Þjóðviljinn - 12.10.1976, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. október 1976
Enn tefst
bygging í
Arnar-
holti
„Það var um það samið við
verktaka fyrir meira en ári að
byggingu þessari skyldi lokið I
ágústmánuði 1976. Nú er sá timi
liðinn og enn er veriö að semja
við verktakann.” Eitthvaö á
þessa leið fórust öddu Báru Sig-
fúsdóttur orð er hún ræddi um
einn lið i fundargerð borgarráðs
frá 5. október si. þar sem segir
frá samkomulagsdrögum vegna
verktaka i Arnarholti.
Adda Bára sagði að um væri
að ræða byggingu, sem ekki
þyldi bið, byggingu, sem ætti að
leysa af hólmi húsnæði i Arnar-
holti, sem væri óhæft til að
gegna hlutverki sinu og til
skammar væri að hafa sjúkl-
inga í.
Adda Bára benti á það, að hún
hefði oftsinnis vakið athygli á
seinaganginum vð byggingu
þessa og spurði borgarstjóra
siðan hvaða hugmyndir menn
hefðu nú um það hvenær bygg-
ingu hússins lyki, og um hvaö
menn hygðust semja við þann
verktaka, sem svo slælega
hefði staðið að verki þar efra.
Birgir tsi. Gunnarsson,
borgarstjóri sagðist harma það
hversu illa verk þetta hefði
gengið. Sagði hann að fjárveit-
ingar borgarsjóðs hefðu verið
við það miöaöar að verkinu yrði
lokið i ágústmánuði siðastliön-
um.
Sagði borgarstjóri að það sem
gerst hefði væri það, að verktaki
hefði gefist upp við verkið, sem
Framhald á bls. 14.
Umræða um æskulýðsmál í borgarstjórn Reykjavíkur
Að berja ekki höfðinu
við steininn meira en
ástæða er til
A siðasta borgarstjórnarfundi
áttu sér stað all mikiar umræð-
ur um æskulýðsmál. Tilefnið
var „snemmborin” tillaga frá
Björgvin Guðmundssyni borg-
arfulltrúa Alþýðuflokks, um
framhald á rekstri Tónabæjar,
um rekstur vinlausra veitinga-
staða fyrir unglinga og um að
athuga bæri hvort ekki væri
unnt að halda fleiri dansiböll
fyrir unglinga i skólum borgar-
innar.
Björgvin fylgdi tillögu sinni úr
hlaði og að ræðu hans lokinni tók
til máls Davið Oddsson (D) og
skýrði borgarfulltrúum frá
ýmsu þvi, sem á döfinni væri
varðandi rekstur Tónabæjar,
sagði tillögu Björgvins snemm-
bæra og lagði til að henni yrði
visað til æskulýðsráðs.
Eftir þetta tók til máls Bessi
Jóhannsdóttir (D). Sagði hún
það sina skoðun að i þessu máli
skyldu menn flýta sér hægt svo
hægt væri að ræða það. Blaða-
menn þyrftu að taka jákvæðari
afstöðu til mála. Únglinga-
vandamál hér væri litið sman-
borið við það sem er á öðrum
Norðurlöndum. Hræsni væri
viðhöfö i sambandi við vin-
drykkju, þvi unglingar drykkju
vín!
Þá skýrði Bessi frá þvi, að til-
laga Björgvins væri tekin úr
gögnum vinnunefndar æsku-
lýðsráðs!
Reis þá úr sæti æskulýðsfull-
trúi Framsóknarflokksins, Al-
freð Þorsteinsson og talaði' á-
byrgum rómi um peningaaustur
til æskulýðsmála borgarinnar
en peningasvelti hinna
„frjálsu” æskulýðsfélaga, og
var helst á honum að skilja að
þessi væri ástæðan fyrir þvi
hvernig komið væri æskulýðs-
málum.
Þorbjörn Broddason (G) tók
næstur til máls. Ræddi hann til-
lögu Björgvins lið fyrir lið og
sagðist vera á móti henni, fyrsta
liðnum vegna þess að Tónabæ
ætti að sinu viti aö reka með
breyttum hætti frá þvi sem nú
væri, öðrum liðnum vegna þess
að þarflaust ætti að vera að taka
fram að skemmtistaðir fyrir
unglinga skyldu vera vinlausir
og þriðja liðnum vegna þess, að
ekki beri eingöngu að efla dans
hjá unglingum i skólum borgar-
innar heldur allt félagslif og
starfsemi. Nýta bæri skólahús-
næði, sem stæði autt á kvöldin
og um helgar, og stuðla þannig
að þvi að unglingar litu skólana
sem iverustaði til náms og
skemmtunar.
Þá sagði Þorbjörn: „Ung-
linga vandamál er rangnefni.
Það er skapaö af þeim full-
orðnu, þeim sem ráða þessari
borg, og þau munu halda áfram
að vaxa meðan henni er stjórn-
að á þann hátt, sem gert hefur
verið.”
Þá lýsti Þorbjörn það lýð-
skrum eitt hjá Alfreð Þorsteins-
syni að halda þvi fram að aðrir
myndu gera betur en borgin i
þessum efnum, aðeins ef i þá
væri ausið fé.
Nokkrir aðrir tóku til máls um
æskulýðsmálin. Ma. talaði
Davið Oddsson (D) aftur. Davið
sagði ma:
„Agli Skallagrimssyni tókst
aö vera óveisluhafandi á
fimmta ári vegna drykkjuskap-
ar þó ekki væru æskulýðsncfnd-
ir þá. Ég held að hollt væri að
fara að þvi ráði heilasérfræö-
inga aö berja ekki höfðinu við
steininn oftar en ástæða er til.”
—úþ
Þorbjörn Broddason.
Húsgagnakaup
í heilsugæslu-
stöðina í Árbæ
til umræðu
í borgarstjórn
Sigurjón Pétursson.
Rannsaka þarf
innkaup borg-
arstarfsmanna
„Ég itreka vitur minar á bygg-
ingarnefnd heilsugæslustöðvar-
innar f Arbæ fyrir þessi kaup. 1
þessu sambandi skiptir ekki máli
hvort um hagstæð og góð kaup
befur verið að ræða eða ekki held-
ur hitt að það var ekki byggingar-
nefndin, sem gera átti þessi inn-
kaup heldur Innkaupastofnun
borgarinnar. Þetta mál þarf að
rannsaka nánar og þá jafnframt
hvort hugsanlegt sé, aö mál svip-
uð þessu hafi áður átt sér stað en
ekki verið komiö upp um þau.”
Nálægt þessu hagaði Sigurjón
Pétursson (G) orðum sinum á
siðasta borgarstjórnarfundi er
hann vakti máls á húsgagnakaup-
um þeim i heilsugæslustöðina i
Arbæ sem gerð voru án vitundar
Innkaupastofnunarinnar og þvi til
viðbótar hafðar i frammi blekk-
ingar við kaupin.
Um mál þetta hefur allmikið
verið skrifað i blöð (nema
Morgunblaðið) nú undanfarið og
þvi ekki ástæða til þess að rekja
það hér út i hörgul. Þá skal frá þvi
skýrt, að á þann fund i Innkaupa-
stofnun Reykjavikurborgar, hvar
ræða átti húsgagnakaupin og
ákveða þau, mætti einn þeirra
manna, sem i byggingarnefnd
átti sæti, en sá þagði þunnu hljóöi
allan timann sem fundur stóð og á
meöan menn ræddu um fyrirhug-
uð húsgagnakaup, og upplýsti
fundarmenn ekki um að kaupin
hefðu þegar verið gerð, og sam-
þykkti fundurinn að bjóða hús-
gagnakaupin út!
Eftir að Sigurjón hafði rakið
gang þessa máls og krafist rann-
sóknar á þvi og öðrum málum
skyldum tók til máls Páll Gisla-
son (D) til að verja aðgerðir
byggingarnefndar heilsugæslu-
stöðvarinnar. Sagði hann að um
hafi verið að ræða mistök i mála-
rekstri og þótti miður að upp
skyldi komast um þau!. Skýring-
in á þögn stjórnarmanns bygg-
ingarnefndar á' fundi hjá Inn-
kaupastofnun væri sú, að honum
hafi þá verið oröinn Ijós mis-
skilningurinn!
Páll skýrði frá þvi, að Gamla
kompaniið, en af þvi voru kaupin
gerð, hefði verið i skuld við Gjald-
heimtuna, og leitað hefði verið
eftir þvi af fyrirtækisins hálfu að
fá að greiða þessa skuld með hús-
gögnum. Sagði hann að slikt og
þviumlikt væri ekki óalgengt.
Siðar i umræðum um þetta mál
skýrði Sigurjón Pétursson frá þvi,
að hann ræki ekki minni til þess á
sex ára setu sinni i stjórn Inn-
kaupastofnunarinnar að viðskipti
hafi veriö ákvörðuð vegna þess
eða með tiliiti til þess að fyrirtæki
skulduðu Gjaldheimtunni.
Amk. fjóriraðrir borgarfulltrú-
ar tóku til máls um mál þetta og
voru þar höfð þau orð með öðrum,
aö „harmur væri vegna þessara
mannlegu mistaka”, og minnir
það orðalag óneitanlega á orð við-
höfð um annað og meira, aðra og
meiri pretti viðhafða i annarri og
meiri heimsálfu af öðrum og
meiri mönnum. —úþ
Rætt um veitingu aðstoðarskólastjóraembættis við
Fjölbrautarskólann í Breiðholti
Osmekkleg framkoma
Alfreös Þorsteinssonar
A siðasta borgarstjórnarfundi,
þeim fyrsta eftir sumarleyfi urðu
langar og eftir þvi sem á leið
ómerkilegar umræður um veit-
ingu aðstoðars kólastjóra-
embættis við Fjöibrautarskólann
i Breiðholti. Gekk þar heist i hlut-
verki lágkúrunnar annar borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
Alfreð Þorsteinsson.
Formaður fræðsluráðs borgar-
innar Ragnar Júliusson hóf þess-
ar umræður með þvi að benda á
að veitingu menntamálaráöherra
til þessa embættis hefðu fulltrúar
allra stjórnmálaflokka fordæmt
nema fulltrúar Framsóknar-
flokksins, en eins og lesurum er
kunnugt veitti ráðherrann em-
bætti þetta gegn vilja meirihluta
fræðsluráðs borgarinnar. í
fræðsluráði hafði sá er stööuna
hlaut með veitingu ráðherrans
hlotið eitt atkvæði, en sá er hafn-
að var hlaut 5 atkvæði. Taldi for-
maðurinn embættaveitingu þessa
„ögrandi ráðstöfun” af hálfu ráð-
herrans i garð kjörinna fulltrúa
borgarinnar.
Kristján Benediktsson (B)
varði gerðir ráðherrans af flokks-
hollustu, og benti m.a. á það, að
fræðslustjórinn i Rvik hefði valið
þann sem stöðuna hlaut sem um-
sækjanda númer eitt, en þann
sem flest atkvæði hlaut i fræðslu-
ráði númer tvö. Sagðist hann ekki
siður taka mark á umsögn
fræðslustjórans svo og skóla-
stjóra Fjölbrautarskólans, sem
hafði gefið sams konar umsögn og
fræðslustjórinn. Sagðist Kristján
vilja lita á þessa deilu sem valda-
baráttu milli fræðslustjórans og
form. fræðsluráðs, sem hann
sagði að væri á allra vitorði að
hefði komið miður vel saman.
Að þessu loknu hófst lágkúruleg
umræða um veitingu þessa. Reið
þar á vaðið, sem oft áður þeg-
Alfreð Þorsteinsson, ógeðfelldur
málflutningur.
ar lágkúran er annars veg-
ar, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, Alfreð Þor-
steinsson. Hóf hann ræðu sina
með þvi að snúa út úr ummælum
Þeir sem slysast til að lesa
Timann endrum og sinnum hafa
hallast að þeirri skoðun að staf-
irnir JG við greinar þar merki að
Jónas Guðmundsson, stýri-
maður, rithöfundur og listmálari
hafi skrifað þær.
En þeir, sem sitja i borgar-
stjórn Reykjavikur og lita i
Timann sér til leiðinda eru farnir
að velta þvi fyrir sér hvort JG
þýði ekki eitthvað allt annað.
Astæðan er sú, að Jónas hefur
setið all marga borgarstjórnar-
fundi siðasta vetur og þá merkt
formanns fræðsluráðs og kastaði
siðan fram spurningum nokkrum
i framhaldi af útursnúningi sin-
um. Eftir að formaður fræðslu-
ráðs hafði leiðrétt villu fram-
sóknarstráksins, stóð sá enn á
fætur, neitaði að skilja leiðrétt-
ingarnar og hóf að tiunda um-
sóknir þess aðilans, sem flest at-
kvæði hafði hlotið i fræðsluráði,
hversu mörg atkvæði hann hefði
hlotið til embætta við hverja um-
sókn og lýsti þvi siðan yfir að slik-
ur og þviumlikur maður gæti ekki
búist við að hljóta náð fyrir aug-
um ráðherra.
Margir borgarfulltrúar urðu til
þess að setja ofan i við Alfreð fyr-
irþað sem þeir kölluðu ógeðfellda
upptalningu, og þótt mönnum
sem misnotkun ráðherra á valdi
sinu hefði siður en svo komist i
geðfeldara ljós við framgöngu
þessa varnarliðsmanns hans i
borgarstjórn.
1 umræðunum toku siðan þátt
Björgvin Guðmundsson (A og
SFV.), Albcrt Guðmundsson (D).
Framhald á bls. 14.
skrif sin JG. En hann hefur einnig
sleppt þvi að sitja fund og fund, en
samt sem áður koma jafnan
greinar frá borgarstj.fundum
merktar JG.
Á fund borgarstjórnar sl.
fimmtudag kom Jónas til að
myr.da alls ekki. Samt sem áður
eru greinar i laugardags-Tima
frá þessum fundi merktar JG!
Hann hefur hugmyndaflug i
lagi, aðstoðarmaður Þórarins
Timaritstjóra, hann Alfreð Þor-
steinsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins!
-úþ.
Hver er JG?