Þjóðviljinn - 18.09.1977, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. september 1977.
Ylva Edlund leikur Kristin Olsoni leik-
Birnu hússtjóri
Peter Blomberg Martin Kurtén leik-
leikur Kormák vita- ur stone major
vörð
MischaHietanenleik- Anneli Makela leik-
ur bæði þýska ur Katrinu Stanton
njósnarann og leutenant
ameriskan hermann
Harry öhman gerði Göran Sjöholm leik-
ágæta leikmynd ur korpóralinn
Skjaldhamrar Jónasar
Arnasonar eru nú sýndir og
gefnir út víða um heim. I
haust hefst 3ja leikár
þeirra hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, en þeir hafa
þar verið sýndir um 150
sinnum við miklar vin-
sældir. I fyrra var verkið
sýnt í leikhúsum bæði í
Texas i Bandaríkjunum og
i Dublin á Irlandi, og nú 3.
sept. sl. voru Skjalc'hamr-
ar frumsýndir í vasaleik-
húsinu i Finnlandi við mjög
góðar undirtektir. I vetur
verður leikritið svo sýnt í
borginni Athlone á Irlandi
og á næsta ári í Nordbotten
í Svíþjóð. Þjóðviljanum
hafa borist blaðaúrklippur
og leikskrá frá Finnlandi
og verður hér sagt frá
þeim.
Islenskur leikstjóri og
vönduð leikskrá
Eyvindur Erlendsson var feng-
inn frá Islandi til að leikstýra
Skjaldhömrum.en þess skal getið.
að leikhússtjórinn, Kristin Olsoni,
er Islendingum að góðu kunnui;
hefur verið hér á landi, og fyrir 2
árum var Jörundur Jónasar
sýndur I Vasaleikhúsinu.
Leikskrá Skjaldhamra í Vasa
er mjög vönduð. Auk kynningar á
höfundi og leikstjóra skrifar
Sveinn Einarsson Þjóðleikhús-
stjóri grein um islenskt leikhús,
Eyvindur Erlendsson skrifar
hugleiðingu um efni leikritsins og
auk þess eru birt þýdd ljóð eftir
þá Stein Steinarr og Einar Braga.
Þess skal getið' að Inger Pálson
þýddi Skjaldhamra á sænsku.
Eitt þekktasta leikskáld
Finna skrifar um Jónas
Auk leikdóma hafa Þjóðviljan-
um borist viðtöl við Eyvind Er-
lendsson i finnskum blöðum og
sama dag, og frumsýningin fór
fram birtist löng ferðasaga frá Is-
landi i Vasablaðinu eftir eitt
þekktasta ljóðskáld Finna, Lars
Huldén, en hann var gestur Nor-
ræna hússins i desember 1974 og
kynntist þá Jónasi Arnasyni og
fór ma. i boði hans upp i Reyk-
Eyvindur Erlendsson fær ein-
róma lof fyrir uppfærslu sina á
Skjaldhömrum i Finnlandi
holtsdal. Grein Lars Huldén nefn-
ist Ferð með J ónasi og er krydduð
með ljóðum. 1
Eftir blaðadómum að dæma
virðast Skjaldhamrar hafa slegið
i gegn meðal áhorfenda.og það er
sérstaklega tekið fram hversu
mikiö hafi verið hlegið og klappað
meðan á frumsýningunni stóð.
Alvara þarf ekki að vera
þurr og ofstækisfull
Henry G. Gröndahl skrifaði
leiklistargagnrýni i stærsta blað
Finna, Hufvudstadsbladet, 6.
september og lofar þar verkið og
sýninguna. Hann segir ma.:
„Jónas Arnason aðhyllist ekki
afturhvarf til frumstæðrar nátt-
úru, en telur imyndunarafl, til-
finningar og snertingu við náttúr-
una nauðsynlegar. Hann lætur trú
og kærleika mynda andstæöur við
það sem Eyvindur Erlendsson
kallar „harðneskjulegt tillitsleysi
hernaðarstefnu og tæknivæðing-
ar”.
Skjaldhamrar rista ekki djúpt
en gamansemi þeirra er sannfær-
andi og sett fram á skemmtilegan
hátt undir stjórn Eyvindar Er-
lendssonar. Hún hittir betur i
mark en bitur hörð árás. Skjald-
hamrar skemmta góðlátlega, en
ekki án brodds. Þeir sýna að al-
Alla daga vikunnar
Alla daga vikunnar kemur Flugfrakt
að austan og vestan.
Að morgni næsta vinnudags Jjfca*
eru pappírarnir tilbúnir. íMprakt
Sem sagt: Með Flugfrakt alla daga
vikunnar.
FLUGFÉLAG
/SLA/VDS
LOnWBIR
vara þarf ekki nauðsynlega að
vera þurr eða ofstækisfull.
Blanda hugmyndaflugs
gamanserni og skopstæl-
ingar
Hjátrú er oft aðeins annað nafn
fyrir hefð. Islensk trú á dularfull-
ar vættir, á álfa, er sérkennilega
aðlaðandi. I Skjaldhömrum á hún
sinn stað,og Eyvindur Erlendsson
hefur náð að setja hana sannfær-
andi fram. Hin ósýnilega huldu-
kona Ingunn verður álika raun-
veruleg og aðrar persónur verks-
ins. Enginn efast um hlutverk og
tilveru álfa i Skjaldhömrum. Þeir
verða hluti hversdagsins og eru
td. uppspretta gamansamra at-
burða. Ferskleiki Skjaldhamra
sprettur úr þessari blöndu hug-
myndaflugs, gamansemi og skop-
stælingar.
Afstaða Jónasar Árnasonar til
enska hernámsliðsins er mildari
en afstaða hans til ameriskra
hermanna sem hleypa fyrsta
skotinu siðan 1877 á friðlýst fugla-
bjargið. Hann fjallar um ný-
lendusjónarmið Englendinga til
hinna „innfæddu” en skopstæling
hans verður aldrei miskunnar-
laus. Mistök Englendinga gera þá
mannlega.”
Hláturinn var ekki óverö-
skuldaður
Henry G. Gröndahl fjallar siðan
um frammistöðu einstakra leik-
ara, en segir að lokum:
„Ahorfendur hlógu innilega og
lengi þegar ég sá Skjaldhamra. og
hláturinn var ekki óverðskuldað-
ur. Leikrit Jónasar Arnasonar
kemur áhorfendum i gott skap þó
að samtimis fái það þeim léttan
sting i hjartað”.
Gunnilla Lindroos skrifar leik-
dóm i Vasabladet og efast frekar
um gildi Skjaldhamra en Henry
Gröndahl, en tekur jafnframt
fram að þeir hafi slegið i gegn á
frumsýningu og áhorfendur hafi
skemmt sér konunglega og oft
gripið fram i sýninguna með
klappi.
Skjaldhamrar í Svíþjóð
Eins og áður sagði munu
Skjaldhamrar verða sýndir eftir
ár i Nordbáttensteden Regions-
teater i Rumeá i Sviþjóð,en það er
framsækið leikhús. Þegar er búið
að fá Svein Einarsson Þjóðleik-
hússtjóra til að leikstýra verkinu
og Steinþór Sigurðsson til aö gera
leiktjöld. Æfingar hefjast næsta
sumar.