Þjóðviljinn - 18.01.1977, Qupperneq 7
Þriöjudagur 18. janúar 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 7
Hvaöa hagsmunir
ýttu Ródesíu ráö-
stefnunni af stað?
Alltfráþviaðendi var bund-
inn á nýlendustefnu portiigala
hefur atburðarásin i suðurhluta
Afriku verið svo hröð aö vest-
rænum rikjum sem þar hafa
hagsmuna að gæta, stendur ógn
af. óðalsbóndinn i Suður-Afriku
sá þann kost vænstan að segja
hjáleigukarlinum i Ródesiu að
semja við blökkumenn hið
fyrsta þvi skæruhernaður
zimbabwemanna var farinn að
bera umtalsverðan árangur.
Genfarráðstefnuna um fram-
tið Zimbabwe og frumkvæði
Kissingers verðiír að skoða i
ljósi framangreindra stað-
reynda. En hvaða hagsmunir
voru það nánar tiltekið sem ýttu
ráðstefnunni af stað og um hvað
er i rauninni þrefað i Genf?
Hagsmunir
breskra og
bandarískra
fyrirtækja
Bresk og suðurafrísk fyrir-
tæki nema gull og demanta úr
jörðu i Ródesiu. Samsteypa
þessi, Oppenheimerhringurinn,
á sterk itök i öllum námugreftri
i suðurhluta álfunnar, og i
Ródesiu einni eru dótturfyrir-
tæki hennar a.m.k. 13 að tölu.
Breska fyrirtækið Lonrho, sem
starfar i fjölmörgum sjálfstæð-
um Afrikurikjum, ræður ánnig
'miklu i efnahagslífi Ródesiu,
'þótt umsvif þess komist ekki i
hálfkvisti við umsvif Oppen-
heimersamsteypunnar. Fyrir-
tækið á fjölmargar plantekrur,
námur og verksmiðjur i
Ródeslu.
Mörg bandarisk fyrirtæki
hafa einnig hagsmuna að gæta i
Ródesiu, þar á meðal dóttur-
fyrirtæki Union Carbide, auð-
hringsins sem gafst upp á
málmblendinu I Hvalfiröi. Þessi
auðhringur og fleiri af banda-
riskum ættum sýndu á slnum
tima hvaða þýðingu f járfesting
þeirra I Ródesíu hefur fyrir
efnahagslif bandarikjamanna,
þar sem þeim tókst að rjúfa við
skiptabannið sem sett var á
Ródesiu með þvi að þrýsta á
stjórnvöld. Fjárfesting banda-
riskra fyrirtækja i Suður-Ariku
hefur aukist mjög á siðustu ár-
um og gróði þeirra slær öll met.
Sum árin hefur arðsemishlutfall
fjárfestingar Union Carbide I
Suður-Afriku t.d. verið tvisvar
sinnum hærra en arðsemishlut-
fall bandariskrar fjárfestingar
annars staðar á erlendri grund.
Þessi gifurlegi gróði er ekkert
yfirnáttúrulegt fyrirbæri. Vel-
gengni umræddra fyrirtækja i
suðurhluta Afriku endurspeglar
vitanlega þau sultarlaun og
eymdarkjör sem eru hlutskipti
þorra blökkumanna i Suður-
Afriku, Ródesiu og Namibiu.
En þar sem kúgunin er alger,
þar sem hún birtist á öllum
sviðum samfélagsins, er krafan
um algera umsköpun sett á odd-
inn. Það er óttinn við siika kröfu
sem hefur knúið erindreka al-
þjóðlegs auðmagns til að set jast
að samningum i Genf áður en
fokið er i öll skjól.
Frelsun
alþýðunnar
A næstu mánuðum mun fram-
tið Zimbawe verða ráðin. Ljóst
er að innan skamms mun meiri-
hlutastjórn blökkumanna taka
við völdunum. Samt er full
snemmt að segja fyrir um
hvernig skipan mála mun
verða, en við getum sagt að hún
markist af tveimur skyldum
atriðum, styrkleikahlutföllum
hinna ýmsu blökkumannahópa
og afskiptum bandarikjanna af
deilum þeirra.
Erfitt er að gera sér fyllilega
Eftir Gísla
Pálsson
menntaskóla
kennara
grein fyrir stöðu blökkumanna-
hreyfingarinnar, enda er hún i
stöðugri mótun og þar að auki
margklofin.
Hinn róttæki armur skæru-
liðahreyfingarinnar I Zimbabwe
hefur þegar lýst þvi yfir að
endanlegt markmið barátt-
unnar sé ekki svartur forsætis-
ráðherra heldur frelsun alþýð-
unnar og þvi er óliklegt að
samningamennirnir i Genf geti
komist að samkomulagi um
framtiðarskipan i Zimbabwe.
Yfirlýstur áhugi bandarikja-
stjórnar á að færa blökkumönn- ,
um völdin i hendumar kann þvi
að vikja fyrir hræðslunni við al-
heimskommúnismann, og þá
mun Suður-Afrika fá hlutverk
sem hæfir herstyrknum er hún
hefur yfir að ráða.
Þegar verður vart þeirra
sjónarmiða hjá ráðamönnum
Nató að nauösynlegt sé að
sporna gegn „yfirgangi” so-
véska flotans við suðurodda
Afriku og margt bendir til þess
að Natóríkin séu að treysta
grunn apartheidrikisins. Með
þvi að viðhalda óbreyttu ástandi
i Suður-Afriku hyggjast þau
tryggja óbreytt valdahlutföll á
suðurhveli jarðar. Stjórn Suður-
Afriku hefur notið aðstoðar
Natórikja við að smiða sin eigin
kjarnorkuvopn, og vopnabúr
suðurafrikustjórnar er e.t.v.
einhver alvarlegasta ógnun
við heimsfriðinn. En um leið
endurspeglar það þá staðreynd
að stjórnin hefur vaxandi
áhyggjur af hinum undirokaða
fjölda sem óhjávæmilega mun
risa upp og taka örlög sin I sinar
eigin hendur og sú stund færist
óðum nær.
Mótmæli —
nema á íslandi
í gær efndu fjölmörg öflug
verkalýðssambönd i Evrópu til
mótmælaaðgerða gegn ógnar-
stjórn Suður-Afriku. Hliðstæðar
aðgerðir hafa ekki verið skipu-
lagðar hér á landi að þvi er ég
best veit, en vilji menn leggja
baráttunni lið geta þeir tekið
þátt i starfi Afrikuhóps Vlet-
namnefndarinnar, sem er opin
öllum þeim er vilja sporna gegn
heimsvaldastefnu. Hópur þessi
safnar upplýsingum um fram-
vindu mála i ýmsum Afrikurikj-
um og gefur út ritið Samstöðu.
Eitt af þvi sem hópurinn hefur á
prjónunum er barátta gegn
innflutningi á suður-afriskum
vörum til landsins.
Islenskur húsgagnaiðnaður:
Nýja línan vekur
athygli í Khöfn
i desember s.i. tóku
Otflutningssamtök hús-
gagnaframleiðenda þátt í
Scandinavían Fair for
Contract Furnishings í
Bella Center K.höfn, sem
var sýning á húsgögnum
fyrir stofnanir, skrifstof-
ur, banka, spítaia, skóla,
elli- og hjúkrunarheimili,
hótel o.s.frv.
Sýnd var ný llna i skrifstofu-
húsgögnum, skrifborð, fundar-
borð, vélritunarborð, skjalaskáp-
ar og skúffur, hjólavagnar og til-
heyrandi stólar við hin ýmsu
borð. Skrifstofuhúsgögn þessi,
nefnd „TABELLA”, eru fram-
leidd af Gamla Kompaniinu h.f.
og teiknuð af Pétri B. Lúthers-
syni. Ennfremur voru sýndir
leðurstólar og borð frá Kristjáni
Siggeirssyni h.f., eftir Gunnar H.
Guðmundsson.
Islenska sýningarsvæðiðog
húsgögnin vöktu mikla athygli.
Viðurinn i „TABELLA” er mjög
ljóst beyki. Rauðar skúffuhöldur
og stilliskór á borðfótum, ásamt
afar fallegu rauðu Gefjunar-
áklæði á stólum, sköpuðu
skemmtilegan heildarsvip.
Abyrgir aðilar létu svo um mælt,
að hér væri á ferðinni eitthvað
nýtt, með skandinavisku yfir-
bragði en alþjóðlegt þó, og mörg-
um kom á óvart hversu mikið
húsgagnaiönaðinum á Islandi
hefur fleygt fram.
Nokkur alvarleg viðskiptasam-
bönd náðust, er lofa góðu, en ár-
angur sýningarinnar veröur eðli-
lega að skoðast i ljósi þess hvert
framhaldið verður, þ.e. hvort
náðst hefur I hin réttu viðskipta-
sambönd á réttum stöðum.
islenska sýningarsvæðið i Bella Center I Khöfn. „Tabella” skrif-
stofuhúsgögn.
Sementsalan
hraöminnkar
Börn hrynja niöur í
flóttamannabúðum
Sementsverksmiðja
ríkisins á Akranesi seldi á
árinu 1976 alls 149.563 tonn
af sementi. Árið 1975 var
salan 159.391 tonn og varð
því samdráttur í sements-
sölunni um 6.2% á árinu.
Gert er ráö fyrir enn frekari
samdrætti á þessu ári. Heildar-
velta fyrirtækisins varð um 2.1
milljarður isl. krona árið ’76, en
var 1975 um 1.5 miljarðar. Selt
var 1.3% meira af portlandssem-
enti (110.586 tonn 1975 en 112.082
tonn ’76) , 14.9% minna af hrað-
sementi (23.838 tonn ’75 en 20.292
’76) 17.2% minna af faxasementi
(20.718 tonn ’75 en 17.149 ’76) og
einnig minna af öðru sementi.
Faxasement var eingöngu selt
til Sigölduvirkjunar og er þeim
viðskiptum nú að mestu lokið.
Sala á portlandssementi og hrað-
sementi er I heild svipuð upphæð
bæði á árinu ’75 og ’76. Aætlað er
nú að sementssala i heild verði
133 þús. tonn i ár, ’77.
QUEENSTOWN, Suður-Afriku
11/1 — Fréttir benda til þess að
allt aö 300 börn hafi dáið úr sjúk-
dómum og af illri aðbúö i búðum
flóttamanna frá Transkei, riki því
er nýlega var stofnað upp úr sér-
svæði Khosa-þjóðarinnar. Fjöldi
mannsúrhéruðunum Herschel og
Lady Grey, sem mótfallnir voru
sameiningu héraðanna við
Transkei, hafa siðan flúið þaðan
og eru um 35.000 þeirra f umrædd-
um flóttamannabúðum, sem eru
á Ciskei-sérsvæöinu. Allt að þvi
fimm börn eru sögö deyja dag-
lega i búðunum, og miklar
rigningar hafa aukið mjög á van-
liðan þeirra, sem þar hafast við.
Transkei var stofnað að til-
hlutan suðurafrisku stjórnar-
innar i samræmi við þær fyrirætl-
anir hennar að gera öll sérsvæði
blökkum. sjálfstæö að nafninu,
til, og er fyrirhugað aö allir
blökkumenn landsins hafi aðeins
borgararéttindi í þessum rikjum,
enda þótt meirihluti þeirra búi
utan þeirra. Almennt er litið á
Transkei sem suðurafrískt lepp-
riki, enda hefur ekkert riki viður-
kennt það nema Suður-Afrika ein.