Þjóðviljinn - 04.12.1976, Síða 5

Þjóðviljinn - 04.12.1976, Síða 5
Laugardagur 4. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Fimm þingmenn jiytjn: Tiílaga um söfnun og úrvinnslu þjóðfræða Fimm þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um söfnun og úrvinnslu fslenskra þjóöfræöa. Flutningsmenn eru. Ásgeir Bjarnason, Guömundur H. Garöarsson, Eövarö Sigurösson, Sighvatur Björgvinsson og Magnús Torfi Ólafsson. Tillagan hljóöar þannig: Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að gera ráðstafanir til að efla eins og fært þykir þá söfnun og úrvinnslu islenskra þjóðfræða, sem fer fram á vegum þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns tslands og Stofnunar Arna Magnússonar á tslandi. 1 greinargerð segir: Það er kunnara en frá þurfi að segja, að heimildir um daglegt lif manna. venjur þeirra, listiðkun og vinnubrögð, hverfa og gleym- ast óðfluga með hverri kynslóð. Astæðan er sú, að þessi sjálfsögðu Nýr forstöðu- maður Póstgiró- stofunnar Samgönguráðherra hefur skip- aö Birgi S. Hermannsson, við- skiptafræðing, i stöðu forstöðu- manns póstgiróstofunnar, frá 1. des. n.k. að telja. Birgir er fæddur á Akureyri 8. desember 1940. Hann lauk stú- dentaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1960 og prófi i viöskipta- fræðum frá Háskóla tslands 1968. Hann hóf að námi loknu starf hjá pósti og sima og hefur starfað þar siðan. Kona Birgis er Elva ólafsdótt- ir. atriði geymast einna sist i opin- berum gögnum, öfugt viö t.d. al- menna stjórnmála-, verslunar- eöa hagsögu. Siðar meir verður mönnum hins vegar einatt mikil eftirsjá aö þvi, að þessum heim- ildum skuli ekki hafa verið haldið til haga. Eina fslenska stórvirkið á þessu sviði, sem enn hefur séö dagsins ljós, er bókin íslenskir þjóöhættir eftir sr. Jónas Jónasson frá Hrafnagili. HUn er þó ekki annað en ófullgert yfirlitsrit, enda unnið á siðustu 10 ævi árum þess mæta manns og var hvergi nærri frá gengiö, þegar höfundur féll frá. Dr. Einar Ól. Sveinsson bjó þann efnivið til prentunar árið 1934, 16 árum eftir dauða sr. Jónasar. Skipuleg þjóðháttasöfnun lá siðan að mestu leyti niðri i rúm 40 ár eftir dauða sr. Jónasar eða þar til Alþingi veitti Þjóðminja- safninu nokkurn styrk til þessar- ar starfsemi áriö 1959 og sérstök Þjóðháttadeild var stofnuð við safnið á 100 ára afmæli þess árið 1963. Þótt siðan hafi kappsam- lega verið unnið að þess konar söfnun, kom brátt i ljós, að hin öra þróun og breytingar með bú- setu- og tæknibyltingu á fyrr- nefndum fjórum áratugum hefur sópað burt svo mörgum menningarsögulegum þáttum, aö ekki er gerlegt að halda i við og brúa bilið, nema fleiri starfs- kraftar komi til. Er hér einkum um að ræða árabilið frá siðustu aldamótum og fram um 1930, þvi að Jónas frá Hrafnagili heldur sig eðlilega mest við 19. öldina og þaðan af eldri tið. Nú munu ekki vera eftir nema um 900 manns á landinu 85 ára og eldri, fólk sem ætti aldurs vegna að geta munaö eftir sér frá þvi um og fyrir aldamót. Einungis hluti þeirra mun þó fær um að veita upplýsingar af heilsufars- ástæðum. Ástandið er vitaskuld skárra i yngri aldursflokkum, en þar strjálast þó jafnt og þétt. SU vitneskja, sem einvörðungu býr i minni aldraðs fólks, verður ekki grafin úr jörðu siðar meir eins og sumar gamlar minjar. Svipaða sögu er að segja af öðrum greinum þjóðlegra fræöa: sögnum, kvæöum, þulum, þjóö- lögum og dönsum. Aö söfnun þess háttar efnir hefur einkum verið unniö á vegum Stofnunar Árna Magnussonar hin siöari ár, en margir einstaklingar haf þar að auki lengi lagt hönd á plóginn. Enn hefur mjög verið unn- ið úr þvi margháttaöa efni sem þegar hefur safnast, til að koma þvi fyrir almennings sjónir og heyrn. Að visu má segja, að það glatist ekki, sem þegar hefur verið safnað, ef menn vilja endi- lega láta framtiðina um Urvinnsl- una. En bæði er farið mikils á mis að fá ekki að lita augum sem fyrst niðurstöður af söfnunarstarfinu, og i öðru lagi er miklum mun heppilegra, að sömu menn og safna vinni Ur þvi efni, heldur en óþekktir fræðimenn i framtiðinni, sem eðlilega verða enn fjarlægari vettvangi en þeir, sem enn eru á dögum. Samhliða úrvinnslu getur komið i veg fyrir margs konar misskilning seinna meir. Af þessum sökum er ljóst, að mjög brýnt er að efla þessa star- semi nú þegar, þótt seint sé, ef menn telja varðveislu slikra heimilda um daglegt lif og listiðk- un yfirleitt nokkurs virði. Kópnogskaupstaiiir M Hús til niðurrifs — Lóð Tilboð óskast i að rifa og fjarlægja hús- eignina Hliðarvegur 11 Kópavogi. A lóðinni má byggja tveggja hæða tvi- býlishús án kjallara, grunnflatarstærð: mest 140 fermetrar. Samkvæmt gjaldskrá er veittur afsláttur ' á A-gatnagerðargjöldum ef gamalt hús vikur fyrir nýju. Tilboðum skal skilað til undirritaðs á bæjarskrifstofuna i Kópavogi fyrir klukk- an 12 föstudaginn 10. desember. Tilboðin verða opnuð kl. 12 sama dag. Bæjarritarinn i Kópavogi. Búnaðarfélag íslands oskar að ráða á næsta vori landnýtingar- ráðunaut og jarðræktarráðunaut. Upplýsingar um störfin gefur búnaðar- málastjóri. Umsóknarfrestur er til fyrsta mars 1977. Búnaðarfélag tslands. NÝI SÍMINN HJÁ ÞJÓÐVILJANUM ER 81333 HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS 1976 Enn einu sinni hefur Happdrætti Þjóðviljans verið sent út til stuðn- ingsmanna blaðsins. Að þessu sinni hefur happdrættið bækistöð í gömlu afgreiðslu Þjóðviljans að Skóla- vörðustíg 19. Auk þess verður tekið á móti skilum i afgreiðslu blaðsins að Síðumúla 6, á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins að Grettisgötu 3, og hjá umboðsmönnum um land allt. Á þessu ári minnumst við 40 ára af- mælis Þjóðviljans. Af þvi tilefni hafa velunnarar blaðsins fært þvi glæsi- legt húsnæði að Síðumúla 6 í Reykja- vík. Þessu átaki verður að fylgja eftir með því að stórbæta fjárhags- leqa stöðu blaðsins. Hér gegnir happ- drættið þýðingarmiklu hlutverki. Þjóðviljínn vonar að happdrættið haldi áfram að hljóta þann hljóm- grunn, sem svo vel hefur dugað. §| 0 1§ js, i r VINNINGAR: 1. Orlofsferð f. 2 til Júgóslaviu með Landsýn kr. 160.000 2. Orlofsferð fyrir 2 i 15 daga til Miðjarðar- hafslanda með Sunnu. Kr. 160.000 3. Orlofsferðfyrir 2 eftir eigin vali með Urvali. Kr. 160.000 4. Hringferð um landið fyrir 2 meö gistingu á Edduhótelum. Kr. 120.000 5. Flugfar fyrir 2 með F.t. og vikudvöl á Hötel Höfn, Höfn. Kr. 100.000 6. Flugfar fyrir 2 með F.t. og vikudvöl i Egils- búð, Neskaupstað. Kr. 100.000 7. Flugfar fyrir 2 með F.t. og vikudvöl i Hótel Reynihlið við Mývatn. Kr. 100.000 8. Flugfar fyrir 2 með F.t. og vikudvöl á Hótel Húsavik, Húsavik. Kr. 100.000. 9. Ferðabúnaður. Kr. 50,000 10. Ferðabúnaður Kr. 50.000 Vinningar samtals: Kr. 1.100.000 Dregið verður 23. des. 1976. Skrifst. Skólavöröustig 19— 1. hæð simi 17500 og Grettisgötu 3 (Alþvðubandalagið) simi 28655 EFLUM ÞJÓÐVILJANN Kaupum miða — Seljum miða

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.