Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 28. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
allan, og spýtti frá sér með tals-
verðum kraftigráleitu frjómagni,
sem hann dró til sin græðgislega
úr iðrum jarðar. Ai drösul virtist
hvorki bita eldur, járn né bænir
skepna jarðarinnar, þótt hann
væri forn og fúinn og rætur hans
feysknar. Tobba heyrði fagran
ljóðaþyt I lofti. (176).
Þvifer fjarri að sá „Freudiski”
skilningur sem hér hefur verið
tæpt á sé fullnægjandi til túlkunar
á verkum Guðbergs. Þau gerast
meðal alþýðufólks og oftast er
skýrt frá þvi gengið, hvers vegna
þetta fólk er orðið eins og þvi er
lýst. Það lifir lifi sinu undir hæl
auðskipulagsins, sú vist hefur af-
skræmt það og lifsmunstrin
virðast á góðri leið með að þurrka
endanlega burt allar þær til-
finningar sem kviknað geta ofan
við nafla.
Rökhugsunin
1 öllu þessu tali um undir-
meðvitund og sálardjúp er ekki
fjarri lagi að nefna aðeins
viðhorfin til rökhugsunarinnar
sem margir ætla að stjórni
gerðum okkar mannanna. Hvers
vegna hugsa persónur Guðbergs
ekki rökréttar en raun ber vitni,
t.d. þegar verið er að boða þeim
fræðilegan sósialisma með þvi að
senda rafstraum i rassinn á
þeim? Svarið við þessu er að
sumu leyti að finna i Bubba, þeim
sem allir biða eftir að komi að
lokum út úr önnu en kemur
raunar i bil þegar sist varir. Hann
veit ekkert, hefur engan tilgang
og ekkert hlutverk og i þvi er
styrkur hans fólginn. Hann er sá
sem koma skal eða eins og Bubbi
segir um sjálfan sig:
Enginn er visari eða á stærra
og næmara svið en sá sem aldrei
hefði átt að fæðast i þennan heim
og er alls staðar ókunnugur
gestur og á hvorki hlut I né heim-
ili. (228).
Stuttu siðar segir að þau Anna
hafi vitað bæði að hann var kom-
inn til þess að fylla skarð hins
óskiljanlega. I sjálfu sér er hér
um að ræða árás á okkar rök-
hugsuðu tilveru og allt sem henni
fylgir. Agæt dæmi um þeita má
raunar einnig sjá með þvi að bera
saman sögurnar tvær sem hér
hefur verið drepið á. önnur er
bókstaflega hugsuð I hjóna-
böndum og stöðluðum lifs-
hlaupum en hin glimir við allt það
sem undir þvi blundar. Mér
dettur stundum i hug að Guð-
bergur sé hinn eini sanni stjórn-
leysingi (anarkisti) i Islenskum
bókmenntum en hvort sem rétt er
að kalla hann þvi nafni eða ein-
hverju öðru þá er það vist að séu
menn reiðubúnir til jafn algers
endurmats og þess sem hann
boðar, þá er til alls fyrst að hella
úr koppnum yfir alla sina stöðl-
uðu hugsanadrauga.
Kristján Jóh. Jónsson
ALÞÝÐU-
LEIKHÚSIÐ
Krummagull
Sýningar I félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut i dag
klukkan 15:00, tilvalin fjöl-
skyldusýning, þriðjudag
klukkan 20:30.
Síðustu sýningar.
íárnbent steinsteypa í einingum
í
-y
Traustar sperrur og tréverk, og
traustir menn til aó reisa húsin. Ná-
kvæm stöðlun framleiðslu okkar þýðir
ekki, aó öll húsin veröi eins, heldur
það, að allir hlutar framleiðslunnar
falla nákvæmlega inn í þá heild, sem
þið veljið. Það eru margvíslegir mögu-
leikar á fjölbreytni í útliti húsanna og
innréttingum.
Traust og fjölbreytileg
einingahús.
Viö framleiöum bæöi stór og smá
hús, atvinnuhúsnæði, bílskúra og ein-
býlishús eða raðhús. Einingabygg-
ing sparar ómetanlegan tíma, fé og
fyrirhöfn, bæði verktökum og atvinnu-
mönnum í byggingariónaði og öör-
um húsbyggjendum.
HÚSASMIÐJAN HF
Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365.
JÓLAMARKAÐUR
Aðventukransar
Aðventukransaefni
Mikið úrval
Þurrskreytinga
Kertamarkaður
Pottaplöntumarkaður
Fallegar ódýrar
jólastjörnur
OPIÐ ALLA
DAGA FRÁ
KLUKKAN
10 TIL 22
GARÐSHORN
Við Reykjanesbraut, Fossvogi — Sími 40500
Skollaleikur
Sýning i Lindarbæ i kvöld kl.
20:30 og á mánudagskvöld kl.
20:30. siðustu sýningar.
Miðasala
i Lindarbæ frá kl. 17:00, simi
21971 og við innganginni
Félagsmálastofnuninni hálf-
tima fyrir Krummagulls-
sýningu.
Húsnæði óskast
Einhleypan mann i fastri stöðu vantar
gott herbergi, helst i vesturbænum.
Upplýsingar i sima 14356 á milli klukkan
13:00 og 19:00
Meinatæknir
Staða meinatæknis að Reykjalundi er laus
til umsóknar. Meinatæknirinn þarf að
geta hafið starf sem fyrst og ekki siðar en i
janúar n.k.
Umsókn sendist yfirlækni sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar um starfið.
Vinnuheimilið að Reykjalundi
Mosfellssveit Simi 66200