Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 7
Sunnudagur 18. september 1977. ÞJÖDVILJINN — SIÐA 7
Unnt að nota
úrgangsefni tíl
framleiðslu
kjarnavopna
LOS ANGELES 14/9 Reutcr —
Bandarikjastjórn hefur fram-
kvæmt kjarnorkutilraun, sem
ieiöir það i ljós svo ekki verður
um villst, að unnt er að nota
„óhreint” plútónium, sem kem-
ur sem úrgangsef ni dr venjuleg-
um kjarnorkuverum, til að
framieiða kjarnorkuvopn.
Þessi tilraun var gerð i Nev-
ada-eyðimörk, en ekki er vitað
hvenær hún fór fram né hvern-
ig, og var henni haldið leyndri.
29. júli voru niðurstöður hennar
teknar af lista yfir hernaðar-
leyndarmál, en ekkert var þó
birt um þær að þvi sinni og var
það ekki fyrr en i dag að blaöið
„The Los Angeles Times” birti
frétt um þetta mál. Sagði blaðið
að í þessari tilraun hefði verið
sprengd einhvers konar
sprengja, sem gerð hefði veriö
úr veiku plútónlum, og heföi
orðið kjarnorkusprenging.
Ýmsir talsmenn kjarnorku-
vera, þarsem rafmagn er fram-
leitt, höfðu haldið þvi fram að
ekki væriunntað nota það veika
plútönium, sem kemur sem úr-
gangsefni úr verunum, til að
framleiða kjarnorkusprengjur,
þvi að það væri ekki nógu hreint
og I þvi væri isótóp, plútónlum-
240, sem gerði það óhæft til
slikra nota. Þessi tilraun
Bandarikjastjórnar hefur nú af-
sannað allar fullyrðingar af
þessu tagi og sýnt að þótt það
efni sem kemur frá kjarnorku-
verum sé öðru visi en þaö
plútónium sem venjulega er
notað til vopnasmfða megi vel
nota það I sprengjur. Það er þvi
ljóst að kjarnorkuver, sem not-
uð eru til rafmagnsframleiðslu,
skapa hættu á útbreiðslu kjarn-
orkuvopna. Bandarikjamenn
hafa miklar áhyggjur af þvi og
stöðvuðu þeir sölu á kjarnorku-
veri til Suður-Kóreu i fyrra, en
frakkar og vestur-þjóöverjar
hafa lýst þvi yfir að þeir muni
standa við samninga um að
selja kjarnorkuver tilPakistans
og Brasiliu þrátt fyrir mótmæli
bandarikjamanna.
Dagur dýranna
I dag 18. sept. er DAGUR
DÝRANNA. Stjórn S.D.I. notar
daginnað þessu sinni til aö minna
á villtu dýrin á islandi.
Það eiga fleiri rétt til landssetu
hér en hinir tvifættu herrar sköp-
unarverksins er kalla sig íslend-
inga og þau dýr er þessir sömu
herrar hafa sér til llfsviðurværis.
Um allt land og I sjónum um-
hverfislandiðlifir urmulldýra —
stórra og smárra. Dýr sem eru
háþróuð og önnur sem eru lágþró-
uð. Okkurmönnunum hættir til að
vanmeta það gildi sem þessi dýr
háfa og þann rétt sem þau óum-
Flugum-
ferðar-
stjórar á
Spáni fara
sér hægt
MADRID 16/9 Reuter — Spænskir
flugumferðarstjórar byrjuðu i
dag að „fara sér hægt” og fylgja
reglum út i æsar, og hugðust þeir
fækka flugferðum um helming.
Þeirhótuðu að leggja alveg niöur
vinnu ef herlögum yrði beitt gegn
25flugumferðarstjórum I Madrid.
Framhald á bls. 22
deilanlega hafa til landsins. Við
troðum meira og minna á þessum
rétti, án umhugsunar. Og þegar
hagsmunir mannanna og dýr-
anna I landinu rekast á, — hver
hefur þá sitt fram???
Við setjum friðunarlög. Stund-
um að þvier virðist dálitiö handa-
hófskennd. Við fáum gifurlega
verndartilfinningu gagnvart einni
dýrategund fram yfir aöra og
verndum hana, þá meö oddi og
egg, en reynum að eyða og helst
útrýma annarri, og erum þá ekki
ætið vönd að meðulunum.
Stundum alfriðum við ýmsar
fuglategundir, eins og t.d. æðar-
fuglinn og þá lokum við augunum
fyrir þvi að æðarkollur drukkna
hundruðum saman i grásleppu-
netum sem lögð eru á grunnsævi.
Við fóðrum svartbakinn gegndar-
laust á sorpi og fiskúrgangi með
annarri hendinni en viljum svo
eitra fyrir hann meö hinni. Og
svona má lengi telja.
Stjóm S.D.I. skorar á yfirvöld
að taka upp nýja stefnu I þurrk-
unaraðgerðum á mýrum og öðru
votlendi, þannig að aldrei verði
þurrkað upp landsvæði án þess að
nákvæmar athuganir sérf ræðinga
á lifrikinu verði látnar ráða.
EinnigskorarstjórnS.D.l.á yf-
irvöld að sorpi og fiskúrgangi
verði eytt á annan hátt en nú er,
þannig að fuglar komist alls ekki
að honum. Þá mun náttúran sjálf
sjá til þess að fjölgun þeirra helst
I skef jum.
Stjórn S.D.l. beinir þvi til
landsmanna að virða rétt villtu
dýranna i landinu og gera þeim
ekki landiö óbyggilegt.
Stjórn Sambands
dýraverndunarfélaga tslands.
Klaufskur gíraffi
WINCHESTER 16/9 Reuter —
Giraffinn Dicky i dýragarðinum i
Winchester I Englandi var heldur
óheppinn i ástamáium sinum I
gær. Þegar hann bjó sig undir að
gagna grannri, sex metra hárri
gi'raffameri, kiknaði hann i hnjá-
iiðunum og rann i splitt. Til að
auka á ógæfuna tókst honum ekki
aö komastá fætur aftur, heidur lá
hann kylliflatur við hlið merar-
innar. Starfsmenn i dýragarðin-
um urðu að blása út belgi undir
giraffanum til að koma honum á
fætur aftur, og dýralæknir gaf
honum hjartastyrkjandi sprautu.
John Knowles, dýragarðsstjóri,
sagði að giraffar væru ákaflega
viðkvæmar skepnur og þyrfti að
fara mjög varlega með þá. Þrátt
fyrir þennan klaufaskap hefur
giraffinn Dicky, sem er fimmtán
ára, ekki alltaf verið svo óhepp-
inn, og á hann marga kálfa með
þeim þremur giraffamerum, sem
eru með honum i búri.
Miklar deilur hafa verið innan vinstri bandalagsins IFrakklandi að undanförnu, og hafa kommúnistar
krafist alimikilla breytinga á „sameiginlegri stefnuskrá” bandalagsins sem fulltrúar flokkanna hafa
verið að endurskoða, en fjögur ár eru nú liðin siðan hún var samin. Aformað haföi verið að deilu-
mál flokkanna yrðu útkljáði leiðtogafundi, sem fram færi 14. september, en þá náðist ekki samkomu-
lag, og lyktaði fundinum með þvi að Robert Fabre, ieiðtogi vinstri radikaia,gekk út til að mótmæla kröf-
um kommúnista. 1 gær höfðu viðræður ekki verið teknar upp að nýju. A þessari mynd eru Francois Mitt-
errand, leiðtogi sósialista, og Georges Marchais, leiðtogi kommúnista.
Hallarmúla 2 sími 8b-
Allt ti! aö
auka Ustina
í hinni nýju teiknivörudeild Pennans Hallarmúla 2
höfum viö á boðstólum m.a.:
olíuliti, acrylliti, vatnsliti, pastelliti, Pappír í flestum geröum, ramma
striga, blindramma, pensla allskon- fyrir grafíkmyndir, dúkskuröarsett,
ar, olíur, þurrkefni, pallettur og dúk og liti.
trönur.
Sendum í póstkröfu.