Þjóðviljinn - 04.12.1976, Page 1
UOWIUINN
Laugardagur 4. desember 1976.—41. árg. —273. tbl.
r
ASI-þing krefst pólitískrar lausnar á
brennandi vanda láglaunafólksins
Flugslysið i gœr
KRAFTAVERK
að mennirnir komust af
„Það er hreint kraftaverk að
þeir skuli hafa lifað þetta af.
Vélin kom mjög hratt niður og
hreyfðist ekki úr stað eftir að
hún skall i jörðina”, sagði Skúli
Sigurðsson hjá Loftferðaeftir-
litinu i gær um flugslysið, sem
varð við Hafravatnsveg
skammt frá Miðdal um hálf
þrjúleytið.
Það var tveggja sæta Cessna
150 frá flugskólanum Flugtak
h.f. sem hrapaði. 1 vélinni voru
Viðar Friðriksson, flugkennari,
og Sigurður Ingibjartsson,
nemandi. Þeir eru mikið slas-
aðir en ekki taldir i lifshættu.
Skúli Sigurðsson sagði að margt
benti til þess að ætlun flug-
mannanna hafi verið að nauð-
lenda vélinni eftir að hreyfillinn
hafði drepið á sér.
Ríkisstj órnin segi af sér
Efnahagskerfið á Islandi er þannig að stjórnvöld
hafa úrslitaáhrif á skiptingu þjóðartekna
Björn Jónsson var einróma endurkjörinn forseti Alþýðusambandsins. Myndin var tekin þegar Björn
flutti lokaorð og sleit þingi A.S.l. I gær.
Lálaunaskeiðið stafar
af stefnu stjórnvalda.
Ríkisstjórnin hefur unn-
ið sér til óhelgi. Hún á að
vikja. Þingkosningar
fari fram. Vilji þjóðar-
innar komi i ljós. For-
sendan að varanlegum
kjarabótum er rikis-
stjórn sem hafi samstarf
við verkalýðsamtökin.
Sá einstæði atburður gerðist á
Alþýðusambandsþingi f fyrrinótt
að þingheimur afgreiddi með
miklum meirihluta tillögu um
Framhald á bls. 18
Herinn víki og Island
úr hernaðarbandalaginu NATO er krafa
Sú einlæga von allra her-
ámsandstæðinga að for-
stuafl verkalýðssamtak-
nna beiti sér i sjálfstæðis-
lálum þjóðarinnar rættist
nýafstöðnu Alþýðusam-
andsþingi. Góður meiri-
luti þingfulltrúa, eða 202
f 359 sem afstöðu tóku,
gerðu samþykkt um að
mótmæla veru íslands i
NATO og dvöl bandarísks
hers í landinu.
Hernámssinnar með þá Guð-
mund H. Garðarsson þingmann
Sjálfstæðisflokksins, Halldór
Blöndal varaþingmann sama
flokks og Sigurð Óskarsson úr
vigi Ingólfs á Hellu i broddi fylk-
ingar fóru hamförum gegn her-
stöðvatillögu sem fram var borin
af Herdisi ólafsdóttur, Bjarnfríði
Leósdóttur og Björgvin Sigurðs-
syni, en allt kom fyrir ekki. Við
skriflega atkvæðagreiðslu fékk
tillagan 202 atkvæði, 157 voru á
móti, 17 seðlar voru auðir og 1
ógildur.
Þessi er þá yfirlýstur vilji Al-
þýðusambands Islands:
frj álst
ASI-þings
,,33ja ÞING Alþýðusambands
Islands samþykkir að mótmæla
veru íslands i Nató og dvöl
bandarikjahers á Islandi. —
Markmiðið verði: Að Island segi
upp aðildinni að Nató og standi
utan hernaðarbandalaga, — að
Island segi upp herstöðvasamn-
ingnum við Bandariki Norður-
Ameriku og engar herstöðvar
verði á Islandi.”
Sögulegu
ASÍ-þingi
lokið
Alþýðusambandsþingi, þvi
þritugasta og þriðja I röðinni,
sem að þessu sinni var haldið á
sextugasta afmælisárinu, lauk
samkvæmt áætlun klukkan 4 i
gær með þvi að þingfulltrúar
sungu alþjóðasöng verkalýðs-
ins: Fram þjáðir menn i þúsund
löndum. Hafði þá þingfundur
staðið með óverulegum hléum
frá þvi klukkan 2 daginn áður
en flestir þingfulltrúanna raun-
ar verið bundnir við þingstörf
frá þvi snemma á fimmtudags
morgninum.
Þingforseti, Eðvarð Sigurðs-
son, þakkaði starfsliði, kjörnum
starfsmönnum og trúnaðar
mönnum þingsins og öðrum
þingfulltrúum fyrir framúr
skarandi störf. Björn Jónsson
forseti ASl sleit siðan þinginu
með stuttri ræðu, þar sem hann
færði rök að þvi að þetta væri
sögulegt þing og va^ri þess að
vænta að störf þess yrðu til góðs
fyrir verkalýðshreyfinguna.
Þess skal getið að Þjóðviljinn
á eftir að greina frá f jölmörgum
samþykktum þingsins, svo og
ýmsu öðru efni sem fram kom á
þinginu. Verða þvi gerð skil
næstu viku.
Alþýðusambandsþing ályktar um launakjörin
Samþykktin er birt i heild á 6. siðu
Vörnin að baki — sóknin framundan
t full tvö ár hafa alþýðu-
stéttirnar átt i varnarbaráttu, en
nú skal hefja sókn til stórbættra
kjara. Það er verkafólki ósæm-
andi að sætta sig lengur við lág-
launin, og það er sjálfstæðu þjóð-
riki á islandi stórhættulegt að hér
sé lengur eitt ömurlegasta lág-
launasvæðið i Evrópu. Þetta er
tónninn i skeleggri kjaramála-
ályktun Alþýðusambandsþings,
þar sem krafist er 100 þúsund
króna lágmarkslauna i dagvinnu
á mánuði. Nokkur meginatriði
ályktunarinnar i cndursögn Þjóð-
viljans:
Minnt er á stöðuna við siðasta
sambandsþing, en þá höfðu ný-
lega náðst miklar kjarabæt-
ur. Siðan tókst að halda
I horfinu og náði kaupmátt-
halda i horfinu og náði kaupmátt-
ur hámarki i kjarasamningunum
i febrúar 1974. Siðar á árinu 1974
urðu snögg og mikil umskipti, |
þannig að kaupmáttur hefur sið-
an lækkað að meðaltali um fjórð-
ung. Kjarabarátta verkalýðs-
hreyfingarinnar frá þvi á árinu
1974 hefur verið stöðug varnar-
barátta. Reynsla siðustu ára
staðfestir að kaupgjaldsbaráttan
er ekki einhlit, þótt hún sé grund-
vallarnauðsyn.
Þingið lýsir yfir þvi að nú sé
timabili varnarbaráttunar lokið,
timabil sóknar hafið. I næstu
kjarasamningum þarf að hækka
verkalaun verulega, sérstaklega
þó láglaunin. Lágmarkslaun fyrir
dagvinnu þarf þegar á næsta ári
Miklar og róttækar breytingar
urðu á samsetningu miðstjórnar
Alþýðusambandsins á þinginu
sem lauk í gær. Staða Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðuflokksins
styrktist, en rikisstjórnarflokk-
anna veiktist. Atvinnurekenda-
flokkurinn hefur nú engan al-
þingismann innan miðstjórnar.
Við atkvæðagreiðslu um með-
stjórnendur gerðist það, að al-
þýðubandalagsmaðurinn Guð-
mundur Þ. Jónsson varafor-
maður Iðju i Reykjavik ýtti Pétri
Sigurðssyni þingmanni Sjálf-
stæðisflokksins út úr miðstjórn.
Guðmundur H. Garðarsson þorði
ekki að gefa kost á sér til mið-
stjórnarkjörs.
Miðað við flokkaskiptingu i
miðstjórn eftir þingið fyrir 4
að hækka upp i 100 þúsund krón-
ur, og önnur laun hækki til sam-
ræmis. Fullar visitölubætur séu
greiddar á lágmarkslaun, en
launabil haldist i krónutölu.
Unnið sé að launajafnrétti karla
og kvenna, samræmingu launa-
árum hefur Alþýðubandalagið
aukið hlutdeild sina um 2 menn,
Alþýðuflokkurinn um 1 mann en
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur misst einn hvor.
Utanflokkamenn eru nú tveir i
stað eins og áður. Hér er breyt-
ingin talin frá þvi, hvernig menn
skiptust i flokka á siðasta þingi,
en ekki tekið tillit til þess að menn
hafa skipt um flokka.
Upplausn Samtakanna er al-
gjör, þau komu alls ekki fram
sem pólitiskur veruleiki á
þinginu.
Kjörnefnd þingsins var sam-
mála um að leggja til endurkjör á
forseta og varaforseta. Björn
Jónsson varð sjálfkjörinn forseti,
en á móti Snorra Jónssyni stakk
Margrét Auðunsdóttir upp á
kjara, setningu löggjafar um
vinnuvernd, endurskoðun skatta-
kerfisins, eflingu félagslegra
ibúðabygginga, endurbótum á
lifeyriskerfinu. Lögð er áhersla á
heildarsamstöðu verkalýðsfélag-
anna i kjarabaráttunni, og bygg-
Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur i
stöðu varaforseta. Við allsherjar-
atkvæðagreiðslu sigraði Snorri
Jónsson með miklum yfir-
burðum, hlaut 34.250 atkvæði, en
Aðalheiður fékk 10.225 atkvæði
(auðir og óg. 375).
Kjörnefnd klofnaði um tillögur
um meðstjórnendur i miðstjórn.
Meirihlutinn sem Benedikt
Daviðsson hafði framsögu fyrir,
gerði tillögu um lOmenn af 13, en
minnihlutinn, Sverrir Garðarsson
gerði tillögu um 3 til viðbótar. Þá
stakk Björn Bjarnason upp á
Guðmundi Þ. Jónssyni og Kol-
beinn Friðbjarnarson stakk upp á
Báldri Óskarssyni og Björgvin
Sigurðssynf. Kjörnir voru allir
þeir 10 menn sem meirihluti kjör-
nefndar gerði tillögur um og tveir
ist hún á viðtækri umræðu og
samstarfi að kröfugerð. Þingið
ákveður að boða til kjaramála-
ráðstefnu i febrúar i vetur.
Kannaöir verði möguleikar á
samstarfi við launþegasamtök
utan Alþýðusambandsins.
af þeim sem Sverrir gerði tillögur
um, Þeir Björn Þórhallsson frá
Landssambandi verslunarmanna
og Magnús Geírsson frá Rafiðn-
aðarsambandinu. Pétur Sigurðs-
son sem Sverrirstakk upp á, féll
út, en Guðmundur Þ.var kjörinn.
Hinir 10 meðstjórnendur eru
þessir: Eðvarð Sigurðsson for-
maður Dagsbrúnar, Einar
Ögmundsson formaður Lands-
sambands vörubifreiðarstjóra,
Jón Snorri Þorleifsson formaður
Trésmiðafélags Reykjavikur.
Bjarnfriður Leósdóttir varafor-
maður Verkalýðsfélagsi ns á
Akranesi, Óskar Vigfússon for-
maður Sjómannasambandsins,
Jón Helgason formaður Einingar
á Akureyri, Guðriður Eliasdóttir
Framhald á bls. 18
Vinstri öflin sterkari í miðstjórninni