Þjóðviljinn - 18.09.1977, Side 21

Þjóðviljinn - 18.09.1977, Side 21
Sunnudagur 18. september 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA21 Sköpun “tit Evu hvort ööru sprettur mismunurinn fram. - Nú stendur yfir fjórveldafundur. - Já mér finnst eins og hún sé hluti af sjáifum mér. Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL Vín í Kana þegar þraut Það má lesa á forsiðu Þjóð- viljans laugardaginn 10. sept. s.l. að sýningin Heimilið 77 hefur haft veruleg áhrif á fjölgun áskrifenda ■ blaðsins. Eflaust stafar sú fjölgun af sömu eða svipaðri ástæðu og ðli Ben. kveður um í eftirfarandi visu: Ég blöðin les og brátt það finn hvar ber er skást að tína: Þar er bestur Þjóðviljinn, með þjóðræknina sina. Með morgunpóstinum kom bréf frá Kjartani Guðjónssyni með visum eftir Sigriði Arna- dóttur á Svanavatni i Hegranesi. Hún kveður þar um hið fyrsta vinbrugg sem kunnast er: Vin i Kana þegar þraut þyrstum lýð til nauða, drottinn best það bæta hlaut og bruggaði svartadauða. A bannárunum var sagt að ýmsir fetuðu i fótspor frelsar- ans og breyttu vatni í vin. Kannski hefur það gerst i Skagafirði, að minnsta kosti var það Lúðvik Kemp á Sauðárkrók sem kvað: Þessi landi er þrisoðinn af þeim sem verkið kunni og sýnist vera samboðinn sveitamenningunni. Verið getur að landabruggið hafi eitthvað drýgt tekjur þeirra sem þá iðju hafa stundað t.d. i sveitunum, sem vist hefur ekki verið vanþörf á, svo tekjulágir sem bændur segjast ætið verið hafa og séu enn. Sigriði Arna- dóttur á Svanavatni finnst það svolitið skritið og kveður um tekjur láglauna bænda: Að hirða aura, en kasta krónum, kunna bændur, skritnir þeir. Lélegt bú hjá litlum flónum, lifið strit og ekkert meir. Geldar kýr, graslitil býli, glaðir bændur, skritnir þeir, Lömbin smá fá lélegt skýli, launin frelsi, og ekkert meir. Grundin titrar, vélar vagga. vaskir bændur, skritnir þeir, hirða grænan bagga og bagga uns búin þrjóta, og ekkert meir. Sigríður hefur nokkuð við aðra framleiðsluþætti að athuga: Ef þorskar hverfa af þorska miðum, þjóðin hefur smáu að eyða. Þorskar hrópa: Þorskinn friðum, svo þorsk við fáum aftur veiða! Sigriður hyggur, að hamingjan komi ekki með auðnum, og kveður: Ekki sést að auðurinn auki mesta gleði. Eflaust verst er ágirndin, er þá flest I veði. Af visum Sigriðar að dæma er ekki trúlegt það sem stendur i þessari visu hennar: Ég er að verða elliær, ógn er þung sú byrði. Það sem ég sagði og gerði i gær er gleymt og einskis virði. Að minnsta kosti er ljóðsálin hennar Sigriðar ung, svo að hægt er að segja: Ei þig hrelli elli þung, enn er mikils virði, að sungið getur sálin ung söngva úr Skagafirði. AJP. Það var Skagfirðingurinn Stephan G. Stephansson sem kvað: Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað. Vinur aftansólar sértu, sonur morgunroðans vertu. Sólarlandaferðir eru nú mjög i tisku, það er að segja hjá þeim sem hafa efni á slikum reisum, en allmargir eru þeir sem ekki hafa neina löngun til þeirra ferða, þeirra á meðal er Stein- grimur Daviðsson frá Blöndu- ósi. Hann segir: Suðurlöndin sumir dá, svið með gylltum rósum. Ekki þangað er min þrá frá is og norðurljósum. Þó skammdegið komi, er Steingrimur i sátt við sitt um- hverfi og segir: Veik er trúin, vonin björt, vöxtur tærra linda. Nótt þó komi svöl og svört, senn mun roða á tinda. Silfrinu á gólfið grýtti. Já sumir meta það ekki mikils, t.d. Kolbeinn Högnason, Kollafirði. Hann sagði: Sárast raun þá sist ég met, silfur mitt að þrjóti. Þegar best mér lifið lét lék ég mér að grjóti. Nú i byrjun september mán- aðar snjóaði i fjöll, en það hefur gerst fyrr. Það eru tvö eða þrjú ár siðan Ingþór Sigurbjörnsson kom út að morgni þriðja september og sá þá nýfallinn snjó i Esjunni, og hafði um það að segja þetta: Árla risinn út ég lit, ekki eru sjónir friðar, nú er Esjan orðin hvít ofan í miðjar hliðar. Brúnir hvessa Ægir er andar þungt i vörum. Svona er þriðji september, sumarið er á förum. Það hefur áður fennt i fjöll, farið hregg um grundir. Þó höfum við eignast öll ótal gleðistundir. Þó að hylji fannir fjöll, fjúk i lofti og geði, við skulum halda áfram ö 11 okkar vonargleði. Ingþór fór svo til vinnu sinn- ar. Þar var hann spurður hvern- ig honum liði. Hann svaraði: Löngum ég við Ilfið siæst, litt þó safnist auður. Ef að ég við ekkert fæst, er ég verri en dauður. Kliðar lækur við stein. Bald- vin Jónsson skáldi kvað: Straumur reynir sterkan mátt, stiflum einatt ryður. Lækur hreini kvakar kátt kaldan steininn viður. Skin á gull þó skarn við liggi. Þetta er gamalt máltæki og á viða við, lika i daglegu máli, eða eins og Una Jónsdóttir i Sól- brekku segir: Þó að finnist fánýtt hjal fróðum úr að vinna, er þó sagt að orða val i þvi megi finna. Á sömu lund hefur Bólu-Hjálmar hugsað: Viða til þess vott ég fann, þó venjist tiðar hinu, að Guð á margan gimstein þann, er glóir I mannsorpinu. 1 siðustu Visnamálum, þ.e. þann 1. september, var óskað eftir botni við visuhelminginn: Frystihúsin falla snauð fátt er þeim til .... Þeim sem botna vildu var gef- ið tækifæri til að ráða siðasta orðinu i þessum fyrrihluta, þ.e. frjálst val um rimorðið. Það er Magnús á Barði sem hefur skilað sinum hluta og vill hafa visuna þannig: Frystihúsin falla snauð, fátt er þeim til vina. Einkaframtak á I nauð útvið náströndina. Eða er þetta sem koma skal? Einkaframtaks koma kvöld, knúð er það til bana. Út við náströnd nepja köld næðir um forstjórana. AJP. • u Blikkiðjan Ax Ásgaröi 7, Garðabæ l 1 W önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur i hverskonar blikksmíði. [ Gerum föst verötilboö A | SÍMI 53468 timi J| Þjóðviljans >C 1 <_< < er U ■ ^

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.