Þjóðviljinn - 24.10.1976, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 24.10.1976, Blaðsíða 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. oktdber 1976 INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR SKRIFAR UM KVIKMYNDIR: Um þessar mundir eru liöin fimm ár síðan sovéski kvik- myndastjórinn Mikhail Romm andaðist i Moskvu, 71 árs aö aldri og hafandi stjórnaö 14 kvikmynd- um um ævina auk einnar sem honum entist ekki aldur til aö ljúka viö. Margir kvikmynda- stjórnar hafa skilað af sér stærra æviverki. Romm var heldur ekki ánægöur meö allar myndirnar sem hann geröi. En samt veröur hans alla tiö minnst sem eins af sköpurum sovéskrar kvikmynda- listar einsog hún gerist best. Nafn hans á heima innan um nöfn eins- og Eisenstein, Pudovkin, Vertof, Kulesjof og Dovsjenko. Romm var jafngamall tutt- ugustu öldinni. Hann sagöist sjálfur hafa reynt fyrir sér i öllum listgreinum „nema ballett og lúö- urblæstri” og mistekist i þeim öll- um, þangaötil hann sneri sér að kvikmyndum. bá var hann orðinn 28 ára. En þaö var ekki fyrren 1934 aö hann geröi fyrstu mynd- ina sem- sjálfstæöur kvikmynda- stjóri. Þaö var þögul mynd af fullri lengd og nefndist „Bolla” (i merkingunni rúsinubolla eða þessa leið: Það var veriö aö taka þrjár kvikmyndir og var ein þeirra Osjakof aðmiráll, sem ég stjórnaöi, en hinum stjórnuöu þeir Alexandrof og Tsiáreli. Og þá geröist það, aö blóöþrýstfng- urinn hækkaöi iskyggilega í Alexandrof, eitthvaö kom fyrir hjartað i Tsiáreli og ég fótbrotn- aði. Upptökusalirnir stóöu gal- tómir i grafarþögn. Leöurblökur flugu um. Daglegir fundir starfs- liösins minntu helst á læknafundi á sjúkrahúsi... Flestir þeirra „útvöldu” héldu áfram að lifa og starfa einsog þeir höfðu gert á stalinstimanum, löngu eftir að hlákan fræga var orðin að veruleika og ungir menn höfðu þyrpst inní rykiö á Mosfilm og tekið aö gera myndir meö nýju yfirbragöi. Sumír þessara gömlu manna eru m.a.s. enn að. En Romm var ekki einsog þeir. Einn I minnmgu Mikhail Romm rjómabolla, og var þetta viöur- nefni aöalpersónunnar, vændis- konu). Myndin var byggö á sam- nefndri smásögu Guy de Mau- passant, og sló þegar i gegn. Tuttugu árum siöar var sett i hana tal. Siöan rak hver myndin aöra um margra ára skeiö. Frægastar af þessum gömlu myndum hans eru vafalitiö tvær myndir um Lenin, „Lenin i október” og „Lenin 1918”, en þær geröi hann á árun- um 1937-39. Ég þreyti lesendui ekki meö lengri upptalningu, en læt nægja aö geta þess aö Romm var þegar hér er komiö sögu orö- inn vitur og vinsæll kvikmynda- stjóri. Hann var „i náöinni” allan staiinstimann og fékk aö gera myndir þegar margir ungir og efnilegir listamenn uröu að þreyja þorrann úti i kuldanum. Romm hefur sjálfur sagt frá þvi, hversu siðspillandi áhrif þetta hafði á þessa fáu „útvöldu”. Hann lýsti eitt sinn ástandinu á Mosfilm árið 1951 eitthvað á látins meistara góöan veöurdag uppgötvaði hann, að það sem hann var að gera var ekki nýtt, hann hafði gert það áö- ur. Hann var farinn að endurtaka sig, framleiða klisjur. Þá snar- hætti hann að gera kvikmyndir og tók að hugsa ráð sitt. Hann hugs- aði sig um í 6ár. A þessu timabili tók hann til gagngerrar endur- skoöunar öll sin fyrri viðhorf, leit yfir farinn veg og fann að hann átti margt ólært. Ef til vill er það þetta sem gerir Romm að þeim merka persónuleika kvikmynda- sögunnar sem hann óneitanlega er. Þessi hæfileiki til að afneita öllu sem áunnist hefur á langri og strangri ævi vegna einhvers ó- áþreifanlegs á borð viö sannleiks- leit eöa sjálfsleit. Árangurinn af þessum heila- Rafsuðumenn Óskum eftir vönum rafsuðumönnum vinnu við Kröfluveitu. Uppl. hjá verkstjóra. Stálver h.f., Funahöfða 17, Reykjavik, slmi 83444. til TILBUNAR A 3 MIN.! OFIjCD I IA B'E GM’Cf Ljósmyndastofa AMATÖR LAUGAVEGI 55 ® 2 27 18 brotum kom i ljós áriö 1962. Þá sendi Romm frá sér mynd sem átti eftir að verða heimsfræg, „Niu dagar á einu ári” og fjallaði um atómvisindamenn, um ábyrgð þeirra gagnvart mann- kyninu. t þeirri mynd komu allir bestu eiginleikar Romms skýrt fram: hæfileiki hans til aö fá fólk til aö hugsa og taka afstöðu, ábyrgðartilfinning hans sem listamanns og brennandi áhugi hans á stærstu vandamálum nú- timans. Og ef til vill kom þetta allt enn betur i ljós i næstu mynd hans, sem varð sú siöasta sem honum auönaðist aö ljúka viö: „Venjulegur fasismi” (1965). t „Venjulegum fasisma” segir Romm frá upptökum þýska fas- ismans og ieggur mesta áherslu á að sýna hvernig þessi hug- myndafræði nær tökum á venju- legu fólki, hvernig hún býr um sig i þjóðfélaginu og veröur hluti af daglegu lifi fólksins. Myndin er að langmestu leyti byggð upp með efni sem fyrirfannst i kvik- myndasöfnum, bæði i Sovétrikj- unum og annarsstaöar. Flest er það fengiö úr söfnum nasista, sem bandamenn yfirtóku i striðs- lok. Einnig er þarna efni úr nú- timanum,myndir af fólki á götum úti, börnum og fullorðnum. Allt þetta efni er tengt saman meö texta sem. Romm las sjálfur inná myndina. Mikið af þeim texta varö til á þann hátt, að Romm tal- aöi hann inn á segulband um leiö og hann horfði á efnið sem hann ætlaöi að nota i myndina. Haqn hugsaði upphátt um það sem sá. Þessvegna verður textinn að sjálfsögðu afar persónulegur og átti þetta mikinn þátt i að veita myndinni sérkennilegan og sterk- an svip, gera hana mun áhrifa- meiri en geristog gengur um slik- ar myndir. Þetta er ekki aðeins saga liðinna tima, saga hættu- legrar hugmyndafræði sem varð mannkyninu dýrkeypt. Romm vissi að þessi saga gat endurtekið sig. Myndin endar á hugleiðing- um um striöiö i Vietnam og bandarisku heimsvaldastefnuna. Þegar Romm haföi lokið þess- ari mynd átti hann enn margt ósagt. Hann vissi sem var, að timinn var naumur, enda var hann nú kominn á þann aldur þegar venjulegir menn setjast i helgan stein og láta hrósa sér fyr- ir afrek fortiðarinnar. Likaminn fór aö gefa sig, þótt andinn væri hress. 1 fyrstu átti nýja myndin hans að heita „Heimurinn 1968”. Svo breyttist ártalið nokkrum sinnum. Hann barðist við sjúk- dóminn, var alltaf að flýta sér, timinn hljóp frá honum og efnið varð stöðugt yfirgripsmeira. Það var svo margt sem hann þurfti að segja áður en hann kveddi þenn- an heim. Hann þurfti að benda unga fólkinu á útgönguleiðir, vara þaö viö, miöla þvi af eigin reynslu. Hann feröaðist út um alla Evrópu og tók myndir, haföi viðtöl við fólk á öllum aldri, af ýmsum þjóðernum, stjórnmála- skoðunum, trúarbrögöum. Efnið óx i höndum hans. Og svo einn góðan veðurdag gafst hjarta hans upp. Aðstoðarmenn hans lögðu i það þrekvirki að ljúka við mynd- ina, en fjögur ár liðu frá dauöa meistarans þar til þeir þorðu aö láta hana koma fyrir almennings- sjónir. Þeirkölluðu myndina „Og samt trúi ég..”. Þetta er erföaskrá Mikhails Romm. Nafn- iö segir okkur aö þrátt fyrir allt, þrátt fyrir brjálæði heimsins, grimmd mannanna og þungbæra reynslu kynslóöanna trúöi hann á framtiöina. Þessi trú gaf honum þrek til að lifa og starfa og segja mannkyninu hug sinn, gefa þvi af þeim auðæfum sem hann átti. Þær fimmtán kvikmyndir sem Romm lét eftir sig eru þó ekki nema hluti af ævistarfi hans. Hann gaf einnig út nokkrar bækur og um margra ára skeið stundaði hann kennslu i kvikmyndastjórn við Kvikmyndaháskólann i Moskvu, þar sem undirrituð átti þvi láni að fagna að vera nemandi hans i nokkur ár. Hann var einnig fræðimaöur á sviði kvikmynda og margir fyrirlestrar hans hafa verið gefnir út i bókarformi. Kennari var hann frábær. Kennsla hans var öllu frekar upp- eldi en kennsla i þröngri merk- ingu. Hann sagði einhverntima að kvikmyndastjórn væri ekki hægt að kenna, þaö væri fáránlegt aö hugsa sér að einhver skrifaði kennslubók i þessu fagi og siðan gæti fólk lært bókina utanað og tekiö til viö að stjórna kvikmynd. Kvikmyndastjóri væri fyrst og fremst maður með viðtæka þekk- ingu á sem flestum sviöum, maö- ur sem hugsaði og hefði eitthvað að segja. Sumir nemenda hans hafa mjög komið við sögu sovéskra kvikmynda á undan- förnum árum, og nefni ég sem dæmi tvo sem myndir hafa verið sýndar eftir hér á landi: Andrei Tarkofski (Bernska ívans, Andrei Rúbljof, Solaris) og Andrei Kontsjalovski-Mikhalkof (Vanja frændi, en einnig á hann góða mynd sem heitir Fyrsti kennarinn, o.fl.). Mikhail Romm var ekki aðeins frábær listamaður og kennari, hann var einnig gull af manni. Maöur sem hollt og gott var að kynnast. Þegar einn af gömlu starfsbræörunum hans, Sergei Gerasimof, varö sjötugur, sendi Romm honum kveðju i skólablaði kvikmyndaskólans. Hún hljóðaði eitthvað á þessa leiö: ég óska þér fyrst og fremst aukinnar kimni- gáfu. Hann var aldrei aö rembast við aö vera viröulegur, einsog flestir gera þegar þeir komast á vissan aldur. Meðfædd kimnigáfa gyöingsins leyföi honum þaö ekki. Bréf um sleggjudóm Ekki ætla ég mér aö bera blak af siðustu kvikmyndum Ken Russels, „Tommy”, „Mahler” „Lisztomania” og fleiri, — sem allar bera vott um eindæma smekkleysi og barnaskap. En þó vil ég mótmæla óvönduðum sleggjudómum kvikmynda- gagnrýnanda Þjóðviljans siðastliðinn sunnudag, þar sem hún dæmir Russell allan gjör- ómögulegan, — eftir aðhafa séð myndina „Savage Messiah” eina af verkum hans. Vil ég benda kvikmyndarýninum á að Russel hóf feril sinn við breska sjónvarpið og geröi þá einhver j- ar bestu heimildarmyndir sem gerðar hafa verið um tónskáid, — vil ég nefna myndir hans um Delius og Bartók sem enn er vitnað i. Ekki má heldur gleyma þvi að það var Russell sem stjórnaði „Women in Love” og var hann að minu viti eini kvik- myndaleikstjórinn sem komist gat litt skaddaður^frá þvi verk- efni, — sem hann geröi. Kvikmyndarýnirinn les siöan inn i meðferð Russels á „Savage Messiah” miklar ýkjur og for- dæðuhátt. Satt er að á stöku stað i myndinni kvikmyndar Russelli æsistil, breytir og stað- færir. En i þessu tilfelli er veru- leikinn furðulegri en skáldskap- urinn, eins og rýnirinn hefði komist að hefði hún lesið frá- sögn Ede af sambandi þeirra Henri Gaudier og Sophie Brzeska i bók með sama nafni og myndin. Samband þeirra skötuhjúa var nefnilega með afbrigðum einkennilegt og móðursýkisiegt, — Gaudier örgeðja og dyntóttur, Sophie taugaveikluð og kvalin af alls- kyns komplexum. Er þvi lofs- vert, eins og Russell er nú skapi farinn, að hann skuli ekki hafa misþyrmt efninu meir en hann gerðí. Vinsamlegast Aöalstcinn Ingólfsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.