Þjóðviljinn - 28.06.1977, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 28. júni 1977 ÞJÖÐVILJINN — StÐA 1 X
Ingunn Einarsdóttir. Hetja tsiands 'I keppninni I Kaupmannahöfn.
Golfarar fá heimsókn:
Skoskir atvinnu-
/
Islands
Harry Bannerman frá Cruden
Bay Golf Club
Jim Hamilton frá East Herts Golf
Club
Ian Collins frá Dubarton Golf
Club
Ronni Shede frá Ellersey House
Hotel
Willir J. Milne frá Crieff Golf
Club
Aðstandendur keppninnar hafa
að auki boðið tveimur atvinnu-
mönnum til keppninnar, þe. Þor-'
valdi Asgeirssyni golfkennara og
John Nolan, sem dvelur hér við
kennslu á vegum GSl nú i sumar.
Af framantöldum köppum eru
þeir Willie J. Milne, Harry
Bannerman og Ronnie Shade
þeirra þekktastir. Milne t.d.
sigraði i Northern Open sem er
geysilega sterkt golfmót, árin
1974 og ’75. Harry Bannerman
hefur unnið þá keppni 4 sinnum.
Það er skoska atvinnusambandið
sem velur þessa leikara til farar-
innar en i hópnum eru 8 bestu
leikarar i Skotlandi en að auki
þeir Bob Jamieson og Alistair
Thomson en þeir eru báöir i allra
fremstu röð. Það eru þeir Óttar
Yngvason og Einar Guðnason
sem eiga að mestu leyti heiðurinn
af komu skosku atvinnumann-
anna til landsins. Varðandi fyrri
keppnina er öllum islenskum
golfleikurum heimil þátttaka meö
20 i forgjöf eða minna. Þátttöku-
gjald er 7500 krónur. Verðlaun i
báðum keppnunum nema samtals
u .þ.b. 1,5 milj. isl. krónum.
tslensku keppendurnir keppa
aðeins um golfáhöld þar sem
Golfsambandið er aðili að tSt og
peningaverðlaun i mótum sam-
rimast ekki áhugamannareglum
sambandsins. Ætlunin er að selja
inná keppnirnar. Miðaverö er 600
kr. annan daginn en 1000 kr. báöa
dagana. Er skorað á áhugafólk
um golfiþróttina að fylgjast með
keppninni og um leið að styðja við
bakið á Golfsambandinu þvi ljóst
þykir að mikill halli verði á
heimsókninni ef áhorfendur
vantar.
menn til
Þann 16. júli koma
hingað til lands 10 bestu at-
vinnu - golf leikarar Skot-
lands og keppa hér við
heimamenn. Það er
orðinn langur tími síðan ís-
lendingar fengu áhuga á að
koma slíkri keppni á, og
undirbúningur hefur staðið
lengi. Skotarnir leika hér i
tveimur keppnum. Þann
17. júlí leika skotarnir við
islendinga á Grafarholts-
velli/ þannig að á hverri
holu telur sá sem farið
hefurá fæstum höggumog
hver riðill keppir sem eitt
lið.
18. júli keppa skotarnir svo
aftur, innbyrðis við islenska
landsliðsmenn. Leiknar verða 18
holur fyrir hádegi og 18 holur
siðari hluta dags. Góð verðlaun
verða veitt og eru þar bæði
peningaverðlaun og golfáhöld.
Hinir skosku atvinnumenn sem
koma hingað til lands eru:
Bob Jamieson frá Dublane New
Golf Club
Alistair Thomson frá Glensore
Golf Club
David Huish frá North Berwick
Golf Club
Gordon Kinnoch frá Blairgowrie
Golf Club
Undankeppni EM í frjálsum í'Höfn:
/
Islensku stúlkum
ar komust áfram
— en karlalandsliöið varð að gera sér f jórða
sætið að góðu þrátt fyrir mörg góð afrek
Þrátt fyrir ágætan ár-
angur i mörgum greinum
varð íslenska karlalands-
liðið i frjáisum íþróttum að
gera sér að góðu fjórða
sætið í undankeppni EM í
frjálsum iþróttum i Kaup-
mannahöfn um helgina.
Þrjú efstu löndin komust
áfram í undanúrslitin sem
fram fara í Aþenu siðar á
árinu. Portúgalir sigruðu í
keppninni/ nokkuð á óvart/
því fyrirfram var búist við
sigri dana; þeir hlutu 74
stig. Irland varð i öðru sæti
með 65 stig/ danir þriðju
með 64 stig/ islendingar
fjórðu með 54 stig, og
neðstir urðu svo luxem-
borgarar með 43 stig.
En öllum á óvart og þá ekki sist
islensku þátttakendunum tókst
islensku kvennasveitinni að
tryggja sér þriöja sætið i kvenna-
keppninni og um leið rétt til að
taka þátt i undanúrslitunum sem
fram fara i Dublin, trlandi, i júli-
mánuði. Þar var Ingunn Einars-
dóttir i lykilhlutverki fyrir is-
lenska liðið. Hún sigraöi tvivegis i
keppninni, varð tvisvar i öðru
sæti og hljóp fyrir island i bæði
4x100 metra og 4x400 metra boð-
hlaupi. Mikilsverður liðsmaður
og óhætt að fullyrða að án hennar
hefði islenska sveitin ekki náð
sæti i undanúrslitunum.
Ingunn hóf keppnina með þvi að
ná ööru sætinu i 100 metra hlaupi,
hljóp á 11,8 sek^frábær árangur.
400 metrarnir voru næstir á dag-
skrá hjá Ingunni, og þar gerði hún
sér litið fyrir og sigraði, hljóp á
55,3 sek. sem er nýtt tslandsmet.
Eldra metið 55,9. 1 4x100 metra
boðhlaupinu var Ingunn svo i is-
lensku sveitinni, sem setti nýtt Is-
landsmet, hljóp á 47.0 sek. Siðari
dag keppninnar var Ingunn einn-
ig i banastuði. Hún sigraði i 100
metra grindahlaupi á timanum
14,38 sek.og stuttu siðar var hún
þátttakandi i 200 metra hlaupi og
lenti i öðru sæti á timanum 25,22
sek. Undir lok keppninnar var
hún svo i sveitinni sem hljóp 4x400
metrana. Þriðja sætið þar tryggði
islensku kvennasveitinni svo
þátttökurétt i undanúrslitunum.
En þær voru fleiri sem fögnuðu
glæsilegum árangri. Þórdis
Gisladóttir sýndi og sannaði að
hún er i stöðugri framför i há-
stökkinu. Hún setti glæsilegt ts-
landsmet, stökk 1,76 metra, en
gamla metið er 1,73. Þessi árang-
ur nægði i þriðja sætið.
Lilja Guðmundsdóttir sigraði i
800 metra hlaupinu á timanum
2,06,2 sek.sem er nýtt tslandsmet.
Hún hafnaði i öðru sæti i 1500
metra hlaupi þar sem hún náði
timanum 4,31,0 sek. sem er all-
nokkuð frá tslandsmetinu sem
hún sjálf á. Aðrir keppendur
tslands i kvennakeppninni náðu
margir sinum besta árangri
i viðkomandi grein þó fjórða sætið
hafi orðiö hlutskipti þeirra
flestra. Stigin skiptust þannig:
1. Noregur 49 stig, 2. Portúgal 34
stig.3, tsland 33 stig, 4. 'Grikk
land 31 stig.
Karlakeppnin:
Hér galt tsland þess að vera
með ójafna sveit, nokkra frábæra
einstaklinga sem náöu góðum ár-
angri, en inn á milli eru miklar
gloppur. Þetta stendur þó allt til
bóta þvi framfarirnar eru greini-
legar.
Hreinn Halldórsson var hinn
öruggi sigurvegari i kúluvarpinu,
kastaði 20,50 metra, en Islands-
met hans er 20,70 metrar. Um sig-
ur i kúluvarpinu var aldrei efast,
þar voru yfirburðir Hreins svo
gifurlegir, sem sést á þvi, að
næsti maður var u.þ.b. 4 metra á
eftir Hreini!
I kastgreinunum blómstruðu is-
lendingarnir sem endranær. Er-
lendur sigraði glæsilega i kringlu-
kasti^kastaði 57,34 metra. Hann
varð hinsvegar að gera sér að
góöu þriðja sætið i sleggjukasti.
Öskar Jakobsson sigraði i
spjótkasti, kastaði 74,74 sem er
hans besti árangur i ár.
Vilmundur Vilhjálmsson stóð
sig frábærlega vel i stuttu hlaup-
unum, varð i öðru sæti i 100 metr-
unum á 10,33 sek. t 200 metrunum
varð Vilmundur svo einnig annar
á timanum 21,33 sek.og i 400 metr-
unum náði hann timanum 47,1
sek., og enn varð hann i öðru sæti.
Friðrik Þór óskarsson stökk
7,37 metra og varð annar.
Aörir keppendur stóðu aö flestu
leyti fyrir sinu, en með jafnara
liði ætti tsland fljótlega að geta
verulega látiö á sér kræla i þess-
ari keppni.
Þórdís Gisladóttir setti glæsilegt tslandsmet 1 hástökki og er greinilega
i stöðugri framför.
Velheppnuð fimleikaför
/
Islensku stúlkurnar unnu til sex verðlauna
Dagana 18.-21. júni tóku 20
stúlkur þátt i fimieikamóti i
Haugasundi i Noregi. Þetta er i
fyrsta sinn sem hópur frá tslandi
tekur þátt I keppni á erlendri
grund i fimleikum. Auk þess
sýndi hópur frá félögunum
Gerplu og KR á mótinu. Þetta
mót var tviskipt, annars vegar
var keppt i fimleikastiganum,
sem er kerfi sem Fimleikasam-
band tslands vinnur eftir, og hins-
vegar voru á mótinu hópsýn-
ingar. I fimleikastiganum var
keppt i tveimur flokkum, 12-14
ára og 14-16 ára. tslensku stúlk-
urnar stóðu sig vonum framar i
keppninni og unnu samtals til sex
verðlauna. t 12-14 ára flokknum
hlaut Jódis Pétursdóttir verð-
laun, en það voru einu verðlaunin
sem tsland vannT þeim flokki.
I eldri flokknum, þ.e. 14-16 ára
varð Berglind Pétursdóttir hlut-
skörpust i keppni á olympíuslá.
Þess má geta, að i keppni á
olympiuslánni sem og i keppni i
öðrum greinum fór fyrst fram
undankeppni. 25 stúlkur hófu
keppni og sex þær efstu komust
siðan beint i úrslitin þar sem allar
hlutu viðurkenningu að henni lok-
inni. Þannig hlaut Karólina 5
verðlaun i keppni á olympiu-
slánni. Karólina var svo aftur i
sviösljósinu i gólfæfingum en þar
varð hún i 5 sæti. Berglind átti
góða möguleika i þessari grein en
var óheppin og komst ekki i úr-
slitin. Berglind hlaut hins vegar
önnur verðlaun i stökkkeppninni,
þ.e. stökki yfir hest. Þuriður Val-
týsdóttir varð fimmta i þeirri
grein. Allar ofangreindar stúlkur
eru félagar i fimleikadeild Gerplu
nema hvað Karólina keppir fyrir
Björk sem er fimleikafélag i
Hafnarfirði.
Var frammistaða islensku
stúlknanna rómuð sem og öll
framkoma.
Þjálfarar og fararstjórar i ferö-
inni voru þau Snæþór Aðalsteins-
son og Margrét Jónsdóttir , en
Ingunn Edda Haraldsdóttir var
þjálfari sýningarhóps KR.
—hól