Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 5
Sunnudagur 28. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Wolf Biermann I fbúö sinni I Austur-Berlin. EUefu ár i banni. Wolf Biermann les upp I Köln: ég lagði áherslu á þab hve dýrmset reynslan af DDH sé ■ > "• vr* *>, ! . - *■ jj nn Af hverju vill Wolf Biermann snúa heim? Eftir að austurþýsk yfirvöld hafa gert Wolf Biermann, skáld og visnasöngvara, útlægan, hafa blöð rifjað upp hina sérkennilegu sögu þessa snjalla ádeilu- meistara. Við minnum stuttlega á, að Biermann er frá Hamborg, sonur verkamanns og kommúnista sem nasistar drápu, kaus að setjast að i DDR, Þýska alþýðulýðveldinu árið 1953. Hann hefur margt ort um kapitaliskt samfélag sem sviður undan, og hann hafði einnig talið skyldu sina að tala fullum hálsi um for- réttindi, skrifræði, samfélags- hræsni og annað það sem honum fannst sverta hugsjón sósialisma i DDR. Þvi hefur hann verið i banni þar eystra i meira en tiu ár. Og þegar honum var leyft að skreppa til Vestur-Þýskalands var tækifærið notað til að gera hann útlægan. Og Wolf Biermann heldur áfram að vera sjálfum sér likur og krefst þess að fá að snúa heim aftur — trúr þeirri sannfæringu að kommúniskur andófsmaður eins og hann hafi þvi hlutverki að gegna aðgera sósialismann betri, knýja á um uppfyilingu þeirra fyrirheita sem hann hefur gefið. Ég gagnrýni frá vinstri. 1 Spiegel nýútkomnum er að finna fróðlegt viðtal við Biermann og verða hér rakin nokkur atriði þess. Hann biður menn fyrst orða að muna eftir þvi, að hann gagnrýni DDR frá. vinstri og að menn rugli þeirri af- stöðu ekki saman við gagnrýni frá hægri eins og oft sé gert. Hann tekur það einnig skýrt fram, að hann hefði alls ekki þegið boð um að fara til Vestur-Þýskalands til tónleikahalds, ef hann hefði ekki verið viss um að fá að koma heim aftur. Þegar hann kom fram i Köln á ljóðakvöldi sem sjónvarp- að var fór hann með gagnrýna texta — en ,;ég tók einnig málstað DDR og þeirrar tilraunar að byggja þar upp sósialisma” Solsjenitsin Biermann leggur mikla áherslu á að það sé rangt að likja honum við Solsjenitsin.Hann kveðst ekki draga i efa að Solsjenitsin fari með rétt mál i lýsingum á þvi sem gersthefur i Sovétrikjunum, enda hafi hann sjálfur borið vitnisburð rithöfundarins saman við reynslu ýmissa sovéskra kunningja sem m.a. sátu i fangabúðum Stalins. Siðan segir Biermann: „Vandinn er bara sá, að með dapurlegum sannindum um samfélög sem kalla sig „sósialisk” er hægt að breiða út hættulegar lygar um eina möguleikann sem mannkyn- ið hefur, en sá möguleiki er sósialisminn.” — A þetta ekki einnig við um það, hvar menn breiða út þessi sannindi? spyr Spiegel. — „Það er rétt sagði'Biermann Það er munur á þvi hvort maöur er i DDR og fer þaðan með gagn- rýni á vandamál i DDR, eða hvort maður er staddur á hinum kapi- talisku Vesturlöndum. Ég væri slæmur pólitiskur listamaður ef að ég tæki ekki tillit til þessa. Fagmenn svonefndir hafa vafa- laust tekið eftir þvi, að ég hefi hér vestra talað öðruvisi um sósial- isma i DDR en ég hefi hingað til gert i viðtölum (skráðum eystra). Ég hefi aldrei lagt jafn skýra áherslu á það með röksemdum og ástriðu hve dýrmæt og þýðingar- mikil sú tilraun er sem DDK er holdtekning á. Dýrmæt og mikil- væg fyrir alltÞýskaland og þýska verklýðshreyfingu.” Sósialismi eða villi- mennska Biermann segir i viðtalinu, að i DDR hafi átt sér stað jákvæð þró- un að undanförnu. Ekki vegna áhrifa Helsinkisamkomulagsins um sambúð rikja Evrópu, heldur öðru fremur vegna Berlinarfund- ar kommúnistaflokka Evrópu og þar með áhrifa þess, að komm- únistaflokkar Spánar, Italiu og Frakklands hafi stigið greinilegt skref til „sósialisks lýðræðis”. Hann telur að fordæmi þessara flokka hafi mikil áhrif á fólk i DDR og valdi um leið áhyggjum staliniskum forystumönnum, sem hann segir að séu i þeirri þverstæðufullu stöðu ,,að byggja upp sósialisma og hindra þá upp- byggingu i senn”. Biermann set- ur útlegðardóminn yfir sér i sam- hengi við þessa þróun, og kemst að þeirri niðurstöðu, að hann sanni hve höllum fæti forystu- mennirnir i austurþýska flokkn- um standi, og þar með boði hann óbeintað austurþýskur sósialismi eigi eftir að hressast. Biermann endurtekur i viðtali þessu að hann vonist til að geta snúið heim. DDR sé þrátt fyrir allt „hans samfélag”, samfélag sem reyni að byggja upp sósial- isma „en það er að minum dómi tilraun sem alls mannkyns biður ef það á ekki að farast i villi- mennsku”. Hann segir ennfrem- ur, að hann sé ekki þeirrar skoð- unar, að allra landa hljóti að biða sömu villur og yfirsjónir og t.d. þekkjast i DDR á fyrsta skeiði só- sialisma. Hann vonar, að neikvæð fyrirbæri i DDR verði t.d. vestur- þýskum vinstrisinnum viti til að varast þegar kemur að þeim að smiða sósialisma við efnahags- legar og pólitiskar forsendur sem eru um margt auðveldari en þær sem menn i DDR þurftu að glima við... Mótmælahreyfing Spiegel veltir þvi nokkuð fyrir sér i annarri grein, hvernig á þvi standi, að yfirvöld i DDR hafi gripið til þess ráðs að reka Bier- mann. Blaðið segir á þá leið, að flokksforystan sé i klemmu. Hún gæti freistast til ýmisiegrar til- slökunar, t.d. á menningarsviði og i sambandi við Vestur-Þýska- land — bæði til að auka vinsældir sinar i DDR sjálfu og til að greiða fyrir viðskiptum og lánstrausti i vesturátt sem efnahagur landsins hafi fulla þörf fyrir. En slik til- slökunarstefna geti á hinn bóginn grafið undan valdeinokun flokks- forystunnar og leitt til ólgu og umbrota sem endanlega gætu orðið til þess að sovéski herinn skærist i leikinn (samanber Tékkoslóvakiu). I taugastriði um þessa valkosti verði svo til fárán- leg ráðstöfun eins og brottvfsun Wolfs Biermanns. Hvað sem slikum vangaveltum liður, þá er það vist, að mótmælin gegn útlegð Biermanns hafa orð ið miklu kröftugri en austurþýsk yfirvöld hafa búist við. Franskir og italskir kommúnistar hafa mótmælt og hinir sundurleitu vinstrihópar i Vestur-Þýskalandi hafa sameinast um stuðning við félaga Biermann. Meira að segja i vesturþýska kommúnistaflokk- num, DKP sem fylgir DDR venjulega i öllu, hafa heyrst ó- ánægjuraddir. Það sem mestu skiptir er þó að mál þetta hefur vakið upp sterkari mótmæla- hreyfingu meðal ýmissa ágætra fulltrúa lista og mennta i DDR. Meira en 70 þekktir menn hafa krafist þess að stjórnvöld endur- skoði ákvörðun sina, þeirra á meðal rithöfundarnir Stefan Heym, Stephan Mermlin og Christa Wolf. //Stéttaróvinurinn" Austurþýska flokksblaðið Neu- es Deutschland hefur ekki fundið marga vestan landamæranna til að taka undir við útlegðardóminn — málgagn áðurnefnds komm- únistaflokks, DKP, Unsers Zeit, er eitt um þa iðju. Aftur á móti hefur verið reynt að fá lista- og menntamenn innan DDR til að leggja blessun sina yfir þessa visku stjórnvalda. Þeirra á meðal má finna allþekktan rithöfund eins og Hermann Kant, tónskáld- ið Paul Dessau og leikarann Ernst Busch, kollega Biermanns i pólitiskum visnasöng. Þessir menn þrir segja i persónulegum yfirlýsingum sinum i Neues Deutschland um siðustu helgi á þá leið, að þeim finnist Wolf Bier- mann sekur um að hafa hjálpað „stéttaróvininum”, en af honum megi menn aldrei neitt þiggja. Þessu viðhorfi, sem alltaf er grip- ið til þar eystra við svipaðar að- stæður, má að sjálfsögðu svara með þvi að vissulega munu and stæðingar sósialisma færa sér i nyt þá gagnrýni sem fram kemur i sósialiskum samfélögum. En þó gleðjast þeir aldrei meir en þegar slik gagnrýni er bönnuð.Þá fitnar fyrst að ráði sá „stéttaróvinur” sem ofangreindir jábræður Neu- es Deutschland telja sig vilja svelta. Arni Bergmann tók sama Tæknifræöingur Iðnaðardeild Sambandsins Akureyri ósk- ar eí'tir að ráða tæknií'ræðing til starfa sem fyrst. Reynsla i sambandi við hag- ræðingarstarísemi og vinnurannsóknum æskileg. Húsnæði til staðar. Farið verður með um- sóknir sem trúnaðarmál. TIIBUNAR A 3 MIN.! PASSAMYNBIM OPIiP-I IA DIE GIWTJ Lj ósmyndastofa AMATÖR LAUGAVEGI 55 í? 2 27 18

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.