Þjóðviljinn - 24.10.1976, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 24.10.1976, Blaðsíða 17
Sunnudagur 24. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 blaöamennina? Efri myndin: Robert Redford og Dustin Hoffman á skrifstofu Washington Post — Þeir fara i kvikmyndinni „Þeir sem ekki varö mútaö” meö hlutverk Bernsteins og Woodwards, sem sjást i sömu stólum á neöri myndinni. Hvaö verður um Watergate Stórstjörnur ritvélarinnar Þeir Carl Bernstein og Robert Woodward eru nú frægastir blaöamanna. Þeir voru heldur aftarlega á merinni hjá þvi góöa blaöi Washington Post þegar þeim var i júli 1972 faliö aö athuga hvaöa apakettir heföu brotist inn I bækistöövar demókrataflokksins i Watergatehótelinu i Washington. Og þeir voru ekki neinir vinir svosent heldur. En þeir hófu þá rannsókn sem mjög varö afdrifarík. Þeir fundu þá þræöi sem lágu frá innbrotinu og skuggalegu athæfi ööru og til Hvita hússins. Watergatemáliö fór aö staö. Aö lokum varö Nixon forseti Bandarlkjanna, aö hypja sig af vettvangi meö skömm. Saga þeirra Bernsteins og Woodwords er um leið draumur allra blaðamanna. Þeir eru súperstjörnur ritvélarinnar. Það er þeim að kenna að allir blaða- mannaskólar Bandarikjanna eru yfirhlaðnir umsóknum mörg ár fram i timann. Allir ætla að vinna afrek, vaða eld og reyk að sann- leikanum sem siðan krýnir þá gulli. Þvi vissulega hafa þeir félagar grætt á sinu starfi. Bók þeirra um Watergate hefur fært þeim miljón dollara og kvikmyndin sem á bókinni er byggð, fær meiri að- sókn en Guðfaðirinn. Aðra miljón hafa þeir grætt á bók sinni um „Siðustu daga” Nixons i Hvita húsinu. Af þeirri bók hafa selst 600 þúsund eintök. Þeir félagar eru hálfsmeykir við þennan auð öðrum þræði. Þeir sverja og sárt við leggja að þeir vilji ekki setjast i forgylltan stein, braska eða auglýsa raksápu eins og ólympiustjarnan Mark Spitz. Hitt er svo annað mál hvort þeim tekst að snúa aftur til blaða- mennsku. Að undanförnu hafa þeir ekki skrifað neitt sem sér- staka athygli hefur vakið — venjulegar samantektir um kosn- ingabaráttuna helst. En segjast að visu luma á einhverri leyndri áætlun. Orösending til orkukaupenda Rafmagnsveitu Reykjavíkur Við viljum vekja athygli á þvi, að hafin er skráning á nafnnúmerum allra viðskipta- vina vorra. Við aðsetursskipti ber þvi að tilkynna okk- ur nafnnúmer nýs orkukaupanda áður en orkusala getur hafist. |T/3 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Nú bjóða öil umboðsverkstæði VOLVO umhverfis landið sérstaka VOLVO tilboð fram til 30.11. 1. Vélarþvottur 2. Hreinsun og feiti á geymissambönd 3. Mæling á rafgeymi 4. Mæling á rafhleðslu 5. Hreinsun á blöndung 6. Hreinsun á bensíndælu 7 Skipt um kerti 8. Skipt um platínur 9. Stilling á viftureim 1Q Skipt um olíu og olíusíu 11. Mæling á frostlegi • 12. Vélastilling 13. Ljósastilling Verð: kr. 9.966 — með söluskatti Innifalið í veröi: Platínur, olíusía, þurrkublöð, ventlalokspakkning, vinna, vélarolía. Volvobónus: Ókeypis kerti í bílinn. VELTIR HE Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200 r Askriftarsími Þjóðviljans er 17505 Alla virka daga opið til kl. 9 á kvöldin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.