Þjóðviljinn - 12.12.1976, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. desember 1976 Arni Bergmann skrifar Halldór Laxness. úngur ég var. Helgafell Reykjavík 1976. 243 bls. Þessi minningabók heíst á sumardegi áriB 1919 þegar Hall- dórLaxness, sautján ára gamall, siglir úr höfn á dampskipinu tsland ,,þvi aö heimurinn kallaði: var oröinn órólegur aö biöa”. Þessi bók er aö þvi leyti mjög svipuðhinum fyrri „skáldverkum um minningar höfundar”, aö Halldór Laxness okkar missera hefur mjög strangan aga á fyrri timaskeiöum sins lifshlaups. „Vandinn að skrifa er i þvi fólg- inn að þegja yfir nógu mörgu” segir á einum staö, og I lok Skáldatima var svipuö hugsun færðiorð. Af þessum aga skapast' skemmtileg togstreita milli höf- undar og ágengs lesanda sem er forvitinn um islenska menn og bækur og þó girugastur þegar komiö er aö Halldóri Laxness. Sannsögli Vafalaust má segja sem svo, aö þessar „þagnir” eigi rætur aö rekja til háttvisi, sem er nú um stundir heldur á undanhaldi i skrifuöu máli. En þaö ér einnig freistandi aö ætla, aö þær séu um leiö viöurkenning á eölislægum takmörkunum sjálfsögunnar, á óáreiöanleika minnisins, á óhjákvæmilegum myndbreyting- um sem liðin tiö tekur i huga manns. t þessu samhengi er freistandi aö vitna til lokakafla bókarinnar en þar segir svo: „t skáldsögu teingjast hlutir eftir gildum rökum, jafnvel lög- málum, annars veröur eingin skáldsaga. t lifinu rikir lögmál sem heitir stráiö i vindinum. Fjarstæöa er eingin til i lifinu nema sönn saga. Sögu sin sjálfs getur einginn sagt, hún veröur þvi meira þrugl sem þú leggur meira á þig til aö vera sannsögull.... Einn góöan veöurdag sest þú niö- ur til að skrifa um þá menn sem þú skildir svona vel. Og hver er árángurinn? Sá einn að þér er með öllu fyrirmunað að skilja sjálfan þig. Jafnvel algeingustu hlutir i ævi þinni veröa leyndar-1 dómur sem ekki verður aö kom- ist. Ósagt er aðeins af þvi hvernig heimurinn snýst og stráiö fýkur i vindinum og tönn fellur útaf munninum og tveir fuglar eru seldir fyrir einn pening og krukk- an liggur brotin hjá vatnsból- inu....” Þessi ivitnun segir margt um þá tóna sem slegnir eru i bókina, um afstööu höfundar til stórra staöhæfinga og svo til hugsan- legra virðingarstiga, sem við- fangsefnum væri raðað á. n n n K}0uÐl£)®L O DF manm þætti ekki allt •haföi ég listamannskraga með breiðri þverslaufu Tími og hlutföll En úngur ég var er einnig ólik öörum minningabókum Halldórs Laxness og liklega má útskýra það meö tima hennar fyrst og fremst. 1 Skáldatlma er spann- aður hálfur annar áratugur, sem mjög er rikur að sviptibyljum. „í túninu heima” lýkur þe'gar Hall- dór er tólf ára, og þaö er reyndar viða fariö út fyrir þann ramma. En Ongur ég varsegir frá einu ári aöeins, meö litlum frávikum þó, frá fyrsta ári Hálldórs i útlönd- um. Og hér er um meira að ræöa en þann hraöa sem rammi frá- sagnarinnar stjórnar. Ljóöræna er sterkari þáttur I túninu heima eins og lög- gera ráö fyrir, þegar töfrar bernskunnar eru á dag- skrá. í Skáldatlmasáum viö aftur á móti pólitlska þykkju i uppgjöri viö stormasamt skeiö. Halldór dregur hinsvegar ekki dul á þaö, að hinn óforsjáli unglingur sem i Úngur ég varleggur af staö til aö sigra heiminn, hljóti aö hafa verið spaugileg persóna. Þaö er þvi ekki aö undra, þótt hann láti ismeygilega fyndni fylgja honum hvert sem hann fer, eöa svo gott sem. Frá hversdagslegu sjónar- horni er hann kynlegur kvistur eins og sumir vinir hans og hinn nýi heimur Kaupmannahafnar, sem viö augum blasir, ekki siður undarlegur honum og þessi staða þykir Halldóri hin lifvænlegasta enn i dag: „Bótin er aö ef manni þætti ekki alltskrýtiö i heiminum, á hverri stundu sem lifir, þá væri maður vist búinn að vera”. Menningarsaga Hin sérkennilega fyndni i bland viö fyrrnefndar þagnir sameinast um aö halda lesandanum i vissri fjarlægð frá leyndardómum Hall- dórs únga. Það er svosem ekki eins og einhver Werther sé að út- hella hjarta sinu. Aftur á móti segir margt af andlegum straum- um i timanum og af viðureign verðandi sagnameistara við merka höfunda eins og til að mynda Hamsun og Strindberg. Sjálfssagan fléttast saman við menningarsöguna. Menningar- sögulegt efni bókarinnar er af ýmsum toga — þar er lýst þvi rutli sem kom á islendinga á öðr- um áratug aldarinnar þegar þeir reyndu aö hræra saman aust- rænni visku, spiritisma og ýmsu heimanfengnu, þar er lika sagt frá mat, drykk og húsbúnaði i Danmörku og á íslandi. Það er blátt áfram fróölegt aö heyra Halldór lýsa viðureign sinni viö Hamsun og Strindberg, ekki síst þann fyrri, sem kom honum i sigildan bobba meö þvi að bera fram bækur sem Halldóri fundust i senn aðdáunarverðar og andstyggilegar. En liklega þykir mönnum enn meiri fengur að þáttum af islenskum skáidum og listamönnum. Af sjálfu leiöir aö athyglin beinist þá mjög að kapi- tula sem heitir Jarðarför Jóhanns Sigurjónssonar, sem Halldór er viðstaddur skömmu eftir að hann kemur til Hafnar: þann dag hiýt- Horfðu með trega um öxl Guömundur Halldórsson. Haust- heimtur. Almenna bókafélagiö. R. 1976. Sföasta smasagan i bók Guö- mundar Halldórssonar gerist i kauptúni. Sögumaöur og gamall bóndi eru þar i bæjarvinnu með hysknum strákum og líkar illa óhressir yfir vinnuálagi, bruðii, riöldri og vélastreitu þéttbýlisins. Sögumaður vill helst upp í sveit þar sem maturinn hefur annaö bragð og „þar sem maöur komst stundum i heyskap i túni, stutt þar frá sem fuglar færu meö frið- sæla kvöldbæn upp i grónu fjalli”. Flugvél lendir með kistu gamals nágranna, sem hefur dáið á sjúkrahúsi fyrir sunnan og veröur nú grafinn heima. Það liggur viö aö sögumaöur öfundi þennan mann, sem aldrei haföi verið lengi aö heiman „frá jörðinni, ánni og skepnunum, sem höföu gert hann göfugan og trúan hlut- verki sinu”. Þessi saga gefur allgóöa hug- mynd um viðfangsefni Guömund- ar, þótt vettvangur allra hinna sé sjálf sveitin meö göngum, réttum og heyskap að ramma um örlög manns. Þaö vakir i sögunum flestum sú hugmynd, að sveitalff sé i sjálfu sér merkileg dyggö og skylda um leið, andspænis þvi stendur kaupstaöurinn, þéttbýlið sem eitthvað hæpið og iskyggilegt en frekar óskilgreint. Þessi tog- streita er fyrst og siðast dapur- leg, þvi sveitin hefur i sögum þessum ekki viðnámsþrek fyrir þeim áhrifum að sem henni sækja. Stundum, eins og i fyrstu sögunum tveim, er freistingin i mynd kvenna, sem helst vilja toga bændur á mölina og sleppa þeir ekki við sár og bana I þeim átökum, sem býlið og stúlkan eiga um sálir þeirra. Stundum eru freistingarnar stærri i sniðum eins og sögunni Hallæriskorn, þar sem verið er að selja land erlendu auöfélagi á bak við gamla manninn á bænum, sem er blindur, en nemur fleira en honum er sagt. Guðmundur Halldórsson sækist eftir þvi að hlaöa sögur sinar ill- um grun um yfirvofandi háska. Arangurinn er satt að segja nokk- uð misjafn. Fyrsta sagan, Haust- heimtur, er kunnáttusamlega gerö, en henni er spillt af þvi, hve þvinguö þau samtöl eru sem skot- iö er inn ööru hvoru að stefna öll aö dapurlegum málalokum. Höfundur þekkir sitt heimafólk og kann aö miöla af þeim trega, sem aö þeim sest, sem finna forsendur lifshátta sinna gliðna. Höfuðvandi hans er hinsvegar sá, að höfuömóthverfur sagnanna (sveitalifið sem samræmi viö náttúruna, bæjarlifiö sem tilræði við hana) öðlast ekki nýtt lif. Þær eru ekki hugsaðar upp á nýtt, taka of einhliða mið af gömlum og grónum viöhorfum vina sveit- anna sem kannski mætti oröa sem svo: horföu með trega um öxl. A.B. ur ungur maður að hafa hugsað margt um eigin möguleika og framtið. En eins og við ýmis tæki- færi önnur, þá stendur Halldór nútimans viö hlið unglingsins og hafnar fyrir hans hönd þeirri kenningu aö Danmörk geti orðiö „stökkpallur” islendinga út i þann stóra heim. Fordæmi Jó- hanns, að gerast rithöfundur á dönsku, freistar hans ekki, en röksemdirnar bera keim annarra ára en 1919. Það er skemmtilegt til þess aö vita, að þegar þeir Halldór og Jón Helgason bera saman bækur sin- ar um islensk skáld þennan vetur, þá hafa þeir miklu meiri áhuga á einkennilegum bæklingum Þór- bergs Þórðarsonar heldur en frægð Einars Benediktssonar, sem er þarna á næstu grösum, eða þá fyrirheitum Daviðs Ste- fánssonar. Ummæli um Einar Benediktsson eru reyndar það i bókinni, sem liklegast er til aö hneyksla, þvi viða stendur dýrk- un Einars fótum. Þar segir m.a.: „einhverskonar fordild, óskyld skáldskap, rak hann úti iðju sem of oft fólst i þvi að smiða tröllauk- in ilát utanum loft, volduga minnisvarða yfir sosum ekki neitt”. Ferill höfundar Engum kemur það á óvart, að I þessari bók eru framúrskarandi persónulýsingar og verða þá eft- irminnilegastar lýsingar tveggja „hvitra hrafna”, sem höfundur hafði margt saman við að sælda á þessu ári — þeir voru Jón Pálsson frá Hlið og Isleifur Sigurjónsson, sem átti þann hæfileika sem einna sjaldgæfastur er með þjóð- inni, en það er að kunna að hrífast af snilld annarra manna og gáf- um. Og þótt margt megi lesa af kynnum við menn og bækur, þá mun lesandi þessarar vönduðu og útsmognu frásagnar öðru fremur hafa hugann við það, hve drjúg bókin verður honum sem heimild um Halldór Laxness sjálfan, þann höfund sem er að fæðast á sögu- timanum. Við erum lika um ým- islegt fróðari eftir en áður. Til dæmis um það, hvernig leiðir liggja frá Þórði i Kálfakoti til Bjarts f Sumarhúsum, en Þórðar- sögu er höfundur að reyna að skrifa þennan vetur á yfirgefnu hóteli i Helsingjaborg en þangað hefur höfundur rambað eins og blindandi, að þvi hann segir. Og svo i Höfn og á bóndabæ á Suður- Sjálandi. Fundinn lesandi En miklar setur við skriftir ganga ekki rétt vel, þessi „bjálfa- lega vinna” er kannski unnin fyr- ir gýg, altént ber hún ekki ávöxt fyrr en löngu siðar. Ganghjólið sem stýrir skáldskap stendur á sér, segir þar, og þætti nú mörg- um höfundi sjálfsagt ærin ástæða til að draga upp i sterkum litum lýsingu af þeim sálarháska sem steðjar að siskrifandi ungling þegar svo er komið. En það er auðvitað ekki gert. Það er heldur ekki þagað. Sú aðferð hófstilling- ar sem áðan var á minnst k$piur hér einkar skilvislega fram. Höf- undur minnist fyrsta lesáncia sins, kennslukonu þar á Sjálandi, sem „hrærst hafði til tára af Þórði i Kálfakoti, ein manna i heiminum”, hafði séð söguna á prenti i Berlingnum. Um fund þeirra segir svo: „Þetta samtal við ókunna konu lyfti mér dag- lángt uppúr vonleysi um að fá nokkru komið saman sem örvað gæti hug annars manns.... Ég fæ þvi eigi með orðum lýst hver hamingja það er úngu skáldi að eignast lesanda sem sannarlega hefur hjarta einsog þessi kona”. Halldór hitti þennan lesanda sinn af tilviljun og hún var horfin af hans slóðum fyrr en varði. Og við stöndum uppi með spurningar sem aldrei verður svarað: hvers virði var eitt samtal við skiln- ingsrikan lesanda, hvernig teng- ist það við keðju ótal annarra at- vika á lifsferli skálds, atvika sem við bersýnilega höfum litla mögu- leika til að flokka i stór og smá? Arni Bergmann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.