Þjóðviljinn - 28.06.1977, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 28. júní 1977
Sumarferð Alþýðubandalags á Norðurl. vestra
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra
Siglum á Hornstrandir
SumarferO Alþýðubandaiags-
ins á Norðuriandi vestra er að
þessu sinni sigling yfir Húnaflóa
á Strandir með flóabátnum
Drang og verður gist þar tvær
nætur i tjöldum. Ollum er heimil
þátttaka i þessari ferð.
Drangur fer frá Siglufiröi kl.
15.30 föstudaginn 5. ágúst og frá
Skagaströnd kl. 22 sama kvöld.
Fólk getur komið i skipið á
hvorum staðnum sem vill, og er
fargjald þaö sama frá báðum
stöðum. Um kvöldið verður siglt
þvert yfir Húnaflóa og gist þar i
tjöldum.
A laugardagsmorgni verður
byggðin á þessum slóðum skoð-
uð, en siöan er siglt norður fyrir
Geirólfsgnúp á syðri hluta
Hornstranda og gist i tjöldum i
Reykjafirði nyrðri. Veröun þar
efnt til kvöldvöku.
í Reykjafirði nyrðri er litil
sundlaug, og á þessum slóðum
er margt að skoða. Siðari hluta
sunnudags veröur haldið af stað
til Skagastrandar og komið
þangað kl. 20 en til Siglufjarðar
nokkru eftir miðnætti.
Á siglingu verður margt til
skemmtunar um borð i Drangi,
upplestur, spurningakeppni,
fjöldasöngur og félagsvist.
Þátttakendur i ferðinni þurfa
að hafa með sér viðlegubúnað
og nesti. Þó má fá keypt kaffi og
gosdrykki um borð i skipinu.
Þátttökugjald verður 8400 kr.,
en þátttakendur yngri en 14 ára
borga hálft gjald.
Ef útlit yrði fyrir óhagstætt
veður, yröi ferðinni væntanlega
frestað um eina viku með aug-
lýsingu i hádegisútvarpi 5.
ágúst.
Athugið að fjöldi farmiða er
takmarkaður og þvi vissara að
tryggja sér far sem fyrst. Vænt-
anlegir þátttakendur láta skrá
sig og fá nánari upplýsingar hjá
eftirtöldum stöðum:
Hvammstangi:
Þórður Skúlason, sveitar-
stjóri, simi 1382.
Blönduós:
Sturla Þórðarson, tannlæknir,
simar 4357 og 4356^-
Skagaströnd:
Eðvarð Hallgrimsson,
bygg.m., simi 4685.
Varmahlið:
Hallveig Thorlacius, Mána-
þúfu, simi 6128.
Sauðárkrókur:
Hulda Sigurbjörnsdóttir,
verkstj., simi 5289
Hofsós:
Gisli Kristjánsson, oddviti,
simi 6341.
Siglufjörður:
Sigurður Hlöðversson, tækni-
fræðingur, simi 71406. .
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Norðurlandi vestra.
Gamall löndunarkrani I Djúpuvlk á Hornströndum.
Sumarferð Alþýöubandalags á Suðurlandi
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Suðurlandi
Vestmannaeyjarferð
Efnt verður til ferðar
fyrir Alþýðubandalags-
fólk og gesti þeirra helg
ina 1. til 3. júlí nk. Farið
verður með Herjólfi úr
Þorlákshöfn kl. 13.45
föstudaginn 1. júlí og
komið til baka sunnudag-
inn 3. júlí.
Farið verður i skoðunarferðir
um Heimaey, og ef viðrar i
bátsferð kringum Vestmanna-
eyjar. Heimamenn sjá um leið-
sögn og dansleik á föstudags-
kvöld.
Svefnpokapláss og/eða tjald-
stæöi fyrir þá sem vilja.
Látið vita um þátttöku i simum:
Selfoss:
1460, 1973 og 1659
Hveragerði:
4332
Þorlákshöfn:
3733
Heimaklettur og innsiglingin
og hjá Björgvini Salómonssyni,
Ketilsstöðum i Mýrdal,og Þor-
steini Guðmundssyni, Bjargar-
koti, Fljótshlið.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi.
Bruno
Framhald af bls. 7.
— Ég held hérna fyrirlestra
um setningafræði við Háskóla
Islands.
— Hvernig stendur á hinum
mikla áhuga á Islandi i Þýska
alþýðulýðveldinu?
— Til þess eru margar ástæð-
ur: ein er vafalaust úgáfa bóka
sem ég hef nefnt. önnur er til
dæmis sú að ég hef haldið 100-
150 fyrirlestra um Island i verk-
smiðjum, þorpum og viðar.
Þekkingarfiknin er ekki minni
hjá alþýðu manna þar en hér.
Var það ekki i Skagafirðinum
sem bóndinn kunni að nota lóga-
ritma i reikningi? Svona fólk er
til hjá okkur.
— Þú hefur oft komiö til Is-
lands siðustu árin.
— Já, nokkrum sinnum. Ég
kom hingað i desember siðast
þá sem túlkur með fulltrúa frá
verkalýðssambandi Þýska al-
þýðulýðveldisins sem sat ASI
þingið. Þar áður kom ég hingað
1973 og 1972 og þar áður 1958.
Ég varð hissa á þessum mikla
vexti sem átti sér stað frá 1958.
Ég vil ekki nota orðiö breyting
heidur vötur. Er þetta ekki erf-
itthjá ykkur? Ég sé að fólk hef-
ur talsverð auraráð, en ég frétti
um miklar erlendar skuldir.
— Þú fæst enn við kennslu.
— Já, ég hef kennt allt fram
til þessa þó að ég sé orðinn sjö.
tugur. Ég fer að kenna aftur i
haust þvi þá tökum viö inn i
deildina 20-25 nýstúdenta i há-
skólann I Greifswald.
— Fer það fólk siðar i
kennslu?
— Yfirleitt ekki; meginhlut-
inn lærir Norðurlandamálin
vegna starfa i utanrikisþjónustu
og utanrikisviðskiptum. Þeir
sem lengra halda i náminu
leggja stund á visindastörf, en
þeir eru fáir.
— Hvernig hefur samstarfið
gengið við Halldór Laxness?
— Það gengur vel. Hann hef-
ur sagt aö ég sé eini maðurinn
sem geti þýtt á þýsku beint úr
islensku. I Vestur-Þýskalandi
þýða þeir eftir öðrum þýðing-
um. Slikt getur verið varasamt
eins og dæmin sanna. Ég sendi
Halldóri oft fyrirspurnir þegar
ég er að þýða bækur hans um
einstök orö, orðtök og setningar
og stundum spyr ég islenska
málvisindamenn. En þeir geta
ekki alltaf svarað spurningum
minum, þekkja ekki orðtökin
sem Halldór notar.
— Geturðu nefnt mér dæmi
um það?
— Hann segir einhvers staöar
að Gunnvör hafi ekki verið ,,aö
sama skapi hress við veg.” Ég
spurði þrjá háskólaprófessora
hér hvort þeir vissu hvað orð-
tækið þýddi. Enginn gat svarað
mér.
— Þú sagðir að það væri
varasamt að notast við aðrar
þýðingar — kanntu dæmi?
— Ég gæti sagt þér mörg
dæmi um raunir þýðandans —
eitt nægir: I Gerplu stendur eft-
ir Ingigerði Ölafsdóttur drottn-
ingu: ,,.... og hlógu að mér
svartbrýn gaprildi Miklagarðs,
nöktar að þindarstað, og kölluðu
að hér var komin skjaldmær
tröllaættar, og mundi bera
hafa mig mylkta.” Siðustu orðin
hafa valdið sænskum þýðanda
Gerplu erfiðleikum og varð nið-
urstaða hans sú að þýða þau svo
I sænskuna, „Man burde mjölke
hende”! Þannig sést að margt
er að varast og það er sannar-
lega ekki létt verk að þýða Hall-
dór. En það er skemmtilegt og
viðtökurnar seni bækur hans fá I
Þýska alþýðveldinu erú á-
nægjulegar.
Að lokum vildi Bruno koma
þvi á framfæri að islendingar
mættu vera duglegri að gefa út
bækur höfunda Þýska alþýöu-
lýðveldisins. Hann nefndi sér-
staklega Sjöunda krossinn eftir
önnu Seghers. Hann gat þess
einnig að þýðingar að austan á
bókum Laxness sjást ekki i
bókabúðum hér á landi og það
fannst honum miklu miöur,
Bruno Kress vonast t il þess að
koma aftur til Islands, helst að
sumarlagi, og renna fyrir fisk i
ám og lækjum. Vonandi verður
honum að ósk sinni.
Víkingur
Framhald af bls. 10
spjaldið sé aðeins tæki til að
vernda þá sjáfa í starfi, s.s. gegn
óþarfa munnpúðri. Slikt virðist
manni fremur sakleysislegt I
samanburði við þegar efnilegir
leikmenn verða að yfirgefa
ÞJÓDLEIKHÚSID
HELENA FAGRA
i kvöld kl. 20
fimmtudag kl. 20
Síðustu sýningar.
Miðasala 13.15 - 20. Simi 1-
1200.
N emendaleikhúsið
sýnir í Lindarbæ
Hlaup -
vldd sex
eftir Sigurö Pálsson.
Nemendaleikhúsið sýnir I
Lindarbæ Hlaupvldd sex eftir
Sigurð Pálsson.
Miðvikudagskvöld kl. 20:30
StlÐASTA SINN
Miðasala ILindarbæ frá kl. 17-
19 alla daga simi 21917.
völlinn og hljóta e.t.v. það slæm
meiðsli að þeir verði frá knatt-
spyrnu i lengri eða skemmri
tima.
Seinni hálfleikur var algerlega
eign Eyjamanna. Vörn Vikings
var þó sem fyrr föst fyrir og gaf
sig hvergi.
Liðsmenn IBV eru greinilega
að sækja sig eftir trega byrjun.
Er greinilegt að liðið verður ekki i
fallbaráttunni i sumar. Þeirra
bestu menn voru ólafur Sigur-
vinsson og Þórður Hallgrimsson.
Hjá Vikingi skar enginn sér-
stakursig úr frekar en venjulega.
Leikmenn voru flestir fremur
daufir, einhver þreyta farin að
gera vart við sig hjá liðinu.
Leikinn dæmdi Þorvarður
Björnsson. Tel ég ekki ástæðu til
að fjölyrða um slaka frammi-
stöðu hans.
—hól
Semja
Framhald af 16. siðu.
Ríkisverksmiðjur
Að sögn Halldórs Björnssonar
hjá Dagsbrún hefjast viðræður
um kjör starfsmanna i Rikisverk-
smiðjunum i dag. Viðræðurnar
fara fram hjá sáttasemjara og
hefjast kl. 3.
Kröfur hafa verið lagðar fram
fyrir löngu, en i stóra samninga-
þófinu voru þessir samningar
lagðir til hliðar.
Það er sameiginleg samninga-
nefnd frá öllum verksmiðjunum
sem fer með þessi mál. Að þessu
sinni er ekki vist hvort vélstjórar
verða i samfloti með hinum, en
vonir standa til þess.
Stefnt er að þvi að ljúka þessum
samningum sem allra fyrst.
eng
Píanókennarar
— organistar
Við Tónskólann i tNeskaupstað er laus
staða pianókennara. Æskilegt er að um-
sækjandi geti einnig gegnt starfi organista
i Norðfjarðarkirkju. íbúðarhúsnæði er til
reiðu.
Allar upplýsingar veita skólastjóri Tón-
skólans, simi 97-7540, og sóknarpresturinn
i Neskaupstað, simi 97-7127.
Skólafulltrúinn i Neskaupstað.