Þjóðviljinn - 16.10.1976, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. október 1976
Grænlensk börn og færeysk munu eiga slna fulltrúa á norrænu
menningarvikunni þegar m.a. verOur rætt um tómstundastarf á
Noröurlöndunum. Þessi mynd var tekin af stoltum grænlenskum
börnum með tfkina sina og afkvæmi hennar.
í fyrsta sinn á Íslandí
Leikrit frá
Fœreyjum
Sýnt i tengslum við norrœnu menn-
ingarvikuna sem
hefst i Kópavogi um helgina
í tengslum við norræna
menningarviku, sem
hefst í Kópavogi um
næstu helgi, mun Leik-
félag Kópavogs setja á
svið leikritið ,,Glataðir
snillingar" og verður það
fyrsta færeyska leikritið
sem sett er upp hér á ís-
landi. Höfundur er
William Heinesen en leik-
stjóri Stefán Baldursson.
Norræna menningarvikan
hefst nk. laugardag og stendur
til 24. október. Aðdragandi vik-
unnar er sá, að á sl. ári bauð
Norræni menningarsjóðurinn i
Kaupmannahöfn fram styrk
meðal sveitarfólága á Norður-
löndum, til þess að efla kynn-
ingu á sviði menningarmála
þeirra á milli.
Hlaut Kópavogskaupstaður
styrk frá sjóðnum til þessa, og
fól bæjarstjórn Kópavogs full-
trúum frá Leikfélagi Kópavogs,
Lista- og rnenningarsjóði Kópa-
vogs, Norræna félaginu i Kópa-
vogi og Tómstundaráði Kópa-
vogs að annast framkvæmd og
skipulagningu vikunnar, ásamt
bæjarstjóranum i Kópavogi.
Sú hugmynd kom fljótlega
fram að bjóða vinabæjum
Kópavogs á Norðurlöndum
þátttöku i vikunni og þáðu þeir
allir boðið, en þeir eru Ang-
magsalik á Grænlandi, Klaks-
vik i Færeyjum, Mariehamn á
Alandseyjum, Norrköping i Svi-
þjóð, Odense i Danmörku,
Tapere i Finnlandi og Þránd-
heimur i Noregi.
Meginþættir norrænu
menningarvikunnar verða tvær
sýningar að Hamraborg 1 og svo
ráöstefna i Félagsheimili Kópa-
vogs um tómstundamálefni og
hlutdeild sveitarfélaga i þeim.
Til ráðstefnunnar er boðið full-
trúum ýmissa félagasamtaka i
Kópavogi auk þess sem hún er
opin almenningi á meðan hús-
rúm leyfir.__
'Sýningarnar verða sömuleiðis
opnar almenningi frá kl. 16.00-
22.00 alla daga en auk þess
verður fjölbreytt dagskrá á
kvöldin i samkomusölum
Félagsheimilisins. Ber þar hæst
áðurnefndan leikritaflutning,en
auk þess eru fyrirlestrar, nor-
ræn kvöldvaka, kvikmynda-
sýningar, sýning leikflokksins
INOK o.fl.
Þá er efnt til ritgerðarsam-
keppni meðal barna og unglinga
i Kópavogi og fleira gert i tilefni
norrænu menningarvikunnar.
—gsp
Bætt aðstaða fyrir
Yestmannaeyjaferju
Eins og sagt hefur verið frá i
blöðum og öðrum fjöimiölum að
undanförnu hefur nú verið komið
hér upp stórbættri aðstöðu fyrir
Vestmannaeyjaferjuna, sagði
Þorsteinn Sigvaldason, fréttarit-
ari blaðsins i Þoriákshöfn, i
viðtali við það I gær.
Okkur hér i Þorlákshöfn finnst
þó að þvi verki sé ekki sómasam-
lega lokið fyrr en búið er að setja
fyllingu á bak við gamla Suður-
varnargarðinn. Þar flæðir alltaf
yfir ef eitthvað hreyfir sjó og
þegar það gerist, er bryggjan
nánst ónothæf. Hinsvegar er
kaflinn þar fyrir utan og svo
garöurinn sjálfur i ágætu lagi.
Þar fer sjórinn ekki yfir þótt eitt-
hvað „gefi á bátinn”.
Nú mun meiningin að svæðið
verði malbikað i dag. Hingað er
kominn vinnuflokkur frá Reykja-
vík, — frá borginni eru þeir, held
ég, — og er hugmyndin að hann
malbiki bryggjuna og athafna-
svæðið fyrir Vestmannaeviabát-
inn. —mhg
Fundur herstöðvaandstæð-
inga í Mývatnssveit
Um helgina var haldinn i Skjól-
brekku Mývatnssveit fundur her-
stöðvaandstæðinga sem starfs-
hópur þeirra i Þingeyjarsýslu
gekkst fyrir. Um sextiu manns
sóttu fundinn og urðu á honum lif-
legar umræður.
Fundinn sóttu þeir Asmundur
Asmundsson og Andrés Kristj-
ánsson sem skýrðu frá starfi
miðnefndar og höföu framsögu og
Böðvar Guðmundsson skáld sem
söng. Jakobina Sigurðardóttir og
Þráinn Þórisson lásu ljóð.
Fundarstjóri var Erlingur
Sigurðarson.
Nú getur þú áhyggjulaust boöiö gestum kalda
drykki heima hjá þér. Engin biö eftir aö vatniö frjósi í
ískápnum.
Hjá Nesti færöu tilbúna ísmola, — og þú átt ekki á
hættu aö veröa ís-laus á miöju kvöldi.
Renndu viö í Nesti og fáöu þér ísmola í veizluna!
NESTI h.f.
Fossvogi
f-f ] 1 < * R
Ártúnshöfða — Elliöaár
Þú færð
ísmola
í veizluna
í Nesti