaauðvaldi og alþjóðlegu
auðvaldi. Siðan greindi hann frá
spillingaráhrifum einkaauð-
valdsins og nefndi meðal annars
tvö dæmi sem islendingar kann-
ast við um húsakaup núverandi
samgönguráöherra af Alverinu á
sama tima og það sótti um stækk-
un álverksmiðjunnar og oliumál-
ið alræmda.
Þjóðviljinn spurði einnig um
viðbrögð fjölmiðla við þessari
ráðstefnu:
„Þau voru ekki mikil. Staöar-
blööin þarna i suðurhluta Noregs
sögðu að visu frá henni, en stór-
blöð á Norðurlöndum sögðu að-
eins frá setningu hennar. Nokkrir
blaðamenn sem voru á ráöstefn-
unni munu sjálfsagt fjalla um
hana I yfirlitsgreinum, en annars
var viðfangsefnið ekki það spenn-
andi eins og ég hef áður sagt, að
þess væri að vænta að ráðstefn-
unni væri sýndur mikill áhugi. A
hinn bóginn hefði mátt gera ráð
fyrir miklum undirtektum ef rætt
hefði verið á raunhæfan hátt um
vandamál lýðræðisins og efna-
hagslifið hefði verið tekið með i
dæmið. Á þvi sviði væru átaks-
punktarnir i dag.”
Magnús Kjartansson hefur ný-
lega hafið þátttöku I pólitisku
starfi og farið að koma fram opin-
berlega eftir nokkurt hlé. Meðal
annars hefur hann byrjað leið-
araskrif i Þjóðviljann og komið
fram i útvarpi. Þjóðviljinn spurði
Magnús að lokum hvort hann
myndi taka sæti á þingi I haust, en
sú spurning hefur verið mörgum
ofarlega i huga að undanförnu.
— „Já, ég hef hugsað mér það.
Það er nokkur vandi sem stafar
af þrengslum I húsakynnum Al-
þingis. Ég geng við tvær hækjur
sem stendur og ég hef rætt það við
forseta neðri deildar og forseta
Alþingis hvort hægt sé að útvega
mér hljóðnema, þannig aö ég geti
talað úr sæti mínu, ef ég til taka
til máls. Þeir hafa tekið mjög vel i
þessa málaleitan og takist að
leysa vandamál af þessu tagi fyr-
ir mig geri ég ráð fyrir aö taka
sæti mitt á Alþingi I þingbyrjun.”
—ekh.
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða nú þegar manneskju til skrif-
stofustarfa og simavörslu hálfan daginn.
Verslunarskóla eða hliðstæð menntun
æskileg.
Upplýsingar um starfið gefur starfs-
mannastjóri.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Iþróttatímar
Nokkrir kvöldtimar i iþróttasölum skól-
anna i Reykjavik eru lausir i vetur. Hent-
ugir m.a. fyrir badminton og blak.
íþróttabandaiag Reykjavikur,
íþróttamiðstöðin, Laugardai
F r amboðsf restur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar á 33. þing Alþýðu-
sambands íslands, sem hefst 29. nóv. n.k.
Kjörnir verða 12 fulltrúar og jafnmargir
til vara. Framboðslistar þurfa að hafa
borist kjörstjórn á skrifstofu Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar Skólavörðustig
16, fyrir kl. 12 mánudaginn 4. október n.k.
Kjörstjórn