Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 16
16S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. nóvember 1976 FERDINAND STERKI Alexander Kluge. Ferdinand sterki er leikinn af Heinz Shubert. Þjóðverjar hafa einsog aörar menningarþjóðir verið að bisa við kvikmyndagerð allt frá fyrstu dögum þessarar yngstu og áhrifamestu listgreinar, og tekist misjafnlega. Skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina hófst mikið blómaskeið i þýskri kvikmynda- list, kennt við expressionisma. Þvi lauk þegar flestir meistar- anna þurftu aö flýja land undan JÓLA- SKEIÐIN I ÁR ER JÓLALJÓS Jens Guðjónsson, gullsmiður Laugavegi 60 &Suðurveri. húsamálaranum. Slðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar vondar þýskar myndir verið framleiddar, báðum megin múrs. En svo gerðist það fyrir allnokkrum árum að vestan meg- in fór að færast lif I tuskurnar og áðuren menn vissu af var komið nýtt blómaskeið. Upp var risið allgott lið ungra manna sem gerðu hverja góðmyndina á fætur annarri og eru þeir enn að. Sumir þeirra eru orönir heimsfrægir, hver hefur ekki heyrt getið um Rainer Werner Fassbinder, Alex- ander Kluge eða Werner Herzog, svo einhverjir séu nefndir? Hér heima höfum við að visu ekki beinlinis verið mötuð á þessari framleiðslu, það er þá helstFass- binder. Mér skilst að við höfum átt þess kost að sjá hér u.þ.b. einn tiunda hluta af kvikmyndaverkum hans og megum vist þakka fyrir það. Þaö má vera að einhver mynd Alexanders Kluge hafi ver- iö sýnd hér. Hann byrjaði á þvi að stjórna myndinni um Anitu G. eða Abschied von Gestern, árið 1966. Siðan hefur hann gert a.m.k. fimm langar myndir og nokkrar stuttar. Nýjasta mynd hans heitir Der Starke Ferdinand, eöa Ferdinand sterki. Hún varð sænskum kvikmyndagagnrýn- endum tilefni til að leita uppi höf- undinn og hafa af honum tal. Arangurinn birtist i nýlegu hefti af Chaplin, kvikmyndatimaritinu sænska. Þar fer Kluge nokkrum oröum um myndina og sjálfan sig, og verður hér greint nokkuö frá þvi sem hann hefur að segja. Ferdinand sterki, sá sem myndin fjallar um, er lögreglu- maður. Hann er óhamingjusamur i starfi sinu vegna þess að hann fær ekki að vera eins athafna- samur þar og hann vildi. Honum finnst nefnilega ekki vanþörf á að gera góðan skurk i löggæslunni, hreinsa til. Þvi tekur hann að sér nýtt starf, sem er fólgið i að tryggja framleiðsluöryggi hjá stóru iðnfyrirtæki. Hann tekur til óspilltra málanna við að byggja upp varnarkerfi I fyrirtækinu og lendir I deilum viö eigendurna vegna þess að þeir meta hagnaö- inn meira en öryggiskerfið hans Ferdinands, sem byggist á her- aga. Smám saman færist i auk- ana sú tilfinning hjá Ferdinand að öryggi og vernd sé meira virði en allt annaö. A endanum sýnir hann ráðherra banatilræði i þeim til- gangi að sýna fram á að vernd sé nauðsynleg. Sænsku gagnrýnendurnir segja að myndin sé afar skemmtileg, og nái mjög vel til áhorfenda. Ferdi- nand sé ósköp venjulegur maöur, metorðagjarn og frekar leiðin- legur, og ekki hættulegur fyrren hann kemst i valdastööu. En þá verðurhann að litlum Eichmann, vegna þess að hann metur meira athafnasemi en umburðarlyndi, afl en hugsun. Valdið er eina ráðið sem hann kann til að fá fólk á sitt band. Hann er hlægilegur og um leið er saga hans harmleikur. Kluge er að segja okkur að það séu ekki alltaf stórmennin sem séu hættuleg, heldur geti litli maðurinn lika orðið það þegar hann fær völd sem hann kann ekki að beita. Kluge talar um ástandið i V- Þýskalandi og er fremur svart- sýnn. Honum þykir stjórnvöld stefna i grunsamlega átt þegar þau bregðast við kreppuástandi með Lögum og Reglu. Hann segir að þau vildu helst byggja múr til að verja sig gegn itölskum kommúnistum, einsog gert var i Berlin. Ekki sé treystandi á upp- eldi það sem þjóðfélagiö, stjórn- málaflokkarnir, skólar og for- eldrar hafi veitt fólki. Það voru 81 miljón manna i Þýskalandi og samt gat það gerst sem gerðist i Auschwitz. Það er eitthvað alvar- legt að samvisku þeirrar þjóðar sem lætur siikt viðgangast. Samt verður maður að bera svolitið traust til mannanna og siöferðis þeirra. Barnið treystir móður sinni og leitar huggunar hjá henni. Fullorðið barn leitar til Hindenburg, Hitlers, Adenauers eða Springer. Við verðum aö nota okkur þessa þörf mannanna fyrir traust og huggun. Þetta litur Kluge á sem fyrsta og mikilvæg- atsa verkefni sitt sem kvik- myndastjóra: að fullnægja þörf mannanna fyrir traust og hugg- un, án þess að ljúga að þeim. Um starfsaðferðir sinar segir Kluge, aö fyrst taki hann fyrir einhverja ákveðna hugmynd, hugsi um efnið. Siðan fari hann á stúfana eftir heimildum og rann- saki viðfangsefnið ofan i kjölinn. T.d. hafi hann stundað slikar rannsóknir i tvö ár, áður en hann hóf töku „Ferdinands sterka”, enda hafi hann á þeim tima viðað að sér efni i 20-30 kvikmyndir. Siðan byrji hann að skrifa hand- ritið. Hann segist skrifa það til þess að finna það form sem henti efninu best. Hann prófar sig áfram og út úr öllum þessum til- raunum kemur sjálf sagan, at- buröarásin. Og þá fyrst getur hann myndað sér skoðun um máiið, séð hver hans eigin afstaða til efnisins er. Þegar hann hafði skrifað fyrsta handritið að „Ferdinand sterka” uppgotvaði hann að hann gat alls ekki gert mynd um þetta efni sem hann hafði verið að rannsaka I tvö ár. En hann gafst ekki upp, gerði sex drög að handriti. Allt kom fyrir ekki. Þangað til loksins að hann fann þann möguleika að gera mynd um mann sem ber ekki valdið utan á sér, er hógvær og litillátur að sjá, þar til hann er settur i valdastöðu og verður hættulegur. Þarmeð var aðalper- sónan fundin og siðan byggði sag- an upp i kringum hana. Þegar kvikmyndatakan hefst segist Kluge fara i einu og öllu eftir þvi sem stendur i handritinu. Hann taki þó oft upp viðbótaratriði og bæti þeim inn i söguna. Siðan verði enn frekari breytingar þegar myndin fer i klippingu. Kluge segist alltaf hafa miklu meira kvikmyndað efni i höndun- um en hann noti, til þess að geta valið úr og breytt eftir þvi sem sagan þróast með honum. Hann segir að myndin megi ekki verða of löng, vegna þess að áhorfand- inn þurfi að leggja fram hluta af ævi sinni til að njóta þess sem kvikmyndastjórinn vill segja honum, og þetta verði sá siðar- nefndi alltaf að muna og virða. Hugsið ykkur Wagner-sýningu út frá þessu sjónarmiði! — segir Kluge. Ég reyni að takmarka mig við 80-90 minútna sýningartima, til þess að áhorfandinn þurfi ekki að fórna stærri hluta úr ævi sinni til að hlusta á mig. Kluge notar ýmist atvinnuleik- ara eða áhugafólk i myndum sinum. Hann segist vinna með leikurum vegna þess að þeir séu nákvæmir og agaðir i vinnu- brögðum, en með áhugamönnum vegna þess að þeir búi yfir miklu meiri lifsreynslu en leikarar. Gallinn við marga leikara, segir hann, er að þeir huga ekki nóg að umhverfi sinu. Eiginlega ættu þeirað nota helminginn af vinnu- tima sinum til að kynnast fólki, kynnast heiminum, raunveru- leikanum, Það eina sem er raun- verulegt i leikhúsi er slökkviliðs- maðurinn að tjaldabaki! , Sami reynsluskortur hrjair marga kvikmyndastjóra. Kluge segist ekki fá nóg samband við raunveruleikann með þvi að stunda aðeins kvikmyndastjórn. Hann er lögfræðingur að mennt og stundar lögfræðistörf tvo mán- uði á ári, auk þess sem hann kennir lögfræði við háskóla. Þannig segist hann komast i nán- ara samband við umheiminn. Að lokum spurðu sviarnir Kluge hverjir væru helstu fyrir- myndir hans i listinni, hvað hefði haft mest áhrif á hann sem kvik- myndastjóra. Fyrirmyndirnar eru margar og ólikar. Fyrst og fremst er það kvikmyndin sem manneskjan hefur gengið með i höfðinu i 10.000 ár, og sem kvikmyndalistin er alltaf að bisa við að endurvarpa á tæknilegan hátt. Þar á ég við þá áráttu manneksjunnar að láta sig dreyma og þann hátt sem hún hefur lært af raunveruleikanum. Siðan telur Kluge upp ótal góða menn sem skilið hafa eftir spor I sögu kvikmyndarinnar, og viður- kennir loks að sennilega hafi hann lært mest af Godard, þótt hann sé ekki hrifinn af þvi sem Godard framleiðir nú. Hann telur boð- skapinn og móralinn hafa borið þennan franska meistara ofur- liði. En mesta áherslu leggur Kluge á að kvikmyndasagan sé ekki aðeins saga kvikmyndanna, heldur komi þar margt annað inn i: góð blaðamennska, forvitni, bókmenntir. Brecht var á labbi um Hollyvood með nokkrum góðum mönnum og dreymdi um að gera kvikmynd. Ekkert varð úr þvi, en þessi draumur hans til- heyrir samt kvikmyndasögunni. Þegarég siti hringekjusem snýst hratt og ég er hræddur um að detta, þá er það lika kvikmynda- list, segir Kluge.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.