Þjóðviljinn - 06.07.1977, Page 7
Miðvikudagur 6. júli 1977ÞJÓDVILJINN — SIÐA — 7
Rétturinn til vinnu er ein tegund mannréttinda.
Og það eru líka mannréttindi að fá að lifa án ótta
Njöröur
Njarðvik.
Rödd rithöfundar er rödd
fólksins — ekki valdhafa
Ávarp flutt á alþjóðlegum
fundi rithöfunda i Sofiu,
Búlgariu 7.-9. júni 1977, helg-
uðum friði og anda Helsinkisátt-
málans.
Þegar ég tek til máls á ráð-
stefnu sem helguð er friöi og
rödd rithöfundarins i þágu
friðarins, þá finnst mér ég geta
sagt meö nokkru stolti að ég til-
heyri þjóð sem á sér engan her.
Ég kem frá landi þar sem þess
er ekki krafist af ungu fólki aö
það læri manndráp undir yfir-
skini herþjónustu, sem Halldór
Laxness kallaöi einhvers staöar
siðustu leifar þrælahalds. A
Islandi lagðist vopnaburður af á
17du öld og siöasta aftakan átti
sér stað árið 1830. Á íslandi
ganga lögreglumenn óvopnaðir
og fyrir framan forsetasetriö er
enginn vörður. Með þessu er ég
ekki aö halda þvi fram aö ég lifi
i fullkomnu þjóðfélagi. Þvi fer
viðs fjarri. Og það getur ekki
heldur talist réttlátt þjóðfélag.
Ég geri ráð fyrir þvi að flestir
hér inni geri sér ljóst að auð-
valdsþjóðfélag er ekki fullkomið
þjóöfélag. Með þessu er ég ekki
heldur að segja að ég sé stoltur
af eða stuöningsmaöur þeirrar
rikisstjórnar sem fer með völd i
landi minu. En ég er stoltur af
þvi að geta sagt að islendingar
eru friösöm þjóð.
tsland á sér langa sögu. Þar
var stofnað riki árið 930 en sjálf-
stæði þess rikis glataöist 1262 er
tsland komst undir norsk og
siðar dönsk yfirráð. Og frelsið
endurheimtum við ekki á ný
fyrr en 1918. I þessu felst að við
háðum langt frelsisstriö. Það
var ekki háð með sverðum eða
spjótum. Ekki heldur með
byssum. Það var háð með
orðum. Orð eru hin venjulegu
viðurkenndu vopn islendinga.
Og ég get fullvissaö ykkur um
aö þau geta orðiö mjög
hættuleg. Þó kemur ekki oft
fyrir að þau drepi fólk. En þau
geta frelsað heila þjóð. Og þau
búa einnig yfir miklum áhrifa-
mætti eins og öllum rit-
höfundum ætti að vera ljóst. A
Islandi hefur jafnan verið talið
óskynsamlegt að reita skáld til
reiði, þar sem orö þeirra eru
álitin búa yfir miklum kynngi-
krafti. Ég get nefnt ykkur dæmi
um þetta. Við eigum ágæta
skáldkonu sem er upprunnin frá
norðvesturhluta landsins, eyöi-
legum og hrikalegum lands-
hluta sem nefndur er Horn-
strandir. Hún var flutt þaöan
þegar hún frétti að til stæði aö
halda miklar flotaæfingar á
vegum Atlantshafsbanda-
lagsins undan ströndum æsku-
stööva hénnar. Hún orti kvæöi
þar sem hún særði öfl
náttúrunnar gegn þessu fyrir-
hugaða hernaðarbrölti. Það var
prentað, og þegar natóflotinn
birtist skali á ofsaveöur svo að
æfingarnar fóru með öllu út um
þúfur. Slikur getur máttur
orðsins orðið.
Ég sagöi áöan að frelsisstrið
okkar hefði veriö háð með
orðum. Af þvi leiddi aö lýst var
yfir ævarandi hlutleysi að
fengnu fullveldi 1918. 1 fólst að
enginn islendingur skyldi
nokkru sinni hefja vopn gegn
nokkurri annarri þjóð. Þvi
miður hefur þessari fögru yfir-
lýsingu ekki veriö framfylgt til
fulls. lsland var meðal stofn-
enda Atlantshafsbandalagsins
1949 og bandariskar herstöðvar
hafa verið á Islandi siðan 1951.
Þetta harma ég mjög. Ég hef
verið þeirrar skoðunar að við
hefðum átt aö virða aö fullu
friðarhefö islensku þjóöarinnar.
Að viö gætum þannig sýnt heim-
inum dæmi þjóöar sem trúir
ekki vopnum. Vegna þess að sú
er sannfæring min, að friður riki
ekki fyrr en menn hafa lagt
vopnin frá sér. tslendingar bera
ekki vopn. En þvi miður er
Island nú orðiö hluti hernaðar-
bandalags. Þvi verðum við
sjálfir aö breyta.
Vopnin sem við berum eru
vopn orðsins. Og okkur er það
öllum ljóst að þau vopn geta átt
sér hvassa egg. Þess vegna eru
rithöfundar ekki alltaf eftirlæti
valdhafa. Rödd rithöfundarins
er i eðli sinu rödd fólksins ekki
rödd valdhafanna. Kunnur rit-
höfundur sagöi einhverju sinni
aö mikið skáld væri eins og
önnur rikisstjórn i landinu. Og
hann bætti þvi við, að af þessari
ástæðu kynnu rikisstjórnir oftar
að meta litil skáid en mikil
skáld Og þar sem við erum öll
rithöfundar hlýtur persónulegt
tjáningarfrelsi að vera okkur
afar hugleikið, og i anda
helsinkisáttmálans hljótum við
að leggja þunga áherslu á
þennan rétt. Þess vegna getum
viö ekki horft þegjandi á þegar
rithöfundum er bannað aö birta
verk sin eða varpað i fangelsi
fyrir þá sök eina aö þeir tjá
skoðanir sem valdhöfum fellur
ekki i geð. Og viö vitum mæta-
vel að þetta gerist enn þann dag
i dag i mörgum löndum heims.
Og viö megum ekki gleyma
þessum ógæfusömu starfs-
bræðrum okkar þegar viö
komum saman á ráðstefnu sem
er helguð friði. Vegna þess að
friður getur ekki rikt nema
menn hafi rétt til að tjá hugsan-
ir sinar og skoðanir óttalaust.
Raunar er friður óhugsandi
nema ótti mannsins hverfi. Ótti,
hverju nafni sem hann nefnist,
er andstæða friðar. Ef þú óttast
að þú getir ekki unnið og fram-
fleytt sjálfum þér og fjölskyldu
þinni, þá rikir ekki friöur i
hjarta þlnu. Rétturinn til vinnu
er ein tegund mannréttinda. Og
það eru lika mannréttindi að fá
að lifa án ótta. Og grundvöllur
þess er að sjálfsögðu friður.
Þess vegna skulum viö öll
skuldbinda okkur til að vinna i
þágu friðarins, til að nota vopn
okkar, orð okkar, i baráttunni
fyrir grundvelli allra mannrétt-
inda, fyrir friöi.
Bilaleigan Geysir
margfaldar sam-
böndin viö umheim-
ínn:
Inter-Rent
með 40
þúsund
A fundi Alþýðubandalagsins á Fáskrúösfirði. ólafur Gunnarsson fram
kvæmdastjóri i Neskaupstað tekur til máls.
og Þvottárskriður fyrir 45 milj-
ónir. Þriðja stærsta fram-
kvæmdin er ný brú á Kolgrimu I
Suðursveit meö fjárveitingu upp
á 38 milj.
A Fáskrúðfirði er eitt traust-
asta vigi Alþýöubandalagsins á
Austurlandi. Þar var haldinn
ágætur fundur sem nær 50 manns
sóttu.
Á Egilsstöðum var skoðuð
Prjónastofan Dyngja sem er stórt
fyrirtæki i iönaði á austfirskan
mælikvarða. Þar er unnið á
vöktum og margar vandaðar
flikur fara þar I gegn. Nú á SIS
orðiö meirihluta I Dyngju en
fyrirtækið átti eðlilega við byrj-
unarörðugleika að striða sem nú
eru aö mestu yfirstignir að sögn
framkvæmdastjórans Armanns
Benediktssonar. Dyngja er i
stórri byggingu rétt við Fagra-
dalsbraut á Egilsstöðum þar sem
Byggingarfélagið Brúnás og
Egilsstaðahreppur eru til húsa
einnig.
Greinilegt er að gifurleg
þrengsli kreppa að starfseminni,
einkum þegar mikið af vöru er á
lager.
HFS/GFr
bifreiöar í
34 löndum
Bilaleigan Geysir, sem nú hefur
flutt starfsemi sina i ný og glæsi-
leg húsakynni I Borgartúni 24,
býður nú viðskiptavinum sinum
sambönd við bflaleigur i þrjátiu
og fjórum löndum heims. Hafa
náðst samningar milli alþjóða-
hringsins Inter-Rent og Geysis,
og er Islenska bilaleigan fuil-
trúi 34. landsins, sem bætist i
Inter-Rent keðjuna.
Benedikt Lövdahl, fram-
kvæmdastjóri bilaleigunnar
Geysis, sagöi i samtaii viö Þjv. aö
á vegum Inter-Rent væru nú
leigðar út 40 þúsund bifreiðar, en
upphaflega var fyrirtækiö stofnað
i Þýskalandi áriö 1927, og byggir
það þvi á gömlum merg og rót-
grónum. 1 kringum árið 1960 voru
kviarnar loks færðar út fyrir
Þýskaland, og hafa umsvifin sið-
an margfaldast. Er Inter-Rent nú
langstærsta bflaleiga i Evrópu.
Þjónustan, sem nú er boöin is-
lendingum, felst m.a. I þvi, að i
gegnum bilaleiguna Geysi geta
þeir leigt sér bifreiö i hvaöa Inter-
Rent landi sem er, og fengið hana
til sin út á flugvöll á þeim tima
sem óskað er eftir. Bifreiðinni má
siðan aka úr einu landi til annars
og skilja hana siðan eftir á flug-
velli i hvaða borg sem vera skal,
svo framarlega sem Inter-Rent
hefur þar bækistöðvar.
Luxembourg og Portugal eru á
Benedikt Lövdahl framkvæmdastjóri bilaleigunnar Geysis ásamt
Hjördisi Hjörleifsd., en á milli sin haida þau á plakati með nöfnum
helstu Inter-Rent borganna. Myndina tók — eik ihinum nýju húsakynn-
um.
meðal ódýrari landa i verðlagn-
ingu á bilaleiguþjónustu. Dag-
gjald (fyrir utan km. fjölda og
bensinkostnað) er kr. 1.400 isl. en
einnig er hægt aö greiöa viku-
gjaldið, ca. 23 þúsund krónur, og
er þá ekkert greitt fyrir ekinn
kilómetrafjölda Með þvi má
spara drjúgan skilding, þ.e.a.s. ef
menn hafa nennu til þess aö aka
daglega langar vegalengdir.
A bilaieigu Geysis, sem einnig
annast alla almenna innanlands-
þjónustu, starfa fimm manns.
Bflaflotinn hefur verið endur-
nýjaöur og eru engar bifreiðar
eldri neidur en árgerð 1976, og
flestar eru raunar árgerð 1977.
Skoda-merkið er I hávegum haft
hjá Geysi, og þá ekki sist nýjasta
gerðin, Skoda Amigo, árgerö
1977.
Prentvélar til sölu
Tilboð óskast i vélar og tæki Prentsmiðju
Þjóðviljans h/f, einstakar vélar eða allar
saman. Vélarnar eru til sýnis að Skóla-
vörðustig 19 eftir samkomulagi. Upplýs-
ingar i sima 17500.
Tilboðum skal skila til formanns stjórnar
Prentsmiðju Þjóðviljans h/f, Inga R.
Helgasonar, Laugavegi 31 fyrir klukkan
17.00 miðvikudaginn 6. júli 1977.
Sími Q1 QOQ
Þjóöviljans er Q