Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 28. nóvember 1976 MERK UPPGÖTVUN 300 ÁRA GÖMUL: Þegar OLE RÖMER mældi fyrstur hraöa Ijóssins „Heimilisvél” sem Römer notaöi til stjörnuathugana heima hjá sér I Stóra Kanúkastræti Fyrir réttum 300 árum skrifaði danskur visindamaður litla rit- gerð á frönsku, sem hef- ur tryggt honum sess meðal stórmenna visindasögu. Þann 7. des. 1676 var birt i „Journal des Scavans” grein um „Sönnun fyrir hreyfingu ljóssins” eftir Ole Römer. Römer varð fyrstur manna til að sýna fram á það sem all- ir vita nú — að ljós þarf tíma tii ferða sinna um geiminn. Það hlálega er, að þessi grein er hin eina sem Römer nokkru sinni birti. Ole Römer (upphafl Christen- sen) var fæddur áriö 1644 í Arós- um. Faðir hans var efnaður kaup- maður og kom honum til mennta i háskólanum i borginni. Hann var svo heppinn að búa hjá próf. Bartolin (sem uppgötvaöi hið tvö- falda ljósbrot i silfurbergi), og beindi hann honum inn á braut raunvisinda, en flestir aðrir stúdentar höfðu ekki hugan við annað en væntanlegan prestskap sinn. Römer hélt að námi loknu til Parisar til að reyna að verða sér úti um peninga til að prenta bók sina um athuganir stærðfræð- ingsins mikla, Tycho Brahe. Þar var hann umsvifalitið kosinn I Visindakademiuna frönsku. Arið. 1676 gat hann gert grein fyrir uppgötvun sinni. Hún var gerð er hann fylgdist með fyrsta tungli Júpiters, sem hverfur i skugga þeirrar risaplánetu i hverri um- ferð um hana. Hvernig fór hann að? Römer tók eftir þvi, að mis- munandi langur timi leið á milli þessara tunglmyrkva á Júpiter. Skemmstur timi leið á milli þeirra, þegar jörðin var að nálg- ast Júpiter, en lengstur þegar hún var að fjarlægjast þennan félaga sinn i sólkerfinu. Ole Römer gerði sér grein fyrir þvi, að þetta gat þýtt það eitt að ljósið þyrfti ákveðinn tima til að berast um geiminn. ^grein sinni skýrir Römer frá þvi, að hann hafi fylgst með fyrsta tungli Júpiters um átta ára skeið og komist að þeirri niður- stöðu sem að ofan greinir. Hann telur að hraði ljóssins sé svo mik- ill, að það taki ljósið 22 minútur að fara tvöfalda fjarlægð milli jarðar og sólar. Þegar tókst að mæla hraða ljóssins nákvæm- legar reyndist það fara þessa vegalengd á 16.6 minútum. Lokaathugun Römers var gerð niunda nóvember, þegar áður- nefnt tungl Júpiters kom i.ljós tiu minútum siðar en búast mátti við Niðurstöðurnar lagði Römer svo fram á fundi Visindaakademi- unnar i Parls 21. nóvember. Uppgötvun hans vakti upp ys og þys i heimi visindanna. Hún varð beinlinis grundvöllur að merkum ljóskenningum hollendingsins Huygens og englendingsins Isaacs Newtons, sem átti bréfa- skipti við Römer og kom ári siöar fram með kenningu sina um bylgjuhreyfingu ljóssins. Áður höfðu menn trúað þeirri hugmynd Descartes, aðljósið skilaði sér frá Þessum sjónauka, sem iék bæði á láréttum og lóðréttum öxli, kom Römer fyrir i Sivalaturni í Kaupmannahöfn. stjörnum til jarðar á augabragöi. Römer varð virtur maður i Frakklandi, smiðaði ýmis tæki til stjörnuathugana, var I náðinni hjá Lúðvik 14.da og kenndi krónprinsinum. Hann tókog þátt I gerð hinna frægu gosbrunna i Vesöium. Borgarstjóri i Höfn. Eftir niu ára dvöí i Frakklandi hélt hann heim til Danmerkur. Kristján fimmti skipaði hann borgárstjóra I Kaupmannahöfn og reyndist hann nýtur maður i þvi starfi. Hann breikkaði götur, lokaði ræsum, kom á götulýsingu og bætti eldvarnir. Hann fékkst og áfram við visindalegar athuganir og endurbætti ýmis tæki sem höfð eru til stjörnuat- hugana. OleRömerlést 1710. Hann hafði unnið mikið að visindum, en birti aðeins þá einu grein sem tryggöi honum hemsfrægö. Hann hafði litinn tima til að skrifa og hann var firnalega gagnrýninn á sjálf- an sig. Mikið af handritum hans brann i brunanum mikla i Kaup- mannahöfn 1728, þeim hinum sama sem eyðilagði margt af bókum Árna Magnússonar. -----trúlofu Allir sem trúlofa sig og gifta, vilja vanda val á hringum. Viö bjóóum ykkur velkomin í verslanir okkar, þar sem vió munum sýna ykkur hiö ótrúlega fjölbreytta úrval af hríngumog snúrum. Ennfremur póstsendum vió hvert á land sem er, ef þess er óskaó. Hér gefur aó líta nokkur sýnishorn, sem þó aóeins er hluti þess úrvals, sem þiö eigió kost á. KUPTIR HRINGAR - mis- munandi kúptir eftir ósk. Breidd 4, 5, 6 og 7 mm. Þessi gerð er mjög eftirsótt. KUPTIR, BREIOIR HRINGAR Breidd 8, 9, 10 og12mm. Vinsæl gerð undanfarin ár. FLATHAMRAÐIR HRINGAR Fleti má hamra á ólíka vegu á hvers konar hringa. Algengast á kúptum hringum. EGGHAMRAÐIR HRINGAR Rákir, hamraöar beint, þversum eða á ská. SLÉTTIR HRINGAR Breidd 4, 5, 6 og 7 mm. Hafa rutt sér til lúms á seinni árum. SLÉTTIR. BREIÐIR HRINGAR Breidd 8, 9, 10 pg12mm. Mjög vinsæl gerö i dag. KROSSHAMRAÐIR, SLÉTTIR HRINGAR Krosshamra má ólikar breiddir. KANTSORFNIR, SLÉTTIR HRINGAR Kant má sverfa á slótta hrínga f öllum breiddum. HRINGAR MEÐ HÖFÐALETRI Bæði nöfnin grafin með höfðaletri á hvorn hring. Breiddir: 6, 7, 8, 9 og 10 mm. Höfðaletur var notað í útskurði fyrr á öldum. STEINASNURA Mikið notuð með gifting- arhringum. Vinsælustu steinarnir f „snúrunum” eru rúbin (rauður) og saflr (hvltur og blár). VOLSUÐ MYNSTURSNÚRA Fæst I ýmsum mynstrum og gerðum, laus eða áföst kvenhringnum. Breidd 2 mm. 'X..J 12 KLASSISKA GULLSNÚRAN Laus eða áföst kven- hringnum. Breidd 1.5 mm. úv ofj skap^pfpip JON OÖ OSKAR Laugavegi 70 -s. 24910 og vehz"lXnT”ThÖL.LII\1 laugaveg eb Laugavegi 26 -s. 17742

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.