Þjóðviljinn - 28.11.1976, Side 24

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Side 24
Aðalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum slmum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla81482 og Blaðaprent81348. Einnig skal bent á heimasíma starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i símaskrá. Að vera „uppá kofa” er mjög skemmtilegt og hér er hópur þar sam- an kominn. OG SONGUR í allri þeirri fjölbreyttu um- ræðu og þvi flóði skrifaöra orða um dagvistun og dagvistunar- mál, minnist ég þess ekki að hafa heyrt orð frá þeim sem allt heila málið snýst um, börnunum sjálfum. „Ekkert ger- ist fyrr en ég kem” sagði konan sem ætlaöi að fara að ala barn er allir voru orönir vitiausir I kringum hana út af atburðinum. Eins minnist ég þess að litla sovéska fim leikastúlkan Fliatova, sagði armæðufull á æfingu I Laugardalshöllinni I haust: „Allir eru að segja mér til en enginn hlustar á það sem ég hef að segja”. Þvi er það kannski ekki úr vegi að heyra aðeins hvaö börnin sem njóta dagvistunar hafa að segja. Ekki endilega um dagvistunarmál, heldur einnig um lffið og til- veruna. Og þessvegna fórum við i heimsókn i eitt dagheimilið i Reykjavik, sem ber það skemmtilega nafn KRÓASEL og er staðsett i Arbæjarhverfi. Þarna er um einkadagheimili að ræða, nokkrir foreldrar tóku hús á leigu, réðu starfsfólk og opnuðu dagheimili, þar sem dveljast 20 börn fyrir hádegi og 23 eftir hádegið. Börnin eru á aldrinum 2ja til 6 ára. Rigning og rok var á þegar okkur bar að garði i Króaseli og þvi flest börnin innivið. Börn eru áreiðanlega ljúfustu gestgjafar sem hægt er að hugsa sér. Eftir að spurt hafði verið kurteislega um erindið sagði litil stúlka, sem kvaðst heita Helga „sestu hérna” og bauð ósköp litinn stól til afnota. Ekki var skrásetjari þessara lina fyrr sestur á litla stólinn en hópurinn haföi umkringt hann og litill snáði tilkynnti hátiðlega að hann pabbi hans ætti nákvæmlega samskonar ljós- myndavél og blaðamaðúrinn mundaði. Aðspurður um nafn sagði hann: „Ég heiti Gunnar Þór Péturs- son og hún mamma min heitir Margrét.” — Hvað ertu gamall? „Fjögra ára” og ég er fimm og ég er fimm og ég er... gall þá við úr öllum áttum, en allt i einu hvíslaði mjúk og falleg rödd i eyrað: „Og ég er 3ja og hálfs og ekkert langt þar til ég verð 4ra ára”. Hún sagðist heita Eva, var ósköp hæg og prúð og hafði sig minna i frammi en flest hinna, kannski vegna þeirrar stað- reyndar að hún er bara 3ja og hálfs og ekki langt þar til hún verður fjögurra ára. Þegar maður situr fyrir fram- an hóp af svo fjörugum krökk- um, sem krakkarnir i Króaseli eru, freistast maður til að alhæfa spurningar og leggja þær fyrir allan hópinn. Þegar spurt var hvort skemmtilegt væri að vera á dagheimili kvað vð hátt og snjallt: „Jáááááááááá! — Og hvað er svona gaman við að vera á dagheimili? „Bara allt. Að vera i húsun- um i dúkkuleik, og að drullu- malla, að vera uppá kofa og inni kofa, bara allt”. Og tónninn var á þann veg að heimskulegar var vist ekki hægt að spyrja. — Er ekki leiðinlegt i svona veðri, rigningu og roki? „Nei, mest gaman”, sagði 5 ára hnáta, sem sagðist heita Alfheiður Ingimarsdóttir. — Hvernig getur verið gaman að leika i svona veðri? „Jú, þá er best að drullu- malla. Ég ætla að fara út á eftir þegar við erum búin að drekka. Maður fera bara i regngalla og svo að drullumalla, það er svo ægilega gaman að drullu- maiia.” — Hvað gerið þið þegar veðrið er svo vont að ekki er hægt að drullumalla? — Erum inni og syngjum”. — Bara syngið? „Nei, erum lika uppá kofa og inni húsinu” „Heyrðu manni, áttu strák,,’ spurði Gunnar Þór, og þegar manni sagðist ekki eiga strák heldur bara tvær stelpur, kom svipur fullur vorkunar á andlitið Myndir og texti: S.dór. á Gunnari. Hann sagði ekki neitt, en vorkunsemin leyndi sér ekki á svipnum, svo sagði hann allt i einu: „Ég á systur”. — Áttu engan bróður? „Nei, en ég á frænda.” Eldri dömurnar, þær sem orðnar eru 5 ára, voru mjög kurteisar og höfðu sig ekki mik- ið i frammi. Þær eru orðnar svo stórar — Hlakkið þið ekki til að fara i 6 ára bekk næsta vetur? „Ekkert mjög, við erum i skóla hér”. — Það er ekki alvöruskóli? ,,Jú, vist er alvöruskóli hér, við erum að læra.” Þetta eru rök sem maður seg- ir ekkert við. Þá sagði ein, se'm er 3ja og hálfs árs: „Ég ætla ekki að fara I skóla, ég ætla bara i bió” — En þú verður að fara i skóla þegar þú verður 6 ára og læra að lesa og skrifa? „En það er meira gaman að fara i bió, þess vegna ætla ég bara i bió”. — Þið sögðust syngja þegar þið eruð inni, er gaman að syngja? „Óulea, gaman” sagði litil stúlka, sem var svo litil að hún vildi ekki segja manninum hvað hún,_væri gömul, en hún gat ekki stilít sig um að leggja orð i belg þegar minnst var á sönginn. — Hvort er meira gaman að leika sér i Kóaseli eða með krökkunum heima? „Meira gaman hér” — Hversvegna? „Af þvi baraþað er svo margt hægt að gera nér. Maður má föndra, drullumalla, leika sér i kofanum og á kofanum og svo margt og margt..” Þetta virtist samdóma álit hópsins, enginn efi um þetta atriði. Þegar maðurinn fór að taka saman dótið sitt, skrifblokkina, setja pennann i vasann og láta myndavélina niður i tösku var spurt: „Ertu að fara strax” „Já, nú verð ég að fara að vinna” „Alveg eins og pabbi segir” sagði þá litill snáði. „Taktu fleiri myndir og láttu koma blossa” Ög þegar fleiri myndir höfðu verið teknar og margir blossar höfðu komið, dreifðist hópurinn og litlu manneskjurnar fóru að dunda hver við það sem skemmtilegast var að gera þá stundina, en maðurinn kvaddi og fór. —S.dór ISftf V ' ■ ' ; M í ■ ■•> > - i . Heimsókn á dagheimilið KRÓASEL Hús búiö til úr tómum mjólkurfernum. Ibúarnir I glugganum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.