Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 2

Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 2
2 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 18. september 1977. NÆRINGARGILOI: Skyr Jarðarberjaskyr Efnisinnihald pr. 100g Efnisinnihald pr. 100g Prótín 13,0 G Prótín 11.0 G Mjólkursykur 2,5 G Mjólkursykur 2,12 G Sykur 0.0 G Sykur 8,0 G Mjólkurfita 0,4 G Mjólkurfita 0,35 G Kalcium 85,0 MG Kalcium 72,0 MG Fosfór 180.0 MG Fosfór 153,0 MG Járn 0,3 MG Járn 0,25 MG Vítamin A 13,0 ALÞJ.EIN. Vítamín A 11,0 ALÞJ Vitamin D 0.3 ALÞJ.EIN. Vítamín D 0,25 ALÞJ Tiamin 0,03 MG Tíamín 0,025 MG Ríboflavin Vitamín B 0,35 MG Ríboflavin Vítamín B 0,3 MG Níacín 0.1 MG Níacín 0,085 MG Askorbinsýra Vítamin C ■ 1.0 MG Askorbinsýra Vitamin C Ó,85 MG Hitaeiningar 74,0 Hitaeiningar 84,0 Haustmót Tafliélags Reykjavíkur 1977 hefst sunnudaginn 25. september kl. 14:00. Meistara-, fyrsta og öðrum flokki verður væntanlega skipt i þrjá til fjóra riðla eftir ELO-skákstigum. Tefldar 11 umferðir i hverjum riðli. Skráning i þessa riðla fer fram i sima Taflfélagsins á kvöldin. Loka- skráning laugardaginn 24. september kl. 14:00-18:00. Keppni i flokki 14 ára og yngri hefst laugardaginn lsta október kl. 14:00. Teflt á laugardögum Niu umferðir eftir MONRAD-kerfi. Þrjár umferðir á dag. Keppni i kvennaflokki hefst sunnudaginn 25. október kl. 20:00. Teflt á sunnudögum og miðvikudögum. Taflfélag Reykjavikur, Grensásvegi 46. Sími 83540 List frá Lettlandi Sýning i Bogasal Þjóðminjasafnsins á bókaskreytingum (grafik), auglýsinga- spjöldum og skartmunum frá Sovét-Lett- landi. Opin daglega til sunnudagskvölds kl. 14 — 22. MÍR Rannsóknamaður Staða rannsóknamanns á Hafrannsókna- stofnun er laus. Skriflegar umsóknir send- ist Hafrannsóknastofnuninni, Skúlagötu 4, fyrir 1. október. fff hnífs og skeidar Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir VETRARLEIKIR geta verið hættulegir Þegar fyrsti snjórinn fellur, hefst nýtttímabil í leikjum barnanna, sem oft er ekki hættulaust. Því miður hafa orðið nokkur slys hér á landi, þar sem börn hafa verið á snjóþotum, sleðum eða skíðum, en oft er hægt að koma í veg fyrir þessi slys. Við ætlum nú að nefna nokkur dæmi um vetrarvörur, sem geta or- sakað slys á börnum, ef þær eru ekki rétt gerðar eða notaðar. Langir treflar eru lika hættuleg- ir, einkum fyrir börn sem ferð- ast i strætisvögnum, en þeir geta festst i hurðunum og einnig t.d. i rúllustigum, hurðum o.s.frv. Barnaskíði Sömu reglur gilda um skiði fyrir börn og fullorðna. Gætið vel að bindingum, mörg bein- brot hafa hlotist af þvi að bind- ingarnar eru bilaðar eða ófull- komnaR Bindingar eiga ekki að vera svo fastar á fætinum, að þær gefi ekki eftir, ef skiðið fest- ist. Einnig er sérstaklega varað við litlum plastskiðum fyrir börn, með ólum, sem festa þau á fótinn. Jafnvel þótt flest nýrri skiði séu vel útbúin hvað þetta snertir, eru viða enn i notkun skiði með gömlum ófullkomnum bindingum, sem geta verið hættulegar. Snjóþoturnar eiga að vera með sæti og fót- skemil Litið hefur verið varað við snjóþotum hér á landi, en viða erlendis hefur verið mikið um þær fjallað og er fólk þá m.a. varað við að kaupa þotur með engu sæti. Það sem mestu máli skiptir þó er, að einhver fót- skemill sé á þotunum, þvi börn eiga ekkiað sitja með beina fæt- ur á þotunum, heldur bogna. Langir treflar og stórar hettur Við höfum áður varað við stóru hettunum, sem byrgja allt útsýni. Umferðarráð hefur einnig varað við þeim og bent á að hér hafa orðið slys sem rekja má til þess, að börn sjá mjög illa frá sér með þessar stóru hettur. Rúmönsk fiskisúpa Fiskisúpan frá Rúmeniu, sem þarlendir kalla Ciorba (frb. Tjorba) er sannkallað lostæti og þar að auki inniheldur hún fáar hitaeiningar og mikið af nær- ingarefnum. Reyndar er þessi dtgáfa af henni, sem hér fer á eftir, svolitið löguð tii eftir að- stæðum, en gefur upprunaiegu súpunni lítið eftir. Þetta er stór uppskrift sem ætti að duga fyrir amk. 6 manns. 1 kg af nýjum beiniausum, fiski, helst amk 3 tegundir, t.d. silungur, ýsa og lúða 2 litrar af kjúklingasoði (t.d. úr teningum) 2 stórar paprikur (helst gul og rauð) 2 stórar púrrur 2 stórir gulir laukar ólifuolia, salt, pipar, papriku- duft og ef vill hvitlaukur, edik, steinseija og graslaukur. Gerið fyrst soðið. Steikið laukinn f oliunni og hellið paprikuduftinu yfir. Setjið sam- an við soðið ásamt papriku og púrru, sem skorið hefur verið i litla bita. Kryddið og látið krauma í 15-20 mínútur. Setjið fiskbitana Ut i þegar suðutiminn erhálfnaður. Gætið þessað fisk- bitarnar sjóði ekki of lengi. Um leið og fiskurinn er settur Ut i er ediki hellt út i eftir smekk. RUmenarnota mikið af ediki, en rétt er að byrja með fáeinar matskeiðar og bæta síðan við eins og hver vill. A*ð lokum er steinselja og graslaukur klippt yfir sUpuna og hún er borinn fram strax með heitu brauði, sem dýft er út i súpuna. Fiskisúpa með grænmeti Hér er önnur fiskisúpa, sem einnig er mjög ljúffeng. 1 þorsk- eða ýsuflak 3/4 1 fiskisoö (meö teningi) 4 soönar, flysjaöar kartöflur 1 dós af niöursoönum tómötum meö safanum 1 búnt af steinselju, 1 búnt af graslauk. Hitið soðið. Látið fiskinn út i oglátið sjóða i nokkrar minútur. Setjið afganginn út i, grænmetið finklippt. Berið framm vel heitt með brauði. Frosið grænmeti Nú er rétti timinn til aö frysta grænmeti. Þeir sem ekki voru svo forsjálir að koma einhverju i jörö i vor, ættu að nota tæki- færiö að kaupa grænmeti núna til að eiga til vetrarins. Flest grænmeti er meö ódýrasta móti núna og ýmsar tegundir veröa ekki á markaðinum seinna i vet- ur. Uppskeran I ár úr görðum er nokkuð misjöfn, en flest grænmeti þarf að taka upp strax og byrjar að frjósa á nóttunni. Núna er tilvalið að kaupa búnt af steinselju, graslauk.sólselju og grænkáli, (ef það sprettur ekki úti i garði) og frysta i litl- um plastpokum. Siðan er græn- metið muliðbeint úr frystinum út á brauð, i sósur, súpur, salöt o.fl. Kjötmeira grænmeti, t.d. blómkál, er best að sjóða ör- stutta stund og frysta siðan. Sveppi er hins vegar tilvalið að frysta hráa og óþvegna. Þeir eru svo þvegnir frosnir og skornir i sneiðar áður en frostið er alveg farið úr þeim.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.