Þjóðviljinn - 13.03.1977, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 13.03.1977, Blaðsíða 23
Sunnudagur 13. mars 1977 'ÞJÓÐVILJINN'— S1ÐA 23 SKÓLINN Tvær tröllskessur Ragna Björt Einarsdóttir 4 ára# Flúðaseli 76/ Reykja- vík teiknaði þessar skessur. Gaman væri að fá bréf f rá henni um það hvers vegna hún teiknar tröllskess- ur. Kannski hefur hún heyrt söguna af Gilitrutt? SPURNING KOMPUNNAR [ sögunni af Húgó eftir Maríu Gripe er sagt frá stelpu sem heitir Mirjam. Hún kemur í skólann og verður vinkona Húgós og reyndar líka Jósefínu. Mirjam er spennandi persóna og ólík öðrum stelpum í skólanum. Hún er gáfuð, falleg og sterk. Húgó verður afskaplega hissa, þegar hann fyrir tilviljun kemst að því, að Mirjam er dauðhrædd við fallegt málverk sem hangir í einu af her- bergjunum heima hjá henni. Þetta er mynd af hafi. Mirjam segist ekki þurfa nema rétt aðeins að líta á myndina þá finnist sér hún vera aðdrukkna. Hún getur setið í öðru herbergi og allt í einu finnst henni hafið á myndinni koma beljandi inn um allar dyr og í öll herbergin og drekkja öllum í húsinu. Hún er svo hrædd við málverkið að hún þorir ekki ein upp á loft. Það er ekki útskýrt hvers vegna hún er svona hrædd við þessa hrífandi, fögru mynd. Ef þú lest bókina vel skilur þú ástæðuna fyrir hræðslu Mirjam. Spurning Kompunnar er: VIÐ HVAÐ ERT ÞO HRÆDD(UR)? Kannski getur þú ekki skrifað sjálf(ur), þá skaltu biðja pabba, mömmu eða einhvern sem vill hjálpa þér að skrifa fyrir þig. Mundu aðskrifa fullt nafn, aldur og heimilisfang. Gjarnan má mynd af þér fylgja. Kompan skilar henni aftur. kompan Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Krossgáta Kompunnar er létt, þó eru nokkur erfið orð í þessari. í númeruðu reitunum byrjaiorðin. Það er bæði mynd og orðskýr- ing. Skýringarorðin eru prentuð fyrir neðan og bera sömu tölu og tölu- settu reitirnir, fyrst lárétt (þversum), svo lóð- rétt (langsum). Myndin hjálpar til að finna samheiti skýringarorðsins. Lárétt: 1. íþrótt sem er mjög vinsæl á lslandi,5 falla í dropum (þetta er erfitt orð og best að geyma það, en f inna fyrst léttu orðin.), 7. íþrótt sem er mjög vinsæl á Spáni, 8, drykkur sem Sólnes lang- ar til að framleiða 9. deild, 11. leikur sem er vinsæll hjá stelpum, 12.sá fyrsti, 13. óreiða (á — og stúi.) Lóðrétt: 1. skákmeistari, 2. húsdýr (fleirtala og þolfall), 3 tæki til að róa með, 4. sléttur, flatur klettur, 6 mesti fjalla- bálkur Evrópu, 10. skógardýr. SKóLINN kallar Kjartan Arnórsson þessa mynd sem hann teiknaði áður enhann var 12 ára.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.