Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 6

Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. september 1977. RAGNAR ARNALDS: m^^^mmmmmmm^^^mmm^^mm^mm^^mmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmKmmmmm^mmmi^mmmmm Enn fjölgar skattlausum fyrirtækjum í Reykjavík 493 fyrirtæki eru skattlaus og 36 borga lítinn tekjuskatt Undanfarin ár höfum við Alþýðubandalagsmenn tekið saman skrá yfir rekstrarfélög i Reykjavik, sem sloppið hafa við greiðslu tekjuskatts. Skrá þessi verður birt á Alþingi i haust, þegar þing kemur saman, eins og venja hefur verið, ásamt skattatil- lögum Alþýðubandalagsins. En niðurstaðan er þessi: Skattlausum fyrirtækjum fjölgar ár frá ári,og eru þau nú 493 i Reykjavik,en voru 483 i fyrra. Stórfyrir- tækjum í þessum hópi hefur þó fjölgað meira en heildartalan segir til um, þvi að samanlögð velta þessara 493 fyrirtækja virðist vera um 69 þúsund miljónir á þessu ári, en i fyrra var veltan talin um 39 þúsund milj. kr. I þetta sinn var kannaö, hve mörg fyrirtæki eru nærri skatt- leysismörkum, þ.e. greiöa minna en 100.000 i tekjuskatt.og reyndust þau vera 236 með samanlagða veltu um 10.400 milj. kr. A það skal minnt, að þessar töl- ur ná aðeins yfir fyrirtæki i Reykjavik og aðeins þau, sem rekin eru i félagsformi. Fyrir- tæki, sem rekin eru i nafni ein- staklinga.eru sist færri. Auk þess eru aðeins tekin með þau fyrir- tæki, sem greiða yfir 20.000 kr. i aðstöðugjald, þ.e. hafa a.m.k. 2 miljón kr. ársveltu. Þessi lág- marksviðmiðun hefur verið hækkuð um þriðjung frá þvi i fyrra til að vega upp á móti verð- rýrnun krónunnar, svo að tölurn- ar séu sambærilegar frá ári til árs. Þróunin á seinustu 4 árum sést best af meöfylgjandi töflu: harðorð mótmæli viða að. En stjórnvöld beittu gamalkunnri aðferð til að friða fólk; nýju skattafrumvarpi var kastað fram á Alþingi og fólki talin trú um að eitthvað ætti að gerast. I 3 ár er rikisstjórnin búin að beita þeirri aðferð til að friða kjósendur að lofa bót og betrun. Hún skipar nýjar og nýjaraefndir og semur ný og ný frumvörp. En að vori þegar skattalagaumræðan hefur lekið niður i ekki neitt, er fólk orðið svo þreytt og leitt á öllu saman, að það lætur sér nægja að yppa öxl- um. Nú er rikisstjórnin búin að koma þvi svo fyrir, að álagning skatta samkvæmt nýjum tekju- skattslögum mun i öllu falli ekki sjá dagsins ljós, fyrr en eftir næstu þingkosningar. Og senni- legast verða ekki i vetur gerðar neinar breytingar á skattalögum sem máli skipta. Fjöldi Samanlögð skattlausra ársvelta félaga I i þús. Reykjavlk milj. kr. Rekstrarárið 1973 240 10 Rekstrarárið 1974 432 20 Rekstrarárið 1975 • •••••••••• 483 39 Rekstrarárið 1976 493 69 Að sjálfsögöu ber að viður- kenna að á þessari skrá eru ýmis fyrirtæki, sem eru tekjulaus af eðlilegum ástæðum. Sumum er ekki ætlað aðhafa tekjur og önnur eru hreinlega rekin með tapi. Hitt geturengum dulist, sem hefur op- in augu, að mikill meirihluti þess- ara fyrirtækja er skattlaus, þrátt fyrir verulegan dulinn hagnað, sem ekki kemur til skatts vegna ákvæða skattalaga. Ekki er ólíklegt að samanlögð velta þeirra fyrirtækja og ein- staklinga, sem reka fyrirtæki i eigin nafni, á öllu landinu og sleppa með að borga lítinn eða engan tekjuskatt, sé einhvers staðar á milli 150 og 200 þúsund miljónirkróna. Hvert er þá tekju- tap rikisins vegna hinna fárán- legu skattaákvæða, sem hleypa veltu þessa fjármagns undan tekjuskattsálagningu? Slikt verð- ur ekki reiknað með neinni ná- kvæmni, en þar er vafaiaust um allmarga miijarða króna að ræða. Þeir kunna ad þreyta laxinn Undanfarin ár hefur mikil reiöi rikt meöal fólks út af skattamál- um, og siðast liðið sumar bárust Óánægja fólks með skattalögin stafar ekki af þvi, að menn séu á móti þvi að greiða skatta. Yfir- gnæfandi meiri hluti manna er félagslega sinnaöur og veit að þjónusta hins opinbera hlýtur aö kosta mikla fjármuni. Fólk vill fá þessa þjónustu. En mönnum gremst meira en litið, að þúsund- irfyrirtækja og einstaklinga, sem mest hafa umleikis, skuli sleppa að mestu við aö greiða sinn hlut. Skattsvikin eru ekki þaö sem ergir menn mest. Menn vita sem er, aö lög verða alltaf brotin. Inn- flutningur áfengis er bannaður öllum öðrum en ATVR, og þó er alltaf talsvert áfengi sem sleppur ólöglega inn i landiö. Við fáum aldrei skattalög, sem koma full- komlega i veg fyrir skattsvik. Hitt þykir mönnum miklu verra, að I skattalögum sé urmull af ivilnunarreglum, sem geri mönn- um kleift að skjóta miklum tekj- um undan skatti með löglegum hætti. Frádráttafrum- skógurinn Þetta er kjarni málsins: Það þarf að höggva niður frádrátta- frumskóginn og afnema þær mörgu ivilnunarreglur, sem helst gera menn skattlausa. dqddqo □DOOQO dodooo D OO Doo ODD DQo OOO 000 OOOOOQ OQOOQO ddqoqo □qqoqd □ QDDqo Doaooo — jn — - FfrellPP Heimild til frádráttar vegna fyrningar er I sjálfu sér alls ekki óeðlileg. Atvinnutæki rýrna við notkun og verða úrelt með aldrin- um, en tapið sem I rýrnuninni felst er ekki fært til gjalda i rekstrinum, nema með þvi að slumpa á rýrnun atvinnutækisins samkvæmt einhverri fastri reglu. Aður en skattur er lagður á hagn- að, er eðlilegt aö lagt sé til hliðar vegna fyrninga, og liggur þá beinast við, að árleg fyrning mið- ist við endingartima viökomandi atvinnutækis. En hér á landi hafa atvinnurek- endur fengið þvi framgengt, aö eignir i rekstri eru fyrndar marg- falt hraðar en nemur eðlilegum endingartima. Almenn fyrning er allt að 15% á ári, en tii viðbótar bætist 6% flýtifyrning og óbein fyrning i hlutfalli við hækkun hyggingarkostnaöar milli ára, sem numið hefur 4-7% á undan- förnum árum. Afskriftir hafa þvi orðið hæstar 25-28% á einu ári og gildir þaðfyrningarhlutfall um öll flutningatæki, skip og bifreiðar, vinnuvélar og önnur tæki til mannvirkjagerðar, en hámark fyrninga á öðrum vélum hefur verið 2,5% lægra. Með þessum miklu fyrningarheimildum hafa fyrirtæki getað sloppið við að greiða skattat tekjum, sem nema 80-90% af andvirði viðkomandi eigna á fyrstu 4 árunum, jafnvel þótt þessum eignum sé ætlað að endast i 15-20 ár. í öðru lagi eru þess háttar ákvæði i skattalögum, sem bjóöa upp á ótrúlegan skollaleik: Ekk- ert er þvi til fyrirstöðu, að sama eignin sé fyrnd aftur og aftur af nýjum og nýjum eiganda. Með stöðugri fjárfestingu og meö þvi að skipta sem oftast um eignir geta fyrirtækin komist hjá þvi að greiða tekjuskatt um mjög langt skeið. Fyrningaákvæöin veröa einnig til þess að örva þjóöhags- lega óarðbæra fjárfestingu. Vegna stöðugrar verörýrnunar krónunnar getur komið til greina aö taka upp árlegt endurmat eigna, enda sé þá fyrningarpró- sentan i réttu hlutfalli við endingartima eigna. Hins vegar er hæpið að leyfa eiganda at- vinnutækis að fyrna þann hluta af verðmæti eigna, sem samsvarar fengnum lánum úr opinberum sjóðum. Eðlilegast væri að fyrna aðeins þann hluta eignarinnar, sem eigið fé stendur á bak viö, og einkum er sú regla sjálfsögö, ef fyrningastofninn yrði árlega hækkaður upp i hlutfalli viö verö- bólguna. „Bókhaldslegt tap” Annað aðalgatið i skattalögun- um er heimild framteljanda til að draga frá tekjum sínum bók- haldslegt tap fyrirtækis I þeirra eigu, áöur en skattur er á þá lagð- ur. Mjög auðvelt er að stofna smáfyrirtæki hér á landi og reka þau án teljandi eftiriits skattyfir- valda. Fyrir utan skollaleikinn með fyrningarákvæðin hafa menn ótal úrræði til að láta fyrir- tæki i þeirra eigu koma út með tapi á pappfrnum. Þeir þurfa ekki annað en að lauma persónulegum útgjöldum heimilisins inn i rekst- ur fyrirtækisins, t.d. bifreiða- kostnaði, kostnaði við feröalög til útlanda, vaxtakostnaði, sem raunverulega stafar af útgjöldum heimilisins (e.t.v. vegna ibúðar- kaupa) o .s .frv. og þá eru þeir ekki aðeins búnir að flytja gróðann óskattlagðan yfir til sin, heldur tekst þeim einnig að sleppa við skatt á háar tekjur, sem hugsan- lega koma úr annarri átt eða fyrir *launað starf. Margar aðrar Ivilnunarreglur mætti nefna, t.d. ótakmarkaðan vaxtafrádrátt og heimildir til að leggja fjórðung tekna félaga i varasjóð. Þessar ivilnunarreglur styðjast að visu oft við frambæri- leg rök,en mergurinn málsins er, að þær eru óhóflegar. Flatir skattar og stighækkandi Ein brýnasta breytingin á skattalögum er sú, að skattur sé miðaður við tekjur yfirstandandL árs, þ.e. staðgreiðslukerfi skatta. Núgildandi kerfi er mjög óeðlilegt og veldur fólki margvlslegum erfiðleikum. Ein helsta ástæða þess, að menn taka hóflausum hækkunum óbeinna skatta með furðu miklu jafnaðargeöi er ein- mitt sú, að þeir verða svo litið varir við það þegar þeir greiða óbeina skatta. Tekjur eru hins vegar skattlagðar ári eftir, að fólk er búið að eyöa þeim,og er þvi oft undir hælinn lagt, hvort menn eru aflögufærir um að gjalda skatt af verulegri tekjuhækkun. Að öðru leyti er skiptingin i beina og óbeina skatta á ýmsan hátt villandi. Nær jagi væri að skipta sköttum í fláta skatta og stighækkandi skatta .Flatir skatt- ar eru t.d. 10-11% útsvar og 20% söluskattur; skattar sem leggjast á tekjur og útgjöld með sömu prósentutölu fyrir alla. Tekju- skatturinn er hins vegar stig- hækkandi skattur, sem sleppir lágtekjum framhjá sér en leggst með hækkandi hlutfallstölu á hærri tekjur; þrepin eru þrjú: 20%, 30% og 40%. Mismunandi tollar á neysluvörur eftir þvi hvort um er aö ræða nauðþurftir' eða vörur sem ekki teljast til þeirra, er hins vegar annað dæmi um stighækkandi skatt. Nauö- þurftir ættu að vera skattfrjálsar að mestu, bæði sem tekjur og gjöld, og skattabyrðin þarf að hvila á þvi, sem umfram er. En tilhneigingin I þróun skatta- mála hér á landi hefur verið I gagnstæða átt: Flatir skattar hafa stóraukist, en stighækkandi skattar hafa rýrnað stórlega aö sama skapi. Þessari öfugþróun þarf aö snúa við. En það verður ekki gert, án þess að vinstri menn hafi þar um forystu. Reynslan ætti þegar aö hafa kennt mönn- um, að frá núverandi ríkisstjórn er engra breytinga að vænta, sem máli skipta.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.