Þjóðviljinn - 29.10.1977, Qupperneq 1
PJÚDVIUINN
Laugardagur 29. október 1977 —42. árg. 241. tbl.
AMSTERDAM:
Auðkýfingi
rænt i gær
Enn eitt
banaslys
Enn eitt banaslysið varð i
fyrradag og að þessu sinni
austur á Selfossi. Er það 9.
dauðaslysið, sem verður i
Arnessýslu á þessu ári og hið
71. yfir landið allt. Er sú tala
vægast sagt ærið iskyggileg.
Nánari tildrög voru þau,
að verið var að vinna með
veghefli á mdtum gatnanna
Birkivalla og Hjarðarholts.
Sex ára gamall drengur var
á reiðhjóli aftan við hefilinn.
Veghefilsstjórinn hugðist
snúa heflinum við, en varð
drengsins ekki var. Varð
hann fyrir heflinum og lést
samstundis.
—mhg
Vopnasala
til Suður-
Afríku
bönnuð i
6 mánuði
28.10 Reuter — Fulltrúar vest-
rænna rikja í öryggisráðinu leit-
uðu i dag stuðnings Afríkufulltrú-
anna við tillögu sfna sem borin
verður upp i öryggisráðinu i kvöld
um vopnasölubann til S-Afriku
scm gilda á i 6 mánuði.
Tillagan er mótleikur gegn til-
lögu blakkra Afrikufulltrúa sem
gekk lengra og krafðist algers
viðskiptabanns á Suður-Afriku.
Þó fulltrúar rikja á borð við
Bandarikin, Kanada, V-Þýska-
land, Frakkland og Bretland
hafi lýst andúð sinni á aðgerðum
stjórnvalda S-Afriku gegn
blökkumönnum og andstæðingum
sinum 1 siðustu viku hafa þeir
ekki dug til að ganga svo langt.
Þeir vonast hins vegar til að
geta fengið afrikurikin til að
gangast inn á mildari refsiað-
gerðir, sem þrátt fyrir allt eru
mun harðari en vestræn riki
hafa hingað til viljað beita.
Samþykki þessarar tillögu
þýddi i raun fordáemingu á sið-
ustu aðgerðum stjórnarinnar I
S-Afriku gegn andstæðingum að-
skilnaðarstefnunnar, undirtektir
við kröfu um að pólitiskir fangar
Framhald á 14. siðu
Amsterdam. — Reutcr. — 1 gær-
morgun var einum mesta auðkýf-
ingi Hoilands rænt á götu i Am-
sterdam. Maðurinn heitir Car-
ansa og byggði ásamt föður sin-
um upp eignaveldi sitt á viðskipt-
um með paraffin og kol á eftir-
striðsárunum.
Um tiuleytið I gærmorgun varð
einhver maður i Amsterdam vitni
að þvi, er fimm menn réðust að
Caransa þegar hann gekk út úr
Continental-briddsklúbbnum i
miðborg Amsterdam. Mennirnir
tróðu honum inn i bil sem ók sem
hraðast á brott. Þegar lögreglan
kom á vettvang var þar ekkert að
fina utan veskis Caransa með
persónuskilrikjum. Vitnið sem
hringdi i lögregluna var einnig
horfið.
Getgátur eru á lofti um að Car-
ansa hafi verið rænt i þeim til-
gangi að skipta á honum og vest-
ur-þjóðverjanum Knut Folk-
erts, sem hollenska lögreglan tók
fastan i september siðastliðnum.
Folkerts var handsamaður i skot-
bardaga, þar sem hollenskur lög-
reglumaður var drepinn.
Caransa hóf að fjárfesta I hótel-
um og skrifstofubyggingum i Am-
sterdam á sjötta áratugnum og
felast eignir hans nú að mestu i
slikum fasteignum. Andspænis
þeim stað sem honum var rænt á,
stendur hið viðfræga Amstel-hót-
el, sem Caransa átti um tima á
sjöunda áratugnum.
Ársafli líklega um
1300 þúsund lestir
— sem er algert aflamet hér á landi
—meira en síldaráriö 1966
Ljóst er að heildarafli
landsmanna á þessu ári
verður vart undir 1.300.000
lestum. Eins og skýrt var
frá í Þjóðviljanum í gær
varð heildaraf linn fyrstu 9
mánuði þessa árs 1.129.087
lestir, miðað við 824.370
fyrstu 9 mánuði ársins á
undan.
Það ár varð svo heildarársafl-
inn 985.700 lestir, munurinn rúm-
lega 160 þúsund lestir og ef við
reiknum með að aflinn siðustu 3
mánuði þessa árs verði sá sami
og siðustu 3 mánuðina i fyrra
verður heildaraflinn i ár um
1.300.000 lestir sem er algert afla-
met.
Mestur heildarársafli, sem
fram til þessa hefur borist á land
á tslandi var 1.243.000 lestir árið
1966, en þá var met sildarár hér á
landi og sildaraflinn varð þá 770
þúsund lestir.
Til samanburðar þvi ef ársafl-
inn nú verður um 1,3 milj. lestir
þá var afiinn 1976 985 þúsund lest-
ir, 1975 varð hann 994 þús. lestir
og 1974 944 þúsund lestir.
Svona til gamans má bæta hér
við tölum um ársafla frá þeim
frægu sildarárum eftir strið, þá
varð mestur ársafli 1944 547 þús.
lestir og eins má nefna tölu frá
árinu 1959, 639 þúsund lestir en
bæði þessi ár var sildin burðar-
magnið i aflanum. — S.dór.
Börn og kvikmyndir
Bókavarðaifélag Islands, Fé-
lag bókasafnsfræðinga, Félag
skóiasafnsvarða ásamt kenn-
ara- og fóstrunemum sjá um
dagskrá um kvikmyndir og börn
i Norræna húsinu heigina 29. og
30. október.
1 tengslum við dagskrána
verða sýndar kvikmyndir fyrir
börn i Tjarnarbió, sem hér seg-
ir:
1 dag kl. 14 og 15.45: Lisa i
Undralandi og Atta á eyðiey. A
morguii kl. 14 og 15.45: Upp-
reisnin. Fimmtudaginn 3. nóv.
kl. 17: Vertu hress. — Aðgangur
er ókeypis.
HJALMAR VILHJÁLMSSON FISKIFRÆÐINGUR:
„Svæðinu varð að loka”
,,Það var ekki um annað að
gera, en að loka þessu svæði,
þar sem meira en helmingur
afla nótabátanna var smásfld,
sild 27 cm eða minna”, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur, er við ræddum við
hann i gær, þar sem hann var
staddur um borð i rannsókna-
skipinu Arna Friðrikssyni á
sildarmiðunum út af Suður-
landi.
Það var I gær sem fram-
kvæmd var skyndilokun á svæð-
inu milli Hrollaugseyja og Ing-
ólfshöfða 6 til 8 sjómilur út frá
landi, og það var Hafrann-
— þar sem
meira en
helmingur
aflans
var smásíld
sóknastofnunin sem lokaði
svæðinu að tilmælum Hjálmars
og félaga hans um borð i Arna
Friðrikssyni, en þeir hafa verið
að rannsaka þetta svæði undan-
farið.
Hjálmar sagði að það væri
nokkuð mikil sild á þessu svæði,
en bara of blönduð smásild til
þess að óhætt sé að leyfa veiðar.
Hann sagði að sildin útaf Suður-
landi væri magrari i ár en i
fyrra, og taldi hann ástæðuna
fyrir þvi hve illa hefur gengið að
veiða sildina i ár vera þá, að
stóra sildin hefði dreift sér
meira en i fyrra, i ætisleit.
,,Ég á hinsvegar von á þvi að
hún fari að þétta sig i torfur
hvað liður”, sagði Hjálmar.
Það stóð til að leiðangurs-
menn á Árna Friðrikssyni færu
nokkra daga á sildarmiðin en
héldu svo til loðnurannsókna
norður fyrir land, en Hjálmar
taldi vist að þeir myndu verða
lengur á sildarmiðunum en til
stóð vegna þess hve mikið virð-
ist vera þarna af smásild.
Þess má að lokum geta að
umrætt svæði er aðeins lokað
fyrir nótabátum, en 80 slikir
bátar hafa nú veiðileyfi, 200
lestir hver, en réknetabátarnir
mega áfram veiða á svæðinu.
— S.dór.
H
Hjálmar Vilhjálmsson