Þjóðviljinn - 28.06.1977, Side 12
12 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Þriöjudagur 28. júnl 1977
Gisli Guömundsson skrifar:
Sitt af hverju
frá Suðureyri
Gisli Guömundsson á Suöureyri við Súgandafjörö hefur sent
Landpósti eftirfarandi pistil:
Ég hef, þau 8 ár sem ég hef verið fréttamaður
Þjóðviljans, haft þann sið, að senda frá mér loka
yfirlit eftir hverja vertið. En nú þegar að þetta er
skrifað, er ég nýkominn heim úr ferðalagi. Ég
var farinn i það ferðalag áður en vertið lauk. En
betra er seint en aldrei. Og hér kemur svo yfirlit-
ið. Sömu bátarnir stunduðu hér i vetur veiðar
með linu og á vertiðinni i fyrra. Róðrafjöldi
þeirra nú varð 283 en i fyrra 277. Heildarafli
þeirra varð 1935,6 tn. en i fyrra 2248,7 tn. eða 313,1
tn. minni nú.
Suöureyri
Yfirlitið er þá á þessa leið:
m/s Kristján Guðmundss. í vetur 664,1 tn. 194 róðrum.
ifyrra 796,9 tn. i 93 róörum.
m/sSigurvon i vetur 653,7 tn. i94róörum.
ifyrra 736,0 tn. 190 róðrum.
m/s Ölafur Friðbertss. i vetur 617,8 tn. i 95 róðrum.
i fyrra 715,8 tn. i 94 róörum.
Afli linubátanna var óslægður.
Þá er það m/s Trausti, sem stundaði togveiðar. Afli hans til 26.
april, þegar hann hætti hér veiðum, varð 756,7tn. i 15 löndunum. En
i fyrra.þá til 11. mai, 728,7tn. i 12 löndunum.Afli hans var veginn
slægður. M/s Trausti er nú senn alfarinn héðan, sennilega, eftir þvi,
sem heyrst hefur, til Patreksfjarðar. Hann er nú, þegar þetta er
skrifað, i slipp suður i Njarðvikum.
M/s Trausti kom hingað frá Noregi þann 29. sept. 1974. Fór á
veiðar 6. okt., sama dag og sira Auður Eir, þá settur sóknarprestur
hér, hélt sina fyrstu ræðu yfir oss. Á þeim 31 mánuði, sem Trausti
var hér við veiðar, fiskaði hann 5227,4 tonn i 97löndunum. Að sjálf-
sögðu var það slægður fiskur.
Nýr togari
. Nú er kominn hingað nýr togari, smiðaður i Stálvik. Nafn hans er
Elin Þorbjarnardóttir. Hún kom hingað 21. mai og fór á veiðar dag-
inn eftir, sunnudag 22. Kom úr fyrsta túr 31. mai með 101,9 tonn. í
annað sinn 6. júni með 72,9tonn. Elin er sjötti togarinn, sem gerður
erhéðanút núhinsiðustu 6ár. Skipstjóriá Elinu er aðsunnan. Tog-
araútgerð hér hefur ekki lánast. Sem sé, aflabrögð mjög léleg. Hvaö
gerist nú? Það er óráðin gáta.
Og nýr sveitarstjóri
Núerbúiðaðráða sveitarstjóra. Þaömun vera sá áttundi, já, lik-
lega á 8 til 9 ára tlmabili. Þaö eru svipuð hlutföll og með togarana.
Siðasti sveitarstjórinn stóð hér við I 23 mmánuði og 13 daga. Þá var
honum vikið úr starfi. Blessuð sé minning hans. Talið er að hann
muni hafa margar miljónir út úr brottrekstrinum.
Heita vatnið er á leiðinni
Hinn fráfarandi sveitarstjóri hélt þvi blákalt fram i okt. i haust að
vatnið mundi koma fyrir jól. 1 dreifibréfi 23/3, útgefnu af oddvita,
fyrir hönd hinnar háttvirtu hreppsnefndar, er ibúum Suðureyrar
óskað til hamingju með heita vatnið, sem i siðasta lagi mundi verða
hleypt á fyrstu dagana iapril. Nú, þegar þetta er skrifað, er 14. júni,
og enn bólar ekkert á vatninu. Menn eru hættir að skilja hin marg-
þvældu loforð um heita vatnið. Fróðir menn telja, aö við næstu
sveitarstjórnarkosningar verði ihaldiö ofaná og verði þá enn skipt
um sveitarstjóra.
Suðureyri, 14. júni,
Gfsli Guömundsson.
Frá framkvæmdum á Grundartanga
Adalfundur Sambands borgfírskra kvenna
um Grundartangaverksmiöjuna
Fordæmir að álits
heimamanna skuli
ekki hafa verið leitað!
Hér birtist I heild tillaga sú,
um Grundartangaverksmiöj-
una, sem aöalfundur Sambands
borgfirskra kvenna samþykkti
samhljóöa:
„Aðalfundur Sambands borg-
fiskra kvenna, haldinn að Lyng-
brekku dagana 6.-7. júni 1977,
tekur undir ályktanir almenns
fundar I Kolbeinsstaðahreppi 8.
mai sl. um Grundartanga-málið
lýsir andstööu sinni við bygg-
ingu járnblendiverksmiöju á
Grundatanga og litur svo á, að
ósanngjarnt sé, að rafmagn sé
selt til verksmiðjunnar á marg-
falt lægra verði en almennt ger-
ist i landinu.
Bendir fundurinn á innlendan
iðnað, húsahitun og heyþurrkun
sem heppilegri nýtingarmögu-
leika á þeirri orku, sem fyrir
hendi er.
Fundurinn bendir á þann
möguleika að nota mannvirki
þau, sem verið er aö reisa á
Grundartanga, fyrir iönfyrir-
tæki al hóflegri stærð, sem
framleiddi úr islensku hráefni.
Fundurinn fordæmir sérstak-
lega þau vinnubrögö rikis-
stjórnarinnar og alþingis, aö
bygging málmblendiverksmiöj-
unnar skuli hafa veriö ákveöin
án þess að heimamönnum gef ist
kostur á að greiöa atkvæði um
málið, þrátt fyrir eindregnar
óskir þeirra þar að lútandi og
yfirlýsingar iönaðarráðherra
um, að slikar verksmiðjur yröu
ekki reistar gegn vilja heima-
manna.
Skorar fundurinn á rikisstjórn
tslands og alþingi aö endur-
skoða afstöðu sina i þessu máli
og til stóriðjuáforma yfirleitt.”
Eins og fyrr segir var ofan-
greind tillaga samþykkt sam-
hljóða á fundinum. — mhg.
Bíldudalur
Af sem áður var
Stóru bátarnir tveir, sem hér
eru, hættu róörum um miöjan
mal. Fram aö þeim tima reru
þeir meö línu. Annar þeirra
byrjaöi aö róa á ný 15. júní og
hinn er aö fara út I dag, sagöi
Jakob Kristinsson á Bildudal, i
viötali viö blaöiö s.l. föstudag.
Sá þeirra, sem fyrr fór út, er
búinn aö landa einu sinni og
kom með 23 tonn eftir 4 daga
útivist. Þaö má kallast svona
sæmilegt, sagöi Jakob.
Svo erum við með tvo drag-
nótabáta, sem byrjuðu róðra nú
þann 20. júni. Þeir fengu ágætan
afla til að byrja meö,en eitthvaö
er nú tregara i dag. Svo höfum
við tvo handfærabáta og það er
svona dálitill afli hjá þeim.
Við eigum að hafa nóg hráefni
þegar bátarnir eru allir byrjaði
veiðar. Annars hefur vinna verið
hér alla daga og þetta var alveg
sæmilegt i vetur. Ég held, að
allir hafi það bara gotthér og er
af sem áöur var, sagði Jakob
Kristinsson að lokum.
—mhg.