Þjóðviljinn - 24.10.1976, Qupperneq 7
Sunnudagur 24. október 1976 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7
JÓN MÚLI
ÁRNASON
SKRIFAR
Mittisólin
og kúturinn
Þjóöin hefur um árabil
lifaö um efni fram” — sagöi for-
sætisráöherra á miövikudags-
fundi Varöar og félagar hans i
máttarstólpastétt hertu þegar i
staö mittisólarnar. Þeir ætla
ekki aö slaka á meöan foringi
þeirra réttir lir kútnum. Sú at-
höfn hefur tafist lengur en ætlaö
var fyrir rúmum tveimur árum,
og hreint eins og kengurinn hafi
heldur bognaö siöan háttvirt
rikisstjórn tók aö fást viö hann.
Engum er þetta betur ljóst en
stjórn Sambands Fiskvinnslu-
stööva. Þaö liöu ekki nema tveir
sólarhringar frá Varöarkúts-
ræöunni, — þá birtu mittisóla-
kapparnir i Fiskvinnslustjórn-
inni dagskipan á gullaldarmáli,
og niöurstööur studdar kaldari
rökum en viö eigum aö venjast.
— „Stjórn Sambands Fisk-
vinnslustöövanna telur óhjá-
kvæmilegt aö vara viö málflutn-
ingi sem einblinir (!) á krónu-
töluhækkanir útfluttra sjávar-
afuröa, en horfir fram hjá (!)
kostnaöarhækkunum sem oröiö
hafa innanlands” segir þar i
upphafi, og skömmu siðar —”
meöan sú hækkun gerir varla
betur en að halda i kostnaöar-
hækkanir innanlands, skortir
fiskvinnsluna öll efni til aö slá
upp veizlu.” Siöan koma átaka-
anlegar frásagnir af „gengis-
sigi islenzku krónunnar” (þrátt
fyrir hatrama baráttu fisk-
vinnslustöövanna á móti
gengisfellingu fyrr og siöar) og
niöurstaöan veröur sú, aö „út-
flutningsverölag... sjávaraf-
uröa muni aö þvi er taliö er
hækka um 11,2 miljaröa króna i
ár” — þaö er nú allt og sumt. Og
til þess aö viö, sem höfum lifað
um efni fram megum sem best
skilja, hvilik vá er fyrir dyrum,
ljúka hinir aðþrengdu útflytj-
endur máli sinu á þessa leið:
„Auk þess megi benda á, aö
auknar tekjur megi aö nokkru
leyti rekja til aukins útflutnings
til Bandarikjanna og aukinnar
framleiöslu þar, en þaö auki
einnig allan tilkostnaö hlutfalls-
lega meira.”
Hafi þessi hagfræöi vafist fyr-
ir okkur, sem lifum um efni
fram meöan forsætisráöherra
rembist viö aö rétta úr kútnum,
þurfum viö ekki aö fyrirverða
okkur vegna heimsku og fáfræöi
I sælurúsnum, — þetta hendir á
bestu bæjum. Morgunblaöið
birti á miövikudag stórfrétt um
5 senta veröhækkun á fiskblokk-
um I USA, og hagfræðingur
Moggans spyr framkvæmda-
stjóra Sölumiöstöövar Hraö-
frystihúsanna hvort nýja verðiö
komi fyrirtækjunum til góöa. —
„Hann sagöi aö svo myndi ekki
vera.” Að sjálfsögöu ekki, —
þetta á hver maöur aö geta sagt
sér sjálfur, — svona verðhækk-
un eykur bara allan tilkostnað
hlutfallslega meira, og tapiö
veröur æ geigvænlegra. Og þvi
lengri biö á, aö slegið veröi upp
veislu.
Almúgafólki i Bandalagi
starfsmanna rikis og bæja væri
hollara aö hafa þetta i huga, og
hugsa minna um nýjustu út-
reikninga misviturra hagfræö-
inga sinna. Þó svo að kjararýrn-
un nemi sem svarar 440 krónum
af hverjum 1000 á tveimur árum
(öfgamenn segja aö þessu hafi
veriö stoliö af þeim) — hvaö er
þaö á móts viö fórnirnar sem
fiskvinnslupíslarvottarnir færa
á Bandarik jamarkaöi?
Chickenfeed, svara þeir rétti-
lega i Coldwater og Iceland
Products og spenna megin-
gjaröir sinar I veröhækkana -á-
föllunum. Forystumönnum
BSRB væri sæmst að gjöra slikt
hiö sama, þeim er ekki vandara
um en forsætisráöherra sem
sagöi i Varöarræöunni: „Þaö er
ljóst, aö halda veröur meö
hyggindum og hófsemd á kjara-
málum þjóöarinnar næstu miss-
eri,” — og stóö teinréttur um
stund, — þrátt fyrir mittisól og
kút, — frammi fyrir atvinnurek-
enda-öreigunum, sliguöum af
skattaáþján og taprekstri, sem
stafar aöallega af sihækkandi
verði á útflutningi.
Launafólk, sem lifir um efni
fram, má lika minna á „orö eins
hæfasta hagfræðings þjóöarinn-
ar”. (Morgunbl. leiöari á
þriöjud.) „aö ekki væri um þaö
að ræöa, aö vandi umfram-
eyöslu þjóöarinnar og efnahags-
lifs okkar yfirleitt væri ab baki.
Þvert á móti — erfiöasti kaflinn
á leiöinni út úr vandanum væri
framundan.” Og ekki verður
slegiö upp veislu I þeim ógöng-
um, — ekki einu sinni smá-partii
i stjórn fiskvinnslustöövanna.
Nú aö nýloknu þingi BSRB
viröist hinsvegar ljóst, aö of-
stopamenn, sem lifa um efni
fram, ætla aö halda áfram sukki
og óhófi, og hafa þar aö auki i
hótunum. Þetta fólk, sem hefur
ekki verib rænt meiru en 40 til 60
prósentum af umsömdum kjör-
um sinum siöustu tvö árin, ætlar
aö beita verkfallsvopninu til aö
ná aftur rétti sinum, ef önnur
ráö duga ekki. Þaö er klárt mál,
aö þarna hefur hófsemdar- og
hyggindastefnan orðið að lúta I
lægra haldi. Bjartsýnustu ó-
hófsmenn þykjast jafnvel eygja
þann dag, er rikisstjórnin
hrökklist frá völdum, og viö taki
önnur, sem hugsanlega kunni
ráö til þess aö snúa tapi af aukn-
um útflutningi og met-prisum á
Amerikumarkaði upp i hagnaö.
Hins vegar er útilokaö aöfor-
sætisráðherra og rikisstjórn
hans takist nokkurntima aö
rétta úr kútnum, — þvi ráöa lög-
mál þeim herrum æöri, bæöi
efnahags- og siðferðileg. JMA.
HUGSIÐ
UM
HEILSUNA!
HOLLUSTUVÖRU R
Mjöl — Baunir — Korn
lífræn ræktun — Hollar vörur
Kaupiö hollustuvörur
á afsláttarverði
ALLAR NÝLENDUVÖRUR
MEÐ 10%
LÆGRI ÁLAGNINGU
ENNÞÁ
getum við boðið slátur, 5 slátur í kassa
L
Kaupqaröur
Smiðjuvegi 9, Kópavogi
90 herbergi öll með baðkeri eða steypibaði, síma, útvarpi
og sjónvarpi ef óskað er. Athugið hina fjöl-
breyttu þjónustu er Hótel Saga hefur að bjóða,
svo sem hárgreiðslustofu, snyrtistofu, rakara-
stofu, nudd og gufuböð.
Viljum sérstaklega vekja athygli á 'ninni miklu
verðlækkun á gistingu yfir vetrarmánuðina.
ini©T€iL
HAGATORG 1
REYKJAVÍK
sími 20600
verkfœri & járnvörur h.f.
DALSHRAUN 5f HAFNARFIRÐI
NÝH SÍMANÚMER 53332