Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 5

Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 5
Sunnudagur 18. september 1977. ÞJÓÐVILJINN — S1ÐA5 af er/endum vetivangi Raudsokkahreyfing: sigrar og vonbrigdi P sfkKonan tr s\ro {<dfy , móíurfe^, -fxusíe^ , prnfiu-s , fcónustíujþcÁ Úr þýsku jafnréttisblaði — mikiö hefur áunnist i aft breyta viöhorfum, en... Þaö hefur vonandi ekki fariö fram hjá mönnum að hin nýja jafnréttishreyfing, sem einatt er kennd við rauða sokka, hefur ver- ið eitt merkilegasta og jákvæð- asta áhrifaafl siðari ára. Um þessar mundir er hreyfingin enn að vinna ný lönd og fara þá mest- ar sögur af eflingu hennar i hin- um kaþölsku, rómönsku löndum Evrópu sunnanverðrar, þar sem kúgun kvenna hefur verið með af- brigðum hatrömm. A sama tima gera margvisleg vandamál vart við sig i y msum þeim löndum þar sem jafnréttishreyfingin á sér lengri sögu og hafði þegar náð verulegum árangri. Hér er til að mynda átt við Bandarikin og Norðurlönd. Þvi þaö er^viða svo að rauð- sokkarhafai senn sigrað og beðið ósigur. Þær hafa hrundið af stað róttæku endurmati á flestum sviðum lifs kvenna og hiutverka- skiptingar milli kynja. En hlutverk kvennahreyf- ingar nú um stundir er og mjög langt frá þeirri óskamynd sem frumkvöðlarnir gáfu sér. Og þvi er mikið rætt um vonbrigði i hreyfingunni, dofa, ágreining um markmið og leiðir — og þarf reyndar engan að undra sem minnist vona og vonbrigöa sem risið hafa með verklýðshreyf- ingu, samvinnuhreyfingu, sósial- iskum flokkum. Nefnum til dæmis Bandarikin. Menn horfa þar ekki lengi á sjón- varp án þess að heyra að hugtök jafnréttishreyfingarinnar hafa náð föstum sessi i allri umræð- unni. Vertfö leikhúsanna hefur ráðist af verkum um kvenna- vandamál. Hundruð af „kvenna- plötum” hafa runnið út. Enginn hrekkur lengur við af þvi að sjá konur i „karlaverkum”. Lögregla og heilbrigðisþjónusta státa af nýrri og betri meöferð nauðgun- armála. En á sama tima sleppur Carter forseti frá kosningaloforðum sin- um um „fjórum-fimm sinnum fleiri konur i æðstu stöður” með þvi að setja konur i aöeins 13% af 300 helstu embættum stjórnar sinnar. Upp hafa risið öflugar hreyfingar gegn fóstureyðingum og gegn breytingartillögu við stjórnarskrána sem átti að tryggja jafnrétti kynja. Sjálfsgagnrýni. Og um sömu mundir má lesa i timaritum allmikinn flaum greina I timaritum sem innihalda sterka sjálfgagnrýni rauðsokka af ýmsum litbrigðum. Sylvia Raginer kvartar yfir þvi, að eftir að jafnréttishreyfingin var viður- kennd „i húsum hæf” hafi verið búin til og haldið á lofti Imynd kapitaliskrar athafnakonu sem sinnir efnahagslegri velgengni sinni einni. Suzanne Gordon hefur áhyggjur af þvi að I kvennahreyf- ingunni hefur orðið vart tilhneig- ingar til að afneita kynlifi og enn aðrir höfundar hafa af þvi áhyggjur i hve miklum mæli ein- mitt hin bandariska hreifing (miklu frekar en annarsstaðar) hefur lokað sig inni i lesbisma, hugsjón kvennaiéta. Enn aðrir höfundar (t.d. Naomi Weisstein og Heather Boot), hafa af þvi mestar áhyggjur aö endurteknar klofningssprengingar i kvenna- samtökunum hafi svipt þau földa- þáttöku. Þessu er að sönnu mót- mælt með tilvisun til aö allmikill fjöldi stofnana hefur komist á laggirnar — kvennabankar, fórtureyöingamiðstöðvar, stöðv- ar fyrir konur sem nauðgað hefur verið, barnaheimili, listahópar, bókaverslanir kaffihús og fleira tengt hreyfingunni. En þar með fylgja sjálfgagnrýnar athuga- sendir um að þessar stofnanir séu samt eins og vinjar i eyöimörk sem hafi raunverulega þýðingu fyrir aljtof fáar konur. Kerfið er slóttugt Sendimaður Information ræddi þessi efni nýlega m.a. við rit- stjóra vinstrisinnaðs jafnréttis- bíaðs, Beverly Fisher og Alexa Freeman. Þar var m.a. að þvi vikið, að,,kerfið” hefur einatt tekið furðu ljúfmannlega við kröfum jafnréttishreyfingarinnar — en um leið gætt þess að breyt- ingarnaryröu mest a yfirborðinu. Hér fara á eftir nokkur tilsvör úr þessu samtali: Spurt er hvort konur I valda- stöðum muni haga sér rétt eins og karlar. Svarið er já — þær geta það og munu gera það nema að róttækar rauðsokkur efli aðra meðvitund um vandamálin sen- við getum mótað þróunina met þvi að ganga inn i umbótahreyf- ingarnar. Konur geta breytt samfélaginu á grundvelli þeirra eiginleika sem við höfum i krafti þess að vera konur. Arþúsundum saman höfum við, vegna þess að við vor- um mæður, risið undir þeim verð- mætum sem nákomnust eru. Konur skila til næstu kynslóða siðferðilegum verðmætum, hefö- um samhjálpar. Og þetta eru verðmæti sem við eigum að hafa með i f ör til hverrar þeirrar stöðu sem við tökum okkur. Það eru stofnanirnar sem verða að breyt- ast, þvi þærgeta ekkilagað sig að slikum verðmætum — þær eru byggðar á gildum sem karlar hafa mótað og eru allt önnur. Þegar konur fallast á gildismat stofnanna verða einnig þær and- stæðingar okkar. Verðmæti og vald. Vandamálið sem viö höfum ekki leyst er þetta: hvernig má frelsa konur undan hefðbundnu hlutverki i fjölskyldu og hjóna- bandi án þess að hin jákvæðu verðmæti sem konan geymir fari forgörðum. Ef við breytum stofn- unum þá breytist og þetta hlut- verk. En gildismat okkar á ekki aö breytast, heldur ber aö koma þessum verðmætum áleiðis með þeim hætti, að þau móti bæði karla og konur. Þau skulu verða þau verömæti sem mestu ráða — án þess að sópa burt þvi sem karl- ar hafa til framlags. Hér er átt við gildi eins og sjálfstraust og þrótt sem konum hefur veriö neit- að um,en þæreiga að ná tökum á. Viðverðum aðskilgreina upp á nýtt hugtakið vald. Vald á að merkja hæfileikann til aö gera hlutina, framkvæma.en ekki vald yfir einhverjum. Meirihluti kvennahreyfingar- innar lætur sér nægja að setja sér þau markmið að kenna körlum að kúga ekki konur og að koma eins mörgum konum og unnt er til valda. Við teljum það sé eðli valdsins sem á að breyta. Við viljum fá konur til að skilja, að þvi fer fjarri að konur séu ónæm- ar fyrir áhrifum valdastofn- ananna. Pólitikin. Menn hafa mikið þrætt um það hver sé i raun eðlislægur munur kynja. Má vera að kvennahreyf- ing sé alls ekki svarið? Má vera við eigum aö kveðja hana og snúa aftur til hinnar sósialisku hreyf- ingar, þvi aö þrátt fyrir allt sé stétt merkilegri vettvangur en kynferði? En ef við h'tum til þeirra landa, þar sem sósialiskar byltingar hafa gerst þá verður ljóst, að við viljum djúpstæðari breytingar en þar verða. Einnig þar er kynferði og f jölskyldu beitt i þágu pólitisks eftirlits. Það ermargur vandi sem steðj- ar að kvennahreyfingunni. Sá skilningur sem yfirvöld og fyrir- tæki hafa — að þvi er sýnist — sýnt kröfum kvennahreyfingar- innar, hefur orðið til þess aö sum- irróttækir hópar hennarhafa ein- angrastenn meir. Verulegur hluti yngri kynslóðarinnar hefur sætt sig við ástandið eins og það er — konur geta i reynd náð starfs- frama og veriö efnahagslega óháðar. Hér er enn sett á dagskrá spurninginum stétt. Kannski get- ur miðstéttarkona lifað tiltölu- lega farsælu lifi i dag. Það eru hinar fátækari og ver launaðri konur i verklýðsstétt sem ekki hafa bætt stöðu sina svo neinu nemur. Hagskýrslur sýna, að margar konur eru i reynd ver settar i dag en þær voru fyrir 10- 20 árum. Og hvað sem liður skyn- samlegri meðferð nauðgunar- mála, þá hefur ekki dregiö Ur þvi ofgeldi sem konur sæta. Það er litill plástur á sárin að láta sér nægja að benda á nokkra ákveðna syndaseli meðal karla.... Hættur einangrunar Frá Bandarikjunum skulum við sem snöggvast bregða okkur yfir til Danmerkur. 1 nýlegu viðtali kvartar Suzanne Giese, atkvæða- mikil i Rauðsokkahreyfingu og höfundur útbreiddrar bókar, „Derfor Kvindekamp”einnig yfir þvi, að þrátt fyrir ýmsa ágæta hluti sem gerðir eru, sé deyfðyfir pólitisku frumkvæði kvennahreyf- ingarinnar. Til dæmis sýnist hún ekki búa yfir kraftí til að skipu- leggja öfluga herferð gegn þvi atvinnuleysi sem mest bitnar á konum. Sjálfgagnrýnar athugasemdir Súzanne Giese um starfshópa Rauðsokkahreyfingar eru um margt athyglisverðar. Hún segir á þá leið, að margt af þvi sem fram fer i starfshópum, frum- einingum hreyfingarinnar, sé einskonar lækning. Menn ræða saman, finna hliðstæður i reynslu sinni af kúgun kvenna til þess að komast að sameiginlegum skiln- ingi og leita að leiðum til persónu- legrar frelsunar undan þessari kúgun. En Suzanne Giese óttast að um leið gerist það, að þetta starf, þessi samvera verði um leið að „lækna” konur af reiöi þeirra, stuðla að aðlögun þeirra við það sem er. Hreyfingin er, segir hún, i of rikum mæli klúbb- ur sem leggur firnalega áherslu á samveru „systra” i sjálfu sér. Hún segir ennfremur, að kvenna- hreyfingin hafi reynt að skapa nýja vitund kvenna og að mörgu leyti náð langt. En, bætir hún við, þar eru efnahagslegar aðstæður sem hafa skapað hlutverk kynj- anna og þá kúgun sem berjast skal gegn. Það tekst ekki með vit- und, skilningi á þessum aðstæð- um einum saman. Astandið breytist aðeins með baráttu við hinar efnalegu forsendur sjálfar. Hvað um vinstriflokka? Þar með sýnist hin danska rauðsokka að beina umræðunni að samtvinnun kvennahreyfingar og pólitiskra flokka á vinstri armi. En að sjálfsögðu hlýtur hún þá að minna á misjafna Suzanne Giese: Þaö gengur ekki of vel að berja upp hjá þeim rót- tækustu. Alexa Freeman: Þaö er eöli valdsins sem þarf aö breyta. BEVERLY Fisher: Margir ein- blina á þaö aö koma konum 1 valdastöður reynslu af sliku samstarfi. Hún tekur það fram, að konur hafi reynt að fylgja eftir málum jafn- réttishreyfingarinnar i öllum þeim þrem vinstriflokkum sem teljast standa til vinstri við sósialdemókrata (DKP.VS og SF) — en þær hafa mætt mikilli andstöðu, gott ef ekki beinum fjandskap á stundum. Þau dæmi eru reyndar ekki bundin við Danmörku eina, langt þvi frá. Hin baráttuglaða jafnréttishreyfing á Italiu hefur margar sögur að segja af von- brigðum þeirra kvenna sem hafa reynt að láta að sér kveöa i verk- lýðshreyfingunni eða hinum öfl- uga kommúnistaflokki PCI. Samt er það svo að t.d. italskar konur hafa i auknum mæli gengið i PCI einmitt á undanförnum mánuð- um. Um hliðstæða þróun væri erfitt að tala i Bandarikjunum, sem áðan var að vikið, vegna þess hve aumir pólitiskir vinstriflokk- ar eru þar. En margt er það i f rá- sögnum af sjálfgagnrýni hinna úmsu hópa jafnréttishreyfingar sem bendir til þess, aö þrátt fyrir mörg ljón i vegi muni framtið hennar i vaxandi mæli tengt hin- um róttækari armi verklúðs- hreyfingar i hverju landi. AB tók saman.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.