Þjóðviljinn - 16.10.1976, Side 5
Laugardagur 16. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
Lengst til hægri Sangad Tsjaloryo aðmlráll, forsprakki herforingjaklfkunnar, aðrir eru (frá vinstri)
Bamrungpong, fyrrum æðsti maður hcrsins, Sjamanand næstæðsti maður hersins og Kamol Detsja-
tungka yfirmaður flughers.
Valdaránið í Thailandi:
Skamma stund verða
herforingjar fegnir
í f yrri viku geröi herf or-
ingjaklika í Thailandi end-
ir á tilraun með þingræöis-
lega stjórn sem þar hafði
staðið í þrjú ár. Vinstri-
sinnaðir stúdentar höfðu
mótmælt því að Thanon
Kittikatsjorn, fyrrum ein-
ræðisherra, hafði verið
leyft að snúa heim úr út-
legð — og hægrihópar
höfðu svarað með því að
ráðast á stúdenta og slátra
tugum þeirra á herfileg-
asta hátt. Þá léku herfor-
ingjarnir vel undirbúninn
leik: tóku öll völd í nafni
friðar og kommúnista-
hættu, komu á fullri rit-
skoðun og hófu fjölda-
handtökur.
Þrjú ár
Þar með er hafið nýtt timabil i
sögu Thailands: þeir umbóta-
sinnar og frjálslyndir sem hafa
reynt (með erfiðismunum) að
starfa innan ramma laga munu
að öllum likindum taka upp sam-
starf við þær byltingarsinnuðu
skæruliðasveitir sem hafa barist
lengi i landinu norðan- og austan-
verðu. Verða nú hnifskörp skil á
milli þeirrar fylkingar og yfir-
stéttanna og hersins, sem hefur
aldrei fyrirgefið stúdentum það,
að þeir meö uppreisn sinni árið
1973 hentu herforingjastjórn
þeirri sem þá sat á dyr.
Thailand hefur oftast nær allar
götur siðan 1932 lotið hægrisinn-
aðri herforingjastjórnum. Stúd-
entauppreisnin 1973 rauf þann
vitahring að þvi er virtist: haft
var hátt um lýðræöi og jafnvel
sósialista i þessu landi, sem mjög
var frægt fyrir spillingu i stjórn-
sýslu og sjaldgæfa hollustu við
Bandarikin. Ný stjórnarskrá var
að minnsta kosti sett og kosiö til
þings. Færra varð um efndir en
fyrirheit, en á yfirborðinu var
flest með kyrrum kjörum um
tveggja ára skeið. Túrismi stóð
með miklum blóma — mikil fá-
tækt barnmargra bændafjöl-
skyldna tryggöi það að feikinógur
starfskraftur var handbær til að
gera Bangkok að ódýrasta og
stærsta hóruhúsi heims.
Sviptingar
En árið 1975 skipast veður i
lofti. Vinir Bandarikjanna i Indó-
kina ultu úr sessi. Kukrit Pramoj
þáverandi forsætisráðherra telur
vænlegast að senda heim um 40
þúsundir bandariska hermanna
sem höfðu bækistöðvar i landi
hans og mælast til betri sambúð-
ar við grannriki sin. En hin fé-
lagslegu vandamál sem hrjáðu
landið voru ekki leyst fyrir það.
Verklýðsfélögin i Bangkok gerð-
ust ákveðnari: verkafólk f vefn-
aði gerði uppreisn gegn japönsk-
um yfirboðurum sinum sem höfðu
flutt allmikið af framleiðslu sinni
til Thailands i leit að ótrúlega
ódýru vinnuafli. Sum lúxúshótel
urðu meira að segja aö loka
vegna verkfalla. Smábændur og
sveitaverkamenn tóku að bindast
samtökum um að krefjast jaröa-
skiptinga og endurskoðunar á
leigusamningum.
En hægrisinnar og herinn sátu
ekki heldur auðum höndum.
Vinstrisinnar voru ofsóttir með
ýmsum hætti, Bonsanong, for-
maður Sósialistaflokksins var
skotinn til bana á götu úti. I vor
var efnt til kosninga i landinu sem
svo hétu — þá misstu vinstri-
flokkarnir, Sósialistaflokkur
Thailands, Sameinaða sósialista-
fylkingin og skyldir flokkar flest-
öll þingsæti sín, fengu 4, höfðu 36.
Og ber mönnum saman um að á-
stæðan hafi verið hermdarverka-
fargan hægrisinna gegn vinstri-
öflum og beint kosningasvindl.
Undirbúningur
Herinn hefur eftir föngum reynt
að koma i veg fyrir að stjórnin I
Bangkok kæmi á vinsamlegum
samskiptum við Laos, Vietnam
og Kambodju. Meöal annars
hömuðust herforingjar og hægri-
sinnar mjög gegn vináttusamn-
ingi sem Ratakul utanrikisráð-
herra gerði I Vientiane og Hanoi
fyrir tveim mánuöum. Valdarán
herforingjanna er talið tengt
þessum samningi meðal annars.
Liður i undirbúningi þess var
endurkoma Thanom Kittikat-
sjorns fyrrum einræðisherra i
september. Thanom kvaðst vera
kominn i einkaerindum og fór um
göturnar sem búddamunkur meö
betliskál. En fáir trúa þvi að hann
hafi komið ótilkvaddur og án póli-
tisks tilgangs. Kurkrit Pramoj,
fyrrum forsætisráðherra hefur
játab, að Thanom hafi verið
smyglað inn i landið af herfor-
ingjaklikunni til að ögra stúdent-
um til andmæla og til að sameina
herinn á bak við „sterkan mann”.
Seni, bróöir Kúkrits, sem tók við
forsætisráðherraembætti eftir
kosningar i vor, hafði ekki bol-
magn til að veita viðnám.
Dagana 19. og 20. október fer
fram á veguin Þróunarstofnunar
Reykjavikur könnun á notkun al-
menningsvagna. Tekur könnunin
til Strætisvagna Reykjavikur,
Strætisvagna Kópavogs og
Strætisvagna Landleiða tii og frá
Hafnarfirði. Könnunin fer fram
með þeim hætti, að farþegar i al-
menningsvögnunum, 10 ára og
eldri, fá afhentan spurningasepil
og blýant með tilmælum um að
svara 6 spurningum, sem á seðl-
inum eru.
„Þjóðfrelsisstríö
hafið"
Herforingjarnir, sem völdin
tóku, byrjuðu á að leggja undir
sig fjölmiðla og handtaka um 1700
stúdenta. Þeir lofa að sjálfsögðu
friði, lögum og reglu, en hitt er
liklegast að þeir verði skamma
stund höggi fegnir. Frjálslyndir
og sósialistar á þingi hafa flúið
höfuðborgina eða farið i felur.
Ýmsiráhrifamenn, eins og rektor
háskólans, hafa flúið land. Rót-
tækir stúdentar og sósialistar
hafa horfiö til heimahéraða sinna
til að skipuleggja andspyrnu-
hreyfingu þaðan. Aörir sameinast
skæruliöum sem lúta forystu
kommúnista i norður- eöa austur-
héruöum landsins. ,,Nú er þjóð-
frelsisstriðið hafið” hefur frétta-
ritari DN i Bangkok eftir einum
af foringja sósialista áður en sá
hafði sig á brott úr borginni. Nið-
urstaöa valdaránsins var sú að
andstæðurnar skerpast. Likur
benda til þess aö skæruliðahreyf-
ingin verði öflugri og viðfeðmari
mikiuenhúnhefurtil þessa verið.
Hlutverk
Bandaríkjanna
Ekki er vist hvort hinir nýju
valdhafar muni kveðja banda-
riskan her aftur til landsins — en
bandarikin hafa reynd-
ar enn i Thailandi mikla
fjarskiptahlerunarstöð. Það er
lika ýmislegt á huldu um það,
hvaða hlutverki Bandarikin
kunna að hafa gengt I valdarán-
inu sjálfu. Annars vegar mælir
margt með þvi, að bandariskir
aöilar vilji „andrúmsloft sem
þar hagkvæmt er f járfestingum”
þar með að verklýðshreyfingin sé
slegin niður. Og svo stjórn sem
einbeitt sé i andkommúnisma.
Aörar raddir heyrast i þá veru, að
bandariskir ráðamenn mundu
ekki láta flækja sig i ævintýri sem
þetta, vegna þess að þeim hafi að
fenginni reynslu skilist, að skæru-
liðahreyfing með kommúniskum
kjarna mundi fá byr undir vængi
ef að herforingjar tækju við
valdataumum. Þessu má svo
andæfa með þvi meðal annars, að
Spurt er um, hvaðan og hvert
fólk er aðfara, tilgang ferðarinn-
ar, aldur farþega og hvort hann
hafi skipt um vagn. Farþegar fá
seðlana um leiö og þeir koma inni
vagninn og eiga að skila honum
útfylltum við útgöngudyr.
Börn 5 til 10 ára fá afhenta
spurningasejðla, en þau eiga ekki
að útfylla þá, heldur aðeins að
afhenda þá við útgöngudyr, eins
og aörir farþegar.
Tilgangur þessarar könnunar
er aö afla upplýsinga um ferða-
Stúdentar i Bangkok hrósa sigri
1973: þeim var ekki fyrirgefið.
Póstmenn i verkfalli við aðalpóst'
húsið i Bangkok i fyrrahaust.
eitt er skilningur stjórnmála-
manna, annað hvaö leyniþjónust-
an flækist út i til stuðnings við það
sem hún telur bandariska hags-
muni, á hverjum tima, hernaðar-
lega og aðra. Svo mikið er vist, að
fréttastofa Vietnams taldi sig
ekki lengi i vafa um, að Banda-
rikin væru með i þessu spili.
Valdaránið i Tailandi skapar
skarpar andstður milli tveggja
skauta eins og fyrr var sagt :
miðjuöfl ýmiskonar hljóta að
þegja eða kjósa sér kost til hægri
eða vinstri. í vor sagði viöförull
Islenskur Asiubúi nýkominn frá
Thailandi við undirritaðan i
Singapore „Thailand verður
rautt innan fimm ára”. Má vera
að ekki liði einu sinni fimm ár
þangað til.
mynstrið með almenningsvögn-
unum. Einnig er aflað upplýsinga
um aldursskiptingu farþega. Mun
þetta einnig vera liður i endur-
skoðun aðalskipulags Reykja-
vikur, með það fyrir augum aö
gera sér grein fyrir hvernig um-
ferð i borginni er háttað. Þá á
könnunin einnig að gefa upplýs-
ingar um notkun almennings-
vagna i hinum ýmsu hverfum
borgarinnar.
— S.dór.
ALMLNNINGSVAGNAKONNUN 19,—20. október 1976
Eftirfarandi upplýsingar óskast um þó ferð, sem þú ferð nú:
1 HVAÐAN kemur þú? 3 HVERT er ferðinni heitið? 5 ALÐUR þinn?
^33 /6 1 □ 10—12 ára
gata húsnúmer gata húsnúmer 2 □ 12—20 áro
(eða nafn stofnunar eða fyrirtækis) (eða nafn stofnunar eða fyrirtækis) 3 □ 21—30 ára
2 Hvert VAR ERINDI þitt þar? 4 Hvert ER ERINDI þitt þar? 5 □ 41—50 ára
1 55 ég bý þar 1 □ ég bý þar
2 □ ég vinn þar eða fór þangað vegna vinnu 2 £5 ég vinn þar eða fer þangað vegna vinnu 6 U 51—60 ára
3 □ ég stunda nám þar 3 □ ég stunda nám þar 7 □ 61—70 ára
4 □ ég verzlaði þar 4 □ ég ætla að verzla
5 □ annað 5 □ annað 8 □ eldri en 70 ára
^ Kemur þú úr öðrum strætisvagni? S| já, leið nr. eða heiti: J.0
□ nei
Vinsamlegast afhendið spjaldið við útgöngudyr — Beztu þakkir fyrir samstarfið.
ÞRÓUNARSTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
......... A'r 60006
Þannig á útfylltur könnunarseðill að lita út.
Könnun á notkun strætisvagna