Þjóðviljinn - 28.10.1976, Side 2

Þjóðviljinn - 28.10.1976, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. október 1976 Skrifið eða hringið. Sími: 17500 Reyðarfjarðar■ fréttir — Bátarnir, Snæþór og Gunn- ar, eru nú báðir á veiöum og sigla meö aflann til Þýskalands. Eru búnir aö fara eina ferö, sagöi Björn Jónsson, fréttarit- ari Þjóðviljans á Reyðarfirði i viötali viö blaöiö nú fyrir nokkru. Atvinna er ágæt eins og er, og i þvi á sláturhúsiö náttúrlega sinn þátt. Geta bæjarbúar eng- an veginn einir annaö henni og við urðum að manna sláturhúsið að verulegu leyti með aðkomu- fólki, t.d. ofan af Héraöi. Við slátrunina vinna um 50 manns. Féð, sem hingað er flutt til slátrunar, er að sjálfsögðu héð- an úr Reyðarfirði, af Seyöisfirði og töluvert margt ofan af Hér- aði. Það mun vera búið að slátra núna um 17 þús. fjár og eitthvað töluvert er eftir, þannig að slátrun stendur enn nokkra daga, jafnvel meira en viku. Fremur litið er um bygginga- framkvæmdir eins og er. Þó er veriö aö byrja á tveimur ibúðar- húsum nú þessa dagana. En svo hefur verið haldið áfram bygg- ingu sjö húsa, sem byrjaö var á i fyrra. Annars er alltaf heldur skortur hér á húsnæði, fremur en hitt. Gatnagerðarframkvæmdir hafa verið töluvert miklar i sumar. Var bæði malbikaö og oliumalborið. Það var fyrir all- nokkru lögð norsk olíumöl hér á götukafla. Hún reyndist mis- jafnlega. Megin hluti hennar raunar vel en sumt illa og var horfið að þvi ráöi að leggja mal- bik ofan á hana. Fólki fjölgar hér alltaf heldur. Aö visu fer það hægt en sigur þó i þá áttina. Unga fólkið er nú sem óðast að yfirgefa bæinn og fara i skóla hér og þar um landið, til Reykjavikur, Akureyrar, Eiða og ýmissa fleiri staöa. Hér heima höfum við bara skyldu- námið og svo einn aukabekk. —mhg Reyðarfjöröur Frá Fjórðungssambandi norðlendinga Þjón ustumiðstöðvar í dreifbýlinu Það er réttlætismál, að sem eðlilegasturþjónustujöfnuður sé i landinu, þrátt fyrir dreifða bú- setu. Þvi er nauðsynlegt að komið verði á fót i þéttbýli landsbyggðarinnar alhliða þjónustustofnunum,þar sem samhæfð veröi starfsemi opin- berra þjónustugreina. Innan þjónustustofnana verði sköpuð skilyrði til að laða að þjónustu- starfsemi, sem nauðsynlega skortir á viðkomandi stað og getur ekki þrifist nema i tengsl- um við aðra starfsþætti. Sér- staklega er nauðsynlegt að draga með þessum hætti úr mis- mun og auka dreifingu milli st.aða i embættisþjónustu sýsluskrifstofa, bygginga- þjónustu og skattstofustarf- semi. Þannig geta þjónustu- stofnanir skapað aukinn þjón- ustujöfnuð, sem ekki væri hægt að skapa, ef hver grein ræki hvert um sig sérstarf- semi, sem væri tii muna dýrari og skapaði óþarfa þenslu i mannahaldi. Hin sameiginlega starfsemi i þjónustustofnun, t.d. skrifstofuþjónusta, bókhalds- þjónusta, reikningstölva, getur fært að veigamikla þætti, sem sækja þarf annað meö miklum aukakostnaði. Þetta gerir einn- ig mögulegan rekstur félags- starfsemi, sem annars væri ekki til staðar og þarf að sækja fyrir- greiðslu tilannarrastaða. Fjórð- ungsþing norðiendinga leggur ti! að lögfest veröi aö Byggða- deild Framkvæmdastofnunar rikisins geri 10 ára áætlun um uppbyggingu þjónustustofnana úti i dreifbýlinu og tekjuöflun þjónustustofnanasjóðs verði miðuð við að þetta markmið ná- ist i stórum dráttum á þeim tima. Þjónustustofnanir auðvelda stofnanaf lutning Fyrir nokkru skilaöi nefnd, sem skyldi gera tiliögur um staðarval rikisstofnana tillög- um sinum. Þar er gert ráð fyrir sérstakri nefnd Alþingis, Flutn- ingsráði, sem skylt sé aö leita umsagnar hjá um staðarval nýrra stofnana, um staðarval nýrrar starfsemi eldri stofnana og um tilílutning á starfsemi þeirra. Siðasta Fjórðungsþing norð- lendinga á Siglufirði lagði á- herslu á það, að Alþingi samþ. till. nefndarinnar um Flutnings- ráð og að byggðadeild Fram- kvæmdastofnunar geröi áætlun um flutning stofnana út um land, um deildaskiptingu þeirra og að koma upp þjónustu frá þeim, i samvinnu við aöra aðila, staðsetta úti á landi. Það er öllum ljóst, að þessi nýbreytni mætir andstöðu.bæði þeirra, er starfa við þessar stofnanir og tregðu hinna, sem telja að með þessu verði aukiö á kostnað við þjónustustarfsemi, og ekki verði hægt að ná með dreifðum deiidum sama starfs- árangri og nú er. Þessvegna er nauösynlegt að dreifbýlinu tak- ist að skapa trú á þvi, aö þjón- ustudreifingin verði ekki til þess, að slita nauðsynlegt sam- hengi milli stofnana og gera al- menningi örðugra um vik að notfæra sér hina dreifðu þjón- ustu, vegna fjarlægðar á milli skyldrar þjónustustarfsemi. Með þjónustustofnunum eru sköpuð skilyrði til þess,að tengja ólfka og samstæða þætti saman i eina stofnun, sem vegna samstarfs sameiginlegr- ar tækni- og hagræðingar er fær um að draga til sin þjónustu- þætti frá stofnunum i Reykja- vik, án kostnaðarmikils um- stangs og verulegrar þenslu. Þetta er hægt með þjónustu- samstarfi ólikustu aðila og vegna þess að Ibúar aðliggjandi svæða sækja sina þjónustu til einnar miðstöðvar. Ljóst er aö þegar komin er reynsla á starfsemi þjónustu- stofnana og þær hafa unnið sér traust stjórnsýslunnar og eru orðin þjónustuvettvangur fólks- ins, að þær verða fullfærar að taka til sin i vaxandi mæli þá þjónustustarfsemi, sem færa þarf út i dreifbýlið, til að skapa eins mikinn þjónustujöfnuð á milli byggða, sem frekast er unnt, svo að þjónustustarfsemin styðji að grundvelli búsetunnar um land allt. I tengslum við þjónustustofnanir i þéttbýli dreifbýlisins er siðan hægt að byggja upp sjálfstæðar stofnan- ir, sem fluttar verði frá höfuð- borgarsvæðinu og eiga að þjóna heilum landshlutum eða landinu öllu. Þetta er þvi aðeins hægt að þjónustustofnanir byggðanna hafi sýnt gildi sitt fyrir byggða- þróunina. Raunhæf byggðastefna Mönnum er að verða i vax- andi mæli ljóst, að hvorki sjávarútvegsgreinar og land- búnaður, þrátt fyrir stór vax- andi framleiöslu, geta tekið við verulegri vinnuaflsaukningu. Það er lika staöreynd, aö i há- þróuðu þjóðfélagi leitar æ fleira fólk til þjónustugreinanna. Ef mönnum eru þessar staðreyndir ekki ljósar verður ekki hægt að reka raunhæfa byggðastefnu. Hingað tii hafa stofnlánasjóðir ekki fengist til að lána fé til þjónustuhúsa sveitarfélaga t.d. á Dalvik, Siglufirði og viðar. Þetta er röng stefna gagnvart byggðaþróun og búsetujafnvægi i landinu. Fjórðungssamband Norð- lendinga undirbýr nú úttektar- ráðstefnu á þessum málaflokki, sem vonandi veröur upphaf að auknum skilningi á þessum þætti i byggðaþróun og verði upphaf að raunhæfri byggða- stefnu i þessum undirstöðu- þætti. NORÐRH) ER RAUTT Góði vinur, Hjalti Kristgeirs- son. Stundum kemur það fyrir mig, að geta ekki orða bundist. Jafnvel þegar ekki er til mln talað á ég það til að gjamma, og má það með sönnu ósið kalla. Þú vikur i Bæjarpóstinum hinn 20. okt. að tveimur konum i Garði i Mývatnssveit og kvartar undan menningarþreytu hinnar yngri. Nú vill svo til, að þið sunnlendingar hafið haft alveg sérstakt rigningasumar i ár, svo kannski er von að ýmislegt skol- ist til i öllu þvi sulli, sem yfir ykkur hefur gengið. Það er kannski þessvegna, sem þú flokkar framsækna hugsun norölendinga undir þreytu, jafnvel menningarþreytu. Þar sem við höfum báðir nokkurn áhuga á sögu þeirrar dýrategundar, sem mestu ræð- ur á þessari jörð, þá langar mig til að benda þér á nokkrar stað- reyndir. Veistu það, að norðrið hefur alltaf verið bæði frjáls- iyndara og vinstri sinnaðra en suðrið? Siberia ungaði út fleiri róttæklingum á sinum tima en Svartahafsbyggðir Rússaveidis, Maó sálugi formaður gekk sinn langa veg til Norður-Kina og stjórnaði þaðan sigursælli bar- áttu viö japani fyrst og siðan suður-kinverska auðvaldsleppa Þrælahald var fyrst afnumið i norðurrikjum Norður-Ameriku og þurfti strið við Suðurrikin til að afiétta þvi þar i sveit. Nasistaflokkur Þýskalands átti upptök sin suður i Bæheimi, upp úr fyrra striði, ekki i Norður-* Þýskalandi, Norður-Vietnam var vettvangur gamla Hós og norðlingar á Islandi, — mývetn- ingar, — gripu fyrstir til skæru- Böðvar Guðmundsson. hernaðar i baráttunni við yfir- gang skrifstofuveldisins. Manstu eftir stiflunni, sem brast i henni Laxá? Er þaö mögulegt, Hjalti, að suðræn ihaldssemi sé farin að þjaka þig svo illa, að þú sért hættur að greina á milli þeirra áfellis- dóma, sem grundvallaðir eru á stéttaanalýsu gamla Marx og þeirra, sem byggjast á þrætu- bók sænskra sósialdemókrata? Hjalti, getur þaö verið? Með bestu kveðju frá sólskinsbörnum norðanlands til regnúrgra sunnlendinga. Þinn Böðvar Guömundsson Umsjón: Magnús H. Gfslason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.