Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 6. júH 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 13
frásögu, sem hann skráði
eftir Andrési Björnssyni
bónda I Snotrunesi. b. „Ég
hef ei auðinn elskað”. Gils
Guðmundsson og Sigriður
Eyþórsdóttir lesa úr kvið -
lingum Káins.c. A reiðhjóli
um Rangárþing.Séra Garö-
ar Svavarsson flytur annan
hluta ferðasögu sinnar.
d. Kórsöngur: Karlakórinn
„Þrymur” á Húsavik syng-
ur. Söngstjóri: Ladislav
Vojta. Lúðrasveit Húsavík-
ur leikur með.
21.30 Ctvarpssagan: „Ditta
mannsbarn” eftir Martin
Andersen-Nexö. Siðara
bindi. Þýðandinn, Einar
Bragi, les (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sagan um San
Michele” eftir Axel Munthe.
Þórarinn Guönason les (6).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Þannig orti vestur-Islenska
alþýðuskáldiö Káinn. Á sumar-
vökunni I kvöld er m.a. lestur úr
kviðlingum Káins. Gils Guð-
mundsson og Sigriður Eyþórs-
dóttir lesa.
1 formála að Visnabók Káins
segir Tómas Guðmundsson
skáld m.a.:
Kristján Niels Jónsson hét
hann aö upprunalegu nafni og
var fæddur á Akureyri 7. april
1860. Hann fluttist til Ameriku
18 ára gamall og átti ekki aftur-
kvæmt til íslands. Eldri bróðir
hans, Jón Július, var kominn á
undan honum vestur og hafði
tekið sér slðara skirnarnafn sitt
að ættarnafni. Festist það einn-
ig við Kristján Níels og þau
systkin önnur og skrifaöi hann
sig aö jafnaði eftir það K.N.
Július. Varð af þeirri skamm-
stöfun nafniö Káinn og undir þvi
heiti hefur hann oröið kunnastur
beggja megin hafsins.
Fyrstu ár sln vestra dvaldist
hann I Winnipeg, en lengst átti
hann heima I Pembinahéraði i
Norður-Dakota. Stundaði hann
alla algenga sveitavinnu, sóttist
hvorki eftir auði né mann-
virðingum og dó ókvæntur og
barnlaus 25. október 1936. Er
hann grafinn I Eyfordkirkju I
grennd við Mountain og hafa
landar hans reist honum mikinn
og veglegan minnisvarða.
K.N. fór snauður að heiman,
og er það ekki umtalsvert. En
hann tók allt að einu með sér
góð fararefni, þau hin sömu og
best höfðu dugað þjóö hans um
aldir, en það voru góðar gáfur,
rtk bókhneigð og ræktarfull ást
á átthögum og feöratungu. í
báðar ættir átti hann til skálda
að telja og þó aö sjálfum muni
honum hafa þótt hjákátlegt að
ræða um köllun I sambandi við
skáldhneigð hans, var hún
Alþýðuskáldið og aöalsmaöurinn Káinn er lengst til vinstri á þessari
mynd, en með honum á myndinni eru þekktir Vestur-tslendingar,
Stephan G. Stephansson t.h. og Jónas Hall fyrir miðju.
örugglega sá ættararfur, sem
mestu réð um þá stefnu, sem lif
hans tók. Skáldlistin gerðist
rauði þráöurinn I ævi hans, hún
bætti honum upp þann
veraldarframa, sem hún tók frá
honum, og varð honum sjálfum
veganesti, sifelldlega tiltækt, en
samferðamönnunum þrotlaus
gleöigjafi. Oft hafði hann að
góðlátlegu skopi þau mál, sem
voru efst á baugi meöal landa
hans, en kvæði hans og kviðling-
ar bera augljóslega meö sér,
hversu Káinn átti rlkan og
þakksamlegan hlut i daglegu lifi
þeirra.
Aö sögn kunnugra var K.N.
strax I bernsku gamansamur og
glaðlyndur, en einnig „orðhepp-
inn og skrltinn I orðatiltækj-
um”. Þeir eiginleikar fylgdu
honum alla tiö og einkenndu
<*o
-a
■ fct t
x k ‘i iM
g\ ^
«/< & *
Leidrétting
Prentvillupúkinn var
hér á f erð í gær og móðg-
aði heimspekinginn
Nietzsche með því að
sleppa s-inu úr nafni
hans, bæði í fyrirsögn og
allri greininni. Leiðréttist
þetta hér með, en á
myndinni sést sökudólg-
urinn.
skáldskap hans öðru fremur.
Ekki er það svo að skilja, að
hann hafi látið ógert að yrkja
„alvarleg kvæði”, en það voru
samt einkum skopvísur hans og
klmnikvæði, sem lögðust mönn-
um sjálfkrafa á varir. 1 þeirri
grein varð hann I raun slikur
meistari, að hann gat Iíka neytt
skopsins til að dylja hæfilega þá
viðkvæmni, sem honum lét ekki
að flíka. Og hvort mundi ekki
þetta vera sá eiginleiki, sem
flestu fremur sker úr um lifs-
gildi alls kimnikveöskapar?
Svo er K.. lýst, að hann hafi
verið friður sýnum og hinn
glæsilegasti ásýndum, mikill á
velli, sviphreinn, djarfmannleg-
ur og gáfulegur. Hann var hvers
manns hugljúfi og hrókur alls
fagnaðar, jafnt I heimahúsum
sem á mannamótum, fyndinn,
. frjálslyndur og vlðsýnn. Hvar
sem hann fór og hverju sem
hann klæddist, bar hann yfir sér
meðfædda reisn og höföings-
brag. Og höfðingi var hann
einnig að þvi leyti, aö hann sóaði
gjöfum listar sinnar rausnar-
lega, þó aö aldrei yrði hann tal-
inn meðal höfuðskálda eða þjóð-
skálda, sem svo eru nefnd. En
kannske er staöa hans fyrir það
engu siður tvimælalaus og sér-
stæð, þvi að hann var I besta
skilningi, og hvort tveggja I
senn, alþýðuskáld og aöalsmað-
ur, og má hann vissulega teljast
vel sæmdur af þvi hlutskipti.
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Arni Blandon heldur
áfram að lesa söguna
„Staðfastan strák” eftir
Kormák Sigurðsson (9). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Kirkjutónlist
14.30 Miðdegissagan:
„Elenóra drottning” eftir
Noru Lofts. Kolbrún Friö-
þjófsdóttir les þýðingu slna
(15).
15.00 Miödegistónleikar. Aldo
Parisot og hljómsveit Rlkis-
óperunnar I Vin leika Selló-
konsert nr. 2 eftir Villa-
Lobos; Gustav Meier stj.
i Stokk-
hólmi leikur Serenööu I F-
dúr fyrir stóra hljómsveit
op. 31 eftir Wilhelm Sten-
hammar; Rafael Kubelik
stj.
17.30 Litli barnatiminn.Finn-
borg Scheving sér um tim-
ann.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Viðsjá. Umsjónarmenn:
Olafur Jónsson og Silja Að-
alsteinsdóttir.
20.00 islensk einsöngsiög:
Guðmundur Jónsson syngur.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur á píanó,
20.20 Sumarvaka. a. Njarð-
vikurskriður. Armann Hall-
dórsson safnvörður á Egils-
stöðum flytur fyrsta hluta
Mér liður ekki illa
og ekki heldur vel,
þvl ævin er á þrotum
og ekki gull i skel.
Ég hef ei auöinn elskað
og aldrei til þess fann;
ég er I ætt viö soninn,
en ekki hinn rika mann.
Ég hef ei -
auðinn elskað
útvarp
Auglýsing til
búfjáreigenda
á Suðurnesjum
Landgræðslugirðing hefur nú verið gerð
frá Vogum að Grindavik og er hún austan
Grindavikurvegar. Allt svæðið vestan
girðingarinnar er hér með yfirlýst land-
græðslusvæði. öll lausaganga búfjár á
þessu svæði er bönnuð.
Heimilt er að hafa búfé á afgirtum svæð-
um. Komist búfénaður út fyrir afgirt
svæði, verður honum smalað á kostnað
eigenda.
Bann þetta gildir allt árið.
Gunnarsholti, 1. júli 1977
Landgræðsla rikisins
1
Hafnarf j arðarbær
óskar að ráða menn til starfa á vélaverk-
stæði, verkefni eru blönduð, viðhald bif-
reiða og vinnuvéla, einnig smiðar.
Upplýsingar gefur verkstjóri i áhaldahús-
inu við Flatahraun simi 53444.
Laus staða
Staða hjúkrunarfræðings eða ljósmóður
við heilsugæslustöðina i Hólmavik með
aðsetri i Árneshreppi er laus til umsóknar.
Hlutastarf kemur til greina.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
5. júll 1977
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Laufásveg
Kópavog-vesturbæ
(Þjóðv.-Timinn).
TIL AFLEYSINGA:
Freyjugötu
Blönduhlíð
Drápuhlíð
Kópavogur-austurbæ
(Þjóðv.-Timinn).
ÞJÓÐVILJINN
Vinsamlegast haf.ið samband við afgreiðsluna
Síðumúla 6 — sími 81333