Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 7

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 7
Sunnudagur 12. desember 1976 ÞJÓÖVILJINN — SÍÐA 7 að greiða a.m.k. jafnháa upphæð til Þróunarsjóösins á árinu 1976 og islendingar höföu þegið úr sjóðnum áriö 1975. Einnig þessi tillaga var kolfelld af stjómarlið- inu. Ráðherrar st jórnarinnar sem þú styður, gengu jafnvel fremstir i flokki til að koma i veg fyrir að þeir sjálfir fengju heimild til að firra ísland sárustu skömminni. Ekki var nú hærra risiö á stjórnarliðum daginn þann. IV „Batnandi manni er best aö lifa” heitir saga allfræg i is- lenskum bókmenntum. Vel hefði mér mátt fljúga slikt i hug ein- hvern daginn nú i öndverðum októbermánuði, þegar rikisút- varpið flutti okkur gagnmerka frétt sem borist hafði yfir þveran hnöttinn alltfrá Manila á Filipps- eyjum. Þar var um þær mundir haldinn aðalfundur Alþjóðagjald- eyrisbankans og Alþjóðagjald- eyrissjóösins. íslendingar sendu að vonum vasklegt og harðsnúið lið á þennan mikilvæga fund, enda höfum við alloft knúið dyra hjá fyrrgreindum stofnunum og fengið góöa áheyrn. Oddviti hinnar friðu islensku fylkingar i Manila var fjármála- ráðherrann okkar, Matthias A. Mathiesen. Og er hann var stadd- ur þarna 1 borginni miklu úti i miðjuKyrrahafi, kom andinn yfir hann og hann hélt ræðu. Ég fór helduren ekki að leggja eyrun við þegar útvarpið greindi frá þvi að ræða hans hefði einkum fjallaö um nauðsyn þess og siðferðilega skyldu, að öll hin betur megandi riki stórefli nú stuðning sinn við fátækar þróunarþjóðir. Væri það og fyllil. réttmæt krafa að þróunarlöndin fengju mjög aukin áhrif á fjármálastjórn alþjóð- legra peningastofnana. Nafni þinn hélt þarna að sögn þessa snjöilu ræðu fyrir hönd Noröur- landanna allra, jafnt Sviþjóðar sem leggur fram eitt prósent þjóðartekna til þróunárhjálpar sem íslands með hálfan af þús- undi. (Það var vist ekki nefnt i ræðunni). Ég dreg ekki i efa að f jármála- ráðherrann okkar hefur verið upplitsdjarfur og aðsópsmikill þarna i ræðustólnum og flutt mál sitt skörulega. Þess var einnig getið að ræða hans hafi vakið mikla athygli og fjölmiðlar viðs vegar um heim sagt frá megin- efni hennar. Nú ætla ég ekki i þessu sam- bandi að bera mér i munn leiðin- leg orð eins og hræsni, skinhelgi eða yfirdrepsskapur, en brjóst- heilindi kynni að mega nefna. Og þaö verð ég að segja, að með nokkurri eftirvæntingu beið ég þess að sjá fjárlagafrumvarpið nýja og verða þess m.a. visari hversu miklu fé fjármála- ráðherrann hygðist nú verja til þróunarhjálpar á komandi ári. Þar hlyti aö verða brotið I blað og fjárhæöin stórhækkuð, annað kæmi tæplega til greina. Svo gerðist það nokkurn veginn sam- timis aö fjárlagafrumvarpinu var útbýtt og fjármálaráðherrann kom úr frækilegri för sinni, eftir að hafa unnið til nafnbótarinnar Matttiias Filippseyjakappi. Nú hlaut sæmd Islands, að þvi er tók til þessa tiltekna máls, að vera dável borgiö. Ég fór að blaöa i f járlagafrum- varpinu og kynna mér ýmis fjár- framlög, sem ég hafði sérstakan hug á að forvitnast um. Þar á meöal var fjárlagaliðurinn: Að- stoð við þróunarlöndin. Jú, rétt var það, fjárlagaliðurinn var á sinum stað. Upphæð 13 miljónir króna.Ég setti upp gleraugun og las aftur. Hér var ekki um að vill- ast. Fjármálaráðherra og menn hans leggja til að aðstoö Islands við þróunarlöndin skuli nema þrettán miljónum islenskra króna á næsta ári, hækka um fimm hundruð þúsund krónur frá fjár- lögum þessa árs. Miðað við gengissig og verðbólgu er hér að sjálfsögöu um beina lækkun að ræða. Maður er orölaus. Fyrst þrumuræöa i Manila, snöfurleg forusta fyrir svium, finnum.norð- mönnum og dönum, hátiðleg lof- orð fyrir hönd Norðurlandaþjóð- anna allra um aukinn stuðning fá- tækum þjóöum til handa. Slðan fjárlagagerð heima á Islandi eftir árlanga verðbólgu og stöðugt gengissig: Framlag til þróunar- aðstoðar hækkað um fimm hundruð þúsund krónur. Ég spyr eins og gert var fyrrum: Er þetta hægt, Matthias? V NU þykir mér trúlegt að nafni þinn svari þvi til, að auk fram- lagsins til aðstoðar tslands við þróunarlöndin, sem ég hef gert að umræðuefni, séu að vanda I fjár- lagafrumvarpinu nokkrir gjald- liðir, þar sem tsland leggur aura af mörkum til þeirra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem fjalla að meira eða minna leyti um mál- efni þróunarlandanna. Þetta er rétt. En þær upphæðir eru afar lágarog eru vist einungis skyldu- framlög. Mér er til efs að ísland hafi nokkru sinni lagt fram krónu til neinnar þessara stofnana um- fram það sem beinlinis var óum- flýjanlegt ef það vildi eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum og helstu stofnunum þeirra. Fyrir nokkru fjallaði Alþýðu- blaðið i ágætri forustugrein um bróunaraðstoð og hraklega frammistöðu okkar islendinga i þvi efni. Var þar vikið að Matt- hiasarboðskapnum frá Manila og fjármálaráðherrann eggjaður lögeggjan að láta nú ekki sitja við orðin tóm. I grein þessari komst Alþýðublaðiö svo að oröi: „Tilflutningur á auðæfum jarðarinnar frá hinum bjargálna til þeirra eitt þúsund miljóna sem búa við skort og jafnvel hungur, er eitt mesta mál mannkynsins i dag. Það er samviskumál fyrir hina riku, réttlætismál fyrir alla, sem hafa nokkra réttlætiskennd”. Undir þessi orð tek ég heils hugar. Gerir þú það ekki lika? Er ekki timi til kominn, að bætt sé úr þvi ófremdarástandi, sem hér hefur viðgengist alltof lengi, jafnt ' á timum svonefndra vinstri og hægri rikisstjórna? Ég ætla ekki að hafa um þetta mál öllu fleiri orð að sinni. Senn verður fjárlagafrumvarpið tekið til annarar umræðu og lokaaf- greiðsla þess fér væntanlega fram fyrir jól. Fjármálaráðherr- ann okkar hefur þvi enn tækifæri til að bjarga sjálfs sin sóma og lands sins I málinu, með þvi að beita sér fyrir myndarlegri hækk- un á hinu frjálsa framlagi til þróunarlandanna. Okkur er vafa- laust báðum um það kunnugt að nafni þinn hefur i mörg horn að lita og veitir þvi ekki af að leið- beina honum og minna hann á, jafnvel hina sjálfsögðustu hluti. Eigum við nú ekki að taka það að okkur i sameiningu — ég á Al- þingi og þú i Morgunblaðinu — að brýna fyrir honum eftirfarandi sannindi: FögurorðiManila gera enga stoð, nema þeim sé fylgt fram i verki í Reykjavik. JÓN MÚLI ÁRNASON SKRIFAR NU vofa jólin yfir okkur, — eins og skáldið segir á einum stað I frægu hugverki. Blessuö fæðingarhátið Frelsarans er undirbúin af kappi, og sumar húsmæður eru búnar aö öllu. — Ert þú ekkibúinað öllu, — segja v þær við hinar, sem hafa dregist aftur úr, — ég er fyrir löngu búin að öllu. — Heyrst hefur um nokkrar manneskjur, sem eru nýbyrjaðar, og verða vist seint búnar að öllu, — þær vita þó sennilega manna best hvað jólin eru i raun og veru hjá okkar kristnu þjóð. Kaupmenn eru búnir að öllu, — nema selja — og þurfa áreiöanlega ekki að hafa áhyggjur af þvi. Jólaskraut i búðargluggum, ljósaperur i háloftum, og grenikransar yfir strætum og gatnamótum örva verslunargleði okkar hinna, — og við kaupum hvað sem fyrir er. Sérstaklega erum við sólgin i leikföng, og varðar litið um verðið, hvað svo sem stjórnandi þess og nokkrir ádeiluhöfundar eru að pipa i fjölmiölum. Heild- salar og stórkaupmenn pris- lögðu fyrir alþýðuna i sjónvarpi með léttu hjali, — þeir eru alltaf búnir að öllu en langt i frá búnir að vera, þótt einhverjir kunni að hafa afskrifað þá eftir þáttinn góða á skjánum um daginn. Borgarstjórnin er næstum búin að öllu, jólatrén hennar sprottin upp á viðeigandi stöðum með rafmagni I öllum regnbogans litum. Hún á bara eftir að þiggja vinaborgar- gjöfina frá Osló á Austurvelli, halda ræðuna og syngja sálm- inn,—siðan má sem best reikna útnýju hitaveitu — og rafmagns hækkanirnar á afviknum stað i einrúmi á eftir. Rikisstjónin stefnir að þvi að vera búin að öllu timanlega, og væri eflaust komin langt, ef ekki stæði á vinum hennar I Efna- hagsbandalaginu. Það er nú meira, hvað það getur bögglast fyrir Crossland og Gunderlach og kó að koma orðum að þvi, sem þeir meina, — og ætti þeim þó að vera kunnugt um, hve ráð- herra okkar langar mikið til aö gera út um þorskinn fyrir jól. Ekki er samt útilokað, að góð- viljuðum samningamönnum takist að mjaka landhelginni að einhverju leyti upp i opinn ást- vinafaðminn á EBE á næstu dögum, — og rikisstjórnin verði Aö vera búinn aö öllu búin að öllu og geti filað sig á blessaðri friðarhátfðinni. Og nú er friðarhöfðinginn mikli búinn að öllu, og af þvi til- efni haldin minningarathöfn um hann i sjónvarpinu. Hún lukkað- ist vel og má þegar teljast ógleymanleg. Nokkra þætti hennar mætti þó gjarnan athuga nánar og gera betri skil seinna. Þegar i upphafi flutti doktor Henry Kissinger fyrstu stór ~ ræðu sina og beitti þá sömu leik- brögðum og augnabrúna- kækjum og doktor Strangelove um árið. Má utanrikisráðherra Bandarikjanna prisa sig sælan að Peter Sellers skuli ekki vera búinn að stefna honum fyrir Mannréttindanefnd S.Þ. fyrir plagiarisma, Charles Chaplin kærði Adolf Hitler strax 1934 fyrir Alþjóðadómstólnum i Haag fyrir að hafa stolið skegg- inu sinu. Hitler tapaði svo mál- inu siðar fyrir öðrum dómstóli, ásamt skegginu, gleraugunum og hattinum og öllu heila móverkinu, — en var áður bttinn aö öllu þvi helsta, sem fyrir honum vakti. Aðdáendum Kissingers hlýn- aði um hjartarætur þegar hann ávarpaöi heimsbyggðina á friðarverðlaunshátið Nóbels, en ýmsum var jafnframt órótt. Að ástæðulausu að sjálfsögöu,— þess var vandlega gætt að rekja ekki á svo hátiölegu augnabliki fristunda-friðarstörf doktorsins og CIA agenta hans i Suður- Ameriku um þetta leyti. Chile- búar munu koma þeirri sögu til skila á réttum stað. Einnig var rétt að sleppa öllu jarmi jafn- réttindapostula um stuðning Kissingers viö fasistastjórn Suður-Afriku, þegar hún sendi „öryggissveitir” sinar inn i Angóla til að berja á lands- mönnum, — en allir góðviljaðir fréttaskýrendur eru búnir að gleyma öllu svoleiðis, en leggja réttilega þvi meiri áherslu á innrás svartra kommttnista frá Kúbu i Afriku, sem geta kannski rakið ættir sinar þangað , en þrælapiskarar voru búnir að selja þá með húð og hári fyrir löngu vestur um haf, — þaö var heiðarleg verslun samkvæmt lögum okkarhvitra manna, ekki siður en jóla-bisnisinn, og þrælasalar lögðu áherslu á að vera búnir að öllu timanlega. Og nú er aðalfréttaskýrandi okkar i sjónvarpinu að verða búinn að öllu,— hann lýsti yfir opinberlega i tæka tið, að hann hefði ekki lengur ráö á svona „dýru sporti”. Það var, þegar starfsfólk sjónvarpsins lagði niður vinnu til að minna þjóðina á svivirðileg kjör opinberra starfsmanna, — sérstaklega þeirra er vinna ábyrgðarmestu störfin i sjónvarpi. Benti stjórn starfsmannafélags þeirra með 'alvöruþunga á hættuna.sem vofði yfir okkur, ef bestu starfs- menn sjónvarpsins (les: bestu synir þjóðarinnar) gengju frá embættum sinum vegna kúg- unar og ofbeldis rikisstjónar- innar. Nú er þetta allt komið fram, — þjóðin búin að missa besta fréttaskýranda sinn, — allir góöviljaðir menn vona og biðja.aðhonumauðnistað finna athvarf i-virðulegri og billegri iþróttum við sitt hæfi eftir jól. Iþróttaunnendur voru farnir að örvænta um, að sjónvarps- Kr-ingnum tækist að ljúka stikk og sto — og fædd og skirð — þáttum sinum um handbolta og blak fyrir jól, — en hann er nú loksins búinn að öllu lika, — og þá erum bara eftir við hin. sem aldrei verðum búin að öllu — og eiginlega aldrei heldur alminnilega byrjuð á neinu. Við erum samt að reyna að bagsa þetta i samræmi við tiðarand- ann, og verðum kannski ein- hverntima búin að einhverju, eí heppnin er með. JMA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.