Þjóðviljinn - 12.10.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 12. október 1976 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3
Útnefning HIJAS
ekki enn tilkynnt
opinberlega
PEKING 11/10 (Reuter) — Tals-
verð óvissa rikir nú I Kina að
sögn. Á laugardaginn voru limd
upp veggspjöld i Peking,
Sjanghai og Nanking með til-
kynningu um að Hua Kúo-feng
hefði verið útnefndur eftirmaður
Maos, en enginn opinber tilkynn-
ing hefur verið gefin út um það
enn. Hua Kuo-feng kom opin-
berlega fram i dag þegar hann
tók á móti forsætisráðherra
Papúu, og var þaö i fyrsta skipti
siðan á iaugardaginn, en málin
virtust þó ekki skýrast við það.
Veggspjöld hafa verið limd upp
með hvatningu til fólks um að
styðja herinn og meðal erlendra
sendimanna i Peking var orðróm-
ur um valdabaráttu. Annan dag-
inn i röð hvatti Alþýðublaðið i
Peking lesendur sina til að forð-
ast sundrung, undirferli og
samsæri.
1 kvöld var enn óvist hvenær
útnefning Huas yrði tilkynnt, og
þykir þessi óvissa benda til
sundurþykkis meðal valdhafa eða
alvarlegs áreksturs.
Þegar Hua fór á flugvöllinn til
að taka á móti forsætisráðherra
PapUu var Li Hsien-nien
varaforsætisráðherra og einn af
leiðtogum „hægfara-arms”
kinverskra kommúnista i för með
honum, en enginn af þeim sem
taldir hafa verið til róttækara
armsins. Giskað hefur verið á að
Li, sem er helsti fjármálasér-
fræðingur Kina og var náinn sam-
starfsmaður Sjú En-læs, kunni að
vera útnefndur forstæisráðherra
og væri það sigur fyrir „hægfara
arminn”.
Þúsundir manna flykktust
saman á götum borgarinnar
Hua Kuo-feng.
Hangchow i austurhluta Kina i
dag og börðu á trumbur til stuðn-
ings við útnefningu Huas.
RÓDESÍA
Bilið
breikkar
Það er hætt viö að það verði gagnslaust fyrir Ian Smith þótt hann taki
stöðugt harðari afstöðu.
LUSAKA 11/10 (Reuter) — Eftir
þvi sem ráðstefna sú, sem bretar
boða til i Genf um stjórnarskipti i
Ródesiu, nálgast virðist
ágreiningur milli minnihluta-
stjórnar hvitra manna og leiðtoga
svartra þjóðernissinna vera að
aukast.
Fulltrúar þriggja helstu flokka
þjóðernissinna lögðu I dag
áherslu á að svertingjar yrðu að
fá yfirumsjón með her landsins
og lögreglu meðan bráðabirgða-
stjórnin færi með völd, en
Ródesiustjórn sagði hins vegar að
hún myndi ekki fallast á neinar
breytingar á þeim tillögum sem
Kissinger hefði borið fram og Ian
Smith siðan samþykkt. í gær
sagði Ian Smith að hvitir menn
yrðu að fara með löggæslu á
valdatima bráðabirgðastjórnar.
Þegar Robert Mugabe, einn
helsti leiðtogi þjóðernissinna, var
spurður um horfurnar á Genfar-
ráðstefnunni, sagðist hann ekki
vera bjartsýnn, og sagði hann að
ekki væri neinn grundvöllur til að
hefja umræður við Ian Smith.
Mugabe hefur farið fram á að
ráðstefnunni yrði frestað um tvær
vikur. Gagnrýndi hann breta
fyrir að hafa ekki ráðfært sig við
þjóðernissinna áður en þeir
boðuðu til ráðstefnunnar. Hann
sagði einnig að það væru kröfur
Smiths um að hyitir menn fengju
yfirrað yfir her og lögreglu sem
yllu svartsýni hans. Hreyfing A
bels Muzorewa biskups sagði að
ekki væri hægt að fallast á það að
hvitir nýlendumenn héldu yfir-
ráðum yfir helstu þáttum rikis-
valdsins meðan valdataka meiri-
hlutastjórnar væri undirbúin, og
yfirmenn i þeirri hreyfingu, sem
Nkomostýrir sögðu að meirihlut-
inn yrði að fá full umráð yfir öll-
Framhald á bls. 14.
Landhelgisviðrœður milli
norðmanna og sovétmanna
MOSKVU 11/10 (Reuter) — A
morgun hefjast i Moskvu viðræð-
ur norðmanna og sovétmanna um
fiskveiðiréttindi I Barensts—hafi.
Hafa þeir hlutar hafsins, sem
deilurnar standa heist um, verið
taldir mjög mikilvægir frá
hernaðarlegu sjónarmiði.
Yfirmaður norsku samninga-
nefndarinnar er Jens Evenson
fiskimálaráðherra, og yfirmaður
sovésku nefndarinnar er Alex-
andr Ishkov, sem einnig er fiski-
málaráðherra. Þeir munu eink-
um ræða ákvöröun norsku
stjórnarinnar aö færa fiskveiði-
lögsöguna út i 200 sjómllur. 1.
janúar 1977. Norðmenn og sovét-
menn hafa ekki orðið ásáttir um
það hvar eigi að draga markalin-
una milli norskrar og sovéskrar
efnahagslögsögu eftir útfærsluna,
og standa deiiurnar um þrihyrnt
hafsvæði, sem er 155.000 ferkiló-
metrar að flatarmáli og lokar
siglingaleiöum til Murmansk.
Þetta hafsvæði hefur mikla
hernaðarlega þýðingu fyrir
Sovétrikin, en auk þess er það
auðugt að fiski og jafnvel oliu og
gasi. Norðmenn byggja kröfur
sinar á samþykkt ráðstefnu sem
haldin var i Genf 1958 um skipt-
ingu landgrunns, en sovétmenn
telja að um það gildi ákvæði sam-
þykktarinnar um „sérstakar
ástæður” og þess vegna eigi að
draga markalinu milli norskrar
og sovéskrar landhelgi vestar en
norðmenn vilja. Viðræðurnar
munu standa yfir i a.m.k. fjóra
daga.
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
Palestínuarabar ráðast á sendiráð
RÓM 11/10 (Reuter) —Skæru-
liðar, sem hliðhollir voru
palestinuaröbum, gerðu i dag
árásir á sendiráð sýrlendinga
i Róm og i islamabad i
Pakistan. 1 árásinni i
tslamabad féll einn skærulið-
anna en i Róm særðist einn
sendiráðsmaður aivarlega.
1 Róm réðust þrir menn
vopnaðir vélbyssum og hand-
sprengjum inn i sendiráð
Sýrlands og særðu þar einn
mann, fyrrverandi blaðafull-
trúa sendiráðsins, sem átti að
taka við nýrri stöðu i Bonn,
áður en þeir gáfust upp fyrir
lögreglunni. Foringi hópsins
sagði blaðamönnum að’til-
gangur árásarinnar hefði ver-
ið sá að draga athygli almenn-
ings að örlögum palestinu-
araba i Libanon og „útrým-
ingarstriði” sýrlendinga gegn
þeim. Sagði hann að þeir væru
félagar úr hreyfingunni
„svarta júni”, sem talin er
hafa aðsetur sitt i Irak, en hún
er nefnd eftir þeim mánuði
þegar sýrlenskt herlið gerði
innrás sina i Libanon á þessu
ári.
Lögreglan áleit að tilgangur
árásarinnar hefði verið sá að
taka sendiherrann i gislingu
en hann var ekki staddur i
sendiráðinu.
1 Islamabad gerðu einnig
þrir menn árás á sendiráð
Sýrlands. Þeir ruddust inn að
sendiráðsbyggingunni og
köstuðu handsprengju, sem
braut rúður en olli ekki öðrum
skemmdum. Um leið hófst
skotbardagi milli palestinu-
arabanna og öryggisvarðar
sendiráðsins og féll einn
palestinumaðurinn en hinir
tveir voru handteknir. Aö sögn
sjónarvotta særðust sjö menn i
bardaganaum. þ.á.m. þrir
lögregluþjónar, en lögreglan
neitaði að gefa nokkrar
upplýsingar meðan málið væri
i rannsókn.
Opinberir talsmenn
palestinuaraba i Beirut
sögðust ekkert vita um þessar
árásir, og sögðu bæði tals-
menn þjóðfrelsishreyfingar
Palestinu, PLO, og alþýðu-
fylkingarinnar til frelsunar
Palestinu, PFLP, að þær væru
ekki á vegum þessara sam-
taka, og væri þeim málið al-
veg óviðkomandi. Talsmenn
PLO sögðu að aðgerðir af
þessu tagi væru ekki þáttur i
baráttu palestinuaraba og
gætu skaðað málstað
palestinsku þjóðarinnar al-
varlega. Þær gætu aðeins orð-
ið skálkaskjól fyrir þá sem
vildu spilla fyrir umræðum
um vopnahlé. Talsmenn
palestinuaraba spáðu þvi að i
kjölfar þessara árása kynni að
farafrekari sókn sýrlendinga i
Libanon.
Hreyfingin „svarti júni” var
fyrst nefnd i sambandi við
árás skæruliða i siðasta mán-
uði á Semiramis-hótelið i
Damaskus. Einn skæru-
liðanna og fjórir gislar týndu
lifinu i skotbardaga, sem af
árásinni hlaust. Hinir skæru-
liðarnir þrir voru hengdir
næsta morgun. Tveimur dög-
um siðar hófu sýrlendingar
stórsókn á hendur palestinu-
aröbum i fjöllunum fyrir
austan Beirut. Giskað hefur
verið á að leiðtogi „svarta
júni” sé maður að nafni Abu
Nidal,sem áður var háttsettur
maður i hreyfingunni A1
Fatah, en sagði svo skilið við
hana 1970. Er talið að flokkur
hans hafi bækistöðvar sinar i
trak.
Dularfullur sjúkdómur í rannsókn
ANTWERPEN 11/10 (Reuter)
— Visindamönnum viö rann-
sóknarstöð hitabeltissjúk-
dóma i Antwerpen hefur tekist
að einangra veiru þá sem
veldur dularfullum sjúkdómi,
sem nýlega kom upp i Mið-Af-
riku. Hins vegar hafa þeir ekki
enn getað skilgreint hann.
Rannsóknarstofnunin i Ant-
werpen er ein af fjórum stofn-
unum af þessu tagi sem nú eru
að kanna orsök þessa sjúk-
dóms, en hann kom upp fyrir
skömmu, og hefur nú a.m.k. 41
maður beðið bana af hans
völdum i Zaire og tólf i Súdan.
Að sögn starfsmanna belgiska
utanrikisráðuneytisins hefur
sjúkdómur þessi einnig
breiðst út til Nigeriu og Sierra
Leone. Helstu sjúkdómsein-
kennin eru hár hiti og miklar
blóðnasir. Aðrar rannsóknar-
stofnanir þar sem sams konar
rannsókn fer fram eru i Paris,
Atlanta i Bandarikjunum og
Salisbury i Englandi. Tals-
maður rannsóknarstofnunar-
innar i Antwerpen sagði að
það væri aðeins fyrsta skrefið
að einangra veiruna, en það
væri nauðsynlegt að skil-
greina hana til þess að hægt
væri að lækna sjúkdóminn eða
finna varnir gegn honum.
Hœtta á nýju málastriði i Belgíu
BRUSSEL 11/10 (Reuter) —
Hætta er talin á þvi að at
kvæðaaukning fransks
þjóðernisflokks I Brussel i
bæja- og sveitastjórna-
kosningum, sem þar fóru fram
á sunnudaginn hleypi aftur af
stað tungumálastriðinu milli
flæmsku- og frönskumælandi
belga, en það hefur legið niðri
að mestu siöan kosningar fóru
fram 1974.
Hinn hægri sinnaði flokkur
FDF „Lýðræðisfylking
frönskumælandi manna”
vann tiu prósentustig i
kosningunum i Brussel, og
fékk hreinan meirihluta i
fimm af nitján kjördæmum
borgarinnar. Hann vann at-
kvæði á kostnað stjórnarflokk-
anna og einnig á kostnað
sósialdemókrata, sem eru i
stjórnarandstöðu. Jafnframt
vann flokkurinn talsvert á i
belti bæjarfélaga umhverfis
höfuðborgina, en þar var
stefnuskrá flokksins sú að
tengja þessi bæjarfélög betur
við Brussel.
Bæði höfuðborgin Brussel og
einnig ýmis úthverfi hennar
eru e.k. frönskumælandi eyja i
landsvæði þar sem flæmsku-
mælandi menn eru i yfirgnæf-
andi meirihluta. Yfirvöld
Brussel vilja færa út borgar-
mörkin inn á flæmskumælandi
svæði, en yfirvöld i þeim
héruðum eru alveg mótfallin
þvi að komast undir yfirráð
frönskumælandi manna. Einn
af foringjum FDF, Roger
Nols, bæjarstjóri i hinu róstu-
sama hverfi Schaerbeek, þar
sem áður hefur komið til bar-
daga milli flæmingja og
vallóna, lofaði þvi eftir
kosningarnar i gær að hann
myndiauka baráttu sina gegn
flæmskum áhrifum i Brussel.
Annar flokkur frönskumæl-
andi manna, RW, sem er
minnsti flokkurinn i stjórnar-
samsteypu Leo Tindemans,
tapaði hins vegar fylgi. Sósial-
demókratar juku fylgi sitt i
iðn aðarborgum Vallóniu
(frönskumælandi hluta
Belgiu), en hins vegar mis-
tókst þeim að ná fótfestu i
Flandern eins og þeir höfðu
vonað. Þar héldu kristilegir
demókratar Tindemans velli.
Þingkosningar eiga ekki að
fara fram i Belgiu fyrren 1978.