Þjóðviljinn - 20.09.1977, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 20.09.1977, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 20. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 JÓN L. ÁRNASON HEIMSMEISTARI SVEINA í SKÁK Fyrsti íslenski heimsmeistarinn Jón L. Arnason varð á sunnudaginn heims- meistari sveina í skák. Hann er jafnframt fyrsti islendingurinn i sögunni sem hlýtur slikan titil . Árangur Jóns á mótinu er með eindæmum frábær. Hann varifararbroddi frá uppháf’i og gaf aldrei þumlung eftir. Eftir jafntefli I fyrstu skákinni kom stórkostlegur sprettur, sex næstu skákir vann hann og var þá þegar búinn að tryggja sér vinn- ings forskot. 1 8. umferð tapaði Jón svo sinni einu skák. Það var helsti keppinautur hans Kaspar- ovxv sem vann Jón og komst þar með upp við hliðina á honum ásamt bandariska þátttak- andanum i mótinu. Lokasprett- urinn virtist ekki ætla að verða sérlega léttur, mikil þreyta farin að setjast I Jón eftir hverja biðskákina á fætur annarri. En með gifurlegri seiglu og keppnis- hörku tókst honum að vinna næstu tvær skákir þannig að fyrir siöustu umferð munaði enn einum vinning milli hans og næstu manna. Menn stóðu hreinlega á öndinni af spenningi, þegar opnað var fyrir útvarpstækin á sunnudags- kvöldið. Og fögnuðurinn var gifurlegur þegar úrslitin voru til- kynnt. Nýr heimsmeistari sveina. Stórkostlegt og ógleymanlegt afrek. Þeim sem til þekkja kemur árangur Jóns ekki mikið á óvart. Fyrirfram var vitað að hann yrði einn af sigurstranglegri keppendunum og þá til grund- vallar lagður frábær árangur sem hann hefur náð við skákborðið á siðustu mánuðum, fyrst fslands- meistari 1977, siðan Norðurlanda- meistari unglinga 1977 og nú var möguleikinn á þriðja titlinum i augsýn. Og Jón stóð fyrir sinu og uppfyllti glæstustu vonir. Stór- kostlegt afrek. Til hamingju Jón! —hól Friörik og Karpov ræðast við á meðan af mælismót Max Euwes stóö I Amsterdam 1976. Friörik til móts við heimsmeistarann Friðrik ólafsson,stórmeistari i skák, mun á morgun halda út til Holiands til þátttöku i einu sterkasta skákmóti sem um get- ur Í skáksögunni. í þessu móti eru saman komnir velflestir af sterkustu skákmönnum heims og styrkleikatalan 14 sýnir að vart er hægt að halda sterkara mót. Styrkleikatalan 15 er sú hæsta og enn hefur slíkt mót ekki verið haldið. Mótið er haldið af Interpolis vátryggingarfirma i Hollandi sem hefur aðsetur i ltilum bæ, Tilburg i Mið-Hollandi. Kepp- endur i mótinu eru eftirtald- ir: A. Karpov, Sovétrikjunum, núverandi heimsmeistari I skák, U. Anderson Sviþjóð, T. Miles, Englandi, Balachov Sovétrikjunum, Gligoric, Júgóslóvakiu, V. Hort Tékkóslóvaklu, R. Hilbner, V- Þýskalandi, L. Kavalek Banda- rikjunum. G. Sosonko Hollandi og J. Timman, Holland og V. Smyslov Sovétrikjunum. „Þetta er ansi „þétt” mót sagði Friörik i samtali við Þjóð- viljann i gær, engir öruggir punktar. Ég er þvi alls óvis um frammistöðuna, gæti orðið hálf- gert happa og glappa mót. Raunar hef ég litið getaö stúderað aö undanförnu, alls- kyns hlutir að trufla mann eins og þetta FIDE-vesen, nú svo stend ég i húsbyggingu þannig að það er margt sem glepur”. „Svona happa og glappa-mót hjá mér að þessu sinni” sagði Friðrik Um verðlaunin á mótinu sagði Friðrik að þau væru á allan hátt mun betri en t.d. á mótinu i Bad Lauterberg I vetur. Fyrstu verðlaun heföu upphaflega ver- ið 9 þús. hollensk gyllini. Hins vegar fór Sovétmaðurinn Razuvajev út úr mótinu og inn kemur Smyslov sem gerir það að verkum að styrkleikatalan hækkar úr 13 i 14 sem ætti að þýða meiri verölaun. Aliir kepp- endur fá»auk vasapeninga, startgjald sem eins konar öryggisventil ef illa fer. „Þaö kom upp ansi hjákát- leg staða i Bad Leuterberg- mótinu” sagði Friðrik. „Þar voru aðeins 8 verðlaun en auk þess borgað fyrir hvern vinning en ekki fyrir jafnteflin. Fjöl- margir keppenda, þ.e. atvinnu- skákmenn sem engar aörar tekjur hafa nema verðlaun af mótunum,gerðu sér enga grein fyrir þessu atriöi fyrr en mót- inu var annaö hvort alveg að ljúka eða var lokið. Þegar ég sagði sænska stórmeistaranum Ulf Anderson frá þessu þá hreinlega fölnaði hann upp enda hafði hann ekki unnið eina ein- ustu skák, gerði 14 jafntefli og tapaði einni. Gligoric, „vinur minn”,vissi ekkert um þetta atriði fyrr en á sjálfri verð- launaafhendingunni. Hann ætl- aði eins og sannur heiðursmað- ur að halda ræðu. Þegar uppi ræðupúltiö kom, hafði honum oröið svo mikið um að ræðan var ekki nema ein eða tvær setningar. Sjónvarpsskákmót á vegum BBC og V-Þýska sjónvarpsins. Friðrik sagði að islenska sjón- varpinu hefðu veriö boðin kaup á þætti sem breska sjónvarpið BBC hefði gert i samráði við V- þýska sjónvarpið. Þetta var skákmót sem engu minni menn en Karpov, Larsen o.fl. hefðu tekið þátt I og BBC mun sýna breskum sjónvarpsáhorfendum i vetur. Til þess að gera þennan þátt enn athyglisverðari fyrir vikið kom til tals að Friörik færi utan og tæki þátt i keppninni, sem myndi þýða aukinn kostnað við þáttinn. Islenska sjónvarpiö hafi hins vegar takmarkaðan áhuga á þessu efni þannig að við Islendingar getum ekki vænst þess að fylgjast með sliku móti i vetur. -hól. Jón L. Arnason, heimsmeistari sveina I skák. Þessi mynd var tekin af honum þegar Þjóðv. átti við hann viötal áöur en lagt var uppf hina fræknu sigurför. Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands íslands: Aldrei ádur átt heims- meistara nema þegar við urdum heims- meistarar í „Það verður ekki annað sagt en að hér hafi farið eins og að var stefnt. Þetta frábæra afrek Jóns kemur mér engan veginn á óvart, hann einfaldlega uppfyllir glæst- ustu vonir. Eg þori að spá að hér sé um að ræða upphafið af mjög glæsilegum afreksferli. A 6 siðustu mánuðum hefur hann unnið þjrá eftirsótta tiltla, Islandsmeistaratitilinn, Norður- landameistaratitil unglinga og nú heimsmeistaratitil sveina. Alveg stórglæsilegt enda himinlifandi með árangurinn.” Skáksambandið mun taka dug- lega á móti Jóni þegar hann kemur heim kl. 5.30 i dag. Hvetur það skákmenn til að f jölmenna út á völl enda ekki á hverjum degi sem Islendingar fagna nýjum heimsmeistara. Reyndar höfum við aldrei unnið heimsmeistara- titil áður nema þegar undan er skilið þegar öll þjóðin varð heimsmeistari i verðbólgu. Þegar Einar var inntur eftir þvi hvort Skáksambandið myndi bjóða i einvigið, milli Spasskis og Portisch um réttinn til að skora á heimsmeistarann i skák Anatoly Karpov, sagði hann að á þvi væru hverfandi likur. Til þess þyrfti að koma meira til en sá grundvöllur sem skákhreyfingin væri rekin á þegar um slika viðburði er að ræða. Sjálfboðavinna sú sem þar um ræðir væri nokkuð sem ekki væri endalaust hægt að leggja á fólk. Skáksambandið myndi að sjálfsögöu ihuga gaum- gæfilega aliar hugmyndir sem fram kæmu varðandi þetta ein- Fridrik Ólafsson: verðbólgu vigi, en eins og staðan er i dag eru likurnar litlar að á þvi geti orðið. Holland hefur lagt fram tilboð i einvigið og Júgóslavar og Puerto Rico menn hafa lagt fram lausleg tilboð. Vitað er að Spasski sóttist eftir myndarlegri verölauna- upphæð en var til skiptanna þegar einvigið stóið milli hans og tékkans Horts. Árni Björnsson, faðir Jóns L. r Arnasonar: Ekkert kúluvarp núna „Þetta var skratti gott hjá piiti, já raunveruiega alveg stór- kostlegt. Það er svo sannarlega ekkert kúluvarp núna. Að sjálf- sögðu erum við alveg i sjöunda himni hér heima. Ég fyrir mitt leyti styð eindregið við bakið á stráknum á skákbraut hans. Hvort hann verður einhvern- timann stórmeistari skal ósagt látið, það verður timinn aö leiða i ljós. Frábær frammistaða , „Það verður ekki annað sagt heimsmeistaratitlum. Þessi sigur en að þetta sé hreinlega frábær hjá Jóni er að minu mati aöeins frammistaða hjá Jóni. Vonandi einn áfangi á leið til enn glæsi- verður það þó venjulegra fyrir legri sigurs. Eg óska honum okkur Isléndinga að taka við innilega til hamingju”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.