Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 9

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 9
Sunnudagur 12. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Tímarit Máls og Menningar: Feröabók Málfríöar Það gerist sjaldnar en skyldi að maður stingi nið- ur penna til að skrifa um nýlegt hefti timarits. Kannski er það af þvi að maður óttast, að úr verði eintóm upptalning. I þriðja hefti Tfmarits Máls og Menningar er birt Ferðadagbók Málfríðar Einarsdóttur, - þar segir frá Italiuför i fyrra. Það er stundum haft við orð nú um stundir, aö það séu mikil leið- indi hvað fólk er farið að ferðast mikið, það verði svo þröngsýnt af þvi. Nú kemur Málfriður og af- sannar þetta fyrir sina parta á ljómandi skemmtilegan hátt. Hún kann að láta borgir, rústir, fólk, fjöll og eyjar kæta og hressa imyndunaraflið og freista þess til ærsla, skemmtunar, sérvisku og fleiri góðra hluta. Málfriöur kann prýðilega vel aö segja frá þeim undrum sem vekja yfirmáta fögnuð, eins og þegar hún virðir fyrir sér Pietá Michel- angelos i Péturskirkjunni. Ekki sfður eftirminnileg er frásögn hennar af þvi, þegar hún stendur á gólfi Sixtusarkapellunnar, sem hún hefur í sextiu ár þráð að sjá: ,,Ég stóð á þessu langþráða gólfi og leit upp til hins langþráða lofts þar Guð er látinn vera að skapa veröldina. Ekkert geröist. Brjóstið I mér var svo kalt og dautt sem þaö væri allt úr kalki (sem og er) og ekki bærðist I þvl strengur, feginleikur þess floginn á burt, llklega til Guðs sem gaf hann. Ég sá Hann þar sem hann geystist um himinhvolfið öruggur I mætti sinum óstöðvandi, og er að skapa himinhnettina svo stóra, svo heita, og skipa hverjum ...drottning þessi geröi mig aö engu. þeirra sinn stað. Hann sýnist hafa æft atlaskerfi lengi, lfklega til þess að valda þessu verki. í kringum hann er vættafans (eöa engla ?) Loftið þarna inni svo kæf- andi þungt, og pflagrimarnir svo margir sem staðið gátu á gólfinu, skyggni ekki gott upp til loftsins ogsýndustlitirnir daufir og gráir, I rauninni ekkert að sjá..” Undarlegt hve likar hugsanir setti að öðrum og yngri Rómar- gesti I sumar leið fyrst í kirkju, svo i kapellu — nema hvað hann hefði orðaö þær á miklu leiðin- legri hátt. A.B. Varaforöi samúöar Liney Jóhannesdóttir. Kerlinga- slóðir, Heimskringla R. 1976. Konan sem söguna segir er á leið heim úr vinnunni þegar hún treður óvænt um tær litlum dreng, hann segir að þetta geri ekkert til, þvi hann sé á of stórum skóm. Hann heitir Markús og þau kynn- ast. Höfundi lætur einkar vel að miðla okkur smám saman upp- lýsingum um þessar persónur tvær, fer ekki að með neinum asa, segir aldrei of mikið. Ekki svo að skilja, að aðstæður séu kynlegar og leyndardómsfullar. Sögukon- an, sem er á þeim aldri aö hún kallar sig kerlingu, á uppkominn son og veikan mann, vinnur á spl- tala, er að basla við að koma upp húskofa I Kópavogi. Markús hef- ur verið hjá ömmu sinni og er að flytja til Rikku, sem „getur ekki án hans lifað” og kaupir handa þeimhús.En hvarermóðir hans, unglingsstúlka, sem einu sinni kom á spitalann, og fær Rikka frænka að halda drengnum? Það eru slikar og þvilikar spurningar úr hversdagslifi sem svarað er i bókinni. Vinfengidrengsins og konunnar er lýst af næmleika og smekkvisi sem ekki skeikar. Sú litla saga kemur þvi að með hófstilltum en marksæknumráðum, hve mikinn varasjóð menn eiga sér I samúð og velviljuðum áhuga á fólki, sem jafnvel tilviljanir einar stefna til þeirra. Og sagan er ekki af þeim einum Markúsi litla og sögukonu. Kerlingarslóöir segja frá nokkr- um konum sem standa höllum fæti i lífsbaráttunni, konum sem axla fátækt, ómegð, einsemd og mæta lltilli samúð, miklu heldur fyrirlitningu og fordómum. Einna helst þæreigi traust og hald hver I annarri þegar á reynir. Sögukon- an sjálf er kannski einna best sett — betur en amma Márkúsar og unglingurinn móöir hans, betur en Rikka sem hefur ekkert að lifa fyrir, betur en samverkakona hennar, Stina, sem vinnur fyrir þrem börnum og á engan að nema vandalausa gamla og sjúka konu í kjallaranum. Annarsveg- ar sjáum við þessar konur, hins- vegar „alminnilegheitamenn” sem segja það sé enginn vandi að fá kvenfólk i vinnu” þær nenntu ekki lengur að hugsa um heimili og börn og sleiktu út um að fá svona störf til að drýgja tekjurn- ar”. Eða frúrnar sem hrópa svo Stina heyrir: „Þæreru skoekkert Lfney Jóhannesdóttir of góðar til að eiga slna krakka þessar stelpur. En þær nenna þvi ekki, þær nenna þvi ekki”... Þessi litla bók er því um það fólk, sem liggur undir þyngstu fargi i þjóöfélaginu. Hún er ein- dregin málsvörn fyrir það, borin fram lágum rómi en um leið styrkum, styrkum sakir þess, að sú sem mælir þekkir sitt fólk mætavel og kann að láta okkur trúa á það. A.B. TIL ATHUGUNAR FYRIR UNGAR OG GAMLAR ömmur ÓDÝRAR JÓLAGJAFIR Á BARNABÖRNIN: BARNASLOPPAR FRÁ 2.950- UNGLINGANÁTTKJÓLAR FRÁ 1.710- TELPNANÁTTKJÓLAR FRÁ 1.360- DRENGJANÁTTFÖT FRÁ 1.730- Barna- og unglinganáttföt, sundföt og sloppar frá hinu heimsþekkta fyrirtæki: MÍSS O / :o <c Kerið 66 Laugavegi sími 12650 Sængurfatnaður — Sængur I — Koddar — Handklæði Vandaðar vörur i fiölbreyttu úrvali VERIÐ NJÁLSGATA 86 — SÍMI 20-978 Sérverzlun sem veitir margs konar þjónustu I DAG MILLI KL. 14.00-17.00 SÝNUM VIÐ HVERNIG VIÐ BÚUM TIL JÓLASKREYTINGARNAR JÓLAMARKAÐURINN lilOMLAMXLIR Bankastræti 11 I I I mmmm 535SwiahiigSSS^Br |PTILBVHAR A 3 MIN.! 'tassamymbim OFIB I HABIEGIMIJ — Lj ósmy ndastofa AMATÖR LAUGAVEGI 55 ® 2 27 18 Blikkiðjan Garöahreppi önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.