Þjóðviljinn - 20.09.1977, Blaðsíða 11
Meistarakeppni HSÍ: Valur-FH 21:17
Valsmenn sterkari
og stæltari
Valur sigraði FH með
21 marki gegn 17 i fyrri
leik liðanna i meistara-
keppni HSl sem hófst i
iþróttahúsinu i Hafnar-
firði i fyrrakvöld. Is-
landsmeistararnir voru
greinilega ofjarlar bik-
armeistaranna i þessum
fyrsta leik vetrarins.
Bæði liðin hafa æft vel að und-
anförnu enda er Evrópukeppnin i
handknattleik framundan. FH-
ingar eru þegar komnir I 16-liða
úrslit þar sem finnska liðið hefur
gefið báða leikina sem fram áttu
að fara iHafnarfirði. Og telja má
vist að Valúr komist einnig áfram
i keppninni og færeyska liðið
Kyndill verði þeim ekki þrándur i
götu. Tveir gamalkunnir lands-
liðsmenn eru þjálfarar liðanna,
Gunnsteinn Skúlason þjálfar
Valsmenn og öm Hallsteinsson
FH.
Nokkrar breytingar hafa orðið
hjá báðum liðum frá þvi í fyrra.
Ólafur Benediktsson markvörður
verður ekki með Val i vetur, en
hann leikur nú með sænsku liði.
Hinsvegar hafa tveir þekktir
kappar bæst i lið Valsmanna,
Bjarni Jónsson leikur nú aftur
með sinum gömlu félögum og
vafalaust verður reynsla hans lið-
inu að miklum notum. Þorbjörn
Jensson markakóngur frá Akur-
eyri hefur einnig gengið i raðir
Valsmanna, stór og stæðilegur
leikmaðir sem liklegur er til stór-
ræða i 1. deildinni.
Hjá FH er sú helsta breyting að
Viðar Simonarson verður ekki
með liðinu i vetur, en hann leikur
númeð sænsku 3. deildarliði. Þór-
arinn Ragnarsson var ekki með i
þessum leik en hann mun hafa æft
með liðinu að undanrörnu og
verður væntanlega með i vetur.
Tveir nýliðar vöktu helst athygli,
Sverrir Kristjánsson markvörður
kom tvivegis inná i leiknum fyrir
Birgi Finnbogason og stóð sig
með mikilli prýði. Hinn er Vignir
Þorláksson vinstri handarskytta,
hörku skotmaður, og þótt hann
væri óheppinn I þessum leik þá
spáiég að hann eigieftirað skora
mörg mörk fyrir FH i ' vetur.
FH-ingar byrjuðu vel Ileiknum,
skoruðu tvö fyrstu mörkin og
höfðu forystu mestallan fyrri
hálfleik, en Valsmenn jöfnuðu þó
undir lokin og var staðan 9:9 i
leikhléi. Valsmenn tóku slðan for-
ystuna strax i byrjun siðari hálf-
leiks og héldu henni örugglega út
leikinn, svo að sigur þeirra var
aldrei f hættu. Lokatölurnar urðu
21 mark gegn 17.
Meginmunur á liðunum liggur i
þvi að leikmenn Vals eru miklu
stæltari og sterkari og liðið hefur
miklu fleiri og harðari skotmönn-
um á að skipa en FH. Flestmörk-
in skoruðu Valsmenn með þvi að
brjótast igegn á miðjunni, en FH-
ingar reyndu meira að skjóta úr
hornum.oft i vonlausri stöðu.
GisliBlöndalskoraði fiest mörk
Vals, 7 mörk, og þar af 1 úr vita-
kasti. Jón Pétur skoraði fjögur
mörk og Jón Karlsson einnig fjög-
ur, þar af 2 úr vítakasti, og Þor-
björn skoraði þrjú mörk. Þessir
leikmenn eru máttarstólpar liðs-
ins.
Geir Hallsteinsson var marka-
hæstur FH-inga, skoraði 7 mörk,
þar af f jögur úr viti. FH-liðið er
tæpast nógu heilsteypt og vantar
illilega fleiri leikmenn sem geta
skorað mörk. Með meirireynslu á
Vignir þó örugglega eftir að láta
að sér kveða i þvi efni.
Tveir bestu og reyndustu dóm-
arar okkar,Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson, dæmdu
þennan leik með miklum ágæt-
um. Ahorfendur voru fáir á þess-
um fyrsta leik handknattleiks-
timabilsins sem nú er að hefjast.
-Hj.G.
Enski boltinn:
Man. City, Liverpool
og Nottingham efst
Engar verulegar breytingar
urðu á l.-deildarkeppninni ensku
um helgina. Nottingham Forest,
Liverpool og Manchester City
tróna enn á toppi deildarinnar
þótt enn sé engan veginn hægt að
ráða nokkuð i stöðuna i svo langri
og lýjandi keppni þegar allt getur
breyst á svipsundu. Þannig hefur
Manchester United misst niður
um sig brækurnar i siðustu tveim
leikjum þótt fáir séu á þvi að svo
verði áframhaldið. ÍJrslitin urðu
sem hér segir:
1. deild
Arsenal-Leicester 2-1
Birmingham-Newcastle 3-0
Bristol C.-West Ham
Country-Middlesbro
Derby-Leeds
Everton-Norwich
Ipswich-Liverpool
Man.Utd.-Chelsea
Nott.For.-A. Villa
QPR-Manch.City
WBA-Wolves
Man. City
Liverpool
Nott. For.
WBA
Everton
1. deild
6 4 2
6 4 2
6 5 0
6 3 2
6 3 1
3-2 Arsenal 6 3 1 2 7-4 7
2-1 Man.Útd. 6 3 1 2 8-6 7
2-2 Leeds 6 2 3 1 11-10 7
3-0 Wolves 6 2 3 1 9-8 7
1-1 Ipswich 6 2 3 1 4-3 7
0-1 2-0 Coventry 6 3 1 2 10-9 7
1-1 Norwich 6 2 2 2 6-10 6
2-2 Aston V. 6 2 1 3 6-10 5
Chelsea 6 2 1 3 5-7 5
QPR 6 1 3 2 8-7 5
Middlesbro 6 1 2 3 7-8 4
Birmingham 6 2 0 4 6-9 4
0 13-2 10 Bristol C. 6 1 2 3 6-8 4
0 10-2 10 Leicester 6 1 2 3 3-10 4
1 12-6 10 West Ham 6 1 1 4 7-12 3
1 12-8 8 Derby 6 0 3 3 4-10 3
2 11-6 7 Newcastle 6 1 0 5 5-15 2
.Verðlaunahafar ásamt Helga Jakobssyni, sem gaf öll verðlaun: Frá
vinstri: Júiius, Helgi, Óskar, Jón Þ. og lengst til hægri er Jóhann O.
Guðmundsson sem fór 4. braut i einu höggi.
Hörkukeppni
á Nesinu
Það var heldur betur
hörkukeppni i Jack
Nicklaus-golfmótinu
sem haldið var um
siðustu helgi á Nesvell-
inum. Bráðabana þurfti
um bæði fyrsta og annað
sæti og einnig um þriðja
og f jórða. Til marks um
hve jöfn keppnin var er
það að fyrsti maður var
með 72 punkta en tiundi
maður65 punkta, þannig
að aðeins 7 punktar
skilja að.
Það voru þeir Óskar
Sæmundsson GR og
Július R. Júliusson, sem
voru efstir og jafnir eftir
36 holurnar, með 72
punkta hver. Og það var
ekki fyrr en á 4. holu
sem úrslit fengust i
bráðabananum, sem
endaði þannig að óskar
hafði eitt högg á Július og
varð þvi sigurvegari.
Um þriðja og f jórða sæti
léku þeir Jón Þ. Hall-
grimsson NK og Gunn-
laugur Jóhannsson NK
og þar hlaut Jón Þ.
þriðja sætið.
Óskar Sæmundsson
vinnur um borð i rann-
sóknarskipinu Árna
Friðrikssyni og þegar
hann sendi þátttökutil-
kynningu i mótið til for-
ráðamanna Nes-
klúbbsins var hann
staddur 60 milur suður
af Vestmannaeyjum! Og
það var til mikils að
vinna, þvi fyrstu verð-
laun voru golfsettið sem
Jack Nicklaus skildi hér
eftir af gerðinni
McGregor VIP. Slikt
sett myndi kosta út úr
búð hér u.þ.b. 250.000,-
kr.. Jóhann Ó.
Guðmundsson vann það
afrek á laugardaginn að
fara holu i höggi á 4.
braut sem er par 4. Það
hefur ekki gerst áður, á
Nesvellinum, segja
fróðir menn.
Elías sigraði
Elias Sveinsson sigraöi i
tugþrautarkeppninni i
London um helgina. Þessi
tugþrautarkeppni var eins-
konar þriggja landa keppni
milli B-liða Frakklands og
Englands annars vegar og A-
liðs Islendinga. Elias hafði
mikla yfirburöi i keppninni
og hlaut 7363 stig. Þrátt fyrir
þennan frábæra árangur
Eliasar kom hann ekki i veg
fyrir að Islendingar rækju
lestina á mótinu. Þeir hlutu
samtals 19985 stig. Eng-
lendingar sigruðu með 20577
stig og England varð i 2. sæti
með 20068 stig.
Þróttur vann!
Þróttur tryggði sér sigur i 2.
deild með sigri yfir KA á
Akureyri um helgina, 1:1. Þetta
var hreinn úrslita leikur um sigur
i mótinu en áður höfðu bæði liðin
tryggt sér sæti i 1. deild. Sigur
Þróttar kemur fáum á óvart.
Liðið hafði tvimælalaust á að
skipa best leikandi liðinu I 2. deild
i sumar.
Meistarar Þróttar í 2. deild.
Fremri röd -frá vinstri Rúnar
Sverrisson, Halldór Arason,
Þorgeir Sigurðsson, Sigurður
Pétursson, Þorvaldur Þorvalds- -
son, Sverrir Einarsson, Páll
öiafsson, og Asgeir Arnason.
Aftari röð: Sverrir Brynjólfs-
son, Ottó Hreinsson, Daði
Harðarson, Agúst Hauksson,
Arsæli Kristjánsson, Guð-
mundur Gíslason, fyrirliði,
Haukur Andrésson, Aðalsteinn
örnólfsson, og Theódór Guð-
mundsson, þjálfari.