Þjóðviljinn - 18.09.1977, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 18.09.1977, Blaðsíða 23
Sunnudagur 18. september 1977. ÞJóÐVILJINN — 23 SIÐA kompan Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Heimsku lögregluþjónarnir Einu sinni var lítil stelpa sem beið við gang- braut. Hún var á leiðinni yfir, en þá kom bíll ak- andi. Hún hélt að hann mundi stoppa, en svo var ekki. Lögregluþjónn var þar rétt hjá og stöðvaði manninn: ,,Veistuekki að það á að stoppa við gang- braut?" Maðurinn sagði: „Ég hef aldrei séð lögguna stoppa við gangbrautir." „Hvaða vitleysa, hún stoppar alltaf. Þú átt að borga sekt fyrir þetta." Og hann þurf ti að borga sekt. Seinna er þessi sama stúlka á leið yfir gang- brauþþá kemur lögreglu- bíll þjótandi. Mamma stelpunnar hafði sagt að löggur stoppuðu alltaf fyrir fólki og stúlkan treysti því, að löggan mundi stoppa, svo hún gekk yfir, en löggan bjóst ekki við þessu og keyrði á stelpuna. Fjöldi fólks f lykktist að og meðal þess var maður- inn sem borgaði sektina. Hann ruddist fram og sagði: „Hver stoppaði ekki núna við gangbraut- ina?" Og síðan gekk hann burt. Þegar stelpan var búin að jafna sig var hún send fyrir rétt. Hún sagði að mamma sín hefði sagt að löggurnar stoppuðu fyrir fólki og hún hefði treyst þessum orðum. „ Ég man líka eftir því, þegar einn maður þurfti að borga sekt og nú heimta ég sekt fyrir þetta." Hún sagði líka: „Treystið aldrei lögg- unni, að hún stoppi fyrir fólki." Eitt er víst, að í alvör- unni stoppa þeir aldrei fyrir manni, að minnsta kosti ekki fyrir mér. Guðrún Jóhanna Jónsdóttir, 11 ára. Flókagötu 56, Reykjavlk. Maður með stiga Myndina teiknaði Sune Kehlet handa Kompunni þegar hann» var hérna á alheimsþingi Esperantista i sumar. Þó Sune væri ekki nema 5 ára talaði hann reiprennandi þrjú tungumál og esperantó var hans fyrsta mál. Myndin hans á að minna okkur á það, að myndin er tjáningartæki og það er hægt að teikna það sem maður vill segja. „Myndmálið” er alþjóð- legt. KROSSGATAN J5b5 V/NNSLl VÉL Krossgáta Kompunnar er létt. Annað hvort er orð eða myndskýring. Þar sem mynd er, á að finna nafnorð sem á við myndina og það er alltaf í nef nifalli. Þar sem orð er ritað í skýringarreitinn á að finna annað orð sömu merkingar. Annars stað- ar á síðunni er lausnin prentuð á hvolfi. BANN- AÐ AÐ KIKJA STRAX! e|Á oi 'I-16 S J?d F '!LUJ9 C '?t Z 'MPfS i :U9JQ9i •jne £i '|o Zl 'f!9| LL 'uÁtu 6 'P 8 J? L 'J?t 9 'ed|Oþs l :u?J?T n|p6ssoj>| p usnei HVADA NAFN <=ö LESTU ÚRMWDUNUM 9 Leikrit GAGALIA læsir sig úti Leikendur: Gagalía, Ommi og Mamma. Svið: íbúð í blokk. Gagalia: Ommi, eigum við að rífa peningana hennar mömmu, þá getur hún ekki farið í bíó? (Þau fara að rífa peingana). Ommi: Vá! Mamma á sko mikið af peningum. Við skulum skilja svolitið eftir svo við fáum mat. (Mamma kemur inn.) Mamma: Krakkar mínir, farið þið nú að sofa. (Lítur niður) Hvað eruð þið búin að gera við peningana? Gaglía: Rífa þá svo þú getir ekki farið í bíó. (Mamma þrífur pening- ana af þeim) Mamma: í bælið með ykkur og það strax! (Seinna um kvöldið) Mamma: Gagalía, farðu að sofa. Gagalia: Og byggja kofa. Hvernig á að byggja kofa? Mamma: Þú átt að fara að lúllu bía. Gagalía: Ég kann ekki að lúllu bía . Kenndu mér það. Mamma: Það er sama og að sofa. Farðu nú að sofa og þá máttu byggja kofa á morgun. Gagalia: Nei, þá verð ég búin að gleyma þessu. Mamma: Nei, ég skal muna það með þér (Mamma fer að sofa.) Gaglía: (Kallar nokkuð hátt) Ommi, komdu niður. Mamma: (Rumskar) Nei, Ommi kemur ekki niður. Hann verður kjurr uppi. Gaglía: Ommi komdu. Mamma: Nei, Ommi verður kjurr uppi. Gaglía: Niður. Ma m ma : Þetta gengurekki lengur. Ommi kemur ekki niður. Gagalía: (hvislar). Ommi, bíðum þangað til mamma sofnar. Ommi: O.K. (Mamma sofnar) Gagalia: Ommi, komdu niður (Mamma vaknar) Mamma: Fær maður engan svefnfrið (Tekur inn svefnpillur) Ommi: Núgetég komið niður. Gagalia: Flýttu þér (Ommi stígur á hausinn á Gagaliu og klöngrast nið ur úr efri kojunni) Gagalía: Ái, þú þarf ekki að stíga á hausinn á rhér. Ommi: Nú er ég kom- inn niður. Gagalía: Gefðu mömmu fleiri svefntöfl- ur. (Ommi hellir upp í mömmu sína úr töflu- glasinu , um leið f ær Gagalia sér eina pillu). Ommi: Gagalia, vakn- aðu. (Gagalia vaknar.) Gagalia: Flýtum okkur út og mundu að taka úr lás (Ommi tekur úr lás. Gagalía fer að pissa) Gagalia: Náðu í klósett- pappír. (Ommi fer inn og nær í klósettpappir en skellir í lás þegar hann kemur út) Gagalia: Þú skelltir í lás. Nú verðum við að hringja bjöllunni. (Þau hamast á bjöllunni. Mamma kemur til dyra og er svefndrukkin) Mamma: Hvaðeruðþið að gera úti svona seint? Ommi: Við fórum á klósettið og gleymdum að taka úr lás. Mamma: Upp í rúm með ykkur og skammist ykkar. (Þegar Gagalía er komin í rúmið kallar hún í Omma) Gagalía: Ég get ekki sofnað,' Komdu niður. Ommi: Nei, ég er svo þreyttur. Mamma: Farðu að sofa Gagalía, og ekkert vesen. Ommi kemur ekki niður. Hann er alveg að sof na. Gagalia: Allt í lagi. Góða nótt. (Nú er Gaga- lía loksins sofnuð og allt er hljótt). Endir. Agnes Ýr Þorláksdóttir, 12 ára,og Guðrún Jóhanna Jónsdóttir, 11 ára,báðar á Flókagötu 56.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.