Þjóðviljinn - 12.10.1976, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 12. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Starfsfólk og eigandi Innréttingabúðarinnar i nýju versluninni að Grensasvegi 11
Innréttingabúðin flytur í
að Grensásvegi 13
húsnæði
Innréttingabúðin, sem er sér-
verslun með gólfteppi, hefir nú
flutt starfsemi slna I nýtt húsnæði
að Grensásvegi 13, á horni Miklu-
brautar og Grensásvegar.
Síðastliðin 9 ár hefur verslunin
verið til húsa að Grensásvegi 3.
Hin nýja verslun er sennilega
stærsta sérverslun landsins með
gólfteppi. Þar má velja á milli
rúmlega 70 mismunandi gerða og
lita i gólfteppum af breiðum
rúllum, sem sýndar eru á raf-
knúnum sýningarstöndum og
dregnar fram á gólfið ef óskað er.
Auk gólfteppa af breiðum
rúllum býður Innréttingabúðin
alls konar gólfteppi af annarri
gerð. Má þar nefna stök teppi
með austurlensku munstri, sem
sýnd eru i sérstakri rennibraut,
er auðveldar sýningu á þeim.
Ennfremur verða á boðstólum
stök rýjateppi og rýjamottur,
bráðfallegir dreglar á stiga og
ganga, kókosrenningar og kókos-
mottur af mörgum gerðum,
gúmmimottur, plastrenningar til
hlifðar gólfteppum. Einng býður
Innréttingabúðin teppahreinsara
og teppasópa frá skosku fyrir-
tæki, SABCO. Vanir teppa-
lagningamenn annast ásetningu
gólfteppa frá versluninni.
Hin nýja bygging Innréttinga^
búðarinnar fellur vel inni
umhverfið. Hluti hinna rúmgóðu
malbikuðu bilastæða er hitaður
upp með heitu vatni til að hindra
is- og snjómyndun að vetrarlagi.
Aðgangur allur að versluninni er
auðveldur.
Arkitekt að húsinu er Aðal-
steinn Richter. Innréttingabúðin
mun hafa rekstur sinn á tveimur
grunnhæðum hússins en efri
hæðirnar tvær eru fyrir skrif-
stofur og þjónustufyrirtæki.
Bygging þessa mikla húss tók
aðeins 15 mánuði.
Forstjóri Innréttinga-
búðarinnar er Viðir Finnbogason
en framkvæmdastjóri Jón H.
Karlsson.
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Hólmfriður Gunnars-
dóttir heldur áfram lestri
þýðingar sinnar á sögunni
„Herra Zippó og þjófótti
skjórinn” e'ft'ir 'NVls-Oiof
Franzén (8). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða. Tónlist
eftir Pál tsólfssonkl. 10.25:
Ragnar Björnsson leikur á
orgel Dómkirkjunnar i
Reykjavik Passacagliu i f-
moll/ Sinfóniuhljómsveit Is-
lands leikur tónlist við leik-
ritið ,,Gullna hliðið”, Páll P.
Pálsson stj. Morguntón-
leikar kl. 11.00: Enska
kammersveitin leikur Sere-
nöðu nr. 7 i D-dúr (K250),
,,Haffner”-serenöðuna, eft-
ir Mozart, Pinchas Zuker-
man stjórnar og leikur ein-
leik.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Grænn
varstu, dalur” eftir Richard
Llewellyn Ólafur Jóh.
Sigurðsson Islenskaði. Ósk
ar Halldórsson les (23).
15.00 Miðdegistónleikar John
Wilbraham og St. Martin-in-
the-Fields hljómsveitin
leika Trompetkonsert i Es-
dúr eftir Haydn, Neville
Marriner stjórnar. Nicolai
Gedda syngur söngva eftir
Beethoven, Jan Eyron leik-
ur á pianó. Michael Ponti og
Sinfóniuhljómsveitin i
Westphalen leika Pianókon-
sert i f-moll op. 5 eftir Sigis-
mund Thalberg, Richard
Knapp stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 Sagan: „Sautjánda sum-
ar Patricks” eftir K.M.
PeytonSilja Aðalsteinsdótt-
ir les þýðingu sina (12).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Fimm dagar i Geilo
Gunnvör Braga segir frá
nýloknu þingi norrænna
barna- og unglingabókahöf-
unda, — siðara erindi.
20.00 Lög unga fólksins Asta
R. JóhannesdóHir/ kynnir.
21.00 „Golgatá”, sWásaga eft-
ir Sigurð N. Brynjólfsson
Höfundur les.
21.30 Sónata fyrir horn og
pianó eftir Franz Danzi
Barry Tuckwell og Vladimir
Ashkenazy leika.
21.50 Ljóð eftir Svein Berg-
sveinsson Höfundur les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: Ævisaga Sigurðar
Ingjaldssonar frá Bala-
skarði Indriði G. Þorsteins-
son rithöfundur les (21).
22.40 Harmonikulög Erik
Frank leikur
23.00 A hljóðbergiFjögur fræg
atriði úr Pétri Gaut eftir
Henrik Ibsen. Leikarar við
Nationaltheatret i Osló
flytja, — Tore Segelcke, Al-
fred Maurstad og Eva
Prytz.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 McCLoud Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Kúreki I Paradis Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.10 Utan úr heimiÞáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umsjónarmaður Jón
Hákon Magnússon.
22.40 Dagskrárlok
Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Vikingi
Þorbjörn Þórðarson
Þorbjörns Þórðarsonar verður
sannarlega lengi saknað af okkur
Vlkingum. Hann sótti „völlinn”
og leiki félagsins svo lengi sem
heilsan leyfði og jafnvel lengur en
fært var hin seinni árin. Hann
gerðist mjög ungur félagi i
Viking lék þar i öllum andurs-
flokkum og á leikvelli lék hann
flestar þær stöður i sókn og vörn,
sem þar er mögulegt að leika.
Hann naut þesá að leika
knattspyrnu og hafði hina mestu
ánægju af uppbyggingu og leik
hennar, var sjálfur fljótur og
kappsfullur en ætið drengilegur
og góður leikmaður.
Þorbjörn átti lengi sæti I stjðrn
félagsins og var eitt ár formaður
þess.Hannstarfaði þar auk þess i
ótal ráðum og nefndum, sem
nauðsynlegt er i hverju sliku fé-
lagi. Hann slitnaði raunar aldrei
úr tengslum við félagið, eins og þó
alltof algengt er, þegar menn
hætta iþróttaiðkunum sjálfir og
ný áhugamál skjóta upp koll-
inum. Seinni árin tók hann þátt i
störfum fulltrúaráðs félagsins en
fyrir nokkrum árum var hann
sæmdur gullmerki félagsins fyrir
sin frábæru störf i þágu Víkings.
1 lifsstarfi sinu sem málari var
Þorbjörn hinn mesti snillingur og
nutum við Vikingar þess, er hann
teiknaði og hannaði félagsmerki
okkar, sem að allra mati er bæði
stllhreint og fallegt. Þess má þá
einnig minnast að eitt seinasta
verk er hann vann fyrir félag sitt
var að mála félagsmerkiö stórt og
myndarlegt til notkunar og prýðis
I Skiðaskála Vikings.
Vikingar munu jafnan minnast
þess hve Þorbirni var annt um fé-
lagið og hann bar hag þess og
gengi ætið vel fyrir brjósti. Við
blessum minningu Þorbjarnar
Þórðarsonar og öll hans störf
fyrir Viking eru geymd en ekki
gleymd af ungum sem öldnum.
Við sendum eftirlifandi maka
hans frú Charlottu og vensla-
mönnum öllum okkar innilegustu
samúðar- og saknaðarkveðjur.
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, vísindabæk-
ur, skáidsögur, listaverkabækur, éinnig
nótur og hljómpiötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakiu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæö. Simi
28035.
NV Verslunarmannafélag
Suðurnesja
Stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins hefur
ákveðið að viðhafa allherjar atkvæðagreiðslu um kjör aðalf ulltrúa félags-
ins og 5 til vara á 33. þing ASI sem haldið verður í Reykjavik dagana 29.
nóv. til 3. des. n.k. Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar
Sigurðar Sturlusonar, Faxabraut41, D, Kef lavík eigi síðar en mánudaginn
18. okt. n.k.
V.
Verslunarmannafélag Suðurnesja
Bifreiðasmiðir
Réttingarmenn
Okkur vantar menn i nýsmiði bifreiða og
réttingar . Uppl. i sima 44221.
Bifreiðasmiðja Sigurbjörns Bjarnasonar
Vesturvör 24, Kópavogi.
VINNINGUR
i merkjahappdrætti berklavarnadags 1976
kom á númer
1465
S.I.B.S.
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468