Þjóðviljinn - 12.02.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.02.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. íebrúar 1977 ÞJóÐVILJINN — StÐA 3 Líkur á samstjórn Glistrups og Venstre Kratar vilja byggja kjarnorkuver Frá Stefáni Ásgrímssyni/ fréttaritara Þjóðviljans í Kaupmannahöfn, 11/2: A þriðjudaginn kemur ganga danir til kosninga, og eftir þvi sem nær dregur eykst óvissan um það, hverskon- ar stjórn taki við eftir þær. Niðurstöður nýjustu skoðanakönnunarinnar, sem birtar voru í morgun, sýna að ekki er útlit fyrir miklar breytingar á fylgi flokkanna. Helstu breyt-t ingarnar, sem búast má við ef marka má niður- stöðurnar, eru þær að Venstre, flokkur Pouls Hartling, tapi nokkru fylgi til sósíaldemókrata og að einhverjar tilfærslur verði milli verkalýðsflokkanna. NiðurstöBurnar gera ráö fyrir að sósialdemókratar fái 28,8% at- kvæða og borgaraflokkarnir aörir en Glistrup til samans 47,4%, Venstre þar af 16%. Framsóknar- flokki Glistrups er spáð 14,3% og flokkunum þremur til vinstri við krata samanlagt 9,3%. Eftir þessu að dæma munu kratar taka fylgi frá þeim. Sósialdemokratar standa sterkast að vigi á höfuð- borgarsvæðinu og hafa þar 37% samkvæmt niöurstööunum. sem eru frá könnunarstofnuninni Observa og blaðið Aktuelt, ser er mjög hlynnt krötum, Ibirti. Borgaraflokkarnir aðrir en Glistrup eru hinsvegar veikastir i Kaupmannahöfn og nágrenni og hafa þar aö sögn Observa og Aktuelt 29% til samans og Fram- sóknarflokkurinn aðeins 9%. Flokkunum þremur til vinstri við krata er spáð 23,2% á höfuð- borgarsvæðinu, svo aö þeir eru langsterkastir þar. Allt er óvist um það, hvaða flokkar myndi stjórn eftir kosn- ingar, og fer það eftir þvi hvort Venstre Pouls Hartling stígur frekar i hægri eða vinstri löppina. Niðurstöður skoöanakannana hafa veriö Venstre óhagstæðar, og þorir Hartling þvl ekki aö kveða upp úr með það, hvort hann gangi eftir kosningar til stjórnarsamstarfs við Glistrup eða Anker Jörgensen, en báðir biöla þeir nú ákaft til hans. Anker Jörgensen hefur háð kosningabaráttuna á þeim grund- velli, að framhald verði á sam- vinnu hans viö borgaraflokkana, nánar tiltekið ágústflokkana svo- kölluðu, sem auk sósialdemó- krata eru lhaldsfokkkurinn, Venstre, miðdemodratar og Kristilegi þjóöarflokkurinn. Von hans er þvl að kjósendur veiti fyrst og fremst krötum og þar næst téöum borgaraflokkum nægilegan stuðning til að svo geti oröiö. Kratar hafa i samvinnu við Loðnan á ferð vestur Heldur var dauft hljóöið i mönnum er við slógum á þráðinn til loðnunefndar I gærdag. Sólar- hringinn áður, þe. frú miðnætti aðfaranótt fimmtudags til jafn- lengdar aðfaranott föstudags, höfðu 10 bátar tilkynnt um afla, samtals 2.900 tonn. Og það sem af var gærdeginum höfðu aðeins 2 bátar tilkynnt 800 tonna afla. Andrés Finnbogason i loönu- nefnd skýrði þessa aflatregðu meö leiöindaveöri auk þess sem mikil ferð er á loðnunni, hún veöur vestur með landinu í fyrri- nótt voru flestir bátarnir út af Stokksnesi og VSV af Hvalbak. Nú hefur verið landað loðnu alls ' staðar á svæðinu frá Siglufirði austur um til Vestmannaeyja. A Austfjaröahöfnum er hægt að taka viö 8 þúsund tonnum um helgina en einnig er nokkurt þróarrými i Eyjum. Aðeins einn bátur hefur landað fyrir vestan Eyjar og helgaðist þaö af þvi að hann þurfti að sinna einhverjum erindum. Að ööru leyti hafa skipin ekki notfært sér flutningsstyrkinn nema það litil- ræði sem greitt hefur verið fyrir landanir i Eyjum. Heildarloönuaflinn það sem af er vertiöinni nemur nú um 197 þúsund lestum. —ÞH Kúbanskt tón- listarkvöld í Stúdentakjallaranum annad kvöld Annað kvöld, sunnudag gangast Vináttufélag tslands og Kúbu — VtK - og funda- og menn- ingarmálanefnd Stúdentaráðs fyrir tónlistarkvöldi f Stúdenta- kjallaranum. Verður þar leikin ný kúbönsk tónlist sem VIK hefur nýlega borist. Kúbumenn eiga sér geysimik- inn tónlistararf enda geta þeir leitað fanga til fjögurra heims- álfa i þeim efnum. 1 tónlist þeirra ægir þvl saman óliklegustu áhrif- um og ef finna ætti eitt orð til aö lýsa henni væri þaö helst fjölbreytni., Yngri kynslóö tónlistarmanna á Kúbu hefur tekið fullt mið af þessu I sinni listsköpun. 1 tónlist þeirra er blandað saman angur- værum ljóöasöng af spænskum toga, taktfastri tónlist þar sem afriskar trumbur leika aðalhlut- verkið og góðu rokki sem hvert gaddavirsband á Vesturlöndum gæti verið hreykið af. Yrkisefnið I textum þessa fólks er ekki síöur f jölbreytt. I þeim má finna rómantlskar ástarjátn- ingar, dýrðaróða til José Marti, Che Cuevara og Ho Chi Mihn, almennar hugleiöingar um llfið og tilveruna og pólitlskar trúar- játningar. Það er einmitt þessi tónlist sem verður kynnt i Stúdentakjallaran- um annað kvöld. Þar mun Ingi- björg Haraldsdóttir kynna tónlistina, tónlistarmennina og greina frá innihaldi textanna. Hennar þáttur stendur I l—l 1/2 klukkustund en siðan veröur leik- in tónlist áfram og geta menn þá setið undir henni og rabbað sam- an yfir kaffibolla eða einhverju öðru. Húsið verður opnað kl. 20.30 og aögangur er ókeypi* Alþýöusambandiö lagt fram áætl- un, sem gerir ráð fyrir atvinnu- aukningu og eru þar efst á baugi orkumálatillögur, sem fela meðal annars I sér byggingu kjarnorku- vera. Samkvæmt áætluninni veit- ir framkvæmd hennar 15.000 manns i viðbót atvinnu árlega næstu fjögur árin. Auk þess er áætlað að byggja yfir 40.000 ibúðir næstu tólf mánuöina. Við að skapa atvinnu fyrir þennan f jölda sparast að sjálfsögðu atvinnu- leysisbætur og slðan, er orkuver- in komast I gagnið, gjaldeyrir. Gallinn við orkumálaáætlunina er sá, að andstaöan við kjarnork- una er mikil og almenn og þvi ekki vist að hún veiti sósial- demókrötum það brautargengi sem þeir vænta, svo að þeir geti myndað meirihlutastjórn með fyrrnefndum borgaraflokkum, sem Anker Jörgensen hefur lofaö auknum áhrifum og ráöherrastól- um og jafnframt lýst þvi yfir, að samstarf viö Kommúnistaflokk- inn, vinstrisósialista og Sósial- iska þjóöarflokkinn komi ekki til greina. En það eru fleiri, sem ætla sér hlutdeild i rikisstjórn eftir kosn- ingar. Glistrup stefnir að þvi að mynda meirihlutastjórn með stuðningi og aöild annarra borgaraflokka og ætlar sér og Hartling þar stærstan hlut. Draumar Glistrups eru vissulega ekki svo fjarstæöukenndir, þvi að ekki er langt siðan Erhard Jacob- sen lýsti þvi yfir aðspurður um, með hverjum hann helst kysi að vinna eftir kosningar, að hann byggist við litlum breytingum á atkvæðahlutfalli flokkanna og þvi byggði hann á óbreyttri samstöðu með krötum. En ef svo óllklega vildi til að ööruvisi færi, myndi hann vinna með borgaralegri stjórn, þótt meh aðild Fram- sóknarflokksins væri, af sömu trúmennsku og með siðustu stjórn. Glistrup segist stefna að þvi að mynda stjórn með flokk- um, sem skilji hiö efnahagslega samhengi, eins og hann oröar það, og verði valdahlutföllin inn- an stjórnarinnar eftir atkvæða- magni aðildarflokka. Sýnt er þvi að I þeirri stjórn myndu þeir ráða ferðinni Glistrup og Hartling, og þykir þaö mörgum heldur ókræsi- leg tilhugsun. Þeir flokkar auk Framsóknar- flokksins, sem að mati Glistrups „skilja hið efnahagslega sam- hengi”, eru Venstre, Ihaldsflokk- urinn, Kristilegi þjóðarflokkur- inn, Réttarsambandið, miðdemó- kratar og flokkureftirlaunafólks, og er af þessu ljóst að eftir kosn- ingar veröur haldið meiriháttar uppboð á borgaraflokkunum Meirihlutasamstarf rofnar í bæjar- stjórn Eskifjarðar Eftir síöustu bæjar- st jórnarkosningar á Eskifiröi náöist sam- komulag um stjórn bæjarins og kosningu á bæjarstjóra meö fulltrú- um núverandi rfkis- stjórnarflokka og Al- þýðuf lokksins. Þennan meirihluta skipa tveir sjálfstæðismenn, tveir framsóknarmenn og einn alþýðuf lokksmaöur en í minni hlutanum eru tveir alþýðubandalagsmenn. Að undanförnu hefur nokkurr- ar ólgu gætt innan bæjar- stjórnarmeirihlutans og heldur þar nú viö fullum friöslitum. Ágreiningurinn liggur I mis- munandi viðhorfum til þess, hvernig afla skuli húsnæðis fyr- ir dvalarheimili aldraðra. I gær hafði biaðið samband við Hrafnkel Jónsson, fréttarit- ara sinn á Eskifiröi, og sagöist honum svo frá: I gær kom fjárhagsáætlun Eskifjarðar til annarar umræðu hjá bæjarstjórn. Við afgreiðslu hennar kom i ljós djúpstæöur ágreiningur á milli fulltrúa meirihlutaflokkanna I bæjar- stjórn, svo ekki er annaö að sjá, en sá meirihluti, sem myndaö- ur var eftir síðustu bæjar- stjórnarkosningar, sé úr sög- unni. Meirihlutann mynduöu þá tveir fulltrúar Sjálfstæöisflokks, 2 fulltrúar Framsóknarflokks og l fulltrúi Alþýðuflokks, en tveir fulltrúar Alþýðubandalags voru I minnihluta. Meiri hlutinn stóð siðan að kosningu Jóhanns Clausens sem bæjarstjóra. Samstarf meirihlutans hefur gengið skrykkjótt að undan- förnu en það atriði, sem virðist ætla aö ráða úrsiitum nú, var afstaðan til lausnar á dvalar- heimili fyrir aldraða. Fulltrúar Alþýðubandalags og Sjálfstæðisfl. töldu þörf fyrir dvalarheimili svo brýna, að þeir vilja ráðast i kaup á íbúöarhúsi, sem falt er, til þessara nota. og teija bæjarfélagið ekki hafa ráð á að byggja nýtt dvalarheimili fyrr en þá aö nokkrum árum liönum. Var tillaga um þessa aðferð samþykkt I gær af full- trúum Alþýðubandalags og Sjálfstæðisfi. Afstaöa fram- sóknarmanna, krata og svo bæjarstjóra var hinsvegar sú, aö halda sig við fyrirhugaða elliheimilisbyggingu og töldu þeir þá leið heppilegri sem framtiðarlausn. Þess skal getið, aö 346 eskfirð- ingar höfðu lýst vilja sfnum til aö keypt yrði hús til nota fyrir dvalarheimili. Viðbrögð bæjarstjóra við samþykkt tillögu Alþýðubanda- iags og Sjálfstæðisfl. voru þau, að hann nam samþykktina Ir giidi og kvaðst vilja fá úrskurð félagsmálaráðuneytisins i þessu máli. Það mátti síðan skilja á fulltrúa Sjálfstæðisfl., Guö- mundi Auðbjömssyni, að með þessu væri stuðningi við bæjar- stjóra lokiö af þeirra hálfu og þá væntanlega samstarfi þeirra flokka, sem myndað hafa meiri hluta innan bæjarstjórnar Eski- fjarðar. hj/mhg Yfirlýsing frá Súöavík Viö undirritaöir félags- menn i Verkalýös- og sjó- mannafélagi Alftfirðinga, Súöavík, sem studdum framboð núverandi stjórnar félagsins lýsum furðu okkar á þeim skrifum, sem komu fram I Þjóðviljanum þann 8.2. s.l. frá fráfarandi . formanni félagsins, Heiðari Guðbrandssyni I sambandi við stjórnarkjör i félaginu og lýsum þvi sem marklausum orðum og staðlausum stöf- um, að Börkur Akason, framkvæmdastjóri Frosta h.f., Súðavik, eða nokkur annar aðili hafi reynt að beita áhrifum sinum á skoðanir okkar i sambandi við stjórnarkjör félagsins, og lýsum yfir skömm okkar á slikum fréttaflutningi. Súðavfk, 10.2 1977 Steinunn Jónatansdóttir, Ingbjörg Olafsdóttir, Kristján Jónatansson, Ingi- björg Egilsdóttir, Friða Ölafsdóttir, Þorbergur Þorbergsson, GIsli Sigur- björnsson, Halldór Þórðar- son, Sigrlður Kristjánsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Halldór Guðmundsson, Ingi- björg Guömundsdóttir, Sigurgeir Garöarsson, Þorvarður Hjaltason. De Oriol og Villaescusa lausir MADRID 11/2 Reuter — Tilkynnt hefur verið I höfuðborg Spánar að lögreglan hafi leyst úr haldi þá de Oriol, forseta rlkisráðsins, og Villaescusa hershöföingja, for- seta hæstaréttar hersins, I dag, og eru þeir aö sögn við góöa heilsu. Þeim fyrrnefnda var rænt fyrir nlu vikum, hinum fyrir þremur vikum. Lögreglan kveðst hafa handtekið suma þeirra, sem námu þessa tvo menn á brott, en engin nánari skýring var gefin á þeim atburðum né heldur sam- tökum þeim dularfullum, kölluð- um GRAPO, sem lýstu brottnámi hinna tveggja framámanna á hendur sér.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.