Þjóðviljinn - 12.12.1976, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Blaðsíða 17
Sunnudagur 12. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 17 Frá Moskvu. Manntal og áætlana- búskapur Lev Volodarski, hagstofustjóri hefur skýrt frá þvi, að manntal hafi verið tekið i nokkrum héruðum og borgum viðsvegar um landið. Sagði hann það undir- búning undir alsherjarmanntal, sem ákveðið hefur verið að fram fari i janúar 1979. Sovétrikin mæla framfarir sinar i fimm ára timabilum. Og allar tölur fimm ára áætlananna miðastvið þarfir þjóðarinnar, allt frá hinum yngsta til hins elsta. Samkvæmt siðasta manntali, sem framkvæmt var i janúar 1970, voru ibúar landsins 241.7 miljónir. Tölfræðingar reikna nú með að þeir séu um 255.5 miljónir og segja að fjögur börn fæðist i landinu á minútu hverri. 1 dag varðar tölfræðinga, hag- fræðinga, skipuleggjendur og félagsfrasðinga jafnmikið um ný- fætt barn eins og lækni. Nýr borgari á margra kosta völ. bað val verður ekki gert á næstunni, en i langtimaáætlunum okkar reynum við að draga upp mynd af þróuninni fram til 1990. Hvernig litur þessi mynd út nú? Tölfræðingar geta látið okkur i té tölur er lýsa fortið, nútið og framtið. Frá þvi framkvæmd fyrstu fimm ára áætlunarinnar hófst um 1930 hefur atvinnuleysi ekki þekkst i landinu. Siðustu tuttugu ár heíur störfum við þjöðarbúskapinn fjölgað um að meðaltali 2-2.5miljón á ári. Mikil iðnvæðing og viðtæk uppbygging hafa stuðlað að örri fjölgun i verkalýðsstéttunum. Við upphaf fyrsta fimm ára áætlunartima- bilsins, 1928-1929, var fjöldi verkafólks aðeins 8.5miljónir, en hann varkominn upp i 70 miljónir á fyrsta ári tiundu fimm ára áætlunarinnar. Jafnframt hefur bændum farið fækkandi. Fyrir októberbylting- una 1917 voru tveir þriðju af ibú- um landsins annað hvort bændur eða vinnufólk. 1 dag eru starfs- menn samyrkjubúa 15.7 miljónir. Skrifstofufólk, kennarar, læknar, verkfræðingar, visindamenn, o.s.frv. eru 20 miljón að tölu. Þessir menntamenn okkar eru komnir af verkamanna-og bændafólki. Fyrir byltinguna i Rússlandi voru aðeins 870 þúsund manns i þessum stéttum. Við gerð áætlana sinna um framtiðarþróun landsins byggja tölfræðingar, félagsfræðingar, hagfræðingar og aðrir skipu- leggjendur á upplýsingum mann- talsins frá 1970 og ganga út frá þeirri staöreynd, að 93% af öllum vinnufærum ibúum landsins stunda annað hvort vinnu eða nám. Aðeins litill hluti kvenna stundar ekki vinnu utan heimilis né nám. Meðal þeirra eru hús- mæður og konur sem gæta barna og gamalmenna. Skortur á vinnu- afli er þannig brýnt vandamál i landi okkar. Tölfræðingar benda á, að missir yfir 20 miljóna manna i heimsstyrjöldinni siðari sé meg- inorsök þessa. Visinda- og tæknibyltingin ger- breytir frá ári til árs eðli verka og starfsskilyrðum. Hundruð hefðbundinna starfa tilheyra nú sögunni og önnur ný hafa komið i staðinn, sem gera miklar kröfur til almennrar og sérfræðiegrar þekkingar einstakinganna. Töl- fræðingar upplýsingar endur- spegla þessa þróun, en þær sýna að ungt fólk streymir i iðngreinar eins og orkuiðnað, vélaiðnað, sjálfvirkni og rafeindaiðnað, þ.e. höfuðgreinar visinda- og tækni- framfara. Fyrir nokkrum árum, og jafn- vel enn i dag, gagnrýndu sumir, vestrænir hagfræðingar sovéska fræðsluskipulagið fyrir, að þeirra dómi, óskynsamlega og gifurlega eyðslu, sem þeir álitu „óvirka fjárfestingu”. Vissulega naut landið ekki ávinningsins strax. Fjöldi sérfræðinga, sem landið þjálfaði, virtist umfram þarfir, og 1970, þegar vinnuaflsskorts var farið að gæta i landinu var 10 ára skyldufræðsla tekin upp. Fari ungt fólk til að starfa i verk- smiðju eða á samyrkjubúi eftir 8 ára nám hlýtur það þálfun i við- komandi starfsgrein og jafn- framt 10 ára almennu skyidu- námi. Þetta gerir ungu verkafólki kleift að innritast i háskóla. Nú er ljóst orðið, að þessar ákvarðanir voru teknar með tilliti til megin- einkenna þróunar efnahagslifsins á tiunda fimm ára áætlunartima- bilinu, og ekki aðeins efnahags- lifsins, heldur og félagslegra breytinga á lifsháttnm verka- manna og bænda. Sérfræðingar Unesco álita að árið 2000 verði ibúar Sovétrikj- anna orðnir 379 miljónir. —APN BURSTAFELL 38840 Cindico BARNAHOPPRÓLUR KOMNAR Fást einnig til að festa á dyrakarm. PÓSTSENDUM ^^VARÐAN HF. Grettisgötu 2a — Sími 19031 Hinar vinsÆlu Skipulagssýning Reykjavíkurborgar aö Kjarvalsstööum Eftirtalin verkefni veröa kynnt meö sérstökum kynningarfundum: Sunnudaginn 12. desember, aðalskipulag eldri hverfa „Gamli miðbærinn”. Fimmtudaginn 16. desember, aðalskipu- lag framtiðarbyggðar ,,tJlfarsfellssvæð- ið”. Sunnudaginn 19. desember, Deiliskipulag Breiðholtsby ggðar. í dag sunnudaginn 12. desember hefst dagskrá meö: 1. Strætisvagnaferð frá Kjarvalsstöðum um Miðbæjarsvæðið kl. 13.30. 2. Kynning verkefnis á Kjarvalsstöðum kl. 14.30. 3. Almennar umræður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.